Morgunblaðið - 25.11.1938, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 25. nóv. 193&.
Kertaljós
heitir ný Ijóðabók, sem ísafoldar-
prentsmiðja hefir gefið út. Er það
úrval. úr ljóðum skáldkonunnar
Jakohínu Johnson, og hefir hún
valið kvæðin sjálf. Fór og hest á
því, henni er sjálfri kunnast hvað
henni þykir vænst um af ljóðum
sínum, og hver henni eru líkust.
Bókin er tileinkuð minningu
foreldra skáldkonunnar með þess-
f
nm orðum Björnstj. Björnson:
Minning um föður og móður
skín miklu skærar en gull.
Þetta er ágæt hók til jólagjafa
•g hún byrjar einmitt í jólahug:
— Líður að jólum
ljúfust gleði!
Kveikt eru á horði
kertaljós.
Og þó rafljósin
rjúfi myrkur
heillar heimsálfu
á helgri nóttu,
eru mjer kærust
kertaljósin
góðra minninga.
— Gleðileg jól!
nmniimHmiiiimnimttnimmmnHmiiiiinmiiiuniiiimin
Jðrð til sðlu.
Hurðarhak í Kjós er til sölu og
áhúðar í næstu fardögum. Semja
ber við eiganda og ábúanda jarð-
arinnar
Sveinbjörn Guðmundsson.
Uppl. gefur Bjarni Bjarnason,
Löggildingarstofunni.
Sendisveinn
óskast á skrifstofu.
Eiginhandarumsókn, ásamt
upplýsingum, sendist strax
á afgreiðslu hlaðsins, merkt-
ar „Sendisveinn“.
Timbur
til sölu
0
ca. 1000 fet 2%xll
1200 — 3x 9
8500 — 2x 6
3500 — 2x 5
9000 — 2x 4
17.000 — %x 6
Upplýsingar í síma 3520
kl. 1—3 í dag.
Morgunblaðið með
morgunkaffinu.
t ÍTR DAGLEGA ]
LlFINU
□ □
ucKiaaaaaaooo oooooaaooooa
,Prófessor“ skrifar:
Menn velta því mjög fyrir sjer nú
síðustu dagana, hvað hið nýja skip
Eimskipafjelagsins eigi að heita, og
koma fram fáránlegar tillögur í því,
svo sem „Tröllafoss“, sem er bæði ljótt
og stirt. En aðalástæðan á að vera sú,
að útlendingar geti varla afbakað það!
Það ætti þá helst að vera af því, að
þeir gætu alls ekkert við það ráSiS.
★
Langbesta tillagan um nýtt nafn er
„Skógafoss“ og er furðanlegt, að fje-
lagið skuli ekki vera búiS að taka það
fagra nafn. Kannske er það einmitt a£
því, að f jelagiS hafi verið aS geyma
nafniS handa nógu glæsilegu skipi.
★
En min tillaga er þó önnur og hún
er þessi: Skipið á að heita Gullfoss,
og fjelagið á altaf að halda því nafni
á sínu besta og fínasta farþegaskipi.
Það er fallegasta nafnið og vinsamleg-
asta. Gullfoss er og á að vera uppá-
haldsnafnið. Gamla Gullfoss má svo
gefa annað gott nafn, ef fjelagiS þá
ekki fargar honum þegar nýja skipið
kemur.
*
„Jðhannes skírari“ skrifar:
Án þess aS vera öfundsjúkur að eSl
isfari, hefi jeg þó um langt skeið öf-
undað þann mann — án þess að vita
hver hann er — sem átti hugkvæmni
að þeirri tillögu, að. nefna skip Eim-
skipafjelags íslands fossa-nöfnum. —
Fanst mjer þegar með „skím“ „Gull-
foss“, aS fjelagið hefSi öðlast einka-
rjett á fossanöfnum á skipum — þó
óskráður væri. En þetta brást, sem al-
þjóS er nú kunnugt.
Nú er þegar farið aS stinga upp á
nafni fyrir hinn væntanlega nýja — og
stærsta — „foss“ Eimskipafjelagsins.
Langar mig til að tilkynna: að ef jeg
væri einráður um nafn skipsins, þá
yrði nafn þess Háifoss.
„Skógafoss“ er fagurt nafn og tungu
mjúkt, en í því moldarkeimur. — Og
Hjálparfoss ekki út í hött, en í því
felast kveinstafir.
Nei, Háifoss skal skipið heita — ef
jeg má ráða!
Æ, vel á minst! Tröllafoss er ekki
með öllu óviSeigandi á þetta fyrirhug-
aða nýja skip, en þaS er eitthvað
draugslegt viS nafniS.
tSr
Það er líklega rjett að benda á um
leið og þessi tillaga er birt, að tillögu-
maður hefir víst ekki tekið það meS í
reikninginn, að Hái-foss, myndi á
skandinaviskum málum vera borifin
fram Haj-foss, sem er Hákarlsfoss —
farmborið Hæ foss, sem líka gæti gefiö
tilefni til ýmiskonar afbakana ennþá
verri en Go’da’foss.
