Morgunblaðið - 22.10.1938, Page 3
Laugardagur 22. okt. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Stefáns Jóhanns
Hann viðurkennir
ekki dómstóiinn
Alt bendir til þess, að Alþýðufiokkurinn sje nú í
þann veginn að klofna, með því að Hjeðins-
menn fá ekki aðgang að Aiþýðusambandsþing-
inu, og eru skilyrðislaust reknir úr Alþýðuflokknum, ef
þeir vilja ekki sitja og standa eins og Haraldur og Stefán
Jóhann viija vera iáta.
En þegar klofningur Alþýðuflokksins er orðinn stað-
reynd munu Hjeðins-menn og kommúnistar sameinast og
mynda nýja,n flokk á grundvelli stefnuskrár þeirrar, sem
Jafnaðarmannafjelag Reykjavíkur samþykti.
Hitt flokksbrot Alþýðuflokksins, sem þeir Haraldur og
Stefán Jóhann stjórna mun svo skríða upp í bólið til madömu
Framsóknar og taka virkan þátt í stjórn landsins. Að vísu hef-
ir forsætisráðherrann neitað því í blaði sínu, að þetta stæði til.
En varlegt mun vera að treysta hans orðum í þessu, og mun það
sannast áður en langt líður.
Alþýðusam-
bandsþingið.
Fundur hófst þar kl. 1 Vá í
gær. Var fyrst tekið fyrir álit
kjörbrjefanefndar þeirrar, sem
Stefán Jóhann skipaðí á fyrsta
fundinum. Stóð þessi fundur til
kl. 4.
Nokkrir af Hjeðinsmönnum
tóku til máls á fundinum, þ. á
M. Hallbjörn Halldórsson prent
ari. Hann deildi fast á stjórn
Alþýðusambandsins fyrir brott-
rekstur Jafnaðarmannafjelags-
ins. Hann krafðist og þess, að
mál Hjeðins yrði tekið fyrir áð-
ur en teknir væru inn hinir
nýju fulltrúar frá Alþýðu-
flokksfjelagi Rvíkur. Stefán
Jóhann andmælti Hallbirni.
Tveir aðrir Hjeðins-manna
tóku til máls, en fengu lítið
sem ekkert hljóð.
Fundurinn samþykti álit kjör
brjefanefndar, og einnig gjörð-
ir sambandsstjórnar milli þinga.
Var þetta hvorttveggja samþ.
með 98:9 atkv. FulKrúar hinc
nýja Alþýðnflokksfjelags voru
samþ. með 115:8 atkv.
Kl. 5 hófst fundur að nýju
og var þá skipað í fastanefnd-
ir. Gekk það fljótt, því að út-
býtt var vjelrituðum blöðum
með nöfnum þeirra manna, er
Stefán Jóhann vildi hafa í
nefndunum. Alt var samþ. orða
laust.
Þá var og samþ. ályktun frá
St. J. St., þar sem harmað var
að Dagsbrún skyldi hafa neit-
að að greiða skatt til Alþýðu-
sambandsins. Efnnig var samþ.
að þeir af fulltrúum Dagsbrún-
ar, er fylgdu stjórn Alþýðu-
sambandsins að málum (7 tals-
ins) skyldu teknir inn á þingið.
Hinir eru 11, sem ekki fengu
inngöngu, en þeir fylgdu
Hjeðni. —- Fundurinn stóð til
kl. 6í/2-
Hjeðinn fyrir
dómstóli Stefáns.
Kl. Sy2 í gærkvöldi hófst svo
fundur að nýju, og var þá brott-
rekstur Hjeðins til fyrri umræðu.
Hjeðni var boðið að mæta og verja
sig og sínar gerðir, og fór hann á
fundinn.
Hjeðinn kom stundvíslega á
fundinn.'
Ilófst fundurinn með því að
Stefán Jóhann talaði aðeins ca. 2
mínútur, og lagði fram ákæruna á
hendur Hjeðni; var það prentáður
bæklingur.
Þvínæst tók Hjeðinn til máls og
talaði nál. stundarfjórð’ung. Hann
gat þess að Guðmundur Hagalín
hefði boðið sjer á þenna fund, og
kveðst hafa tekið boðinu, þótt
hann hefði átt að vera á Öðrum
fundi. Hann kvaðst ekki vera kom-
inn á fundinn til að verja sig eðá
sínar gerðir, enda viðurkendi ekki
fund þenna sem dómstól í sínum
málum, eins og til hans væri stofn-
að. Kvaddi þvínæst Hjeðinn og
vjek af fundi.
Umræður hjeldu svo áfram.
