Morgunblaðið - 25.04.1939, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 25. apríl 1939. M0RGUNBI]A9Ití
Stauning og
Þjóðverjar
Völkischer Beobachte^“,
skrifar um útvatpsræðu,
sem Stauning, forsætisráðherra
Dana flutti eftir heimkomu sína
frá París um miðjan þenna
mán. ,,Hin skynsamlega af-
staða Staunings, sem með sanni
ber vott um stjórnmálahæfi-
leika hans, stingur þægilega í
stúf við hinar ógeðfeldu æsinga-
.aðferðir, sem forsætisráðherr-
ann vísaði alveg eindregið á
bug. Samband Þýskalands og
Danmerkur gefur ekkert tilefni
til málatilbúnaðs ensku áróðurs-
mannanna. Þjóðverjar hafa á-
valt leitast við að gera sambúð
sína við nágrannana í norðri
innilega og affarasæla. Það er
okkur ánægja, að sjá það, að
danska stjórnin á sjer sömu ósk
og lætur ekki afvegaleiða sig
frá hinni skynsamlegu stefnu
sinni, með klunnalegum rugl-
ingstilraunum, íklæddum sam-
viskulausum áróðri, sem hefir
breskan keim.
(Sendiherrafrjett).
Lán Breta til
Rúmena
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gæ'i'.
afencu, utanríkismálaráð-
herra Rúmena er nú kom
inn til London og er byrjað-
ur að ræða við breska
stjórnmálamenn um afstöðu
Rúmena til varnarbandalagsin.
I dag lagði bresk viðskifta-
mála'néfnd ái stað til Bukarest. Er
talið - að Bretar muni veita Rúmenum
stór lán til þess að kaupa hergögn í
Bretlandi.
UGGUR RÚMENA.
London. FÚ.
I Búkarest er talsverður uggur í
'inöímum vfir því, með hve miklu kappi
og hraða Þýskalánd gengur að því að
frámkvæma ákvæði þýsk'-rúmenska
viðskiftasáttmálans.
I Búkarest er því haldið fram, að
•sáttmálinn hafi ekki átt að ganga í
gildi fyr en mánuði eftir að hann
hefði verið lögfestur í báðum löndum,
■en Þýskaland gerir nú kröfu, til þess
a‘ð keyra þegar í stað fram öll ákvæði
stóttmálans og telur klausu vera í
honum, sem heimili slíkt, þótt ekki sje
búið að Iögfésta hann.
Fjöldi þýskra verkfræðinga er kom-
ínn til Búkarest, og búist er við, að
yfirmaður þýskra vegamála, dr. Todt,
komi þangað bráðlega, til þess að und-
irbúa framkvaamdir að því er snertir
vegalagningar Þjóðverja í landinu.
KVEÐJA TIL ÞORLÁKS
JÓNSSONAR.
Engann Þorlák vænni veit, í virkc,
standi,
fiintíu ár þó geysti gandi,
gæfumann á sjó og landi.
Hálfrar aldar áframhald þig auðn-
an styðji.
Hátt og lágt þjer heilla hiðji.
Hár og lár hver íslands ni'ðji.
Ráddu fram úr ráðaleysi ráðleys-
ingja,
uns þjer löfgjÖrð allir syngja,
sem eftir ráðmn til þín hringja.
Jónas Jónsson, Grjótheimi.
Dagbók.
|X| Helgafell 59394257 - VI. - 2.
Lokafundur.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Hægviðri. Skúrir. Gengur í SA-
átt með kvöldinu.
Veðrið í g-ær (mánud. kl. 5) :
Grunn lægð yfir íslandi. Vind-
staða breytileg. Dálítil snjókoma
með 1 st. hita á annesjum norðan
lands. Skúrir og 6—8 st. hiti suð-
vestan lands. Ný lægð við S-
Grænland á hreyfingu NA-eftir.
Næturlæknir er í nótt Alfred
Gíslason, Brávallagötu 22, Sími
3894.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Dánarfregn. Þórður Pjetursson
kaupmaður ljest á heimili sínu,
Vitastíg 20, í gærdag'. Banamein
hans var lijartabilun. Hann hafði
verið lasinn undanfarið, en var
kominn á fætur aftur og fór til
vinnu sinnar í gærmorgun, en
veiktist skyndilega eftir hádegið.
Þingfundir fjelln niður í gær,
vegna andláts Þorhergs Þorleifs-
sonar alþm. í Hólum. Forseti Nd.
(Jör. Br.) mintist Þorbergs í gær-
morgun, er þingfttridur skyldi
hefjast. Þingmenn vottuðu hirium
látna þingbróður virðingu sína
með því að rísa íir sætum.
Hjónaefni. 22. þ. m. opinberuðu
tríilofun sína ungfrú Guðfinna E.
Magnúsdóttir, Reykjavíkurv^g 7,
Skerjafirði og Kristján Kristj/uis-,
son bifreiðarstjóri, Hringbraut
114.
