Morgunblaðið - 10.09.1938, Side 6

Morgunblaðið - 10.09.1938, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 10. sept. 1938. 8 8 □ □ □ D D ÚR DAGLEGA LlFINU uoanoaaoacsDO aoapcoaaaaaa Guttormur J. Guttormsson skáld er á förum aftur vestur um haf — heim til sín , að honum finst. En hvemig getur maður sá átt heima annars staðar en á íslandi! Það undrast þeir, sem kyrmast honum. Þeir dást að þessu sextuga skáldi, sem aldrei hefir ísland sjeð fyrri eii í sumar, og er þó íslenskari en alt sem íslenskt er. ★ Það þyrfti langt mál til þees að lýsa skáldskap Guttorms, og enn lengra ef til vill, til þess að lýsa honum á næstu árum, tileinka sjer ljóð hans, hugsanir hans. Hann er alt í senn, skáld alvöru og glaðvœrðar, skáld nýja og gamla tímans. Hann er ótímahundinn. Gamall og nýr. Kvasði hans eiga aö lifa á vörum þjóðarinnar. ★ Jeg hitti hann snöggvast í gær. Hann spurði mig um Jón heitinn Thorodd- sen Skúlaeon. Hann hafði komið aúga á skáldskap Jóns, þó ekki væri það mikið að vöxtum sern komið hefir út eítir hann. En Guttormur mat þ'að mik- iis, og þegar hann frjetti um hið svip- lega fráfall Jóns, orti hann þessa stöku. Laufgrein þrotin .er nú af íslands skáldameiði. ' Jeg finn ilminn yfir haf upp af hennar lej$.i. Guttomvur fer víða í kveðskap sín- um. Og kýmnikvæði hans koma sum aldrei á prent, eftir því sem mjer skilst. Ein af stökum. hans er þessi: Það sem ungum lærist, í elíi verður tamt, prðshátt þann jeg vel, því sannan tel ’ann. Þeír sem voru á brjósti, að hrundum hyllast jafnt. Hinir eru gefnir fyrir pelann. Og svo er þessi meinlausa vísa: Komirðu þar sem kaffi’ er ekki á borð- um, kunnirðu’ ei við að biðja’ um það með orðum. Stattu hjá frúnni um stund án þess að tala, strjúkt ’enni nm bakið, og þá fer hún að mala. Ekki meira að sinni um Guttorm. Þeir' sem kjpnast honum gleyma hon- um ekki. * Kona í.Boigamesi spurði Asmund P. Jóhannsson hvort. það væri ekki afskap- lega erfið ferð vestur um haf. Erfiðasti áfanginn á þeirri leið, sagði hann, er f'rá Boigarnesi tá! Reykjavík- uí. Og hann veit þetfa manna best, því svo oft hefir hann farið á milli. ★ Ekki veit jeg hvort það var Asmund- ur. en einhver Yestur-íslendinguf var það, sem tók eitt sinn með sjer flösku af neftóbaki vestur um haf. Því neftó- bakið eins og það er tilreitt hjer, þvkir Islendingum viðfeidnara, en það sem fæst þar í búðum. Þegar til tollskoðunar kom þar ve’stra hirti neftóbaksmaðurinn ekki um að borga toll af tóbakinn, eða lenda í neinu rexi út af því. Tollþjónn spnrði hann hvað væri í flöskunni. Hann sagði það vera mold frá ættjörðinni, sem hann hefði tekið með sjer. Hann æjláði hana í gröf sína, svo hann gæti að nokkru leyti legið í fósturmold er þar að kæmi. Tollþjónninn dáðist, að ræktarþe.li lándans og slepti við hann flöskunni. ★ Jeg er að velta því fyrir mjer, hvort stærðfræðikennari geti nokkurntíma verið dæma-laus. Kyndara vantar á e.s. Baldur, upp< lýsingar um borð. Minningarorð um Ólaf V. Bjarnason Nú eru rúml. 2 ár (9. ágúst 1936) síðan línuveiðarinn „Örninn“ fórst fyrir Norðurlandi, með allri áhðfn, 19 að tölu, og vita menn eigi, hvernig það slys hefir að höndum borið. Eins og kunnngt er, var þetta mikla mann tjón stórt áfall fyrir marga, er mistu þar ástvini sína, og einn þeirra, er fórst, var skipstjóri ■skipsins, Ólafur Y. Bjarnason. Hann var fæddur 22. apríl 1874 að Vaðli á Barðaströnd. Voru for- eddrar hans Bjarni bóndi Pjeturs- son og kon& hans Ólína Ólafs- dóttir. Þau hjón fluttu síðar 1883 að Dufansdal þg flutti þá Ólafur með þeim þaugað. Foreldrar Ólafs voru mestu sæmdarhjón og ólu börn sín