Morgunblaðið - 07.09.1938, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 7. sept. 1938.
HEIMILIH
Látið
blámin
tala.
Blóm og Avextir.
Hafnarstr. 5. Sími 2717.
Hvernig er stúlkan -
sem er hrókur alls
fagnaðar?
Alstaðar, í samkvæmum, í
íþróttafjelög-um, á vinnu
staðnum og hvar sem er, er
jafnan EIN, sem er hrókur
als fa^naoar.
f samanburöi viö hana ber lítið
á h i n u m, þær hverfa meira eða
minna í skug-gann hjá hemni.
Hvað veldur ?
Hvað hefir hún til brunns að
bera, sem gerir hana öðrum frem-
ur aðdáunarverða og skemtilega?
Stúlkan, sem er jafnan hrókur
als fagnaðar og alstaðar vel sjeð,
er oft og tíðum ekki sjerlega fríð
sýnum. En hún hefir ýmislegt við
sig, sem gerir liana einkar við-
kunnanlega:
★
Hún er fyrst og fremst frjálsleg og
eðlileg í framkomu, laus við alla til
tilgerð.
Hún er ekki á nátam fyrir því að
verða misskilin og dettur ekki í hug,
að þessi eða hinn sje á móti sjer.
*
Hún er glöS og ánægjuleg á svip, þó
að hún sje ekki í sjerlega góðu skapi
eða skemti sjer ekki mjög vel. Hún
veit, að fátt er hvimleiðara en fólk með
fýlusvip, eins og því dauðleiðist, en
manni geðjast ósjálfrátt vel að fólki,
sem er glaðlegt ásýndum.
★
Hún kann þá list að hlusta; tekur
vel eftir og fvlgisfc af áhuga með því,
sem affrir haf'a að segja. Þessvégna
þvkir hún skemtileg, þó að hún hafi
ekki altaf orðið sjálf.
★
Hún á það öryggi, se)n fylgir því,
að gera jafnan sitt ýtrasta í hverju
sem er, hvort sem það snertir starfið,
útlitið eða framkomu sína við aðra.
Þegar hún iðkar íþróttir, spilar bridge,
fer á skautum eða skíðum, þá getur
maður verið viss um að finna hana í
hópi þeirra, sem fremstir eru í flokki;
því að hún gerir sjer það að metnað-
armáli, að stunda það af kappi, sem
hún á annað borð tekur sjer fyrir hend-
ur.
Það Ijómar af henni. Hún ljómar
blátt áfram af hréysti og hreinlæti!
Hún er ávalt snyrtileg til fara. Það
stimir á hárið, sem er vandlega burstað
og kembt, og andlitssnyrting hennar er
Jítt áberandi og smekkleg. Hún vandar
valið á litum, gætir þess, að þeir litir,
sem hún notar, fari vel saman; og
'noti hún ilmvatn, hefir það sama angan
og andlitsduft hennar og önnur fegurð-
arlyf, svo að hún angi ekki af fleiri
ilmtegundum í einu.
★
Síðasfc, en ekki síst, er hún vel til
fara og smekkleg í klæðaburði. Þar
gætir hún þess einnig, að vanda lita-
valið; og hún er ekki smeik við að
eiga fleiri flíkur í sama lit, ef hún að-
eins veit, að sá litur fer henni hewt.. Iiún
leggur ekki aðal áherslu á að kaupa
ódýrt, heldur vandað, þar sem hún veit,
að það marg borgar sig. Og hún legg-
ur ríka áherslu á það, að kjóllinn,
eða kápan, sem hún lætur sauma fyr-
ir sig, fari vel. Kaupi hún tilbúin föt,
gætir hún þess, að kaupa aðeins föt
við sitt hæf'i, eins og þau væri ein-
niitt saumuð fyrir hana. Og hiin gleym-
ir aldrei þeinn höfuðreglu, að hafa föt
sín smekkleg en óbrotin, laus við alt
tildur.
í París
ganga stúlkurnar ekki mjög
stnttklæddar, en margar ganga
berhiifðaðar/og bursta hárið hátt
npp á höfuð.
Son}a
Um nýju hattana og nýju
hárgreiðsluna
Hjer eru nokkur sýnishorn af nýjustu hausthöttunum, teikn. af SOjSÍJU,
Frá vinstri: SPORTHATTUR úr skoteku efni. „TOQUE“-hattur með strúts-
fjöðrum. „BÉRET“- frá Schiaparelli. „TRICORN“, „þríhymingur“, skreytt-
ur fjöðrum.
Frá tískufrjettaritara vorum.
París, 12. ágúst 1938.
