Morgunblaðið - 10.09.1938, Page 3

Morgunblaðið - 10.09.1938, Page 3
Laugardagur 10. sept. 1938. MORGUN BLAÐIÐ 3 Sílöarvertíöinni lokiö Skipin flest á iicinilexH Síldarvertíðin er úti. Allir togararnir eru hættir veiðum. önnur skip biðu veðurs á Siglufirði í gær til þess að geta haldið heimleiðis. Suðvestan stormur með úrhellisrigningu hefir verið á Sigiufirði síðan í fyrradag. Þegar veðrið lægir er búist við að nokkur skip, sem enn eiga eftir eitthvað af söltun- leyfum, fari síðustu veiðiförina. En þessi leyfi eru lítil. Allmikið var saltað á miðvikudag og fimtudag, áður en sölt- un var stöðvuð. Á miðvikudag voru saltaðar 4606 tn., þar af matjessaltað 1693 heiltunnur og 1682 hálftunnur. I reknet höfðu veiðst 2090 tn. Á fimtudag voru saltaðar 5749 tn. Þar af 2178 heiltunnur og 1692 hálftunnur, reknet 1784 tn. Afgangar af söltun fóru í SRN. Síldarverksmiðjumar á Siglufirði, Húsavík, Raufarhöfn og Sólbakka höfðu allar lokið bræðslu í fyrradag. Þær taka þó enn á móti síld, ef eitthvað berst að. | Breski flotinn norðan við Skotland | Bresku ráðherrarnir samþyktu á fundi sínum í gær, að gera ýmsar varúðarráðstafanir (símar frjettaritari vor). Breski flotinn er kominn til ófriðarbækistöðva sinna norðan við Skotland. Para þar fram æf- ingar flotans. Fjelagsdómur nærri fullskipaður » ......... ................ Samkvæmt lögum frá síú- asta þingi um stjettar- fjelög og vinnudeilur skal vera starfandi Fjelagsdóm- ur, skipaður 5 mörinum. Fjelagsdómur skal dæma í málum út af kærum um brot á lögunum, eða á vinnu- samningi. Fjélagsdómur á einnig að skera úr ágrein- ingi um skilning á vinnu- samningi o. fl. Fjelagsdómpr skal þannig skip- aður, að Hæstirjettur skipar tvo fasta menn í dóminn og tvo til vara. Auk þess tilnefnir Hassti rjettur 3 menn, en atvinnumála- ráðherra tilnefnir síðan einn þeirra tisl að taka sæti í dómnum. Lok.y sk’ipa sinu manninu hvor Yinnuveitendafjelag íslands og AJþýðusamband íslands. Lögin um stjettarf jelög og vinnudeilur öðlast gildi í dag, 10. september. Hæstirjettur hefir skipað þessa menn í Pjelagsdóm: Hákon Guð mundsson hæstarjettarritara (for seta domsins) og til vara ísleif Árnason prófessor; fastur með dómandi, skipaður af Hæstarjetti, er Gunnlaugur Briem fulltrúi í atvinnumálaráðuneytinu, og til vara Sigtryggur Klemensson cand. jurís. Þá hefír Hæstirjettur tilnefnt eftirtalda 3 menn, sem atvinnu- málaráðherra, síðan velur á milli: Lárus Pjeldsted hrm., Björn Steff- ensen endurskoðanda og Sverrir Þorbjarnarson hagfræðing. Alþýðusamband íslands hefir til nefnt Sigurjón A. Olafsson alþm. og til vara Sigurgeir Sigurjónssou 6and. jur. Tilnefning Vinnuveitendaf je lagsins er ekki væntanleg fyr en eftir nokkra daga. Úrslitaleikur II fl. mótsins i kvöld Urslitaleikur haustmóts II. fl. fer fram í dag og hefst kl. 5,30 e. h. * Eru það K.R. og Valur sem keppa til úrslita. Vinningiu' fjelagannri stando nú