Morgunblaðið - 25.11.1938, Side 7
Föstudagur 25. nóv. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Kðputölur
Kápuspennur
Hnappar
Stoppugarn
Tvinni nr. 30—10
Silkitvinni
Teygjubönd
Tautölur
Buxnatölur
Skelplötutölur
Smellur
Fingurbjargir
Öryggisnælur
^ Rennilásar
2 ÖJtt
Skæri
Nálapúðar
Dagbók.
I.O. O.F. 1 =12011258>/2 =
Nóra-Magasfn.
oooooooooooooooooo
Jólakort
til útlanda
með íslenskum Ijós-
ó myndum. TVtikið úr-
val nýkomið.
Thiele
Austurstræti 20.
oooooooooOOOOOOOO-L'
Búr-
vogir
nýkomnar
til
Biering
Laugaveg 3. Sími 4550.
ATTGAÐ hvílist
með gleraugum frá
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
NA-gola. Úrkomulaust.
Veðrið í gær (fimtud. kl. 5):
NA-gola um alt laud. Víðast úr-
komulaust, en dálítil snjójel á
stöku stað norðan lands. Við sjáv-
arsíðuna er víðast frostlaust, en
í innsveitum 2—6 st. frost. Fyrir
siyinan landið er grunn lægð á
hreyfingu austur eftir.
STYRKURINN TIL YJEL-
BÁTANNA.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
útgerðarmönnum, sem stunda
vilja fiskveiðar sem atvinnu, og
með því skilyrði að bátarnir
verði smíðaðir innanlands",
segir í tilkynningunni. Enn er
ekki að fullu ákveðið hvernig
styrkveitingunum verður hagað,
en umsóknir um styrk eiga að
koma til nefndarinnar fyrir 10.
des. n.k.
í lögunum um fiskimálanefnd
er, eins og fyr segir styrkurinn
bundinn við togara, nema hvað
heimild er til að verja á næsta
ári 50 þús. kr. til bátakaupa.
En ríkisstj órnin hefir trygt sjer
samþykki miðstjórnar flokk-
anna, til þess að verja 150 þús.
kr. í viðbót til bátanna, en til
þess þarf breytingu á lögunum.
Næturlæknir er í nótt Eyþór Sú breyting ætti því að vera
Gunnarsson, LaugaVeg 98. Sími'
2111.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki,
í hjónabandsfregn frá Akur-
eyri, sem birtist hjer í blaðinu s.l.
sunnudag, var föðurnafn brúðgum
ans ekki rjett. Þar stóð Guðmund-
ur Snorrason, en átti að vera Arn-
órsson.
Bansleik heldur 4. hékkur Versl
unarskólans í Oddfellowhúsinu kl,
10 n.k. laugardagskvöld.
65 ára er í dag Jóhannes Krist-
jánsson, Jófríðarstöðum, Kapla-
skjóli.
AðstoDar hjúkrunarkonu
vantar Sjúkrahús Isafjarðar um áramót eða fyr.
Upplýsingar gefur
Jóhanoa Knudsen
Sími 3230.
Alhygli skal vaktn
á hinu sjerstaklega góða franskbrauði úr bakaríinu Þing-
holtsstræti 23. (Eingöngu notuð mjólk í brauðið).
Komið og athugið verðlag og vörugæði á hinum fjöl-
breyttu kökutegundum.
Hefi bætt við mig einum manni, sem er faglærður
frá Jóni Símonarsyni.
Bakaríið, Þingholtsstræir 23.
Sími 4275.
auðsótt. tít
Vonandi gengur ríkisstjórn-
inni nú betur að koma þessu fje
út, þar sem það er ekki. lengur
bundið við togara.
En gerir ríkisstjórnin sjer
hitt ljóst, að hjer er verið að
vinna fyrir gíg, ef ekki er sjeð
fyrir hinu, sem er og verður
altaf þungamiðja þessa vanda-
máls, sem sje, að sköpuð verði
skilyrði í landinu fyrir því, að
framleiðslan geti borið sig. —
Meðan ekki er sjeð fyrir þessu,
verða allir styrkir til nýrra
framleiðslutækja aðeins eyðsla
á fje og byrði á ríkissjóði og
skattþegnum landsins.
Ef ríkisstjórnin vildi nú beina
öllum sínum kröftum að því, að
skapa í landinu skilyrði til þess,
að framleiðslan geti borið sig,
þá þarf engin bein framlög frá
því opinbera, því að þá kem-
ur fjeð að sjálfu sjer frá ein-
staklingum þjóðfjelagsins og
fer út í atvinnulífið. Að þessu
ber vitanlega að keppa.
Rjúpur
kaupum við hæsta verði.
Eggert Krisffánsson & Co.
Sími 1400.
