Morgunblaðið - 02.11.1938, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.11.1938, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 2. nóv. 1938. MORGUNBLAÐIÐ 25 lesmál blaðsins vjelsett, svo og Störf blaðamanna. meginmál auglýsinga. Vjelsetn- ingu blaðsins annast þrír vjel- setjarar á degi hverjum. Einn þeirra vinnur á dagvaktinni, til kl. 5, hinir tveir á kvöldvakt- inni. Þessa vjelsetningu annast þeir: Ásgeir Guðmundsson, Karl A. Jónasson, Sigmar Björnsson og Vilhj. Svan Jóhannsson. Þeir Ásgeir og Sigmar hafa haft þessa vinnu óslitið nú um skeið, en Karl og Svan skiftast á um hana sína vikuna hver. Af þess- um setjurum hefir Karl unnið lengst við Morgunblaðið, alt frá því árið 1923. Einn handsetjari vinnur við Morgunblaðið á dagvaktinni, við að „leggja af“ prentletur blaðsins þegar prentun er lokið á morgn- ana, o. fl. Hann annast og um umbrot Lesbókarinnar og viku- blaðsins Isafoldar og Varðar. — Þá vinnu annast Ólafur Stefáns- son og hefir gert lengi. Helst er til þess æt’iast, að það efni sje sett í blaðið á dagvakt- inni, eða einkum framan af degi, sem er ekki bundið við frjettir og viðburði þann daginn. Þá er efni sett í Lesbók. Handsetjarar vinna tveir við blaðið á kvöldvaktinni, frá kl. 5 og þangað til blaðið er afgreitt í prentvjelasalinn, þeir Samúel Jóhannsson og Sigfús Valdimars- son. Framan af kvöldi vinna þeir að auglýsingum, en síðan hafa þeir að miklu leyti þau verka- skifti, að Samúel brýtur um blað ið og stingur leiðrjettingunum í prentletrið, þegar setjararnir hafa leiðrjett prófarkirnar, en Sigfús setur fyrirsagnir grein- anna o. fl. Hjer er þá gerð grein fyrir verkaskiftingu setjara, er við blaðið vinna, en þeir eru ekki nema fáir í samanburði við allan þann fjölda, sem ísafoldarprent- smiðja hefir í þjónustu sinni. I veikindaforföllum þeirra, eða þegar óvenjulega mikið er að gera við blaðið, koma aðrir prentarar til aðstoðar, er í prent smiðjunni vinna annars við önn- ur störf. ★ Þegar fram á daginn kemur, byrjar starf blaðamannanna. Oftast nær hafa þeir verið vio blaðið fram yfir miðnætti kvöldið áður. Þeir geta því ekki að jafn- aði byrjað dagsverkið snemma. En hvernig er svo starf blaða- mannsins ? Það ætti ekki að vera erfitt fyrir þann, sem lítið hefir gert annað árum saman en fást við blaðamensku, að lýsa því. En þetta fer þó á annan veg. Starf blaðamannsins er, þegar aö er gáð, eitt í dag og annað á morgun, en þó altaf það sama, að vinna að því að fá það efni í blaðið, sem á erindi til lesend- anna, að fylgjast með því sem gerist, og skýra frá því á læsi- legan hátt, að vinna að heill á- hugamála þeirra, sem blaðið berst fyrir, og greiða götu þeirra manna, sem til blaðsins leita í þeim margvíslegustu erindum. Að tala við menn um ýmislegt, sem máli skiftir þann daginn, að lesa það sem hönd á festir, og tími vinnst til, og skrifa, seint og snemma, skrifa, þó sjaldan verði það nema í flýti og hálfgert á hlaupum. En alt sem gert er, verður að miðast við það, að efnið, sem safnað er saman, komist fyrir á þessum 8 blaðsíðum Morgunblaðs ins næsta dag. Innan um sjálfstæð störf blaða mannanna sem þeir vinna fyrir sitt eigið frumkvæði, blandast áhugamál fjölda manna stór og smá, manna, sem leita full- tingis hjá blaðinu um stuðning við þau mál, sem þeir bera fyrir brjósti. Það er blaðamannanna að hlusta á allan þann málaflutn ing, velja og hafna, með það fyr- ir augum, að verða mönnum og málefnum að sem mestu liði. Starf