Hjónaband. Þann 6. maí verða
gefin saman í hjónaband í Vadum-
kirkju í Danmörkii, ungfrú Iluldá
Laufey Sigukðardóttir og deildár-
stjóri Svend Aage Thomseri.
50 ára afmælismót Ármanns fér
fram 24. maí næstkomandi. Fer
þar fram snndknattleiksmeistara-
mót íslatnls. - Kopt verður í fimm
manna sveitum. Auk þess verður
kept á þessum vegalengdum: 500
m. bringusund karla, 400 metra
bringusund kvenna, 50 m. frjáls
aðferð, konur, 50 m. bringusund,
dreng-ir innan 14 ára, 50 metra
bringusund, telpur innan 14 ára,
50 m. baksund, drengir innan 16
ára, 4x50 m. boðsund, drengir inri-
an 16 ára. Þátttakendnr etn beðn'-
ir að gefa sig fram við Þóraririn
Magnússon skósmið, Frakkastíg
13, fyrir 15. maí.
B.v, Max Pemberton kom af
veiðum á sunnudaginn með 97 föt
lifrar.
Nýlega var skýft frá því hjer
í blaðinu. að flöskuskeyti merkt
Balwin-Ziegjer Kxpedit ion, hefði
fundist á Vatnsleysuströnd. Var
þess getið tii, að skeyti þessri hefði
verið kasiað ut af hafrannsókuar
skiþinu „Dao því vitað var að
það skip liatði fengið nökkur
flöskuskevti frá fyrnefndum Jeið-
angri. Mbl. sendi skeyti þétta til
skriístofu danska sendihefrans
hjer í hæ og hefir nú fengið það
svar frá skrifstofumii, að samky.
upplýsingum frá danska stjóxnar-
ráðinu hafi sjieyti þessu ekki ver-
ið kastað út frá „Dana“.
U. M. F. Velvakandi hefir aðal-
fund sinn í Kaupþingssalnum í
kvöld kl. 8. Mjög áríðandi að aB-
ir fjelagsmenn mæti stundvísiega
Gestir í bænum. Hótel Borg:
Sveinbj. Arnason útgerðarm..
Garði. Pjetur Njarðvík netagerð-
armaður, ísafirði. Ágúst Einars-
sön kaupfjelagsstj., Efra-Hvoli.
Hr. og frú Vigfiis Vigfússon for-
stjóri, Kaupm.höfn. Carl II. Oolli-
ander forstjóri, Gautaborg. Jlr. og
frú C. Th. Jeusen rítst.i., Khöfri.
Oberman Holland.
Farþegar með Dettifossi til út-
landa: Ólafur Gíslason, Höi-ður
Jónsson, Ólafur Ófeigsson, Magn-
ús 0igurðsson_ bankasijóri, .Ilerr
Wolf-Rottkav og frú, Hulda Þórð-
ardóttir, Björgyin, Jónsson, Ilanna
Erlendsson, Stefán Stefánsson.
Vantrauststillaga komrnnnist-
anna er á dagskrá Alþingis í dag.
Vekiir hún enga eftirtekt, frekar
en aðraV aðgerðir þess ómerkilega
flokks. Að öðru leyti en því, að
hún num vera einstök í þingsögu
þjóða. Því það er vitað, að engir
nema ráðherrarnir 4, sem atkvæð-
isrjett hafa, þurfa að greiða at-
kvæði til að félia hana. Ríkis-
stjórnin mun afgreiða hana á við-
eigandí hátt. Vildu kommúnistar
fá útvarpsujnræður um hana. En
ekki þótti ástæða til þess. Stjórn-
in mun ætla sjer að hafa almenn-
ar umræður í útvarp á næstunni
um stjórnmálin, og fá kommún-
istar þá að tala með.
Kvenflokkur K. R. og kennari
hans var hyltur af K. R.-ingum
á fjölmenmnri skemtifundi, sem
fjelagið hjélt í fyrrakvöld. For-
maður K. R. ávarpaði flokkinn og
kepnarann með snjallri ræðu. Af-
henti hann flokknum. og kepnar-
anum heiðurspening .frá K. R.,
sem þakklæti frá fjelaginu fyrir
hina frækilegu för. Einnig þakk-
aði hann fulltrúá stjórnarinnar í
'förhmi. ungfrú Dóru Guðbjarts-
dóttur,- fyrir hennar ágæta starf
í þágu flokksins. Forséti í. S. í.
áfhenti ölium þátttakendum
flokksins og kennara merki í. S.
í. og þakkaði fyrir hönd íþrótta-
spmbandsinS ' hina glæsilegu för,
sém hafi orðið bjóðinni til mikils
heiðurs. Fimleikastjóri Benedikt
Jakobsson sagði ferðasögu flokks
iiris í stór.um dráttum og rómaði,
mjög gestrisni Daria og Svía.
Eimskip. Gullfoss fer véstur í
kvöld. Goðafoss er í Ilamborg.
Brxiarfoss er í Gautábo.rg. Detti-
foss fór "til útlandá í gærkvoldi
kl ’ 10. Lagarfoss er á SkagáefVörid
Selfoss ér á' léið til Rotterdam.