PAÐ væri hægt að fylla marga dálka af tískufrjettum frá
þeim tískusýningum, sem verið hafa í París undanfarið.
En í þessari stuttu grein ætla jeg aðeins að gefa alment yfir-
lit yfir hattatískuna í haust og vetur og tala nokkuð um nýju hattana.
Þeir eru svo nýstárlegir, að jafnvel nýlegir hattar virðast gam-
aldags hjá þeim.
Nýir hattar —
ný hárgreiðsla.
Hpp og fram á við — eru þeir!
Og sama er að segja um hárið.
Hver einasta sýningarstulka á
tískusýningum í Parísarborg er
með þannig hárgeiðslu, að liárið
er tekið npp í hnakkanum með
hárkambi, og lokkunum safnað
saman uppi á hvirfli. Þegar vetr-
arkápurnar koma, með háu krög-
unum, „toque“-hattarnir og litlu
,,þríhyrningarnir“ (sjá myndir),
munuð þjer sannfærast um, að
þessi fyrnefnda hárgreiðsla er
eina greiðslan, sem hæfir þeim.
★
Flestir hattarnir eru úr flóka
(filti), aðrir úr loðskinnum. Fæst
ir þeirra ganga nokkuð niður á
hnakkann, heldur er þeim tylt út
í aði’a liliðina, frain á ennið —
stundum næstum því niður að
nefi!
Aðalskrautið:
Fjaðrir off skinn.
Hattarnir eru kollháir, eða sýn-
ast að minsta kosti vera það. Oft
eru það fjaðrir eða loðskinn, sem I
„l.yfta“ Jieim upp nokkra senti-
inetra frá enni.
Fallegar fjaðrir gera hattinn
fallegan. En ef hann er hvorki
með fjöður nje öðru skrauti, er
hann hafður með því skemtilegra
sniði, svo að hann er í sjálfu sjer
nógu fallegur.
★
„Cocktail“- og kvöldhattar eru
sýndir á hverri tískusýningu.
Enda reka þeir líka smiðshöggið
á vandaðan kvöldklæðnað. Stund-
um eru þeir lítið annað en slæð-
Ur eða slör, blómavöndur eða
fjaðurskúflIl,, sem komið er fyr-
ir, eftir Jiví sem hverjum og ein-
urn þykir best henta.
Hinir háu og austurlensku vefj
arhattar (Turbans) frá TALBOT
Jiykja hátíðlegir. Þeir eru oftast
nær úr Jiykku „brókade“ eða
„lamé“. Þessir kvöldhattar eru
skemtilegir að sjá, en Jieir eru að
sjálfsögðu notaðir til skrants en
ekki skjóls.
Fegurðardrotning
Evrópu valin á föstu-
daginn kemur
Aföstudaginn kemur, hinn 9.
september, verður fegurðar-
drotning Evrópu valin, í Kaup-
mannahöfn.
Fyrir nokkru komu fegurðardrotn-
ingar • hinna ýmsu landa Evrópu til
Hafnar, og síða* var efnt til fegurðar-
samkepni í ýmsum bæjum Danmörku,
og „Ungfrú Danmörk 1938“ valin. En
á föstudaginn kemiur verður fegurðar-1
kepni þessari lokið, með veislu og
iniklum hátíðahöldum, og þá verður á-
kvörðun tekin um það, hver af hinum
fiigru þátttakendum hlýtur titilinn
„Ungfrú Evrópa 1938“.
HÚN BER AF ÖÐRUM
í KLÆÐABURÐI
j ______b
Allir tískusjerfræðingar heims-
ins eru sammála um það, að lier-
togafrúin af Kent sje ,hest klædda*
kona heimsins. Aftur á móti eru
tískusjerfræðingarnir óánægðir
með mann hennar, og nýlega
móðgaðist tískuhlað eitt á því, að
hertoginn skyldi hafa verið með
slifsi, sem var komið úr tísku
fyrir stríð!
Munið,
að til þess að ná úr ávaxta- og
saftblettum, er best að va;ta þá
strax meðan þeir eru nýir með
ediki, sítrónusýru eða sítrónusafa,
%
og iná oft alveg nudda þá úr með
einhverju af þessum efnum. Oft
dugir líka að strá salti á ávaxta
bletti og þvo þá síðan úr heitu
sápuvatni.
Seinasti i
dagur
útsfllunnar.
Nokkrar ljósar frotté-
peysur fyrir hálfvirði.
Ýmislegt fleira fallegt
og ódýrt.
LIDO
-mikroniserað púður
óviðjafnanlega
fallegt á húðinni:
Pokar 1.40, dúsir
3.50, 4.00, 4.75.
Með
er auðveldast að hafa
falleg gólf án erfiðis.