Hallbjörn Halldórsson talaði þar
máli Hjeðins, en margir á móti.
Hjeðins-menn sóttu annars mjög
lítið fundi Alþýðusambandsins í
gær; aðeins fáeinir menn sýndu,
sig.
Hinir „þrautreyndu“.
Alþýðublaðið skýrði frá því, að
ekki fengju aðrir en „þrautreyndir
Alþýðuflokksmenn“ að koma sem
áheyrendur á þing Alþýðusam-
bandsins. í gær sáust varla aðrir
áheyrendur þar en Barði Guð-
mundsson, Ásgeir Ásgeirsson og
Guðbrandur Jónsson. Þetta eru
þeir „þrautreyndu“.
Þing kommúnista.
Það helt áfram í gær. Rædd var
pólitísk ályktun, sem gefin verð-
ur út. Snertir hún deiluna innan
Alþýðuflokksins og afstöðuna
gagnvart henni.
Togararnir Gyllir og Haukanes
komu af veiðum í gær. Bæði skip-
in eru farin áleiðis til Englands
með aflann.
Haustmót
Tafiíjelags
Reykjavikur
Sú breyting' hefir orðið á
þátttakendaiistanum, að
Þráinn Sigurðsson hættir, en
Ásmundur Ásgeirsson kemur
inn í hans stað. Þessum skák-
um er lokið:
Fyrsta umferð: Steingiúnur 1, Gi!-
ferO, Jóu 1, Einar 0, Magnús G. 1,
Hafsteinn 0, Hermann 1, Baldur 0,
Benedikt 1, Sæmundur 0, Sturla og
Guðmundur jafntefli, Ásmundur og
Snævarr biðskák. Önnur umferð: °.æ-
mundur 1, Hafsteinn 0, Einar 1, Her-
mann 0, tíaldur 1, Steingfímur 0., Egg-
ert 1, Guðmundur 0, ÁsmUndur V2,
Sturla %, Benedikt og Snævan' bið-
skák, Jón o'g Magiiiás G. biðskák. —
Þriðja umferð: Einar 1, Steingrímur
0, Baldur 1, Guðmundur 0, Jón 1, Sæ-
mundur 0, Hermann %, Magnús G. y2,
BenediktHafsteinn y2. Ásmundnr:
Gilfer og Sturla: Snævarr biðskák. —
Fjórða umferð: Sæmundur 1, Her-
mann 0, Magnús G. 1, Steingr. 0, Jón
1, Hafsteinn 0, Benedikt x/2, Sturla %,
Eggert y2, Snævarr %, Baldur y2, Ás-
mundur x/2, Einar og Guðmundur bið-
skák.
„Esja“ heitir nú
s Canal-Tenglo“
Eigendur strandferðaskipsins
„Esja“, ríkisjárnbrautiniar
í Chile, hafa skift um nafn á skip-
inu og heitir það nú „Canal-
Tenglo“. Þetta nýja nafn skipsins
var málað á það í gær.
„Canal-Tenglo“ liefir undan-
farna dága legið í Slippnum og
hefir farið fram hreinsun á skip-
inu. M. a. er verið að mála það
hátt og lágt og' reykháfurinn, sem
áðnr var gulur, er nú orðin kol-
svartur.
Skipið mun vérða tekið úr
Slippnum í dag, en ekki er kunn-
ugt um livenær' það leggur ur
iiöfn áleiðis til Ghile, en heyrst
hefir að skipið’ miini fá hjér farm
til fiutnings til Ameríkn.
Skipsinennirhír, 36 að tolu, sem
komu með Dr. Alexandrine síðast,
eru byrjaðir að vinna um borð í
skipinu.
SVÍA \ ANTAR
VINNUKRAFT
Khöfn í gær F.Ú.
argir iðjurekendur í Sví-
þjóð hafa farið fram á
það við stjórnina að hún ópni
landið fyrir innflutnihgi út-
lendra manna, með því að
skortur sje verkamanna í ýms-
um atvinnugreinum.
60 ára er í dag Guðmundur Gísla
son, Hverfisgötu 6, Hafnarfirði.
Afstaða Memel-hjeraðsins.
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
ingið í MfeWl kom ekki
saman Þ dág, eins og
búist hafði verið við, þar sem
stjórnin í Lithaueio'hefis lofað
að gera breytingar á öryggis-
löggjöfinni sem hún hafði boð-
að að setja ætti í stað herlag-
anna.
Ýmsar tilslakanir hafa líka
verið gerðar til þess að verða
við kröfum Pólverja.
Grindadráp
á Ströndum
Um hádegi í fyrradag urðu
menn á Kaldrananesi í
Strandasýslu varir við grinda-
hvalatorfu utarlega í Bjarnar-
firði.
