Morgunblaðið - 02.05.1939, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.05.1939, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. maí 1939. Pólsk blöð sðgðu i gær: # , " v _ & '-ý £»»•*■• Slríð, ef Þjóðverjar reyna að laka Danzig Muisolini óftast vandræði eins og i september síðasfl. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Franska blaðið „Le Temps“ segir að Mussolini sje farinn að bera kvíiboga út af því, hvernig högum er komið í sambúð Pólverja og Þjóð- verja. Mussolini er það ljóst, að Hitler herðir. þeim mun meir sóknina á hendur Pólverjum, sem andstaðan gegn kröfum hans vex. Tónninn í pólskum blöðum gagnvart Þjóðverjum hefir orðið allmikið harðari síðan Hitler flutti ræðu sína. Eitt af áhrifamestu blöðunum segir að Hitler verði að fara í stríð við Breta, Frakka og Pólverja, ef hann geri tilraun til að fá Danzig. I Róm er óttast að þessi afstaða pólsku blaðanna bendi að- eins til þess, að Þjóðverjar setji fram víðtækari kröfur. Póhgerjar muni að líkindum hafna þessum kröfum og eftir það muni pólsk- þýska deilan fljótt harðna og afleiðingin verða Evrópustyrjöld. Er sú skoðun látin í ljós í Róm, að högum Pólverja sje nú líkt komið og Tjekka í september síðastliðnum. Bretar leggja mikið kapp á að láta það koma greinilega fram, að þeir ætli að veita Pólverjum fullan stuðning. í forystugrein í „The Times“ segir m. a. að Þjóð verjar hafi sagt upp vináttusátt- málanum við Pólverja, vegna þess að pólska stjórnin felst ekki þegar í stað á tillögu, sem fór í bág við sjálfstæði þjóðarinnar. En blaðið gefur í skyn, að Pól- verjar muni þó enn vilja fara samningaleiðina. Skæðar tungur, segir „The Times“ hafa útbreytt rangan orðróm um að Bretar væru ;:ð reyna að knýja Pólverja til samninga við Þjóðverja. Bret- ar vita að Pólverjar hafa jafn- an viljað semja með sanngjörn um skilyrðum, en ekki gefast upp fyrir ofbeldi. % V - ' Ólafur Thors atvinnumálaráðherra heldur ræðu af svölum Varðar- hússins í gær. -Heimssýningin- Mðrg þðsund manna skoð- !úu isl. sýn- inguna fyrsta daginn Jakob Möller fjármálaráðherra. Frá leitartogurunum. Hvergi fiskur svo tetjandi sje Frá togurunum, sem eru í fiski- leitinni, hafa þessar fregnir borist: Tryggvi gamli hefir eitthvað orðið var við Reykjafjarðarál, en það hefir verið mjög stopult. Þórólfur hefir leitað víða fyrir Austurlandi, en hvergi fundið fisk. Er nú á leið norður með Austf jörðum. Gulltoppur varð hvergi fisks var vestur í Grænlandshafi og er nu á leið upp að landinu aftur. Hann ætlar á heimleiðinni að leita fyrir sjer með karfa á djúpmiðum rit af Breiðafirði og Faxaflóa. Iskeyri frá New York í fyrra- d; — daginn sem heimssýn- ingin var opnuð — segir að ís- lenska sýningardeildin hafi verið opnuð þá um daginn og að mörg þúsund manns hefðu skoðað hana strax fyrstu klukkustundirnar. Eugin sjerstök atþöfn £ór frapi við opnun ísl. deildarinnar og yf- irleitt ekki við opnun deilda hinna einstöku þjóða. Hátíðarhöld fara ekki fram nema þann dag, sem hver þjóð hefir vaiið sjer sem sinn dag, og höfum við Islendingar val- ið 17. júní. Talið er að um 500 þús. manns hafi verið viðstaddir opnun sýn- ingarinnar. EKKI HÆGT AÐ BJARGA MOHICAN O íðustu fregnir af enska tog- ^1 aranum Mohican sem strandaði við Hallgeirsey, eru þær, að vonlaust sje um, að skip inu verði bjargað. Um helgina gerði mikið brim við sandana og þá fjell togar- inn á hliðina og var farinn að sökkva í sand og sjó. ræðishersins Um eitt leitið i nótt kom upp eidur í húsi Hjálp- ræðishersins Yið Kirkju- stræti. Eldurinn kom upp á annari hæð. Brunnu nokkur herbergi allmikið áður en Slökkviliðimi tóks4 að slökkva eldinn. Var búið að slökkva um kl. tvö. Ekki var blaðinu kunn- ugt um hvort nokkur slys hafa orðið. London í gær. FÚ. T dag