Morgunblaðið - 29.10.1938, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 29. okt. 1938.
Útsvar. •• Dráttarvextir.
Útsvar til bæfarsjóðs Reybfa-
víkur árið 1938 er alt falltð i
gjalddaga og 1. nówember falla
dráttarvextir á ffórða bluta
ógreiddra útsvara.
Er skorað á gfaldendur að
greida átsvarsskuldir sinar ná
þegar.
Reykfavik, 28. október 1938.
Borgarritarinn.
Smábamaskóli í ensku.
Kenni börnum að tala ensku. Kent verður í húsi K. F.
U. M. mánud., miðv.d., föstud., kl. 6—7. Mánaðargjald
8 krónur.
WILHELM JAKOBSSON
eand. phil. Kirkjustr. 2.
Til Keflavikur, Garðs
og Sandgerðis
er altaf best að aka með okkar ágætu bifreið-
um. 2 ferðir daglega, kl. 1 e. h. og kl. 7 síðd.
Simi 1580. Steindór.
M
7 IX sotu.
_ Gamalt TIMBUR
Hvar er best að kaupa?
§varið verður:
Auðvitað Iijá Jensen
Vesturgötu 14.
Það er fjölbreyttasta bakaríið, og hefir flest það er hús-
móðirin krefst, svo sem allskonar Tertur, Sódakökur, Jóla-
kökur, Marcipankökur og Smákökur. — Ennfremur hinar
ágætu Kringlur, Tvíbökur og Skonrok. — Eínnig afgreitt
eftir pöntunum: Kransakökur, Rjómatertur, fs og Fro-
mage. Alt fyrsta flokks vara.
S. JENSEN.
Vesturgötu 14. Sími 3278.
Hann sveigði stefnuna til
hægri — til Hitlers
Þegar Chvalkovsky utanríkismálaráðherra Tjekka var staddur í
Berlín. Með honum er Marslny, sendiherra Tjekka.
Kröfur Stefáns
Jóhanns & Co.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
af vjelrituðum blöðum á þing-
samkundu Alþýðuflokksins. —
Nefndir voru skipaðar af báð-
um flokkunum, til þess að ræða
um framhaldandi stjórnarsam-
vinnu. Nefndirnar höfðu átt
saman viðræður um málið. En
þetta sagði forsætisráðherrann
að væri „með öllu tilhæfulaust“.
Hvað kom til, að forsætisráð-
herrann fór hjer með ósann-
indi? Máttu bændur þeir, sem
enn styðja Framsóknarflokkinn
ekki fá vitneskju um þetta bak-
tjaldamakk stjórnarflokkanna,
sem vitanlega var gert í óþökk
formanns Framsóknarflokksins,
er nú dvelur í annari heims-
álfu?
★
Stefán Jóh. gat þess í ræðu
sinni, að stjórnmálanefnd
„þingsins“ myndi taka stjórnar-
samvinnuna til meðferðar og
gera samþykt um málið. Jú;
þetta var gert síðasta daginn,
sem „þingið“ sat á rökstólum.
I samþyktinni, sem ,,þingið“
gerði, segir m. a.:
„Eins og flokkaskipun nú er
háttað í landinu, telur sam-
bandsþingið einsýnt að leitað
verði samkomulags við Fram-
sóknarflokkinn — -— — með
það fyrir augum, að um sam-
vinnu flokkanna verði gerður
samningur til loka þessa kjör-
tímabils“.
Ennfremur segir svo í sam-
þyktinni:
„Felur sambandsþingið sam-
bandsstjórn og þingflokki Al-
þýðuflokksins, að vinna að því
að ná slíku samkomulagi v* i
Framsóknarflokkinn, og telur
þingið rjett, að Alþýðuflokkur-
inn Iáti fulltrúa frá sjer taka
sæti í ríkisstjórninni, ef slíkt
samkomulag næst. I samning-
um verði fram tekið, að hvor-
ugur flokkanna taki upp sam-
vinnu við andstöðuflokk um
lausn þýðingarmikilla mála, án
þess samningum hafi áður ver-
ið sagt upp“.
Er ekki af þessu öllu nokkurn
veginn ljóst, hvað í vændum
er ?
Alþýðuflokkurinn heimtar
samning út kjörtímabilið. Fram-
sókn má ekki leysa „þýðingar-
mikil mál“ í samvinnu við and-
stöðuflokk, án þess áður að
hafa sagt upp samningum við
flokksbrot Stefáns Jóhanns. A
síðasta þingi leysti Framsóicn1
togaradeiiuna og kaupdeil ma
á skipum Eimskipafjelagsins í
samvinnu við Sjálfstæðisflokk-
inn. í framtíðinni má flokkur-
inn ekki gera neitt slíkt!