★
Helgi Árnason í Hveragerði vill aS
skipiö heiti Ljósafoss, því hann sje nú
orðinn fossa gagnlegastur.
Tryggvi í MiSdal sendi blaðinu
nokkrar línur um það, hvemig refaeig-
endur handleika refi sína, og hvemig
þeir nota tengumar, sem minst var á
hjer í blaðinu um daginn. Hann segir
m. a.: ,,Með refatöngum er ekki tekiö
í hnakkadrambið á refnum, heldur
kringum hálsinn og þrengir hvergi að,
og er því ekki farið illa meS dýrin“.
Hann endar grein sína þannig: „Jeg
hefi aldrei sjeð fariS illa með kæfu-
belgi, og ekki heldur með refi. Þó var
jeg báða refasýningardagana í Mark-
aðsskálanum“.
'k
— Hvað ertu orðinn gamall Bjössi
Tommi ?
Bjössi Tommi: Pimm ára.
-— ILvenær verður þú sex ára?
— Næst.
Tískusýningin
í gær
Tískusýningar versl. Cl-ullfoss
tókust ágætlega, og voru
mjög vel sóttar eins og venjulega.
Var nú nokkuð annar svipur yf-
ir sýningunum en verið hefir und-
anfarið, því að tískan er eins og
vitað er mikið breytt.
Dagkjólarnir voru t. d. sumir
mjög stuttir, flestir háir upp í
háls og margir með „holero“ og
ísaumaðir.
Kvöldkjólarnir voru hver öCr-
Um fallegri og nýir í línum, úr
flaueli, blúnduefnum: Tyll eða
„moir“. Mintu margir þeirra á
gömlu krínólínin. Þá sást ög
„Tournure“, og hin breiðu belti,
sem eru mjög í tísku, skreyttu
suma þeirra eins og „lífstykki“,
saumuð hlómum eða „pailettum“.
Hin nýja hárgreiðsla (sem
snyrtistofan Edina sá um) gerði
sitt til að móta stíl kjólanna, og
enn settu hanskar (Hanskagerðin,
Austurstræti 5) og hattarnir, sem
allir voru frá Gunnlaugu Briem,
svip á klæðnaðina. Hattarnir voru
nýjustu tísku samkvæmt, flestir
með háum kollum, prýddir strúts-
fjöðrum og slörum.
M. a. voru sýndar nokkrar loð-
skinnskápur frá Andrjesi Andrjes-
syni, fallegir „Swaggerar“ við
kvöldkjólana og síðir selskinns-
pelsar, einkar fallegir. Sjerstaka
athygli vöktu skíðafötin frá And-
rjesi; Vesti, legghlífar og hansk-
ar úr selskinni, við rauða prjóna-
peysu og húfu.
Loks mætti nefna náttkjólana
frá Smart. Þeir voru íhurðar-
miklir, úr silki og kniplingum.
Sýningarstúlkur voru 6: Ung-
grú S. Sætersmoen, ungfrú Est-
er Rosenherg, ungfrú Ester
Hallgrímsson, frú Klara Ander-
son, frú Ivonne Dungal og ung-
frú Unnur Benediktsson.
Sýningarstjóri var Lárus Ing-
ólfsson. Skemti hann „á milli
þátta“ með eftirhermum, og þótti
ágæt skemtun.
Hétel Borp
Allir
salir
opnir
I kvöld
©g
næsln
kvöld.
Netagerð Vestm.eyja
eykur framleiðslu slna
Aðalfundur Netagerðar Vestm.-
eyja var haldinn 7. nóv. s.l.
Stjórn: Sig. Gunnarsson, Ársæll
■Sveinsson, Eiríkur Ásbjörnsson,
Jónas Jónsson og Guðl. Brynjólfs-
son. Netagerðin tók til starfa 3.
nóv. 1936 og hefir starfað svo að
segja látlaust síðan. Veturinn
1937 sá Netagerðin algerlega fyrir
þörf Eyjabúa, en veturinn 1938
auk þess fyrir þörfum verstöðv-
ánna suður með sjó, Stokkseyri,
Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Nú
nýlega hefir verið hætt við 3.
hnýtingarvjelinni, svo að hjer eft-
ir getur Netagerðin hægléga full-
nægt þeirri eftirspurn, sem er
eftir þorskanetum í landinu.
Framleiðslan líkar ágætlega og er
fyllilega samkepnisfær við útlenda
framleiðslu hvað verð og gæði
snertir.
Við Netagerðina vinna nú 16
stúlkur, auk verkstjóra, svo um
leið og fyrirtækið skapar aukna
atvinnu, sparar það árlega stór-
fúlgu af erl. gjaldeyri. Framkv.-
stj. er Jónas Jónsson.
Búnaðarf j elagið.
Undanfarið hafa þeir Páll Zop-
hóníasson og Stefán Þorsteinsson
haldið hjer fyrirlestra á vegum
Búnaðarfjel. Ve. Hafa fyrirlestrar
þessir aðallega fjallað um garð-
og nautgriparækt. Fyrirlestrar
þessir hafa verið vel sóttir og al-
mennur áhugi um þessi mál ríkj-
andi, enda stór þrekvirki verið
framkvæmd hjer á sviði ræktun-
ar og annara búnaðarfram-
kvæmda undanfarin ár.
