Morgunblaðið - 10.09.1938, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 10. sept. 1938.
Eitt aðal stuðningsblað
tjekknesku stjómarinnar
segir £ dag, að best sje að
segja það undir eins, að
þjóðaratkvœðagreiðsla um
það, hvort Sudetar skuli
tilheyra Tjekkóslóvakíu
eða Þýskalandi komi ekki
til mála. (FO.).
Þjóðverjar sagðir treysta
því að Bretar sitji hjá
Sudeten Þjóðverjar
taka upp samn-
inga að nýju
Mótmælafundir Tjekka
gegn frekari tilslökunum
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Kundt, fulltrúi Sudeten-Þjóðverja, lýsti yfir því
snemma í gær, að samningar milli Sudeten-
Þjóðverja og stjórnarinnar í Prag gætu haf-
ist aftur, strax og æsingarnar út af árekstrinum í Ostrava
væru hjaðnaðar, og síðdegis í gær, að samningar við stjórn-
ina myndu verða teknir upp aftur kl. 11 í fyrramálið.
En Tjekkar eru nri að missa þolinmæðina. Þeir hafa sýnt mikla
stillingu undanfarna mánuði, á meðan samningarnir hafa staðið yfir,
en síðustu atburðirnir hafa verið þeim um megn. Taugarnar eru farn-
!ar að bila.
„Daily Telegraph“ skýrir frá því í skeyti frá Prag, að vaxandi
æsinga gæti meðal þeirra, vegna heimtufrekju Sudeten Þjóðverja.
Víða eru haldnir mótmælafundir, þar sem skorað er á stjórnina að
slaka ekki til meira en orðið er. Margar verksmiðjur og sölubúðir
lokuðu, svo að starfsmenn fyrirtækjanna gætu tekið þátt í mótmæla-
fundunum.
í gær bárust dr. Hodza fimm
hundruð mótmælaskeyti.
Samtímis færist þjóðernisákafi
Sudeten Þjóðverja í aukana.
Hrópið frá Austurríki: „Ein
Volk, ein Reich, ein Fiihrer“ (ein
þjóð, eitt ríki og einn foringi)
hljómar hvar sem Sudeten-Þjóð-
verjar verða á vegi manns.
Meðal Tjekka hefir alt í einu
risið öflug andúðaralda gegn Bret-
um. Þeir segja að forustugreinin
í „The Times“ hafi leitt til þess
að Sudeten-Þjóðverjar slitu samn-
ingunum við stjórnina, en ekki
áreksturinn í Ostrava.
BORIÐ TIL BAKA.
London í gær. FU.
I opinbem tilkynningu, sem út var
gefin í Prag, er leiðrjett villandi frá-
sögn, sem víða hefir verið birt, um það,
að ríkisstjómin hefði viðurkent, að 85
hermenn hefðu sætt illri meðferð að
sumu leyti.
I tilkynningunni segir, að 83 af þess-
um 85 hermönnum hafi viðurkent, aS
þeir hafi ekki sætt illri meðferð. Her-
menn þessir voru í fangelsi í Ostrava.
Tveir þeirra segjast nafa verið barðir
og hafa þeir verið fluttir í sjúkrahús
til læknisskoðunar. Viðstaddir skoðun-
ina verða læknar af hálfu Súdeta.
Bratt major, starfsmaður bresku
sendisveitarinnar í Prag, sem sendur
var til Ostrava til þess að rannsaka at-
burðina þar, segir að fregnimar um þá
sjeu mjög ýktar.
SAMMÁLA.
Þingmenn Súdeta áttu í gær fund
með þeim þingmönnum Slóvaka, er
krefjast sjálfstjómar þeim til handa
og ennfremur með fulltrúum ung-
verska og pólska minnihlutans. Ræddu
þeir um minnihlutamálin alment og
endurskipulagnmgu ríkisins og urðu
sammála um úð fylgjast allir að mál-
um.
Wiedemann
til London?
London í gær. FTJ.
