Morgunblaðið - 30.11.1938, Side 7
Miðvikudagur 30. nóv. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
7
—Bannað—
að vera á íerli
London í gær F.Ú.
Gyðingum í Þýskalandi
hefir verið bannað að vera á
ferli á götum úti í þýskum
borgum frá kl. 12 á háde'gi
næsta laugardag til kl. 8 að
kveldi. Þann dag sameinast
þýska þjóðin í söfnunarstarfi
í þágu Vetrarhjálparinnar.
Sjálfvirkt
kolakyndingartæki
Hlutafjelagið Hamar í Reykja-
vík hefir látið útbúa og
smíða nýtísku sjálfvirkt kolakynd
ingartæki, sem hefir í för með
sjer um 30% sparnað á kolanotk-
un.
Tæki þetta kyndir eingöngu
kolasalla, sem er um 10 krónum
ódýrari pr. tonn heldur en stykkja
kol og auk þess hrennir það sall-
anum alveg reýklaust og notar því
alveg í fylsta mæli liitagildi kol-
anna.
Allir þeir, sem ráða yfir stór-
um eldstæðum, svo sem verksmiðj-
um, þúrkhúsum og öðrum iðnaðar-
fyrirtækjum, sem nota stóra katla
og mikla kvndingu, geta hagnýtt
sjer slíkt kyndingartæki.
Ennfremur er þáð þýðingarmik-
ið atriði, að kolin brenna reyk-
laust, ef verksmiðjan liggur nærri
íbúðarhverfum bæjarins.
íslenskt leikritasafn. Rókaversl.
Guðrn. (tamalíelssonar hefir hafið
útgáfu að íslensku leikritasafni
og er fyrsta heftið komið, „Mis-
skilningur" eftir Kristján Jónsson
Fjallaskáld. Lárus Sigurbjörnsson
hefir sjeð um útgáfuna og lagfært
fyrir leiksvið. Hann rit.ar og for-
mála. Leikrit þetta samdi Krist-
ján í skóla og var það sýnt um
það bil er „Skugga Sveinn“ og
„Nýársnóttin“ komu fyrst fram.
Er það ólíkt ljóðum Kristjáns,
því að það er fult af græskulausu
gamni.
tiMinilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllll
nýkomnar í sekkjum og =
lausri vigt.
S j=
I Jóh. Jóhannsson |
g Grundarstíg 2. Sími 4131. i
gj
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiilliiim1
Rammalistar
hinir marg' eftirspurðu
komnir aftur.
Guðm. Ásbjörnsson
Laugaveg 1. Sími 4700.
(I
rðbréfabankin
Gstcnrstr. 5 sírni 5652. Opið K1.11-12 09-1.'
9
annast kaup og sölu allra
VERÐBRJEFA.
Dagbók.
\B Helgafell 593811307y2 —
IV,—V. — Fj.h.st.'.
Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn-
ingskaldi á NA. Úrkomulaust.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5):
A- og NA-átt um alt land, all-
hvast á Vestfjörðum og Breiða-
firði. Á S- og V-landi er veður
bjart, en dálítil úrkoma á N- og
A-landi. Hiti kringum frostmark.
Lægðir fyrir sunnan og austan
land.
Næturlæknir er í nótt Alfreð
Gíslason, Brávallagötu 22. Sími
3894.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Guðsþjónusta verður í dóm-
kirkjunni kl. 11 f. liád. á morgun
í tilefni af 20 ára afmæli full-
veldisins. Síra Friðrik Hallgríms-
son prjedikar.
Messað í Hafnarfjarðarkirkju á
morgun kl. 2. Fullveldisminning.
Síra Garðar Þorsteinsson.
Messað í fríkirkjunni í Ilafn-
arfirði á morgun kl. 2. Fullveldis-
minning. Síra Jón AuðunS.