Gaman er að þeim í útvarpinu.
í hádegisiitvarpinu í gær var les-
in tilkyliningin frá fiskimálanefnd,
um ríkisstyrk til bátakaupa. í
frjettunum í gærkvöldi segir svo
útvarpið frá tíðindum þessum, en
ber þá Tímann fyrir þeim, en
hann kom út síðdegis í gær og
flutti þá hina sömu tilkynningu
frá fiskimálanefnd, sem lesin var
í hádegisútvarpinu. Bæði dagblöð-
in, sem út komu síðdegis í gær,
fluftu einnig tilkynninguna, en
ekki var þeirra að neinu getið í
útvarpinu.
- «
TIL MLNNIS:
Kaldhreinsað
þorskalfsi nr.l
með A og D fjörefnum.
Fæst altaf.
SSg. Þ. Jónsson
Laugaveg 62. -- Síni 3858
M.s. Laxfoss
fer til Breiðafjarðar miðvikudag-
iún 30. þ. mán. Viðkomustaðir:
Arnarstapi, Sandur, Ólafsvík,
Grundarfjörður, Stykkishólmur,
Búðardalur, Salthólmavik og
Króksfj arðarnes.
Flutningi veitt móttaka þriðju-
daginn 29. þ. mán.
Samskotin
jpf krónur bárust blaðinu
J í gær í samskotasjóð-
inn, og er heildarupphæðin þá orð-
in kr. 39.079.64.
Tapað fundið 15.00. N. N. 5.00.
S. S. 5.00. Ónefndur 50.00. J. G-
5.00. G. Ó. B. 5.00. Bobba og Helga
2.50. N. N. 10.00. Ekkja 5.00. Nýja
Blikksmiðjan 100.00. G. Þ. 5.00.
Ó. B. 21.50. Safnað af Skátafje-
laginu í Hafnarfirði 370.00. Alls
599.00. Áður birt 38.480.64. Sam-
tals kr. 39.079.64.
UMFERÐASLYSIN
OG BÖRNIN.
FKAJDL kS FXBffTU SÍÐH.
Iega lögregla bæjarins gengur eft-
ir því að þeim sje framfylgt. Þetta
hefir einnig komið á daginn.
í „umferðavikunni" vann lög-
reglan mjög vel -r- leiðbeindi fólki
og aðstoðaði í hvÍTetna, eins og
skylda hennar er, ekki síður en
að kæra fyrir afbrot. Það er að
vísu þannig, að það er álítamál
hvort ákvæði sjeu til um að nota
skuli afmarkaðar gangbrautir yfír
götur (jeg efast þó ekki um það,
sjá 10. og 28. gr. lögreglusamþ.
Rvíkur) — en hitt er ákveðið að
nota skuli gangstjettir, þar sem
þær eru, og margt fleira sem kem-
ur til greina í þessu sambandi.
Þetta var alt athugað í nefndri
„viku“. Hvers vegna voru ekkl
gefnar skipanir um að því skyldi
haldið áfram?
Nú vil jeg aðeins taka það fram,
að „umferðavikan" var ekki sjer-
staklega haldin til þess að láta
lögregluna vinna meira þá, en hún
ætíð á að gera — nei — slíkar
„vikur“ eru haldnar sem nokkurs-
konar áhlaup, vakningarstarfsemi
— ekki til þess að vekja lögregl-
una heldur almenning, og upplýsa
hann.
Auðvitað á lögreglan að vinna,
sí og æ, í anda „umferðaviku“.
Starfsár hvers lögreglumanns á að
vera s. s. óslitin „vika“.
Síðan „vikunni“ í vor láúk óg
eftirlitið dofnaði mjög, hefir það
oft komið fyrir, að börn* haf.a
komið með hinar skringilegustu
fyrirspurnir um það, hvers vegna
lögreglan ekki hjeldi áfram að
upplýsa og aðvara þá, sem þau
hefðu sjeð fara svo og svo rangt,
að á götum bæjarins, og lögregltf-
menn hefðu staðið og horft á hlut-
aðeigandi karl eða konu t. d. vaða
endilanga akbraut Austurstrætis,
innan um bifreiðar og reiðhjól-
aka barnavagni eftir miðjum göt-
um hingað og þangað o. in. fl.
Þess vegna þetta: Foreldrar og
aðrir fullorðnir gangi á undan
börnunum með góðu eftirdæmi í
þessu sem öðru því, sem ætlast er
til að þau læri.
Til lögreglunnar vil jeg svO'
beina þessu: Aukið eftirlitið eins
og mögulegt er. Það mun gera
lögregluna vinsæla.
Ólafur Guðlaugsson.
Gestir í. bænum,: Jón Hallgríms-
son bóndi að Hnjúki, Yatnsdal,
Lárus Bjarnason, bóndi í Gríms-
tungu, Eysteinn Bjarnason, bóndi
á Hnausum, Ásgeir Jónsson, bóndi
Gottorp. — Hótel Vík: Eiríkur
Halldórsson verslm., Siglufirði.