upp í guðsótta og góðum siðum, en systkini ólafs, er upp komust, voru Jörundur, næstur Ólafi að aldri, lengi skipstjóri á Bíldudal og er þar bpsettur enn, Pjetur, varð einnig skipstjóri þar og er þar heimilisfastur, nú ekkjumað- ur, og Sigríður, húsfreyja í Duf- ansdal- Öll voru bömin mjög vel látin sökum mannkosta og atgerf is og nutu mikiliar mannhylli. Ólafur sál. gekk á sjómanna- skólann hjer og útskrifaðist það- an 13. apríl 1901, giftist 1902 ljós móðnr Kristjönu Hálfdanardóttur á Bjargi í Miðfirði, en sjálf var hún ættuð úr Rauðasands hreppi, af merku fólki. Þau hjón fluttu svo til Bíldudals 1903 og dvöldu þar til 1927, er þau fluttu hingað suðui’. og var Ólafur þau árin, er hann var á Bíldndal, skipstjóri á fiskískipum þaðan, og mun oft hafa komist í hann krapp an, því þá kornu oft og einatt áhlaupaveður á veiðitímanum, en skipin fremur smá. En honurn farnaðist vél skipstjórnin, enda var hann gætinn rnaður og glöggJ ur, og sjerlega vel látinn af und- irmönnum sínum. Þau hjónin eignuðust 4 böi’nj, 3 sonu og 1 dóttur, hún dó ung, en synirnir eru alli,r uppkomnir, Bjarni elstur, hefir verið sjúkl ingur í mörg ár, var mesti efn ismaður og hvers manns hugljúfi, en misti heilsuna og er nú á spít- ala. Þráinn er vjelamaður á gufu skipi hjeðan og Sveinn tónlistar maður, mikið éfnilegir menn. Þau hjón Ólafur og Kristjaua voru mjög vel látin á Bíldudal, enda var það að vonum, því þau voru svo góðar og vandaðar mann eskjur og börnin alin upp í góð,- um siðum og sjerlega prúð. Það var því mikil raun, er mætti frú Kristjönu Hálfdanardóttur, er sorgarfregnin barst henni um hið Ólafur V. Bjamason. skyndilega slys, er orðið hafði, og missa mann sinn, einu fyrir vinnuna og elskulegan þraut- reyndan ástvin frá sjer og hún einstæðings ekkja með fárveikan son. En trúartraust hennar bar sigur, svo hún tók þessum mikla missí með aðdáanlegu trúarþreki. Hún leitaði sjer trúarstyrks í bæn inni til Guðs, sem lætur engan óbænheyrðan, er leitar lians af trúuðu hjarta og gefur þeim styrk til að bera raunirnar og leggur engum þyngri byrði á herðar en hann fær borið og gefur þeim styrk til að líta á erfiðleikana sém senda sjer af æðri forsjón, er alt á að miða að gera mann fullkomnari. Og það er mín ein- læg ósk, að frú Kristjana eigi í vændum að lifa marga hjarta daga eftir allar raunirnar, er hún hefir orðið að líða. Frú Kristjana hefir IÖngum átt við langvint lieilsuleysi að búa, en borið það með prýði og þraut seigju. Jeg vil svo þakka hinum fram- liðna vini mínum fyrir ánægju- 4eg-a viðkynningu í öll þau ár, er við vortun nábúar á Bíldudal, og .jeg náut öft ánægjulegra Stunda á liinu góða heimili þeirra hjóna, ;og bið góðan Guð að blessa hánn og (>innig bið jeg blessunar Guðs itil lianda ekkjunni og börnum þeirra. Jón Ámason. I eftirmælum, sem ort hafa ver ið eftir Ólaf heitinn, er m. a. þetta erindi: Eiginmaður, elsku faðir! ást'áf kveðju sendum vjer, upþ til þíii, í æðri heima, eilíf þar sem dýrðin er. .Ökkar' vefða ifagnaðs fundir fyr en varir Guði hjá. 0, við skulum þola’ og þreyja, þar ti! Guð oss kallar á. G. J. Hafna.rf jarðartogararnir Sviði og Júní komu í gær til að taka ís. Engin septemberkepni FRAMH. A7 ÞRIÐJU BÍÐU. fjelögin 20% hvert. Átti þetta svo að ganga á sama hátt ár hvert þangað til bikarinn væri unninn til eignar, að það fjelag, sem ynni, hjeldi mótið næst og fengi í sinn hlut 40% af ágóða. Að þessu vildu stjórnir Frarn, K. R. og Víkings ekki ganga og töldu órjettmætt að Valur fengi allan ágóða af leikjunum í haust. Voru nvi haldnir fundir í knatt- spyrnuráðinu um málið og komu fram tvær