B.v. Haukanes kom til Ifafftar-
fjarðar í fyrradag með veikan
nlarin. •, < ■:» cc;<>ri ■
Knattspyrnufjel. Víkingur. 1.
og 2, fl; Mupið æfingpna í kvöld
kl :8 á. iþróttayellinum,
Misritast liafði nafu í jarðar-
fárarauglýsiugu Gísia Jónssönar í
áriririijdagsblaðinu. Stóð undir aug-
lýsirigunni Guðmuriaur Gíslason,
cn átti að véra ''Griðhumda Gísla-
dóttir.
Breskt blað’ 'fli-tur !þ; 21. ma'rs
gjrein þar *séVrt> • geífed evb 'nih‘ - „til-
raimir1' Þjóðverja lil jiess að
stofna til fjngstjöðvii -.h.iev á landi
ojg: yntjöixy it/þgí samhandi, hv.evsu
niikilyægt íslaud sje með tiliiti
til flugferða milli meginlands Ev-
rópu og Ameríku. Blaðið segir, að
síðastliðið ár hafi íslenska stjórn-
in byrjað á stórfeldri áætlun um
rafvirkjun, sem eigi að vera lokið
1943, og verði hveraorkan notuð
til rafvirkjunar nm alt ísland, til
)ess að framleiða raforku handa
sveitahæjum, spörvagna milli
porpa — og það sem mikilvægast
sje — til flugstöðva — og sje það
með tilUti til þess, að Þjóðverjar
renni augum sínum til íslands o.
s. frv., og leiðangrarnir tveir, sem
Þjóðverjar hafi sent hingað muni
hafa hina mestu þýðingu, að því
er ítarlega rannsókn snerti á því,
að stofna hjer til varanlegra flug-
og kafbátastöðva. Blaðið, sem
flytur fregn þá, sem hjer er gerð
að umtálsefni, er „Truth“ (Sann-
leikurinn). — (FB.).
Útvarpið:
Þriðjudagur 25. april.
9.25 lltvarpsviki barnaskólanna:
Kensla. — 10.10: Erindi.
12.00 Hádegisútvarp.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: Auðæfi jarðar, I:
’Gúmmí (Guðjón Guðjónsson
skólastj.).
20.40 Tónleikar Tónlistarskólans
(tríó).
21.20 Kórsöngur (frá Akureyri):
Kantötukór Akureyrar syngúr
2. þátt úr óratóríinu „Streng-
leikar“ eftir Björgvin Gnð-
mundsson, við teksta Guðmund-
ar Guðmundssonar.
22.25 Frjettaágrip.
22.30 Dagskrárlok.
Það tilkynnist virium og ættingjum, að konan mín elskn-
leg, dóttir okkar og systir
HREFNA ásgeirsdóttir
andaðist að hressingarhælinu, Vífilsstöðum laugardaginn 22.
apríl. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Eiginmaður, foreldrar og systkini hinnar látnu.
Það tilkynnist hjer með, að dóttir og systir okkar
HULDA GUÐJ ÓNSDÓTTIR
andaðist 19. þ. m. í sjúkrahúsinu á Siglufirði. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Guðjón Bárðarson, Jónína Bjarnadóttir
og systkini.
Maðurinn minn
ÞÓRÐUR PJETURSSON kaupm.
andaðist að heimili sínu þann 24. þ. mán.
Ágústa Ólafsdóttir.
Kveðjuathöfn yfir systur okkar
LAUFEY V. HJALTALÍN
fer fram frá fríkirkjunfti í dag, þriðjudaginn 25. þ. m. kl.
5.45 e. hi. Síðan verður líkið flutt vestur með v.b. Óðinn.
Eygló V. Hjaltalín. Vilhjálmur V. Hjaltalín.
Lilja Arndal.
Jarðarför föður okkar
GÍSLA JÓNSSONAR
fer fram frá dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 25. þ. m. og
hefst með bæn að Elliheimilinu kl. 1 e. h.
Kristín Gísladóttir. Guðmunda Gísladóttir.
Jarðarför mannsins œíns og föður
LÁRUSAR EINARSSONAR
fer fram frá fríkirkjunni miðvikudaginn 26. þ. m. og hefst með
húskveðju frá heimili okkar, Hringbraut 202 kl. 3 e. h.
Guðrún Ólafsdóttir. Óskar Lárusson.
Jarðarför mannsins míns og föður
MAGNÚSAR DAVÍÐSSONAR
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 26. þ. m. Athöfnin
hefst með bæn á heimili hans, Þverveg 38. — Jarðað verður í
gamla kirkjugarðinum.
Soffía Jónsdóttir. Jóna Kristín Magnúsdóttir.
Inriilegt þakklæti til allra, er sýndu samúð við fráfall
og jarðarför
MARGRJETAR ÞÓRÐARDÓT'LUR.
Fyrír hönd aðstandenda
Oddrún Klemensdóttir
%