Morgunblaðið - 11.11.1938, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur II. nóv. 1938.
London í gær. FÚ.
E M A L Atatiirk, forseti
tyrkneska lýðveldisins, and-
aðist í Istambul klukkan 9 í
morgun.
Hann þjáðist af innvortis
sjúkdómi um langt skeið.
Um miðbik síðastliðins mán-
aðar versnaði honum skyndilega
cg var honum var líf hugað í
þrjá daga, en fór þá aftur að
batna og var talinn á allgóðum
batavegi, er honum skyndilega
Vernsaði aftur. síðastl. þriðju-
dag. í morgun snemma hafði
hann mist meðvitund.
Kemal Atatiirk hefir rjetti-
lega verið nefndur skapari hins
nýja Tyrklands. Hann var
fæddur 1881 af tyrkneskum
foreldrum og var snemma sjálf-
stæður í lund og einráður. —
Hann hlaut frægð, sem herfor-
ingi í heimsstyrjöldinni og í
stríðinu við Grikki. Hann átti
mestan þátt í því, að Tyrkland
varð lýðveldi 1923, og hefir
hann verið forseti þess frá
stofnun þess.
Alt frá stofnun þess hefir
hann unnið ósleitilega að því
að innleiða vestræna menningu
í Tyrklandi og unnið hvert
þrekvirkið á fætur öðru.
Tyrkir hafa mist vitran og
dugandi stjórnanda og heimur-
inn mikinn stjórnmálamann.
Tyrkneska stjórnin kemur
Tyrkneska þjóðþingið kemur
saman á morgun til þess að
kjósa nýjan forseta lýðveldis-
ins.
I anda fasismans —
London í gær. FÚ.
AMKVÆMT nýjum lögum,
sem út hafa verið gefin í
ítalíu, verður það framvegis
talið alvarlegt brot, ef foreldrar
vanrækja að ala börn sín upp
í anda fasismans. Er þess kraf-
ist að öllum börnum verði kent
að hagsmunir ríkisins skuli
jafnan ganga fyrir hagsmunum
einstaklingsins.
Mót hjúkrunarkvenna í
Kaupmannahöfn hefir ákveðið
að leigja norska skipið „Berg-
ensfjord" til þess að flytja nor-
rænar hjúkrunarkonur á hjúkr-
unarkvennamótið á fslandi. FÚ
Fríherra von Schwerin flytur
síðasta háskólafyrirlestur sinn um
byggingarlist í Svíþjóð í dag kl.
6 í Rannsóknarstofu háskólans.
Hamslausar Gyðingaof-
sóknir um alt Þyskalanð
Kirkjur þeirra brendar og
verslanir eyðilagðar
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
EFTIR að fregnin um dauða von Raths, starfs-
manns í þýsku sendisveitinni í París, sem
pólskur Gyðingur skaut, barst til Þýskalands,
hófust þar hinar hamslausustu Gyðingaofsóknir, svo fá
eða engin dæmi munu til annara eins ofsókna eftir að
nazistar komust til valda.
Ráðist hefir verið á verslanir Gyðinga víðsvegar
um land og þær rændar eða vörur og verslunarhús þeirra
eyðilögð. Kirkjur Gyðinga hafa verið brendar og sprengd-
ar í loft upp. Fjöldi Gyðinga hafa verið handteknir og
margir hafa beðið um að þeir yrðu hafðir í varðhaldi til
verndar gegn ofsóknum.
Kirkjubrennur.
Hin opinbera þýska frjettastofa tilkynnir, að lát von Raths
hafi vakið óhemju gremju gegn Gyðingum, en að yfirvöldin hafi
reynt að koma í veg fyrir ofsóknir. Reuterskeyti frá Berlín og
Munchen herma, að Gestapo-lögreglan hafi handtekið alla karl-
menn af Gyðingaættum í Munchen í morgun.