'D i-Qlséin] (Cl
m
C&ðbréfabankioi
C Aostuvstr.ð sími 5652.Opió kl.11-12oq1,"
9
annast kaup og sölu allra
VERÐBRJEFA.
„Þorlákur þreytti“. Um þetta
leyti í fyrra sýndi Leikfjelag
Reykjavíkur gamanleikinn Þorlák
þreytta, og var hann sýndur frá
októberbyrjun til jóla, alls í 27
skifti og sýndist ekkert lát vera
á aðsókninni þegar hætt var. —
Vegna þess að Haraldur bóndi
Sigurðsson á Litlu-Drageyri í
Skorradal kemur til bæjarins
kvöld og hefir í hyggju að dvelja
hjer nokkra daga, hefir Leikfje-
lagið fengið hann til þess að sýna
sig enn einu sinni sem Þorlák hinn
þreytta og verður sú sýning n.k.
sunnudag.
Charlotte Piihler heitir höfund-
ur „Hagnýtrar barnasálarfræði“,
sem Armann Halldórsson hefir
þýtt og sem bráðlega kemur út
á bókaforlagi Olafs Erlingssonar.
Nafn höfundar hafði misritast í
blaðinu í gær.
50 ára er í dag ekkjan Ingveld-
ur Þórðardóttir, Egilsgötu 14.
420 manns voru jarðaðir í
kirkjugarðinum við Suðurgötu
1918 — árið sem spanska veikin
gekk. Misritast hafði í blaðinu í
gær 470 í stað 420. *
Skátastúlkur, sem ætla að vinna
fyrir Rauða Krossinn á sunnu-
daginn, mæti á skrifstofu R. K.
í Mjólkurfjelagshúsinu á morgun
'kl. 5—7 e. h.
Guðspekifjelagar. Fundur í
Septímu í kvöld líl. 9. Páll Ein-
arsson fyrv. hæstarjettardómari
flytur erindi.
BRESKA STJÓRNIN.
ARABAR OG GYÐINGAR.
London í gær. FtJ.
Mr. Malcolm Mac Donald
ipplýsti í neðri málstofu
breska þingsins í dag að síðan
1922 hefðu 250 þús. Gyðingar
flust til Palestínu. Hann sagði
að undanfarið hefðu flust þang-
að að meðaltali 1000 Gyðingar
mánaðarlega.
1 ræðu sinni ljet ráðherrann í
Ijós samúð með málstað beggja
aðila, Araba og Gyðinga.
Hann lýsti stefnu bresku
stjórnarinnar í þessum málum
og sagði að stjórnin mundi
fyrst ræða við fulltrúa Araba,
þar næst við fulltrúa Gyðinga,
og vonandi mynjli svo takast
að koma því til leiðar, að fuli
trúar Breta, Araba og Gyðinga
gæti allir sest að samninga-
borði.
Umræðurnar verða að vera
ítarlegar, djarflega og frjáls-
ar, sagði Mac Donald að lokum,
en ef ekki tækist að ná sam-
komulagi á ráðstefnunni,
mundi breska stjórnin taka á
sig alla ábyrgð af þeirri stefnu,
sem tekin yrði í Palestínu.
Franski sendikennarinn, lic. J.
Haupt, flytur næsta háskólafyrir-
lestur sinn í kvöld.
Jarðarför mannsins míns
Jóns Guðmundssonar
frá Hausthúsum fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 26.
þ. mán. og hefst að heimili okkar, Bakkastíg 8 kl. 1 e. hád.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum,.
Sigríður Þórðardóttir.
IJtvarpið:
12.00 Hádegisútvarp.
18.15 íslenskukensla.
18.45 Þýskukensla.
19.20 Erindi F. F. S. í.: Úr vjelar-
rúminu (Gunnlaugur J. Foss-
berg vjelstjóri).
19.50 Frjettir.
20.15 Útvarpssagan.
20.45 HljómplÖtur; Lög leikin á
celló.
21.00 Heilbrigðisþáttur (Guð-
mundur Thoroddsen prófessor).
21.20 Strokkvartett útvarpsins
leikur.
21.45 IUjómpIötur: Harmóníkulög.
TILKYNNING.
Utaf athugasemd Jóns Berg-
sveinssonar framkvæmda-
stjóra í Morgunblaðinu í dag skal
þess getið, að tveir úr stjórn
Landssambands Iðnaðarmanna
ræddu við hann og forseta Slysa-
varnafjelagsins, hr. Þorstein Þor-
steinsson, um málið, um það leyti
sem endanleg ákvörðun var tekin
um tilboðin og hefir því skrifstofa
Landssambandsins allítarlegar upp
lýsingar um það mál.
Reykjavík, 24. nóv. 1938.
Sveinbjörn Jónsson
bvggingameistari.
/