Morgunblaðið - 02.05.1939, Síða 3

Morgunblaðið - 02.05.1939, Síða 3
Þriðjudagur 2. maí 1939. MORGUNBLAÐIÐ Sjálfstæðismenn settu sinn svip á Reykjavík 1. maí Hópgöngur hinna flokkanna sýndu kyrstöðu þeirra eða hnignun Ræða Ólafs Thors af svölum Varðarhússíns SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN setti svipinn á Reykjavík í gær, eins og vænta mátti. Fjöl- mennasti flokkurinn. Þjóðhollasti flokkurinn. Vinsælasti flokkurinn. í fyrsta sinn sýndi hann mátt sinn og fylgi í þessum bæ 1. maí. Það kom í Ijós á þann hátt að langmestur mann- fjöldinn var á útifundi Sjálfstæðisflokksins við Varðarhús- ið, að hvar sem maður fór um götur bæjarins voru þeir: flestir og mest áberandi, sem báru merki málfundafjelags- j ins Óðinn, og á þann hátt, að auðsjeð var og auðheyrt hve fylgi annara flokka, sem stóðu fyrir útfundum, var lítið. Fjöldafundur Sjáít’stæðismanna við Varðarhúsið hófst kl. 1%. Voru ræður fluttar af svölum hússins með gjallarhorni, svo mál ræðumanna heyrðist vel út yfir torgið og um næstu götur. Höfðu svalirnar verið skreyttar í tilefni dagsins. Lúðra- sveit Reykjavíkur ljek lög á milli þess sem ræður voru fluttar, og þjóðsöngurinn að loknum ræðuhöldum. Mjög er erfitt að giska á um fólksfjölda í fundi þessum. En af myndunum er hægt að ráða nokkuð um það. Fimm til sex þúsund manns er mjög varlega áætlað. Ræðumenn voru þessir: Fyrstur talaði Kristinn Árna- ' , , ........ , , „ » j .. , ! er ræða hans birt a oðrum stað son, formaður malfundafjelags- , . , , , Ihjer í blaðmu. ms Oðms. Mintist hann fyrst á það, að: Næstur talaði Jakob Möller, hátíðahöldin sem hjer hefðu fjármálaráðherra. verið undanfarið á 1. maí, hefðu) Hann mintist fyrst á þær verið með þeim hætti, að verka-1 ,,hersýningar“, sem hjer hafa menn innan Sjálfstæðisflokks-I verið haldnar 1. maí undanfar- ins hefðu ekki getað tekið þátt'in ár, sem gerðar hafa verið til í þeim, og^því staðið þar utan^þess að auka bilið, ágreininginn við. Nú hefði tekist að efna til1 milli stjettanna. hátíðahalda, sem þeir hefðu get1 Við höfum ekki efni á því, að sætt sig við. Talaði hann síð- sagði hann, að sundra þjóðinni. an um Sjálfstæðisflokkinn al- Við megum ekki við því, Þeir ment, að hann hefði sett merki sitt hátt með því að velja sjer að kjörorði: „Stjett með stjett“. Þá tók til máls Ólafur Thors, atvinnumálaráðherra og erfiðleikar, sem þjóð vor þarf að sigrast á eru það miklir, að við getum þó gert okkur vonir FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. (Hjer fer á eftir útdráttur úr ræðu Ólafs Thors atvinnu- málaráðherra, sem hann flutti af svölum Vai’ðarhússins í gær). Sjálfstæðisflokkurinn teiur, að verkalýðssamtökin eigi að vera hagsmunamál verkalýðs- ins, óháð öllum stjórnmála- flokkum í landinu. Af þessum á- stæðum hefir Sjálfstæðisflokk- urinn fram til þessa ekki sem flokkur tekið virkan þátt í há- tíðahÖIdunum þennan dag. Að Sjálfstæðisflokkurinn nú í dag efnir til sjálfstæðra hátíða- halda, rekur rætur sínar til þess að fyrir rúmu ári síðan hófu nokkrir Sjálfstæðismenn, er voru meðlimir verkamannafé- lagsins „Dagsbrún“, samtök með sér um stofnun málfunda- félagsins, ,,Óðinn“. Þessa menn hafði lengi sviðið sárt algert