þannig, að K.R. nægir jaíntefli til að vinna mótið, en VaJur getur einnig unnið mótið, ef hann vinnur, K.R. Kepnin ! kvöld verður án efa spenn- andi og gaman að horfa á K.R. og Val eigast ríð, þó í II. fl. sje. Það er venja, að ekki er selt inn á kappleiki II. fl.' mótsins nema úrslita- leiki og verða menn þrí að kaupa sig inn á völlinn í kvöld, en enginn knatt- spymuvinur mun sjá eftir þeim aurum. Alls hafa borist til þessara verksmiðja 415 þús. mál. Er það tæpum 30% minna en á sama tíma í fyrra, en þá fengu þær tæp 570 þús. mál. í hitteð- fyrra bárust 328 þús. mál, eða fjórðungi minna en í ár. Taka verður tillit til þess, að verk- smiðjan á Sólbakka tók framan a£ sumrinu á móti 30 þús. málum af karfa til bræðslu, og tók ekki á móti síld fyr en síðari hluta sumarsins. DJÚPAVÍK. Á Djúpavík var bræðslu lokið í fyrra dag, eius og á Sigiufirði. Er ekki búist viö að rneiri sOd berist þanga'ö. Verksmiðjan hefir aLls brætt 135.961 mál og saltaðar hafa verið á stöðinni 9889 tunnur. Er söltunin svipuð og í fyrra, en bræðslan hefir orðið nær þriðjungi minni. í fyrra bárust verk- tsmiðjunni 198 þús. mál. HJALTEYRI. Eina verksmiðjan, sem fengi'S hef- ir meiri sfld en í fyrra er Hjalt- eyrarverksmiðjan me'ð 208.485 mál móti 189.633 málum í fyrra. Pjögur skip komu til Hjalteyrar í fyrradag, Atlantsfarið (fær.) með 87 rúál, PjöLnir 62 mál, Kyrjan Steinar (fær.) 391 mál og Ekliptica (fær.) 796 mál. Til Hesteyrar hafa borist 32.965 inál, eða rúml. helmingi minná en í fyrra (1937 : 69.642 mál). Samtals hafa Kveldúlfsverksmiðjurn- ar á Hjalteyri og Hesteyri fengið 241.450 mál á móti 259.275 mélum í fyrra eða 7—8% minna. ★ Lýsís útflutningur. Tanksldpið „Bas- sr-thound" er nú statt á Siglufirði og kstar hjá ríkisverksmiðjunum 12501 smálestir af lýsi. Nýlendukröf- urnar næst London í gær. PÚ. eneral. von Epp átti í gær viðtal við blaðamenn í Nurnberg og mælti þá meðal ann ars á þá leið, að þegar málefni Tjekkóslóvakhi hafa verið leyst muni Þýskaland taka upp nýlendu- kröfu sína með auknu afli. Hún hafi aðeins verið lögð til hliðar vegna þess, hve afstaðan til Tjekkóslóvkaín er alvarlegt mál. Engin „septem- berkepni“ i knattspyrnu Ágreiningur milli fjelaganna Oll líkindi benda til bess að ekkert verði úr „septemberkepninni<£ fyrir- hugriðu, um bikarinn, sem „Nye Danske“ gaf Val. Það er vegna ósamkomulags milli fjelaganna um fyrirkomulag mótsins, sem veldur því að bað verður ekki haldið. Vátryggingafjel. „Nye Danske av 1864“ gaf VaL.sem kunpugt er, þenna bikar og gat' Vahtr ráð- stafað bikarnum að eigin geðþótta. Ákvað stjórn Vals að gefa bikar- inn til kepni-, sem fram færi ár lega í septembfer. Skyldi kepniiini hagað þannig, að keptir yrðu þrír leikir og það fjélag, sem tapaði einu sinni væri þar .með úr leik. Bikarinn átti áð vinilast til eignar í þrjú skifti í röð eða fimm sinn- um alls. Út af þessu var e.nginu ágreiningur milli fjelaganna. Ágreiningurinn reis út af því, hvernig skifta skyldi ágóða af leikjunum milli fjelaganná.'