Reuterfrjettastofan tilkynnir ennfremur, að Gyðingaofsókn-
irnar hafi verið svo ofsafengnar í Berlín, að Kurfúrstendamm
sje eins og þar hafi verið gerð loftárás.
Níu af tólf kirkjum Gyðinga í Berlín standa í björtu báli
og tvær kirkjur Gyðinga í Vínarborg hafa verið sprengdar í
loft upp með dynamiti. Lögreglan í Vínarborg hefir látið hand-
tekna Gyðinga vinna að því í dag, að taka til í rústum verslana
og annarsstaðar þar, sem Gyðingaárásir hafa átt sjer stað.
22 sjálfsmorð í Vín.
Tuttugu og tveir Gyðingar í Vínarborg hafa framið sjálfs-
morð í dag á meðan á Gyðingaofsóknunum stóð. Alls hafa verið
handteknir um 10 þúsund Gyðingar.
Óhemju fjöldi Gyðinga stóð í hóp fyrir utan skrifstofu
breska ræðismannsins og beið eftir því, að fá vegabrjef sín árit-
uð. Allir þessir Gyðingar voru handteknir.
Lundúnaútvarpið segir meðal annars svo um Gyðingaof-
sóknirnar (samkv. FÚ) :
Gyðingaofsóknir þessar hófust í Múnchen, • þar sem naz-
istar höfðu efnt til hátíðahalda þ. 8. nóv., til þess að minnast
nazistabyltingar tilraunarinnar 1923, og var þeim hátíðahöldum
ekki lokið, er fregnin barst um and.lát von Raths. Hófust nú
Gyðingaofsóknir þar í borginni með því að kveikt var í Gyðinga-
kirkju, rúður brotnar í Gyðingaverslunum, en jafnframt hóf-
ust handtökur Gyðinga 60 ára og yngri. Samskonar árásir hóf-
ust brátt í ýmsum borgum víða um Þýskaland og Austurmörk.
Yfirvöldin banna árásir.
I dag er tilkynt af hálfu hins opinbera í Þýskalandi, að
fólkið hefði látið nægilega í ljós reiði sína gegn Gyðingum og
hefir mönnum verið bannað að halda áfram árásum sínum á
verslunarhús þeirra. Jafnframt var tekið fram, að frekari ráð-
stafanir gagnvart Gyðingum yrði í því formi, að sett yrði ný
lög varðandi Gyðinga.
Skipuleg árásarstarfsemi.
Erlendum frjettariturum ber saman um, að eigi verði annað
sjeð en að um skipulega árásarstarfsemi gegn Gyðingum sé að
ræða. í einni fregninni er það haft eftir mönnum, sem tóku þátt
í árásunum að þeir viðurkendu, að þeir væru nazistar, en auð-
vitað væru þeir ekki einkennisklæddir, og þeir hefðu ekki ráðist
að Gyðingum að boði æðstu yfir manna sinna.
Framsal árásarmannsins.
Forseti franska lýðveldisins, forsætisráðherrann og utanrík-
ismálaráðherrann hafa allir sent samúðarskeyti til Berlínar í til-
efni af þessum atburði. Þýska stjórnin er nú að hugleiða hvort
hún eigi að krefjast þess að árásarmaðurinn verði framseldur,
með því að árásin hafi átt sjer stað í þýska sendiherrabústaðn-
um, sem megi teljast heyra undir þýsk lög.
Lík von Rath sendisveitarritara verður flutt til fæðingar-
borgar hans, Frankfurt am Main, og jarðsett þar á kostnað hins
opinbera.
Roosevelt beið
persónulegan ósig-
ur í kosningunum
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
REUTERSFRJETT um úrslit kosninganna í
Bandaríkjunum segir, að það verði að líta á
þau sem persónulegan ósigur fyrir Roosevelt
forseta. Þingmannaefni, sem Roosevelt studdi sjálfur af
ráð og dáð, töpuðu í kosningunum.
