Morgunblaðið - 25.11.1938, Síða 4
A
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 25. nóv. 1938.
Hafnfirðingar eru á undan
okkur Reykvíkingum hvað
snertir að búa að skautasvelli á
veturna, enda er Skíða- og Skauta
fjelag Hafnarfjarðar skipað áhuga
sömum fjelögum. Jeg átti tal við
formann Skíða- og Skautafjelags
Hafnarfjarðar í gær. Sagði hann
mjer, að ágætt skautasvell væri
nú á Hörðuvöllum og Urriðakots-
vatni hefir Skíða- og Skautafje-
lagið sjeð um að lýsa upp svell-
in á þessum stöðum og hafa þar
bekki. Mikill fjöldi unglinga hef-
ir notað svellið og vænta má að
fullorðnir Hafnfirðingar noti einn-
ig þetta tækifæri.
★
ÍÞRÓTTIR
eftir Vivax
!!i.
K. R -
ingar hafa nú senn
lokið við að gera
við og breyta íshúsinu við Tjarn-
argötu í góðan æfingaskála. Húsið
fengu K. R.-ingar hjá bænum, en
sjálfir hafa þeir unnið að því í
sjálfboðavinnu að gera húsið svo
úr garði, að hægt væri að nota
það til æfinga í frjálsum íþrótt-
um, knattspyrnu, tennis og bad-
mirigt'on.
Fyrst urðu þeir að rífa niður
skilrúm úr steinsteypu og er því
verki lokið. Var fengin minni
þjöppunarvjel bæjarins til að
þjappa gólfið.
Þessar framkvæmdir K. R.-inga
verða án efa til þess að háværari
raddir koma upp um það, en hing-
-að til, að nauðsyn sje á að byggja
íþróttaskála, þar sem hægt er að
stunda útiíþróttir að vetrinum til.
Bnda getur það ekki gengið mikið
lengur, að hjer í bæ sje ekki til
slíkur skáli eða skálar.
★
Stjórn I. S. I. hefir nýlega leyft
tveimur flokkur að fara ut-
an á næsta ári, eru það úrvals-
flokkar karla og kvenna úr Ár-
manni, sem ætla á Lingiaden í
Stokkhólmi og sem getið var um
hjer í blaðinu í gær og fimleika-
flokkur kvenna úr K. R., sem ætl-
ar að sækja 40 ára afmæli danska
fimleikasambandsins í Kaup-
mannahöfn í apríl n.k. Að öllum
líkindum verða í þessum flokki 12
stúlkur, undir stjórn Benedikts
Jakobssonar. Hátíðahöldin standa
yfir frá 6.—10. apríl n.k. Danska
fimleikasambandið bauð íslenskum
fimleikaflokki á afmælishátíðina
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaginn 28. þ. m. kl.
6 sígd. til ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar. Þaðan
sömu leið til baka.
Farþegar sæki farseðla
fyrir kl. 3 á laugardag.
Fylgibrjef yfír vörur komi
fyrir kl. 3 á laugardag.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
og ætlar að kosta alt uppihald
hans í Danmörku, en ferðalög
fram og aftur verður flokkurinn
sjálfur að sjá um.
★
Degar Glímuf jelagið Ármann
helt 30 ára afmæli sitt há-
tíðlegt fyrir tveimur árum datt
fáum í -hug að líða myndu minna
en 20 ár þangað til fjelagið heldi
upp á 50 ára afmæli sitt. En í
nýútkomnu fjelagsblaði Ármanns
skýrir ÞÖrarinn Magnússon fyá
því, að í vetur verði haldið upp á
hálfrar aldar afmæli fjelagsins.
Stofndagur fjelagsins hefir verið
talinn 7. janúar 1906, sökum þess
að eldri bækur fjelagsins eru glat-
aðar, en á 30 ára afmælinu, í
janúar '1936, skýrði síra Helgi
Hjálmarsson, Kristinn Pjetursson
og fleiri frá því að Ármann væri
stofnaður 15. desember 1888, og á
fjelagið því raunverulega 50 ára
afmælisdag í næsta mánuði.
Þórarinn Magnússon segir svo
frá í fjelagsblaði „Ármanns“:
„25. nóvember 1888 gengur síra
Helgi Hjálmar«son. í stúkuna Ein-
ingin og hittir þar Pjetur Jóns-
son blikksmið, sem þá var kunnur
glím^imaður, og berst tal þeirra að
íslenskri glímu. Yerður það að
samkomulagi þeirra í millum, að
stofna glímufjelag meðal stúku-
bræðra.
30. nóvember sama árs hefjast
svo æfingar í Templarahúsinu, en
15. des. sama ár er haldin æfing
inni á Rauðarártúni, því sumir
hjeldu betra að detta á túni en
fjalagólfi. Stakk Pjetur Jónsson
upp á því, að fjelaginu væri nafn
gefið og látið heita Ármann. Var
það 'samþykt með margföldu
húrra. Á æfingu þessari voru mætt
ir milli 20 og 30 menn. Eftir það
var aftur horfið í Templarahúsið
og æft þar til ársins 1893, að síra
Helgi fluttist úr bænum norður í
land. Eftir það var lengi æft í
húsi Framfarafjelagsins, Berings-
húsi og víðar.