Ágöði af mótunum skiftist þannig nú miíli fjelagaiina, a.ð tvö og tvö fje- lög sjá um mótin annað hvort ár. I sumar hafa t. d, Valur og Vík ingur sjeð um mótin og fá þau ágóða af mótunum. Næsta sumar sjá svo K. R. og Fram um mótin. I regliagerðinni' um „september- bikarinn“ var gert ráð fyrir, að peningamálunum yrði öðruvísi hagað, eða þannig, að Valur fengi allan ágóða af íeikjunum í haust. Næsta ár heldi svo það f jelag, sem vinnur bikarinn í haust, mótið og fái 40% af ágóða, en hin þrjú FRAMH. Á SJÖTTU StÐU Togararnir á ísfiskveiðar Togararnir eru nú í óða önn að búa sig á ísfiskveiðar fyrir Þýskalandsmarkað. Þrír togarar fara frá Allianee. Hann es ráðherra fór í gærkvöldi og Baldur og Kári fara í dag. Ivveldúlfstogararnir fara í næstu viku. I sænsk-ísl. frystihúsinu er unni'ð nótt og dag að því að framleiða ís fyr- ir togarana. Frá því um mið.jan sept. og fram í nóv. og stundum fram yfir áramót, vinnur frystiliúsið ár livert fvr- ir fullum kraftj við ísframleiðshi fyrir togarana. Núna liggja t. d. fyrir pantanir fyrir á annað þús. smál. Hver togari þarf 50—60 smál. Frystihúsið getur framleitt um 50 smál. á sólarhring. Olympíulsikarnir Kliöfn í gær. PÚ. að hefir nú verið endanlega ákveðið, að næstu Olympíu- leikar fari fram í Finnlandi. Ráð Þjóða- bandalagsins London í gær. P1T. áð Þjóðabandalagsins kom saman á fund í dag í Genf. Venga þess hversu horfur í al- þjóðamálum eru ískyggilegar eru utanríkismálaráðherrar Bretlands, Frakklands, Póllands, Belgíu og Rússlands, enn ókomnir til Genf. Vafðelda- sýning skáta viðOskjuhiíð '’T' il þess að gefa almenningi kost á að kynnast skáta- lífinu og um Ieið að vinna upp þann fjárhagslega halla er skátarnir höfðu á Landsmóti sínu í sumar, ætla þeir að efna til varðeldasýningar fyrsta góð- viðriskveldið eftir 12. þessa mán aðar. Varðeldarnir fara fram sunn- an undir Öskjuhlíðinni og hefj- ast kl. 8t/2. Við varðeldina verða sýfrd ýms skemtiatriði svo sem Cirk- ussýning, Neptun kemur í heim- sókn, smáleikrit sem. heitir náttföt skátaforingjans, einnig fá menn að heyra söng og fjörugan hljóðfæraslátt. Sýnd verða einnig margskonar skáta- atriði svo sem hraðtjöldun, kast með björgunarlínu, hjálþ í við- lögum og margt fleira. Staðurinn sem varðeldurinn fer fram á, verður einnig skraut lýstur með rúmlega 100 skraut- ljósum. Allir skátar og ylfingar, piltar og stúlkur, hittast í skátabúningi við Frí- kirkjuna kl. 7,30 þann dag sem var'ð- eldurinn fer fram. Verður gengið það an fylktu liði að Öskjuhlíðinni. Bæjarbúar ættu að fjölmenna á varð- Jc'd skátanna og sýna þeim, með því, við- urkeniiingarvott á hinu ágæta starfi er skátarnir ymia af hendi við æskulýð Reyk j a ví kurbæ j ar. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU 'i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.