Morgunblaðið - 10.09.1938, Qupperneq 7
Laugardagur 10. sept. 1938.
MORGUNBLAÐÍÐ
7
nDettilossss
fer hjeðan til Vestur- og
Norðurlands á mánudags-
kvöld.
Aukahöfn Stykkishólmur í
norðurleið.
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaqfnn 12. h- m. kl.
6 síðd. til Kaupmannahafn-
ar (um Vestmannaeyjar og'
Thorshavn).
Parhegrar sæki farseðla
fyrir hádegf í da£.
Tilkynningar um vörur
kömi sem fyrst.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Trygffvagötu. — Sími 3025.
|lllililiillllllll!lllllillliilll!llilllllilil^
1 Kjöl |
1 af fullorDnu ð |
{45 og 55 aural
= pr. y2 kg\ íslenskar kartöfl- 1
g ur og gulrófur, lægsta verS. §§
| Jóh. Jóhannsson [
= Grundarstíg 2. Sími 4131. 1
Amatörar.
FRAMKÖLLIJN
Kopierinff — Stækkun.
Fljótt og vel af hendi leyit.
Notnm aSeins Agfa-pappír.
Ljósmy nd averkstæðið
Langaveg 16.
Afgreiísla í Laugavegs Apó-
teki.
Korktappar
ágætir, tvær stærðir
í versluninni
vmn
Laugaveg 1. Fjölnisveg 2.
Hitler og Mussolini
leysa deilumál sín
íriðsamlelga
Margir telja, að vinátta geti
ekki staðið lengi milli Hitl-
ers og Mussolinis, vegna þess að
Hitler muni fyr eða síðar kref jast
þess að Mussolini skili aftur Suð-
ur-Tyrol, þar sem 215 þús. þýsku-
mælandi menn búa. Hitler hefir
undanfarið staðið í samningum við
Mussolini, til þess að jafna þetta
mál friðsamlega.
ítalir fengu Suður-Tyrol, sem
áður var austurrískt land, eftir
styrjöldina að launum fyrir að
liafa gengið í lið með bandamönn-
um. Þýska þjóðahrotið þar, bjósí
nú við því, að röðin væri komin
að þeim, þegar Hitler tók Austur-
ríki. Þessar vonir brugðust, er
Hitler lýsti yfir því í Róm í vor,
að Brennerskarðið, sem skilur á
milli Suður-Tyrola og frænda
þeirra norðan vð skarðið, væri
viðurkend landamæri ftalíu og
Þýskalands um tíma og eilífð.
Margir Tyrol-Þjóðverjar, einkum
þeir, sem hneptír hafa verið í fangelei
fyrir nazistaskoðanir sínar, neituðu að
trúa því, að Hitler hefði ofurselt þá
ítölum og brugðist með því kenning-
um sínum.
Þeir reyndust hafa rjett fyrir sjer.
Því að Hitler mun innan skamms
sýna að hann getur leyst vandamál ekki
aðeins með óvæntu ofbeldi, heldur líka
með friðsamlegri sáttagerð.
Hann hefir stungið upp á því við
Mussolini, að Suður Tyrolum, sem vilja
hverfa aftur til Þýskalands, verði leyft
að gera það og hafa með sjer eignir
sínar. Hinir, sem vilja vera um kyrt í
Italíu, geta gert eins og þeir vilja.
Fjárhagslegt tjón sem ítalir kunna
að bíða við brottför Tyrolanna verð-
'nr jafnað með verslunarhlunnindmn.
SuSur-Tyrolmn, sem koma til Þýska-
lands verður fengið jarðamæði, marg-
ir fá búgarða, sem teknir hafa verið af
and-nazistum í Austurríki.
Nokkur þúsund SuSur-Tyrolar eru
sagðir þegar hafa axlað staf shin og
farið um BrennerskarðiS til Þýska-
lands.
Mussolini er sagður hafa slept úr
fangelsi með sýknunarlögum öllum
Suður-Tyrolum, sem sakaðir höfðu
verið um and-ítalskan áróður. Meðal
þeirra era 400 manns, sem teknir
voru fastir áSur en Hitler kom til
Róm í vor.
Mussolini er einnig sagSur hafa sýkn
að Suður-Tyrolana, sem neitað höfðu
að taka þátt í styrjöldum Itala í
Abyssiníu og á Spáni.
Hann gerSi þetta til vináttumerkis
við Hitler.
„The Times"
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Forustugreinin í „The Times“,
þar sem stungið var upp á
því, aS Tjekkar ljetu sudeten-
þýsku hjeruðin af hendi við Þjóð
verja, hefir vakið feiknar athygli
um allan heim.
