Morgunblaðið - 02.05.1939, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.05.1939, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. maí 1939- í sænska flotanum gengur eftir- farandi gamansaga um þessar mundir. Verið var að æfa nýtt merkjamál og það voru send merki frá flotastöð í landi um borð í gamalt Iierskip. An þess að gera boð á undan sjer kom sænskur prins til flota- stöðvarinnar, og vitanlega hafði skipshöfnin á herskipinu ekki hugmynd um þá heimsókn. Prins- ínn vildi fá tækifæri til að fylgj- ast með í merkjasendingunum og skipaði svo fyrir að eftirfarandi setning væri send í merkjamáli til herskipsins,- „Sænski flotinn hrennur“. Svarið kom strax frá herskip- inu, en þegar búið var að þýða J>að veigruðu foringjar flotastöðv- arinnar sjer við að láta prinsinn heyra svarið. Hann heimtaði samt sem áður að fá svarið og foringi flotastöðvarinnar varð að láta andan skipun prinsins. Svarið frá herskipinu var: „Lofið ruslinu að hrenna“. ★ í Natal standa um þessar mund- ir yfir umfangsmestu rjettarliöld, sem sögur fara af í sögu Suður- Afríku. 500 konur af Shembe- settkvíslinni eru ákærðar fj-rir manndráp. Svertingi einn af ann- ari ættkvísl hafði komið í þorp Shembe-ættkvíslarinnar og kon- urnar í þorpinu grýttu hann til bana. ★ ' Eins hefir Myrna Loy fengið nýjan fjelaga, í stað Williams Po- well. Hinn nýi fjelagi heitir Ro- hert Taylor. Best að auglýsa í Morgunblaðinu. Hollywood, borg kvikmynda- -*■ leikaranna, skiftast á mikil vinna og löng frí, giftingar og hjónaskilnaðir. Fyrir nokkrum dögum var eitt „fullkomið hjóna- band‘“ leyst upp. Þau Joan Craw- ford og Franchot Tone skildu, vegna þess að Franchot vildi vera fiti að skemta sjer öll kvöld og allar nætur, en Joan vildi sitja heima og kynna sjer leikhlutverk sín. ★ Um líkt leyti voru gefin sam- an í hjónaband einhversstaðar á Kyrrahafsströndinni tveir kunnir kvikmyndaleíkarar, Carole Lom- bard og Clark Gable. Þetta er annað hjónaband Clark Gables. Fyrra hjónabandið þótti „fullkom- ið“, af því að það stóð í nokkur ár. ★ Fred Astaire og Ginger Rogers ætla nú að hætta að leika saman. Fred Astaire hefir fengið nýjan fjelaga í næstu kvikmynd sína — Eleanor Powrell. Síðasta mynd Fred Astaires og Ginger Rogers heitir á ensku „The Castles". ★ Sú mynd, sem hvað mesta at- hygli hefir vakið í London síð- ustu mánuðina, er: Þrjár litlar stúlkur verða fullvaxta — með Deanne Durbin. Fyrsta myndin, sem Deanne Durbin Ijek í, hjet: „Þrjár litlar stúlkur". Þessi mynd er því nokkurskonar framhald af fvrstu myndinni. Deanne var fjórtán ára, þegar hún „sigraði“ í „Þrjár litlar stúlkur“. Hún er fædd í Kanada, en fluttist til San Francisco, þar sem hún ólst upp. ★ MÁLSHÁTTUR: Barnið fer þangað, sem það finnur sinn líka. JGutfis&ajiuc KÁPUTÖLUR, spennur, hnappar, mikið úrval kjólakragar, belti, hyrnur, slæð- ur silkiundirfatnaður, kven- blúsur, silkisokkar, manchettu- skyrtur, hálsbindi, þverbindi, barnabolir, bleijubuxur, barna- hosur o. fl. GLÆNÝR RAUÐMAGI og smáýsa, daglega. Fiskbúð Víðimels. Sími 5275. HEILHVEITIBRAUÐ og heilhveitikruður altaf ný- bakað allan daginn. Jón Sím- onarson, Bræðraborgarstíg 16. DÖMUFRAKKAR | ávalt fyrirliggjandi. Guðm. Guð mundsson, klæðskeri, Kirkju-. hvoli. Sími 2796. GLÆNÝ LÚÐA ^iskbúðin Baldursgötu 31. — Sími 4385. LEGUBEKKIRNIR eru bestir á Vatnsstíg 3. Hús- gagnaverslun Reykjavíkur. ÞORSKALÝSI Laugavegs Apóteks viðurkenda