Sálarrannsóknafjelag fslands
heldur minningarsamkomu um
Harald Níelsson í fríkirkjunni í
kvöld kl. 8. Síra Jón Auðuns flyt-
ur minningarerindi og síra Krist-
inn Daníelsson stútta ráeðu.
Guðspekifjelagar. Fundur í Sept
ímu föstudaginn 2. des. kl. 9.
Grjetar Fells flytur fyrirlestur:
Vitrækt.
Jónas Andrjesson sölumaður er
fimtugur í dag.
Hjónaband. Síðastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband af
síra Friðrik Friðrikssyni ungfrú
Ingileyf Guðjónsdóttir, Ökrum, og
Gísli P. Oddsson vjelstjóri, Akra-
nesi. Heimili brúðhjónanna verður
að Hliði.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Elín
Elíasdóttir frá Bíldudal og Hörð-
ur Gíslason verslunarmaður.
Happdrættismiðar Sjálfstæðis-
flokksins eru til sölu á afgreiðslu
Morgublaðsins.
Stúdentablaðið. Sölubörn komi
í Háskólann í fyrramálið kl. 9.
Ilá sölulaun.
Skátar, piltar og stúlkur. Mætið
við fríkirkjuna á morgun (1. des.)
kl. li/2 e. h.
ísfisksala. Júpíter seldi afla
sinn í Grimsbj^ í gær, 1175 vættir
fyrir 1086 stpd.
Búðir lokaðar. Á morgun, full-
veldisdaginn, verða sölubúðir hjer
í borginni lokaðar allan daginn.
Tilkynning frá happdrætti
Sjálfstæðisflokksins. Menn, sem
ekki hafa gert skilagrein á sölu
happdrættismiða Sjálfstæðisflokks
ins fyrir kvöldið (30. nóvember)
til Stefáns A. Pálssonar, Varðar-
húsinu, verða reiknaðir miðarnir
sem seldir.
Sundhöllin verður ekki opin
nema til kl. 12 á hádegi á morgun
(1. des.).
Sundnámskeið liefjast að nýju í
Sundhöllinni 2. desember og verða
aðeins hálf námskeið í þeim mán-
uði. Þátttakendur gefi sig fram á
fimtudag kl. 9—11 f. h. og föstu-
dag kl. 9—11 f. h. og 2—4 e. h.
Upplýsingar á sömu tímum í síma
4059.
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins.
Nú er hver síðastur að ná sjer í
happdrættismiða. Kaupið miða og
fáið aðra til þess. Takmarkið er:
Ehginn miði óseldur á morgun.
Háskólafyrirlestur. Þýski sendi-
kennarinn, "Wolf-Rottkay, flytur
"liáskólafyrirlestur um þýskar mál-
lýsur og fer yfir mállýskutexta
kl. 8 í kvöld.
Tryggvi gamli kom af veiðum í
gær með 2000 körfur fiskjar.
Skipið fór áleiðis til Englands
með aflann.
Allir íþróttamenn bæjarins eru
beðnir að mæta suður á Iþrótta-
velli kl. 1 e. h. á morgun til þess
að taka þátt í liópgöngu stúdenta
og íþróttamanna frá Garði, í til-
efni af 20 ára fullveldisafmælinu.
K. R.-ingar fara í skála sinn í
kvöld kl. 8. Lagt af stað frá K.
R.-húsinu.
Útvarpið:
18.00 Minningarathöfn Háskólans
á sjötugsafmæli Haralds Níels-
sonar. Utvarpað frá Gamla Bíó.
20.15 Kvöldvaka:
a) Sveinbjörn Sigurjónsson
magister: Þjóðdansar og viki-
yakar, III. Erindi.
b) Sigurður Skúlason: Saga:
i,Hefndin“, eftir Tom Kristen-
sen, II. Úpplestur.
Ennfremur sönglög og hljóð-
færalög.
c) Úr prjedikunum Haralds Ní-
elssonar (frú Aðalbjörg Sigurð-
ardóttir).