Þrátt fyrir að breska stjórnin
hafi lýst því yfir, að hún sje á
engan hátt sömn skoðunar og „The
Times“ í þessu efni, halda þýsk
blöð áfram að gera sjer mat úr
greininni, og segja að í henni sje
túlkuð skoðun áhrifamikils bresks
stjórnmálamanns.
Bresk blöð fordæina greinina í
morgun einum rómi. Daily Tele
graph segir m. a.. oð greinin muni
aðeins æsa óbilgirnina upp í Sud-
eten-Þjóðverjum.
Dagbók.
IXJ Helgafell 59389137 — IV./Y.
Uppt.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
kaldi. Skúrir.
Veðrið (föstudagskvöld kl. 5) :
Lægðir eru fyrir vestan og norðan
land, en hæð yfir austanverðu At-
lantshafi og Bretlandseyjum. Hjer
á landii helst V—SV-átt, víða all-
hvöss. Á A-landi er veður þurt, en
rigning í öðrum landshlutum. Hiti
er 9—10 st. á V landi, annars 9—16
st., mestur á Raufarhöfn.
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Qunnarsson, Laugaveg 98. Sími
2111.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Prestsvígsla verður í dómkirkj-
unni á morgun kl. 11. Vígir biskup
cand. tbeol. Sigurbjörn Einarsson.
Messað í Laugarnesskóla á morg
un kl. 2 e. h., síra Garðar Svav-
arsson.
Messað í fríkirkjunni á morgun
kl. 5, síra Árni Sigurðsson.
Einar Amalds cand. jur. hefir
þann 26. f. m. verið af atvinnu-
málaráðherra löggiltur niðurjöfn-
unarmaður sjótjóna. Hann er
fyrsti maður hjer á landi, sem
fær slíka löggildingu.
Af síldveiðum hafa komið b.v.
Egill Skallagrímsson og línuveið-
ararnir Eldborg og Sigríður.
Gróðurhúsið, vinninginn í happ-
drætti garðyrkjusýningarinnar,
hlaut 9 ára gamall drengur, Guð-
mundur Gíslason, Þórsgötu 16 A.
Nýja Bíó sýnir í fyrsta skifti i
kvöld merkilega kvikmynd, sem
nefnist „IIeiða“. Aðalhlutverkið
leikur Shirley litla Temple. Er
mynd þessi ekki síður fyrir full-
orðna en börn og verður vafa-
laust talin með betri kvikmyndum
Loftskeytamemi eru beðnir að
mæta að Hótel Borg í dag kl. 14,
vegna jarðarfarar Jóns R Þórð-
arsonar loftskeytamanns.
K. R.-ingar. Sjálfboðaliðar, sem
ætla að leggja sinn skerf í full-
komnun skíðaskálans, eiga að
mæta við K. R.-húsið kl. 3 í dag
eða á morgun kl. 9. Trjesmiðir,
sem hafa lofað aðstoð sinni, eru
sjerstaklega beðnir að mæta.
Eimskip. Gullfoss var á Önund
arfirði í gærmorgnn. Goðafoss
kom til Vestmannaeyja í gærmorg-
un. Brúarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn í gærmorgun áleiðis til Leith.
Dettifoss er í Reykjavík. Lagar
foss er á leið til Kaupmannahafn-
ar frá Anstfjörðum. Selfoss er í
Reykjavík.
Ríkisskip. Esja var væntanleg
til Þórshafnar kl. 5 í gær. Súðin
fór frá Reykjavík í gærkvöldi í
strandferð austur um land.
Knattspymufjelagið Víkingur.
1. og 2. fl. æfing í dag kl. 2U>.
3. og 4. fl. kl. 4. Mætið allir.
Skemit.ifundur verður haldinn að
Eiði á morgun, ef veður leyfir.
Eins og kunnugt er varð að fresta
útiskemtun Varðar s.l. svmnudag
vegna rigningar. Verður sama
dagskrá á morgun að Eiði. sem
fyrirhuguð var s.l. sunnudag. ef
veður leyfii’: Ræður, liljóðfæra-
sláttur, íþróttasýningar og dans.
„Mille, Marie og jeg“ heitir
dönsk gleðikvikmynd, sem sýnd
verður í fyrsta skifti í kvöld. Að-
alhlutverkið leikur Marguerite
Vihy. Syngur hún þar m. a. dans-
lagið vinsæla: „Jeg har elsket dig,
saa længe jeg kan mindes“.