Fóru menn á opnum vjelbáti
og tveimur árabátum til þess
að reyna að koma skoti í einn
kálf eða svoj.en bátum þessum
tókst að reka torfuna upp á
grynningar í botni Bjarnarfjarð
ar.
Útfall var og íeátust íivalirn-
ir. Var þeim síðan banað í fjör-
unni. £
Hvalir þessir eru úm 140 að
tölu. Margir þeirta stærstu eru
5—7 metra langir. (F.Ú.).
... iWt ,%
----’t-O '■» «y. *
Slidirútflutningur
Irá Siglnllrii
Flutningaskipið Hekla hleð-
ur á Siglufirði 9.000 hálf-
tunnur og 1.000 heiltunnur af
matjessíld, og 700 heiltunnur
sjerverkaðar. Síldin fer til
Ameríku.
Kolumbía hleður 5.500 tunn-
ur af síld til Svíþjóðar.
M.s. Dr. Alexandrine hleður
allmikið af síld til Danmerkur,
einnig síldarmjöl og saltfisk.
Selfoss hleður lítið eitt af
síld til Belgíu.
Sarastone hleður um 14.000
tunnur af saltsíld, kryddsíld og
matjessíld til Svíþjóðar. (F.Ú.).
Ölvaður bllstjóri
veldur slysi
Ók á konu og flýtti
sjer síðan burt
Bílstjóri, sem var undir áhrif-
um víns, ók í gær á konu
á Hverfisgötu. Fjell konan á gang-
stjettina og meiddist illa. Bílstjór-
inn sinti hinni slösuðu konu ekk-
ert, heldur ók áfram. Annar bíl-
stjóri, sem ók á eftir honum og
sá er slysið varð, sagði lögreglu'nni
frá númeri bílsins.
Konan, sem siasaðist. heitir
Kristín Guðmundsdóttir, Hverfis-
götu 62, ,og var hún fiutt á Land-
spítalann. Skarst konan illa á enni
og meiddist á vinstri öxl.
Lögreglan fekk tilkynningu um
slysið frá Daníel Fjeldsted lækni,
sem býr á Hverfisgötu 46, en slys-
ið vildi til fyrir framan húsið nr.
44. Skýrði læknirinn frá því, að
kona lægi í blóði sími á götunni,
Lögreglan fór strax á staðinn,
en þar sást þá ekkert farartæki,
sem gat hafa valdið slysinu.
Daníel Fjeldsted var búinn að
binda um sár konunnar til bijáða-
birgða og flutti lögreglan hana á
Landspítalann.
Skömmu síðar kom bíls(jóri, Sig-
urður Jónsson, á lögyeglustöðiria
og skýrði frá því, aðf hann hefði
verið sjónarvottur að slysinu.
Hafði Sigurður ekið bíl sínum um
Hverfisgötu og á uudan honum ók
annar bíll. Alt í einn var bílnum,
sem var á Hndan lionum, ekið
upp að hægra götukanti og helt
Sigurður í fyrstu að bíllinn ætl-
aði að nema staðai'.j Við gang-
stjettina stóð kona og'úk bíllinn
á hana svo hún fell á gángstjett-
ina: og fell í öngvit. Sá Sigurður
nú að hraða bílsins, sem ekið hafði
á konuna, var aukinn að mun.
Datt Sigurði fyrst í hug að
koma hinni slösuðu konu til hjálp-
ar, en vegna þess að hann hafði
ekki þekt bílinn ók hann á eftir
honum inn Hverfisgötu og síðan
upp Frakkastíg. Er bíllinn ók yfir
Laugaveginn sá Sigurðnr númerið
og þekti bílinn. Fór hanii þá á
lögreglustöðina og tilkynti lög-
reglunni hvaða bíll hefði ekið á
konuna.
Bílstjórar, sem þannig fara að
ráði sínu eins og þessi ölvaði mað-
ur, að liraða sjer á brott þegar
þeir hafa orðið valdir að slysi,
hafa með rjettu verið kallaðir
ökuníðingar.
Þykir sjálfsagt að birta nöfn
slíkra manna opinberlega, en af
sjerstökum ástæðum verður það
ekki gert í þetta sinn vegna þess
að ,það gæti haft hættuleg ábrif
á fólk sem enga sök á í þessu
athæfi liins ölvaða manns.
„LITLI HEIMUR‘
Khöfn í gær F.Ú.
oul Reumert leikari er nú
aftur orðinn heill heilsu
tir langvarandi lasleika og
kur í kvlöd í leikriti Tryggva
einbjörnssonar, „Lille Verd-
en