Fyrsta kappglíman var háð
1889, önnur 1890, og svo altaf í
sambandi við þjóðhátíðina, sem
haldin var árlega, og er þeirra
flestra getið í blöðum frá þeim
tíma“.
★
Svenska Roddförbundet hefir á
aðalfundi sínum, sem nýlega
var haldinn, samþykt að gangast
fyrir meistaramóti í kappróðri
fyrir Norðurlönd næsta ár.
Mótið fer fram á Brunsviken
við Stokkhólm og hefst þann 22.
júlí n.k.
Sænska meistarakepnin í róðri
fer fram á sama stað og hefst 9.
júlí og verður henni lokið áður
en Norðurlandakepnin liefst.
Sænska róðrasambandið endur-
kaus formann sinn, Curt Armstedt,
í Gautaborg.
Islenskir róðraríþróttamenn
munu hafa fengið boð um að taka
þátt í þessu móti, en ólíklegt er
að þeir geti tekið því að þessu
sinni.
★
Sænski sundmaðurinn, Björn
Borg, sem lilaut gullpening
fyrir besta íþróttaafrek Svíþjóðar
í ár, setti nýlega nýtt Evrópumet
í 100 m. baksundi á sundmóti,
sem haldið var í Norrköping.
Hann synti 100 metrana á 1
mín. 07.8 sek. Gamla metið átti
Þjóðverjinn Hans Schlaueh á 1
mín. 07.9'. Björn Borg varð einnig
fyrstur á þessu móti í 100 metrum
frjáls aðferð á 58.7 sek.
★
Tvö ný heimsmet í sundi voru
sett í Miinchen 13. þ. in. Þjóð-
verjinn Balke synti 100 metra
bringusund á 1 mín. 09.3 sek. Hitt
metið var á 100 metra baksundi
kvenna, sam hollenska sundkon-
an Feggelen synti á 1 mín. 13.2
sek. Skömmu áður liafði hollenska
sundkonan Kor Kint sett heimsmet
á þessari vegalengt á 1 mín. 13.5
sek. á sundmóti í Kaupmannahöfn.
★
H.inn þekti finski íþrótta-
leiðtogi Eric von Fren-
cell var nýlega í París, en hann
ferðast nú um ýms lönd álfunn-
ar til að vekja áhuga íþrótta-
manna fyrir Olympiuleikjunum
í Helsingfors 1940.
Von Frencell hefir ferðast
um England og hann sagði við
blaðamenn í París, að það væri
svo gott sem ákveðið að Eng-
lendingar tækju þátt í knatt-
spyrnukeppni á Olympiuleikj-
unum í Helsingfors 1940, en
eins og kunnugt er, hafa Eng-
lendingar ekki tekið þátt í
knattspyrnu á Olympiuleikjum
undanfarið vegna þess að allir
bestu knattspyrnumenn þeirra
eru atvinnumenn í íþróttinni.
A
Italía og England hafa á-
kveðið að keppa í knattspyrnu
í Milano í maímánuði næsta
ár. — Þýskaland og Italía
keppa í landskepni í frjálsum
íþróttum á næsta ári. Er það í
íyrsta skifti, sem þessi tvö lönd
keppa í frjálsum íþróttum gegn
hvort oðru.
'Á
Heimsmeistarinn í hnefaleik
er í þungavigt negrinn
Joe Louis, hefir gengið inn á
að keppa við heimsmeistarann
í Ijettþungavigt John Henry
Lewis um heimsmeistaratitilinn.
Lewis er einnig negri. Kepnin á
að fara fram í Madison Square
Garden 27. janúar n. k. Verður
þetta í fyrsta skifti í sögu
hnefaleikanna, sem tveir negr-
ar mætast til að keppa um
i heimsmeistaratitilinn í þunga-
' vigt.
☆
Englendingar hafa alls leik-
ið 13 knattspyrnukapp-
leiki á heimavelli við erlend
úrvalsfjelög síðan 1901 og unn-
ið alla kappleikina. Englend-
ingar hafa í þessum kappleikj-
um sett samtals 67 mörk gegn
14.
Listinn lítur þannig út:
1901 gegn Þýskalandi 12'—0
1901 — — 10—0
1923 — Belgíu 6—1
1924 — Belgíu 4—0
1931 — Spáni 7—1
1932 — Austurríki 4—3
1933 — Frakklandi 4—1
1934 __ ítalíu 3—2
1935 — Þýskalandi 5—0
1936 — Ungverjalandi 6—2
1937 — Tékkóslóvakíu 5—4
1938 — meginl.liðinu 3—0
1938 — Noregi 4—0
Ný barnabók
Einn dagur úr æfi
Shirley Temple
Sleingrímur Arason þýddi
Útgefandi:
Ólafur
Erlingsson.