Meðal farþega á Lyra í fyrra-
kvöld voru, auk þeirra sem fyr
eru taldir: Páll Einarsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Magnús Magn-
ússon, Regína Bjarnadóttir, próf.
Vogt, Sveinn Ellertsson, Baldur
Bjarnason, Gustafson forstjóri
sænsk-íslenska frystihússins og
frú, Gunnar Ólafsson, Élísabet
Bjarnadóttir og fjöldi útlendinga.
Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
Ljósafoss, Þrastalundur, Þingvell-
ir, Laugarvatn, bílpóstur norður,
Laxfoss til Borgarness. Til Rvík-
ur: Ljósafoss, Þrastalundur, Laug-
arvatn, Þingvellir, Akureyri, Garðs
auki, Vík, Fagranes frá Akranesi,
Laxfoss frá Borgarnesi, Dr. Alex-
andrine frá Akureyri.
Útvarpið:
Laugardagur 10. september.
12.00 Hádegisútvarp.
13.05 Sjöundi dráttur í happdrætti
Háskólans.
19.10 Veðnrfregnir.
19.20 Hljómplötur; Ljétt sönglög.
19.50 Frjettir.
20.15 Upplestur: ,,Og árin líða“.
Sögukafli (Sigurður Helgason).
20.45 Hljómplötur;
a) Kvartett í f-moll, eftir Haydn.
b) Tríó í E-dúr, eftir Mozart.
c) (21.20) Kórsöngvar.
21.40 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Minning Margrjetar
Þórarinsdóttur
Nýlátin er í hárri elli húsfrú
Margrjet Þórarinsdóttir að
Ólafsgerði í Kelduhverfi.
Hún var ekkja Stefáns Erlends-
sonar, Gottskálkssonar alþingis-
manns. Eignuðust þau mörg börn
og éru nú á lífi Þórarinn hrepp-
stjóri í Húsavík, frú Fjóla Fjeld-
sted í Reykjavík, Erlendur bóndi
í Ólafsgerði, Árni, söðlasmiður á
Húsavík, Sigríður húsfreyja í
Garði í Kelduhverfi, Bogi bóndi
á Garði, Kristjana húsfreyja og
Björn búfræðingur í Ólafsgerði.
Margrjet heitin var dóttir Þór-
arins Þórarinssonar og Guðbjarg-
ar Guðmundsdóttur á Grásíðu.
Ólst hún upp hjá foreldrum sín-
um og þegar hún giftist, reistu
þau Stefán bú á hálfri jörðinni og
bjuggu þar heilan mannsaldur.
Fluttust síðan *að Ólafsgerði og
bjuggu þar þangað til Stefán dó,
en síðan bjó Margrjet þar til
dauðadags með Erlendi syni sín-
um.
Margrjet var hin mesta dugn-
aðarkona, eins og hún átíi ætt til
og kjarkmikil að eðlisfari. Hún
var vel greind, fríð sýnum og
sköruleg alt fram á elliár. Hafði
hún þó orðið að heyja harða lífs-
baráttu, eins og títt er um sveita-
konur, þar sem lítil eru efni, en
ómegð mikil.
Verðlag á kartöflum.
Lágmarks söluverð á kartöflum til verslana er á-
kveðið:
15. sept. til 31. okt.: Kr. 21.00 pr. 100 kg.
1. nóv. til 31. des.: Kr. 22.00 pr. 100 kg.
Innkaupsverð Grænmetisverslunar ríkísins má vera
alt að þremur krónum lægra hver 100 kg.
Smásöluálagning (við sölu í lausri vigt) má ekki fara
fram úr 40%, miðað við hið ákveðna söluverð til verslana.
Heimilt er þó verslunum, er af einhverjum ástæðum kaupa
kartöflur hærra verði en hinu ákveðna lágmarksverði, að
haga smásöluálagningu sinni þannig, að hún sje alt að
40% af innkaupsverðinu.
Hið setta verðlag er miðað við góða og ógallaða vöni.
Verðlagsnefnd Grænmetisverslunar ríkisins.
LITLA BILSTOÐIN Er nokkuB atór.
Opin allan sólarhringinn.
Litla dóttir okkar,
Fríða,
verður jarðsunginn frá dómkirkjunni í dag- kl. 1.45.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinujn.
SigTÍðm’ og Magnús Richardsson.
Innilegar hjartans þakkir til allra er sýndu samúð og hlut-
tekningu við andlát og jarðarför
Guðmundar Hannessonar
frá Tungu.
Katrín Jónasdóttir og aðrir aðstandendur.