Áftur á móti unnu hinir svokaliaðir „hægri demokratar", sem
eru í andstöðu við stefnu Roosevelts, mjög á og vorn öll þingmanna-
efni þeirra kosin, nema í einu kjördæmi.
Norsku samn-
íngarnir
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
ORSKA dagblaðið „Tidens
Tegn“ í Oslo hefir átt við-
tal við Svein Björnsson sendi-
herra, sem nú er staddur í Oslo
vegna verlunarsamninga, sem
eiga að fara að hefjast milli
Noregs og Islands.
I viðtalinu gerir Sveinn Björns-
son grein fyrir núgildandi versl-
unarsamningum í aðalatriðun-
um.
Johannesen, verslunarráð er
formaður norsku samninga-
nefndarinnar, en í nefndinni
eru auk hans: Andersen-Rysst,
stórþingsmaður, Prebensen,
skrif stof ustj óri utanríkismála-
ráðuneytisins og forstjóri kjöt-
sölusamlagsins norska, Sollid.
Af hendi okkar íslendinga
eru í samninganefnd, auk Sv.
Björnssonar sendiherra: Rich.
Thors, Jón Árnason og Harald-
ur Guðmundsson.
Höfundur „Gott land“
fær Nobetsverðlaun
London í gær. FÚ.
UTHLUTUN bókmentaverð-
launa Nobels fór fram í
dag og hlaut þau ameríski
skáldsagnahöfundurinn Pearl S.
Buck, sem kunnust er fyrir
skáldsögu sína „Gott land“.
Hjónaband. S.I. laugardag voru
gefin saman í hjönaband Guðlín
Jónsdóttir frá Miðkoti í Yestur-
Landeyjum og Halldór Jónsson
frá Hem'Iu. Héimili þeirra er á
Ránargötu 5.
Lundúnablaðið „The Times“
segir í forustugrein um þessi mál
í dag:
Ósiffur
Roosevelts.
— Búast má við, að hið nýkosna
þing valdi Roosevelt forseta
margskonar erfiðleikum, þrátt fyr
ir liinn mikla meirihluta, sem
Demokrataflokkurinn hefir í báð-
um deildum þingsins.
Sigur
Republikana.
Republikanar hafa unnið mikið
meira á en nokkru sinni var hægt
að búast við. Þeir fengu kosna
160 þingmenn til fulltrúadeildar-
innar, en höfðu áður 90.
Republikanar "fengu kosna 23
fulltrúa í öldungadeild, en höfðu
áður 16. Þeir fengu kosna 19
ríkisstjóra, en höfðu aðeins 7 áð-
ur. Enn vantar úrslitatölur úr
nokkrum kjördæmum.
Ennfremur segir Times að hinn
óvænti sigur Republikana hafi á
ný gert þann flokk að pólitísku
valdf, sem taka verði tillit til,
eftir að sá flokkur hafi nú legið
niðri valda- og ahrifalaus í 8 ár.
Andúðin gegn
„New Deal“.
Þá hafi kosningarnar verið mik-
ill sigur fyrir þann hluta Deino-
krataflokksins, sem er andvígur
„New Deal“ stefnu Roosevelts, en
það mun hafa örlagaríkar afleið-
ingar fyrir Roosevelt og fylgis-
menn hans.1
Talið er víst, að Roosevelt muni
draga mjög inn seglin eftir að
liann hefir nú fundið vilja al-
mennings.
Demokratar munu velja forseta-
efni sitt úr hópi þeirra manna,
sem andstæðir hafa verið * „New
Deal“ og er því mjög óvíst, að
Roosevelt geti nokkur áhrif liaft
á val. eftirmanns síns.
Hinn kunni og vinsæli lögfræð-
ingur, Thomas E Dewey, sem tap-
aði fyrir demokratanum Leh-
mann, í ríkisstjórakosningunum í
New York, er enn nefndur sem
forsetaefni Republikana.