tillögur til málamiðl- unar: Fyrri tillagan kom frá fundi formanna allra fjelaganna, ásamc forseta Iþróttasambands fslands, og var á þá leið, að Valur skyldi fá allan ágóða einn í ha.ust, en næsta ár hjeldi mótanefndin (K. R. og Fram) mótið og fengi ágóða af leikjunm. Einnig átti samkvæmt þessari tillögu að breyta reglu- gerðinni þannig, uð aðeins skyldi keppa um bikarinn þrisvar til eignar, hvort sem í röð væri eða ekki. En þessari tillögu höfnuðu full- trúar Fram, K. R. og Víkings, þar sem Valur áskildi sjer enn rjett til alls ágóðans af fyrsta mótinu. Kom nú fram tillaga frá full trúa Víkings þess efnis, að fjelög- in skiftu á milli sín ágóðanum til helminga á þeim leikjum, sem þau keptu. Erlendis tíðkast slíkt fyr- irkomulag um „cup“-kepni, að fje- lög skifta ágóða til helminga af þeim kappleikjum sem þau keppa. Þannig fengju þau fjelög, sem fyrst yrðu úr leik, aðeins hálfan ágóðahluta af einum leik, en tvö bestu fjelögin, sem keptu til úr- slita, fengju tvo hálfa ágóðahluta og stærsta ágóðahlutann, þar sem úrslitaleikir eru að jafnaði best sóttir. Munu fulltrúar Fram og K. R. hafa verið samþykkir þessari til- lögu fullt-rúa Víkings, en stjórn Vals vildi ekki ganga að henni. Eftir síðustu frjettum að dæma í þessu máli má. ganga út frá því sem vísu, að ekkert verði úr „sept- emberkepninni“ og eru það sár vonbrigði öllum knattspyrnuvin um, sem hlakkað höfðu til að sjá þessa kepni. Er leiðinlegt til þess að vita að fjelögin skuli ekki geta komið sjer saman um tilhögun á þessu móti, sem hefði ábyggiiega oi’ðið knatt- spyrnuíþróttinni til góðs. Vívax. (erðbréfabankim Aosíurstr. ð sími 5652.Opíó kl.11-12oq-1_' annast kaup og sölu allra verðbrjefa. 9 VARÐELDAR SKÁTANNA. FRAMH. AF ÞRIÐJTJ SÍÐU. Með Landsmóti sínu í sumar hafa,. íslensku skátamir unniS sjer mikiö álijt meðal erlendra skáta, eins og sjá má af ýmsum blöðum er borist hafa nú ný- lega. I danska skátablaðinu „Væbner- en“ segir foringi dönsku skátanna er hjer voru, eftirfarandi um íslensku skátana. „Það voru skátar, sem vildu og gátu lágt á sig erfiði fyrir Skátahreyfing- una. Allann imdirbúning undir mótið böfðu þeir unnið í frítíma sínum máa- uðum saman áður en Landsmótið hófst. Þeir stífluðu ár, og lögðu vatnsleiSsl- ur mörg hundruð metra, bjuggu út þvottastæði og steypibaS auk annarar venjulegrar undirbúningsvinnu. Alt mótið fór fram eftir bestu áætlun og tókst mjög vel, enda þótt þeir hefðu á að skipa mjög fáum æfðum foringjumi Og það öllum mjög ungum. Við, sem störfum við Skátabandalög sem hafa á að sldpa mörgum gömlum og reynd-l um skátum, tökum ofan battinn fyrir því, sem þessir fáu, en duglegu skáta- foringjar sýndu. Og svo verður einnig aS geta þess, að aldrei voru þeir svo önnum kafnir að þeir ekki hefSu tíma. til þess á allan hátt, að sýna okkur sína óviðjafnanlegu hjálpsemi og góða fjelagslyndi — Þetta voru skátar, sem vert var að kynnast. — — Við sáum Gullfoss, hið stórfenglegasta í allri ferðinni. Þar varð maður orSlaus af hrifningu yfir binu mikilfenglega og fallega í náttúrunni. Af öllu sem við sáum af stórfengleik Islands og fram- förum á öllum sviSum, dugna8innm> hjá hinum íslensku skátum, gat ekki hjá því farið, að við yrðum hrifnir af Islandi og Islendingum“. * Aðgangur verður seldur á 50 aura1 fyrir fullorðna og 25 aura fyrir böm. Einnig verða til sölu hin fallegu merki Landsmóts sljita og kosta þau eina rónu. með morgunkaffinu. Sfýir kaupendur fá blaðið ókeypis til næslkomandi mánaðamóta. Hringið í síma 1600 og g e r i s I kaupendur. Goliat. "KOtSALT & & s?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.