Sálmar.
Góð bók
Járningar eftir Theodór
Arnhjarnarson frá Ósi.
Útg. Búnaðarfjelag fs-
lands. 1938.
rið 1931 kom út bók eftir
sama höfund. Það er stór bók
og fróðleg og ber höf. góðan vott
um ágæta þekkingu á líkams-
byggingu hesta og skapgerð þeirra
allri, og ekki síður um velvild
hans á þeim, og' umhyggju hans
fyrir velferð þeirra og meðferð.
Bókina nefnir hann „Hestar“.
Nú er nýútkomin ofannefnd
bók. Hún er í sama broti og
,,Hestar“. Fyrst er inngangur, al-
mennar hugleiðingar um járning-
ar fyr á tímurn, og virðist svo sem
Keltar hafi fyrstir manna tekið
upp á því að negla skeifuna neð-
an í hófinn. Hann skiftir bókinni
í 4 aðalkafla. í þeim fyrsta er
lýst byggingu hófsins og er þar
ágæt anatomisk lýsing á hófnum
og kjúkum. Og þar eru yfir 20
nýjar teikningar af ýmiskonar
liófum, og er það í fyrsta skifti
sem slíkar fræðiteikningar eru!
birtar í bók hjer ij, landi. Teikn-
ingarnar eru góðai'.
Annar kaflinn er um hirðing
hófanna, og er þai margt að læra.
Þá er þriðji kaflinn um járn-
ingu heilbrigðra hófa, og þar þyk-
ir mjer þrýðilegastur kapítulinn,
um hest í 'járningu á bls. 59.
Og loks fjórði og seinasti kafl-
inn, aðgerð á meiddum hófum.
Þar er nákvæmlega sagt frá við-
gerðum á ýmsuttt úieiðslum og
skemdum, sem verða á hófum, og
menn geta lágfært sjálfir.
Eigi hefir áður verið rituð bólc
um þetta efni; ef ekki annað hægt
að segja, en að vel sje á stað farið.
Bókin er samánþjöppuð þekking
um hluti, sem hverjum manni er
nauðsynleg, sem við hesta fást.
Bókin er vel rituð eins :>g alt,
sem Theodór Arnbjarnárson rit-
ar, og skemtileg aflestrar, jgfnvel
þó að maður gæti búist við því,
að þetta væri fremur þurt efni í
frásögn.
Mjer fin'st að þessi bók æ ti að
verða notuð í búnaðarskólum sem
kenslubók. Þ.
Háfjallasólar-lampi
óskast keyptur eða leigður.
Ragna Si^urðardóltir.
Versl. Flóra. Sími 2039.
Hjúpur
kaupum við hæsta verði.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 1400.
Ný orðabók
Ensk-íslenskt orðasafn
eftir
BOGA ÓLAFSSON og ÁRNA GUÐNASON.
Verð kr. 6J50.
Bókaverslun Slgfúsar Eymundssonar.
Blandað „KLUK“. MAIS kurlað-
ur. MAIS heill. HVEITIHRAT
HAFRAR. BYGG.
FOÐUR
Morgunblaðifi með morgunkaff ínu
Ximburversiluii
1 ?. W. lacobsen & 5ön 5.5. g
Stofnuð 182 4.
H! Símnefni: Granfuru — 40 Uplandsgade, Köbenhavn S. m
m Selúr timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup- m
jEgj mannahöfn. ----- Eik til skipasmíða. ----- Einnig heila =
skipsfarma frá Svíþjóð og Finnlandi. m
Hefi verslað við ísland í cirka 100 ár.
Öllum þeim, sem sýnt hafa hluttekningu í sjúkdómi og við
jarðarför elskulegu móður minnar,
Guðrúnar Arnbjarnardóttur,
votta jeg mitt hjartans þakklæti.
Með kærri kveðju.
Kaupmannahöfn, þ. 22. nóv. 1938.
Guðrún Carlsson.