Morgunblaðið - 29.04.1939, Side 5

Morgunblaðið - 29.04.1939, Side 5
Xaugardagur 29. apríl 1939. 5 orgttttMtt&tð----------------------- Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Ritstjórar: Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgtSarmatíur). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiSsla: Austurstræti 8. — Slmi 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuSi. í lausasölu: 15 aura eintakiS — 25 aura meS Lesbók. EFTIR RÆÐU HITLERS RÆÐA HITÍ.ERS Hann talaði í tvær klst. og 18 min. HITLER vísaði á bug uppá- stungu Roosevelts um að kölluð yrði saman alþjóðaráð- stefna, til þess að jafna ágrein- ingsmál í heiminum og tryggja með því friðinn. Hann gerði }>að ekki með berum orðum, heldur með því að lýsa yfir því, að hann myndi aldrei ganga til samninga óvopnaður, eins og Roosevelt hafði stungið upp á. Tillaga Roosevelts var að þjóð- irnar kæmu saman umhverfis samningaborð og skildu vopn- ín eftir fyrir utan. Hitler sagði að Þjóðverjar hefðu gert þetta' í Versölum, og að þá hefði verið þvingað upp á þá hinum gífur- legustu ókjörum, sem sögur fari af, og að Þjóðverjar myndu aldrei láta hið sama koma fyrir aftur. Roosevelt hafði lagt til 1 ■orðsendingu sinni, að Hitler og Mussolini hjetu því áður en gengið yrði til samninga um 10 ára, eða, ef mögulegt væri 25 ára frið, að fara ekki með stríð á hendur þrjátíu og einu ríki, sem talin voru upp. — Þessu hafnaði Hitler líka. Hann sagð- ist að vísu fús til þess að gera samninga við hvert ríki fyrir sig, af þessum þrjátíu og einu, ef þau öskuðu þess sjálf, en að eins á grundvelli gagnkvæmra hlunninda, og auk þess að því tilskyldu, að fram kæmu „hæfi- legar tillögur“. Þetta tvent, alþjóðaráðstefn- an og ábyrgðirnar, voru aðal- kjarninn í tillögum Roosevelts, sem Hitler hafði lýst yfir að hann ætlaði að svara frammi fyrir þýska ríkisdeginum og fyr- ir hönd allrar þýsku þjóðarinn- ar. Hitler hefði getað svarað eftir venjulegum diplomatisk- um leiðum, eins og venja er til, en hann gerði það ekki, og hafa vafalaust legið til þess veiga- miklar orsakir. Það sem ein- kendi ræðu hans í gær, var hin mikla orðfimi hans. Hafi nokkur maður í Þýskalandi ef- ast um, að sú staðhæfing væri rjett, að verið væri að um- kringja Þjóðverja, og að sökin lægi hjá óvinum Þjóðverja, lýð- ræðisþjóðunum, ef styrjöld bryt Ist út, en ekki hjá þeim sjálf- um, þá mun lítið eima eftir af því eftir ræðu hans. Hann sneri varnarbandalaginu sem Bretar hafa beitt sjer fyrir að gert yrði milli smáríkjanna í Austur-Ev- rópu og stórþjóðanna í Vestur- Evrópu, upp í það að vera árásarbandalag gegn Þjóðverj- um. Þannig rökstuddi hann mál sitt, þegar hann reifaði það, hversvegna hann hefði ákveðið að segja upp bresk-þýska flota- sáttmálanum. Sáttmáli þessi sem gerður var árið 1935, hefir verið álitinn í Englandi „dauð- ur bókstafur", síðan um ára- mót. Þjóðverjar ákváðu þá, að korna sjer upp kafbátaflota til .jafns við kafbátflota Breta þóit þetta hafi verið heimilt samkvæmt bókstaf sáttmálans, þá hafa Bretar litið svo á, að hjer væri farið í bág við anda hans. Hitler kvaðst vona að ekki þyrfti til þess að koma, að Bretar og Þjóðverjar þyrftu að taka upp vígbúnaðarkepni á sjó. En uppsögn flotasáttmálans hittir Breta, þar sem þeir eru viðkvæmastir og mun vafalaust hafa í för með sjer aukna tortryggni í garð Þjóðverja. ■— Bismarck varaðist á sínum tíma að egna Breta gegn sjer, með því á nokkurn hátt að reyna að bjóða flotaveldi þeirra