kemur fregn frá Kaunas í Lithauen um það, að Þjóð verjar ætli að byrja heræfingar í Memelhjeraðinu á morgun og enn fremur flotaæfingar undan Memelströnd. Samtal við próf, Þðrð Sveinsson: Samband milli geð veiki og truflunar á starfsemi svita- kirtlanna Prófessor Þórður Sveinsson á Kleppi hefir und- anfarið gert nýjar tilraunir við lækningu á geðveiki. Tilraunir þessar eru að vísu á byrj- unarstigi, en hafa þó þegar borið góða» árangur. Tveir sjúklingar, sem hann hefir haft með höndum, eru orðnir heilbrigðir, og virðist miða vel í áttina með aðra, sem tilraunum á er ekki lokið við tii fulls. Morgunblaðið hefir haft tækifæri til að fylgjast nokkuð með því starfi, sem unnið hefir verið á þessu sviði undir hand- Ieiðslu próf. Þórðar, Sveinssonar. Frjettaritari bláðs'ins hitti prófessoriríl að máli í gær á Kleppi. Ljet hann tilleiðast að ieyfa ummæli sín um tilraunir þessar til birtingar. En þær eru aðallega bygðar á athugunum 'á starfsemi svitakírtlanná í sambandi við geðveiki. — Hvenær byrjuðuð þjer til- raunir þessar? spyr frjettarit- arinn. — Fyrstu dagana í mars- mánuði síðastliðnum. — Hverskonar rannsókn er hjer um að ræða? — Athugun á functio defec- tiva glandurarum sudoris in in- sánitate (starfstruflun svitakirtl anna 1 geðveiki), svarar Þórð- ur Sveinsson. Jeg hefi veitt því eftirtekt, að flest allir geð- veikir menn, sem jeg hefi haft, eða á fimta hundrað sjúklingar, hafa haft þessá functio defec- tiva. Flestir þeirra hafa svo að segja aldrei svitnað. Hefir jeg á marga vegu reynt að fá fram á þeim svita, t. d. með því að láta þá drekka mikið af heitu vatni, reyna mikið á sig, með pilo- karpin o. fl., en það ekki hjálp- að. Sjúklingar 'hafa að vísu svitnað, meðan pilokarpinið verkaði, en functio ekki breyst við það. — Hafið þjer tekið eftir slíkri starfstruflun svitakirtl- anna hjá öðrum en geðveikum? ; — Já. Einkum á nevrastenia og hysteria, hjá psykchosum, psychopötum, hjá sumum drykkjumönnum og glæpamönn um. En alt er þetta auðvitað í ámáum stíl, þar sem miðast við þann famenna hóp, sem jeg hefi komist í kynni við- — Var áður vitað um slíka truflun á starfi svitakirtla í sam bandi við geðveiki? — Nei. Ekki svo jeg viti. Jeg tók eftir því sjálfur. — Hverskonar geðveiki er algengust hjer á landi? — Hjer á landi er me;' geðveiki þeirrar tegundar, | kölluð er schizophrenia (df ;- ■ entia precox) sem aftur skiftíst í ýmsar deildir. Er þetta stærsti geðveikiflokkurinn hjer, sem minst hefir verið hægt áð gera fyrir til þessa. Þessi schizophre- Þórður Sveinsson. nia var áður kölluð dementia precox og lýsir sjer í sinnuleysi (Ungdomsslövsind), og glund- roða í sálarlifi sjúklingsins, er gerir hann að fullkomnum in- valid. Og hefir Kleppur því verið einskonar geymslustaður fyrir margra ára dementia pre- cox menn og konur. — En hvernig kom yður þessi aðferð, sem þjer nú gerið til- raunir með, í hug? — Það var svo að segja alt í einu. Um kvöldið þess 6. mars sat Jónas Kristjánsson læknir hjerna hjá mjer og jeg var að segja honum frá árangurslausri baráttu minni við það, að fá geðveikisjúklinga til að svitna. Þá segir hann: „Mjer hefir reynst best að láta sjúklinga mína fara í heit böð 37—39° C. Vefja utan um þá votu laki, er þeir koma úr blaðinu og á- breiðu utan yfir. Þetta hefi jeg reynt við gigt o. fl.“. — Þegar Jónas læknir var farinn, þá loks opnuðust augu mín, segir prófessor Þórður Sveinsson. — Og næsta morgun, heldur hann áfram, — segi jeg við aðstoðarmann minn: „Látið þessa sjúklinga, sem jeg til tók, ofan í heitt bað 45° Celsíus og haldið því í sama hita, meðan þjer teljið sjúk- •ngnum óhætt að vera ofan í því“. — Hversvegna 45° heitt?“ — Það var það hæsta, sem jeg þorði að byrja með. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.