blaðamannanna er þjón- usta við góð málefni. Þeim mun betur sem hver blaðamaður skil- ur það hlutverk sitt og breytir samkvæmt því, þeim mun vænna þykir honum um starf sitt. ((t*4 Dr W A ♦ A Frá skrifstofu gjaldkerans: Sigfús J&nsson gjaldkeri situr við vinnuborð sitt niðurröðun efnig Q fyrirsagnir. á myndinni til hægri. Hanna Ölafsdóttir á efri myndirmi til vinstri, °9Ú neðri myndinni Garðar Bergmann innheimtumaður. starf meira Og vandasam- ara, en menn gera sjer grein fyr- Bir, sem ekki þekkja til þess af reynslu, þó blaðið sje ekki stærra en þetta. Fer þannig alt efni blaðsins jafnan gegnum hans hendur. ívar Guðmundsson annast m. a. um innlendar frjettir, einkum innanbæjarfrjettir, stærri og smærri, „Dagbókina“ frá lög- reglunni, „Með morgunkaffinu“ o.fl. Hann skrifar íþróttafrjett- ir blaðsins og íþróttagreinar, seg ir frá myndum kvikmyndahús- anna o. fl. Þórunn Hafstein mun vera fyrsti kvenmaðurinn, sem unn- ið hefir að blaðamensku hjer á landi öðru vísi en sem ritstjóri kvennablaðs. — Hún hefir starfað við blaðið í 5 ár, annast „kvennasíðu“ blaðs- ins, og annað efni, sem konum er hugleikið. Hún þýðir hinar vinsælu neðanmálssögur, auk Verkaskifting I ýmsra annara starfa, á skrif- En hver er þá verkaskifting st°fu blaðsins. Hefir hún t. d. blaðamannanna ? umsjón með myndamótasafni Mannfæð og fjárskortur hefír Þlaðsins. valdið því löngum við þetta litla Þegar minst er á ritstjóm blað, að verkaskifting hefir ver- Morgunblaðsins verður að geta ið ófullkomin. Sami maður þess mannsins, sem áreiðanlega hefir orðið að hafa afskifti af hefir skrifað mest mál í blaðið og skrifa um hin fjarskyldustu þessi 25 ár, ,sem blaðið hefir efni. Og hver og einn þarf að komið út. En það er Árni Óla. vera við því búinn að ganga í Svo til óslitið hefir hann verið annars verk, þegar vinnan hefir starfsmaður blaðsins frá stofnun fallið svo þann og þann daginn. þess, og var löngum afkastamesti Á síðustu árum hefir verka- maðurinn við ritstjórn þess. — skifting við ritstjórn blaðsins Hann annaðist í mörg ár að verið mun meiri en áður, í aðal- mestu leyti ritstjórn Lesbókar- Arni Jónsson frá Múla, á ritstjórnar- skrifstofu Morgunblaðsins. atriðum þessi: Jón Kjartansson skrifar megn- ið af þeim stjórnmálagreinum, innar í hjáverkum. Hann hefir nú síðustu 2 árin lítið skrifað í blaðið. Síðan hann tók að sjer og stjómmálafrjettum, sem birt- starf auglýsingastjóra í byrjun ast á 3. síðu blaðsins, greinar > ársins 1937, er söfnun og um- um atvinnumál og samtöl við sjón og 'reikpingshald auglýs- Frá ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins: Pjetur Ólafsson á efri myndinni, snöggkheddur við skrifborðið, frk. Þórunn Hafstein á myndinni til hægri og ívar Guðmundsson. menn, sem snerta viðskifti og atvinnurekstur landsmanna. Árni Jónsson frá Múla skrifar að jafnaði forystugreinar blaðs- ins, sem birtast á fyrstu dálkum 5. síðu. Pjetur Ólafsson annast um all- ar erlendar frjettir blaðsins og skrifar jafnan þær greinar sem þar birtast urn erlenda viðburði og áhrifamenn. Auk þess hefir hann á hendi umsjón með „um- broti“ blaðsins á kvöldin, sjer um inga hans aðalstarf. ★ Vinir oj? velunnarar. Þótt verkaskiftingunni sje lýst hjer á þenna hátt, er hún hvorki fastmælum bundin eða 1 skorður sett, því svo má segja að hver styðji hjer annan í smáu og stóru, eftir því sem ástæð- ur eru til. Því hvergi mun FAMH. Á 27. SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.