ú fregn hefir flogið fyrir, að
Hitler muni vera í þann veg-
inn að senda Wiedemann kaptein
aftur til London, til þess að fá
örugga vitneskju um afstöðu
bresku stjórnarinnar til Tjekkó-
slóvakíu.
ítalska stjórnin gaf út opinbera
tilkynningu í gærkvöldi, þar sem
hún lýsir skilyrðislausum stuðn
ingi sínum við Sudeta og Henlein.
Er þetta í samræmi við stefnuna
sem kend er við Berlín-Róm mönd-
ulinn og er ta.lið að um þetta hafi
orðið samkomulag.
VÍGGIRÐINGAR
ÞJÓÐVERJA
London í gær. FÚ.
fregn frá Köln er sagt, að vinn-
an að því að yfla víggirðingar
Þýskalands í nágrenni við borg-
ina, sje nú rekin áfram með ó-
hemju kraft.i.
« Bændur í nágrenninu fá ekki að
ferðast um nema með sjerstöku
vegabrjefi og hafa verið látnir
vinna þagnareið.
Graziani* marskálkur undir-
konungur í Abessiníu hefir af
Mussolini verið útnefndur til yf-
írlandstjóra allra ítalskra landa
í Austur-Afríku. (F.Ú.).
von Ribbentrop.
Tónleikahátfð-
inni lokið
Khöfn í gær. FÚ.
orgarstjórn Kaupmannahafn.
árborgar hafði í dag fjöl
ment boð fyrir þátttakendur í nor-
rænu tónlistanhátíðinni og aðra
gesti og fór það fram í ráðhúsi
borgarinnar.
Friðrik ríkiserfingi, sem var
verndari hátíðarinnar, flutti ræðu
við þetta tækifæri og þakkaði öll
um þátttakenduin fyrir þann skerf
sem þeir hefðu lagt til, til þess að
gera tónlistarhátíðina fagran og
eftirminnilegan atburð.
Ennfremur þakkaði hann al
mennirígi fyrir þann stórkostlega
áhuga sem hann við þetta tæki-
færi hefði sýnt fyrir lifandi tón
list á Norðurlöndum.
Stuðningur
við Hitler
Frjettaritari Agence Havas
frjettastofrínnar í Róm læt
Ur í ljós þá skoðun, að yfirlýsingu
ítölsku stjórnarinnar í gær beri
að skilja á þá leið, að ítalir vilji
að sjálfstæði Tjekkóslóvakíu sje
varðveitt, en að þeir muni stvðja
Þjóðverja ef ófriður brýst iit (sím-
ar frettaritari vor).
Japanar.
London í gær. Flr.
Því er neitað að Þjóðverjar hafi
farið fram á stuðning Japana. ef
til styrjaldar kæmi.
Sendiherra Þjóðverja í Tokíó
hefir rætt við japanska utanríkis
málaráðberrann um horfur í al
þjóðamálum, segir í þýskum og
japönskum frjettum.
Dansleikur verður haldiim í
kvöld á Hótel „Björninn“ í Hafn-
arfirði. Leikur þar hin vinsæla
Bernburgshljómsveit, sem leikið
hefir undir dansi á Eiði í sumar
og undanfarin sumur.
Hitler ekki skýrt
frá afstöðu Breta?
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær. j
SÍÐUSTU ATBURÐIRNIR í Tjekkóslóvakíu hafa
opnað augu almennings í Englandi og Frakklandi
fyrir því, að litlu má muna svo að styrjöld brjót-
ist út.
í LQNDON sitja ráðherrar.á látlaúsum ráð3tefnum. Hali-
fax lávarður fór á fund Mr. Chamberlains snemma í
morgun og aftur um miðjan dag og sat hjá honurp
til kvölds. Mikla athygli hefir vakið að Mr. Anthony
Édenj sem ekki hefir haft samband við bresku stjórri-
ina síðan hann ljet af störfum í febrúar síðastliðnum,
fór á fund Halifax lávarðar í dag og dvaldi hjá hon-
um í hálfa klukkustund.