byrginn. Vilhjálmur keisari ákvað aftur á móti að koma sjer upp flota til jafns við flota Breta, og afleiðingin var vax- andi sundurlyndi í álfunni, sem að lokum leiddi til heimsstyrj- aldarinnar. En þótt uppsögn flota- sáttmálans út af fyrir sig hafi litlar breytingar í för með sjer, ef Hitler lætur sjer víti Vilhj. keisara að varnaði verða, þá má búast við, að hin samn-1 ingsuppsögnin, uppsögn vináttu sáttmálans við Pólverja, geti haft örlagarík áhrif á rás við-> burðanna í Evrópu á næstunni. Hit.ler hefir nú opinberlega sett fram kröfur þær, sem hann ger- ir á hendur Pólverjum. Þessar kröfur virðast ekki ósanngjarn- ar, þegar á það er litið, að Danzig er þýsk borg, og pólska hliðið var tekið af Þjóðverjum. En taka verður tillit til þess að hin fyrirhugaða járnbraut klýf- ur „pólska hliðið“ í tvent með nýju „þýsku hliði“, og gerir samgöngur við hina einu hafn- •arborg Pólverja Gdynia (aulc Danzigs) háðari Þjóðverjum. Hjer var líka um hreinar kröfur á hendur sjálfstæðu ríki að ræða, en ekki samningsumleit- •un, þar sem eina boðið, sem á móti kom um ábyrgð á núver- andi landamærum Póllands, var þegar fastbundið með samning- um. • En hjer er um mál að ræða, sem vafalaust verður knúið fram til skjótrar úrlausnar. Það var að vísu kunnugt, áður en Hitler flutti ræðu sína, að Þjóð- verjar væru með fyrirætlanir um Pólverja. Má því segja að ræða Hitlers hafi lítið gert til þess að gera ástandið betra eða verra. Hún hefir þó að lík- indum sannfært alla Þjóðverja um að nazista-forustan sje á rjettri braut — og aðrar þjóðir um, að þessi forusta telur sig hafa einskis að iðrast og geta farið sínu fram hjer eftir sem hingað til. Af veiðum komu í gær Brimir með 90 smál. af ufsa, Egill Skalla- grímsson með 80 föt lifrar, Bel- gaum með 60 og Geir með 73 föt lifrar. Aðalatriðin í ræðu Hitlers í gær og; bau, sem mesta athygli hafa vakið um allan heim, voru ]iau, að hann lýsti yfir bví, að Þýskaland teldi flotamálasáttmálann við Bretland úr gildi geng- inn, og ennfremur teldi hað úr gildi gensjinn sáttmálann við Pólland urn bað, að hvor- ugur aðilinn skyldi ráðast á hinn. Hann tók snemma í ræðu sinni að tala um áskorun Roosevelts og það, sem hann kallaði hið kyn- lega innihald hennar. Þessi áskor- un, sagði Hitler, var birt fyrir öllum heimi, áður en jeg fjekk svo mikið sem að sjá hana, og kvaðst Hitler myndu svara slík- um áskorunum í sam tón. Sagði hann síðan, að þessi áskorun Roosevelts með öllu því róti, sem liún hefði komið á liugi manna, hefði átt að vera kænskubragð til þess að skella sökinni af öllum óróanum í Evrópu á Þýskaland og Italíu. Ilann sagði því næst, að eina takmark sitt sem leiðtoga þýsku þjóðarinnar A^æri að gefa henni nægilega stórt og nægilega vel varið svigrúm til þess að lifa lífi sínu og þróast og- í því sambandi mætti minna Roosevelt á það, að lönd þau og ríki, sem lögð liefðu verið við Þýskaland undir for- ystu lians, liefðu verið þýsk lönd löngu áður en búið var að finna Ameríku. Þá talaði Hitler langt mál um hörmungar þær og niðurlægingu, sem yfir Þýskaland liefðu gengið á meðan Gyðingar liefðu ráðið blaðakosti landsins og bolsivikkar og lýðræðissinnar hefðu ráðið lög- um og lofum í atvinnulífi lands- ins og fjelagsmálum. Þrátt fyrir alla þessa niðurlægingu hefði liann reynst megnugur þess að reisa þýsku þjóðina til valda og virðingar og koma á ró í Mið- Evrópu, án þess að til styrjaldar drægi. Þá taldi Hitler upp mörg ríki, sem Þýskaland hefði gefið þær