áhrifaleysi Sjálfstæðismanna innan verkalýðshreyfingarinnar, en þó sárar undan því, að eðli- leg og nauðsynleg þátttaka þeirra í baráttunni fyrir hags- munamálum verkalýðsins, var beint eða óbeint notuð til framdráttar stjórnmálastefnu sem þeir voru andvígir. Þeir töldu að vísu, að verkalýðssam- tckin ættu að vera utan stjórn- málaflokkanna og þeir stefndu að því marki, en þeim var ljóst, að til þess að ná þessu marki, var það nauðsynlegt skilyrði að hefja þá baráttu, sem nú hefir verið hafin undir forystu fjelagsins „Óðins“. „Óðni“ hefir nú vaxið fiskur um hrygg. Hann er þegar orð- inn fjölmennt félag, og hefir á sínum stutta ferli unnið ýms afrek. Stofnun þessa félags verður áreiðanlega síðar talin mikill merkisviðburður, eigi aðeins í sögu verkalýðshreyf- ingarinnar hér á landi heldur og á sviði stjórnmálanna, og það mun sannast, að þegar sú stund rennur upp, og hún er ekki langt framundan, að viður- kennt verður jafnrétti allra verkamanna til áhrifa innan verkalýðssamtakanna, þá mun sá sigur að miklu leyti að þakka baráttu félagsins „Óð- inn“. En um þýðingu þessa fé- lagsskapar og áhrif hans á gang stjórnmálanna, læt ég að þessu sinni nægja að minnast á, að stofnun félagsins átti vafa- laust þátt í því, að nú hefir ver- ið mynduð þjóðstjórn hér á landi. Jeg vil í nafni Sjálfstæðis- flokksins færa þeim mönnum, er stofnuðu „Óðinn“ þakkir, og jeg vil færa verkalýðnum þakk- ir fyrir þann mikla stuðning, sem hann frá öndverðu hefir veitt Sjálfstæðisstefnunni á Is- landi. 1- maí er dagur verkalýðsins. Þann dag eiga aðrar stéttir þjóðfjelagsins að þakka verka- lýð'.'um í landinu hin miklu og erfiðu störf, er verkamenn inna af hendi í þágu heildarinnar. Þann dag eiga aðrar stéttir þjóðfjelagsins að gera sjer Uppsögn Iðnskólans I ðnskólanum var sagt upp á ■ laugardaginn, kl. 5 (17) síð degis. í 1. bekk höfðu verið 76 nemendur, 42 í 2. bekk, 54 í 3. bekk og 37 í 4. bekk, og auk þess 3 nemendur, er voru útskrifaðir en stunduðu nú framhaldsnám, og tveir óreglulegir nemendur, í teikningum aðeins. Burtfararprófi luku þessir 51 nemendur: Klæðskerar: Andrjes Jónsson, Bjarni Árna- on, Eyjólfur Guðsteinsson, Krist inn Einarsson. Hárgreislukonur: Arnbjörg Sigtryggsdóttir, Guð finna S. Breiðfjörð, Guðný S. Sigurðardóttir, Þuríður Sigurð- ardóttir. Bakarar: Árni Guðmundsson, Guðmund ur Árnason. Hattasaumakonur: Árný Guðmundsdóttir, Ása H. Jónsdóttir, Fanney A. Ófeigs- dóttir, Sigríður Sigurbjörnsdótt- ir, Sonja Schmidt. Húsasmiðir: Baldur Þórhallsson, Einar Norðfjörð Jónsson, Haraldur B. I. Haraldsson, Kristinn N. Guð-, mundsson, Siggeir Ólafsson, Sölvi L. Guðlaugsson, Þorkell A. Guðbjartsson. Vjelvirkjar: Benedikt Ingvarsson, Geir- mundur Sigurðsson, M. G. Páll Guðmundsson, Ragnar Bjarna- son, örn Steinsson. Prentarar: Einar Einarsson, Eyjólfur Ei ríksson, Guðbrandur Bjarnason, Guðjón Gíslason, Ragnar Þ. Guð mundsson. Bókbindari: Guðmundur Gíslason. Skipasmiður: Einar Einarsson. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Mannfjöldinn á fundinum við VarSarhúsið. Myndin er tekin af svölum Varðarhússins kl. um 2 í gærdag. Þúinndir flokksmannafáiUfundi við Varðarhúsið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.