í FRAKKLANDI hefir Daladier forsætisráðherra rætt
við Bonnet, utamíkismálaráðherra, í dag og Camp-
inchi, flotamálaráðherra. Allir sjóliðsmenn á franska
flotanum hafa verið sviftir orlofum og starfsmenn
við póst og síma. Franski Atlantshafsflotinn er hafð-
ur viðbúinn í Brest og Toulon.
í ÞÝSKALANDI ætlaði Hitler að flytja ræðu í dag í
Núrnberg fyrir kvensveitum nazistaflokksins. Þessari ræðu
var aflýst og hefir Hitler setið á ráðstefnu með von Ribben-
trop, Henlein og Franck aðstoðarmanni hans. í þýskum
blöðum er í dag rætt um nauðsyn þess 'að Tjekkóslóvakíu-
deilan verði leyst sem fyrst. „Hamburger Fremdenblatt“,
sem oft er látið birta skoðanir hinna áhrifamestu stjórn-
málamann í utanríkismálum, segir að síðustu atburðir hafi
leitt í ljós, að svo mikið djúp sje staðfest milli tvegg.ja
þjóðarbrota í Tjekkóslóvakiu, Tjekka og Sudeten-Þ.ióðverja,
að sambúð þeirra hljóti að verða erfið til lengdar. Blað-
ið minnist í þessu sambandi lauslega á þjóðaratkvæða-
greiðslu.
ÞEIR VIUA STRÍÐ
í Englandi ríkir sú skoðun, að Hitler sje alls ekki Ijóst,
hvaða afstöðu Bretar muni taka ef Þjóðverjar ráðast
með her inn í Tjekkóslóvakíu. „Daily Telegraph“ skýrir
frá því, að bresku ráðherramir hafi allan daginn í gær
haft til meðferðar skýrslu frá Sir Nevile Henderson,
sendiherra Breta í Berlín, þar sem hann segist hafa reynt
árangurslaust að sannfæra von Ribbentrop um, að Bretar
myndu berjast með Frökkum og Tjekkum, ef þýsk tjekk-
nesk styrjöld brýst út.
AÐRAR SKÝRSLUR lágu líka fyrir þar sem sagt er frá því, að
von Ribbentrop, dr, GöbbeLs og Himmler, SS-foringinn, leggi
sig fram um að telja Hitler trú um að tíminn sje hentugur til.
þess að láta til skarar skríða í austurveg og gera útþenslu-
óskir þýska ríkisins að veruleika. Því er haldið fram, að
samstarfsmenn Hitlers hafi ekki látið hann vita hver hin.
raunverulega afstaða Breta sje.
f MORGUN komst sú fregn á loft, að bresku ráðherrarnir hafi
ákveðið að biðja Sir Nevile Hendereon að fara á fund Hitl-
ers og reyna að eyða þessum röngu hugmyndum. Um miðjan
dag var símað frá Ntimberg að Hitler og Henderson hefðu
átt langt samtal, en þessi fregn var jafnharðan borin til
baka í Þýskalandi. Aftur á móti er staðfest, að Henderson
hafi rætt við von Ribbentrop utanríkismálaráðherra í morg-
un og Göring.
ÞÝSKA. BLAÐIÐ „Allgemeine Zeitung“ gerir að umtalsefni í
dag (skv. FÚ.) grein þá í ,,Times“ sem stungið var upp á
að Tjekkar tækju til athugunar hvort ekki væri rjett að láta
Sudetahjeruðin af hendi við Þjóðverja, ef öll sund lokuðust
til samkomulags. Hið þýska blað segir, að þrátt fvrir það, að
breska stjórnin hafi afneitað þessari skoðun, megi ætla að
hjer hafi komið fram skoðun háttsettra og málsmetandi
manna.
„THE TIMES“ birtir aðra forystugrein í dag, þar sem
því er enn haldið fram, að stjórnin í Prag ætti að athuga,
hvort ekki sje heppilegast að láta sudeten-þýsku hjeruöin
af hendi við Þjóðverja.