yfirlýsingar, að það myndi engar landakröfur gera á hendur þeim. Byrjaði hann þá upptaln- ingu á Frakklandi og vísaði til sáttmálans, er Ribbentrop gerði í París og sagði, að í þessu feldust gildar sannanir fyrir friðarvilja Þýskalands. Að því er snerti Italíu kvað Iiitler það vera þarflaust fyrir sig að gera nánari grein fyrir af- stöðu Þýskalands til hennar, og fór hann í því sambandi viður- kenningarorðum um þá ráðstöfun Italíu, að leggja undir sig Al- baníu. Ilitler lýsti að lokum yfir því, að það væri ætlan sín að gera samband við Ítalíu og Japan, enn þá nánara en verið hefði, og sama máli gegndi um Ungverjaland og Júgóslavíu. Um Austurríki talaði Hitler einnig og sagði, að það land hefði tilheyrt þýska ríkinu fyrir meira en þúsund árum, og í Bæheimi og á Mæri liefðu það verið Slavar, sem brutust inn í land, er raun- verulega var þýskt. Hitler endurtók fyrri hæfingar þýskra stjórnarvalda um, að þýski minnihlutinn í Tjekkóslóvakíu hefði verið kúg- aður af Tjekkum með aðstoð lýð- ræðisríkjanna. Lausn þessa máls hefði verið Vestur-Evrópu alger- lega óviðkomandi, en lýðræðisrík- in, Bretland og Fi’akkland, hefðu viljað hafa Tjekkóslóvakíu sein sterkt árásarvígi á Þýskaland og stöð fyrir árásarflugvjelar. TJEKKOSLOVAKÍA Um lausn tjekknesku deilunnar kvaðst Hitler að lokum vilja segja það, að liún hefði verið miklu auðveldari án nokkurs Múnehensáttmála og án allrar íhlutunar frá Bretlandi og Frakk landi, því að Þýskaland, Ungverja- land, Pólland og Slóvakía hefðu oll haft rjettmætar kröfur fram að bera í því máli og möguleika til þess að fá þeim fullnægt. Það kemur Bretlandi ekki meira við, hvað Þýskaland gei'ir í Mið-Evrópu heldur en Þýskalandi kem- ur við hvað Bretland gerir á Irlandi. Auk þess hefði ekkert gerst í málefn- um Tjekkóslóvakíu, sem væri í and- stöðu við Miinchensamkomulagið við Chamberlain. Þetta samkomulag hefði í eðli sínu verið Tjekkóslóvakíu óvið- komandi og hennar inálum og aðeins snúist um sambandið milli Þýskalands og Englands. Ef Múnchensamkomulag- inu hefði verið ætlað að hafa áhrif á. allar framtíðarráðstafanir beggja ríkja þá bæri Englandi að spyrja Þýskaland ráða um allar ráðstafanir, t. d. í Pale- stínu. Ef Chamberlain hinsvegar hjeldi að þertta samkomulag milli Þýskalandfi og Bretlands væri ekki lengur í gildi, þá yrði hann að taka afleiðingunum af því sjálfur.En milli Bretlands og Þýska lands gæti ekki orðið um neina vin- áttu að ræða, nema Bretland skildi þarfir Þýskalands. Þá veik Hitler að breska heimsveldinu og sagðist viður- kenna, að England hefði unnið mikils- vert landnáms- og nýlendustarf, sem hann kvaðst dáðst að, en Þýskaland hefði líka einu sinni verið voldugt heimsveldi, og þó að það hefði ekki ennþá fengið sínar dýrmætu nýlendur aftur, kendi það sig engan veginn minni máttar gagnvart Englandi. Þá veik Hitler að þeim orðum Cham- berlains, að hann gæti ekki framar treyst yfirlýsingum þýsku stjórnarinn- ar, og lýsti yfir því, að þar með væri grundvöllur bresk-þýska flotasáttmál- ans á burtu fallinn. Sá sáttmáli hefði bygst á þeirri trú beggja aðila, að til styrjaldar milli Bretlands og Þýska- lands gæti ekki komið. Þar sem stjórn- málamennimir í London Værn bersýni- lega búnir að missa þessa trú, væri sáttmálinn genginn úr gildi, og kvaðst Hitler þegar í dag myndu senda bresku stjórninni boðskap þess efnis. Ef Bret- land óskaði að hefja samninga á ný um vígbúnað á sjó, myndi hanp fús- lega taka þátt í þeim samningum. PÓLLAND Eftir að