★
Forsætisráðherrann getur, ef
honum sýnist svo, haldið áfram
að mótmæla augljósum og skjal
festum sannindum. En ekki vex
hróður hans fyrir það.
Ekki er ósennilegt, að innan
fárra daga komi ýmislegt í
dagsins ljós sem sýni, að hin
nýja stjórnarsamvinna sje haf-
in. Það er a. m. k. mikið skrafað
'þessa dagana um bankastjóra-
stöður og fleira af slíku tagi.
Er farið að nafngreina menn í
þessi feitu embætti, og þar er
Alþýðuflokksmaður efstur á
blaði.
Hitt skal svo ósagt látið, hve
nær sú langþráða stund kem-
ur, að Stefán Jóhann fari inn í
stjórnina, en kunnugir þykjast
sjá þess greinileg merki, að
ráðherrann sje kominn í maga
Stefáns.
B.v. Gulltoppur kom í gær frá
Þýskalandi og í nótt var von á
Þórólfi.
--------Hún —
skriftaði....
Kalundborg í gær. FÚ.
Hjá bónda einum í Dan-
mörku, Andersen að nafni,
brann búgarður árið 1933. —
Greiddi vátryggingarf jelagið,
er trygt hafði eignina 59.000
krónur í skaðabætur. Liðu nú
mörg ár þangað til að kona
Andersens skýrði frá því ný-
lega á Oxford-hreyfingar-
fundi, að hún hefði. kveikt í
húsinu.
Vátryggingarf jelagið höfð-
aði þegar í stað mál til endur-
greiðslu á fjenu, er kunnugt
varð um játningu frúarinnar,
og var bóndi hennar í dag
dæmdur til þess að greiða
fjelaginu allar hinar um-
getnu 59,000 krónur.
Enskuken§la
fyrir börn
Enska er höfuðtunga heimsins
og vafalaust það málið, sem
flestir útlendir menn læra nú á
tímum, enda er það stór-nauðsyn-
legt hverjum þeim, sem utan fer,
og ekki kann að mæla á tungu
þeirrar þjóðar, sem þá dvelst hann
með. Ensk tunga virðist og altaf
vera að breiðast út meira og meira,
og segja fróðir menn, sem víða
hafa farið, að þeir hafi hvergi
komið um hinn mentaða heim, að
enskan 'Jiafi hrugðist þeim. Þvi er
öllum nauðsynlegt að kunna
ensku, og þá ekki síst; smáþjóð
eins og okkur, enda fjölgar þeim
hjer á landi ár frá ári, sem þetta
mál kunna að meiru eða minna
leyti. Og þótt enska sje geysilega
orð auðugt mál, er fremur auð-
velt að læra hana svo, að menn
geti skilið og talað mælt mál, og
vitanlega gengur þetta því betur,
því yngri sem maðurinn er, þegar
hann byrjað námið, enda er það
kunnara, en frá þurfi að segja, að
hörn eru fullorðnu fólki miklu
fljótari að læra erlendar tungur.
En þótt undarlegt sje, hefir ekki,
svo að jeg viti, verið mjög mikið
að því gert hjer á landi að ltenna
smábörnum erlend mál; og að því
er til enskunnar tekur, veit jeg
ekki til, að neinn hafi lagt það
fyrir sig að kenna hana smábörn-
um, síðan frú Anna Bjarnadóttir
frá Sandfeili dó. Naut skóli henn-
ar mikilla vinsælda og mun marg-
ur sakna hans.
En nú hefir *W Jakobsson í
hyggju að bæta úr þessu og koma
hjer á fót smábarnaskóla og kenna
í honum ensku.
Hann hefir um mörg ár fengist
við kenslu í ýmsum greinum, og
þó mest ensku, skilur hann því
börnin og kann að haga kenslunni
við þeirra hæfi. Og ef dæma skal
kennarahæfileika hans eftir kunn-
áttu dóttur hans (10 ára) í ensku,
þá ættu börnin að geta haft mjög
gott af því að vera í þessum skóla
hans.
Kensluna má og kalla mjög ó-
dýra, og trúi jeg því ekki, að
neinn muni iðra þess að fara í
skóla til hans. B. Ól.
Þýskur togari kom hingað í gær
með tvo sjúka menn.