Hitler hefði síðan farið nokkmm orðuin um innlimum Memel- lijeraðsins, veik hann að Póllandi, og sagði, að pólska hliðið væri ákaflega viðkvæmt mál. — Yiðvíkjandi Danzig gæti enginn maður um það efast, að hún væri þýsk borg og vildi vera það. Hann kvaðst fyrir nokkru hafa gert pólsku stjórninni tilboð um það, að I Þýskaland fengi Danzig og bifreiða- braut gegnum pólska hliðið, en gegn þessu skyldi Pólland fá ýms viðskifta- leg rjettindi og 25 ára Jilutleysissamn- ing. Þessu hefði Pólland hafnað, og kvaðst Hitler harma, að svo hefði farið því að þetta hefði orðið Póllandi til góðs. Viðvíkjandi sáttmála þeim, sem England og Pólland hefðu gert með sjer, væri það að segja, að hann væri andstæður hlutleysissamningi þeim, sem Þýskaland og Pólland hefu gert með sjer, og mætti hann því teljast rofinn af Hóllandi og ekki lengur í gildi. — Kvaðst hann í dag hafa sent pólsku stjóminni tilkynningu um þetta mál og bætti því við, að ef Póllandi ósk- aði að semja um málið, þá væri hann einnig fús til að taka þátt í þeim samningum. Þá talaði Hitler nokkur orð um Spán og fór viðurkenningaorðum um Franeo og starf hans. ROOSEVELT Þessu næst kom Hitler að áskorun Roosevelts og gagnrýndi hana. Roose- velt hefði talað um styrjaldarótta, en þessi ótti væri einungis að kenna hinum eftirlitslausu blöðum lýðræðisríkjanna og allskonar styrjaldarspekúlöntum, en. ekki Þýskalandi. Þá hefði Roosvelt tal að um hótanir, en Hitler kvaðst ekki vita neitt til slíkra hótana, nema það, sem hann hefði lesið í blöðum lýðræð- islandanna. Hitler kvaðst vera Roose- velt alveg sammála um það, að í styrj- öld myndu allir líða, hinn sigraði, sig- urvegarinn og hinir lilutlausu. Roose- velt hefði ennfremur sagt, að leiðtogar þjóðanna gætu komið í veg fyrir styrj- öld. Hann kvaðst vera þessu algerlega sammála, og væri best ráðið fyrir þá að svifta blöði'n ritfrelsi sínu. Þá kvað Hitler Roosevelt liafa talað um þrjár þjóðir í Evrópu og eina í Afríku, sem mist hefðu sjálfstæði sitt. Hann kvaSst ekki vita, hvaða þjóðir Roosevelt ætti við, en ef hann hefði átt við ríki þau, sem nú hefðu verið endursameinuð Þýskalandi, þá væri því til að svarar að þau hefðu mist sjálfstæði sitt 1918, er þau voru knúin til að gerast óháð ríki á móti vilja sínum. Þjóðir Afríku hefðu hinsvegar fyrir löngu tapað sjálf stæði sínu fyrir blóðsúthellingar og yf- irgang Evrópumanna, en það væri ekki Þýskalandi að kenna, heldur lýðræðis- ríkjunum. Þá fór Hitler allhörðum orð- um um stjórnmálastefnu Bandaríkjanna — Bandaríkin hefðu, sagði hann, geng- ið í styrjöldina miklu eingöngu vegna þjónustu við stórauðvaldið, og kvaðst hann vilja ráðlegg.ja þeim hjer eftir að liugsa aðeins um sínar eigin land- varnir. Roosevelt liefði sagt, að sjer gengi vinsemd til þess að senda út áskorun sína, en Bandaríkin hefðu átt að sýna þá vinsemd fyrir löngu, til dæmis með því að koma í veg fyrir Versalasáttmálann. Viðvíkjandi ráð- stefnu eins og þeirri, sem Roosevelt hefði stungið upp á sagði Hitler, að hann liefði enga trú á slíkum ráð- stefnum. Þjóðabandalagið liefði á 20 árum ekki getað greitt fram úr einu einasta vandamáli. Ráðstefnuhugmynd Roosevelts væri einna líkust því, að draga ætti Þýskaland fyrir dómstól, en Þýskaland myndi yfirleitt ekki mæta fyrir slíkum dómstólum. Þá mintist Hitler á það, að Roose- velt hefði sagt, að affarasælast yrði, að FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. stað-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.