þorskalýsi í sterilum ílátum kostar aðeins 90 aura heilflask- an. Sent um allan bæ. Sími 1616. ‘iKtmcgr HREINGERNING HERBERGI með mublum, ljósi, hita ogr hreingerningu með aðgangi að baði, óskast í góðu húsi við miðbæinn handa karlmanni. —- Guðni A. Jónsson, Austur- <stræti 1. Sími 4115. ÍUCáyntUTujae NOTIÐ „PERO“, stór pakki aðeins 45 aura. Notið Venus HÚSGAGNAGLJÁA, afbragðs góður. Aðeins kr. 1.59 glasið. FRIGGBÓNIÐ FÍNA, er bæjarins besta bón. i. o. G. T. ST. VERÐANDI NR. 9. NÝ ÝSA Nýr færafiskur og rauðmagi. Útvatnaðar kinnar o. fl. Fisk- salan Björg, sími 4402. KJÓLAR í miklu úrvali. Saumastofa Guð- rúnar Arngrímsdóttur, Banka- stræti 11. Sími 2725. LEGUBEKKIR allar stærðir fyrirliggjandi — sterkir og ódýrir. MEÐALAGLÖS Fersólglös, Soyuglös, og Tom- atglös keypt daglega. Sparið milliliðina og komið beint til okkar ef þið viljið fá hæsta verð fyrir glösin. Laugavegs Apótek. KALDHREINSAÐ þorskalýsi sent um allan bæ. — Björn Jónsson, Vesturgötu 28. Sími 3594. fer í hönd.Vanir menn að verki. Hjer er hinn eini rjetti Guðni G. Sigurdson, málari, Mána- götu 19, sími 2729. HREINGERNINGAR. Jón og Guðni. Sími 4967. VORHREINGERNINGAR í fullum gangi. Pantið í tíma Helgi og Þráinn. Sími 2131. ala&ru&v*' VANTAR ÍBÚÐ 2 herbergi og eldhús. Tilboð merkt: „47“ sendist Morgun- blaðinu. SÓLRÍK 3 herbergja íbúð með öllum þægindum til leigu í miðbænum frá 14. maí. Uppl. á Lauga- veg 15. 1 HERBERGI OG ELDHÚS (eldunarpláss) óskast sem næst Melshúsum. Tilboð sendist Morg unblaðinu merkt: Seltjarnar-i nes. Fundur í kvöld kl. 8. Inntaka- Ársfjórðungsskýrslur. Innsetn— ing embættismanna. Nefndar-*- skipanir. Hagnefndaratriði:: Pjetur Zophoníasson og Sigurð-*- ur Grímsson. &6J ÍBÚÐIR, stórar og smáar og einstök herbergi. LEIGJENDUR, hvort sem er fjölskyldufólk eða einhleypa. Smáauglýsingar Morgunblaðs- ins ná altaf tilgangi sínum. CHARLES G. BOOTH. ÚTLAGAR I AUSTRI. — án þess þó að vita, fyr en eftir á, að það hefir verið gríma. Alt í einu verður yður það ljóst, en þjer vitið ekki hvað á bak við hana býr, og þorið ekki að athuga það?“ Hún roðnaði aftur og lagði hönd sína á hand- legg Irene. „Mrs. Mallory. Nú ætla jeg að segja það sem jeg var rjett búin að segja áðan: Þjer eruð líka í netinu og vitið hvað það þýðir. Jeg finn það greini- lega! Þjer vitið, hvað það er, sem jeg er svona hrædd við ....“ Rjett í þessu kom Smallwood og greip fram í fyrir henni: „Jæja, þarna eruð þjer þá, Miss Ingram. En hvað það var gaman!“ Hann kom gangandi hratt yfir gólf- ið. „Jeg var svo heppinn að hitta O’Hare, sem þjer kyntuð mig fyrir í morgun, Mrs. Mallory, og hann sagði mjer, að Miss Ingram hefði snúist hugur. Það er reyndar orðið framorðið, en við getum náð að sjá síðasta hlaupið“. Janice tókst brátt að stilla taugar sínar svo að hún gat svarað: „Jeg vissi ekki ....“, byrjaði hún og leit á I-rene. „Sagði 0 ’Hare ....?“ „Þjer ætlið þó líklega að koma?“, sagði Smalhvood ákafur. „Já, auðvitað kemur hún“, sagði Irene hlæjandi. ,,Og sjáið um, að hún haldi með Rangoon“. Nú hýrnaði alt í einu yfir Janice og hún sagði: „Jæja, jeg fer þá!“ * Um kl. 6 kom O’Hare aftur í sama góða skapinu. Þó var hann ekki viss um, að Marcelles hefði sagt satt. Og fengi hann staðfestingu fyrir efasemd sinni, hugs- aði hann, ætlaði hann ekki að láta liann sleppa með peningana. Ekki svo að skilja, að hann hefðj lengur augastað á þeim sjálfur. Honum gramdist bara, að þeir væru tik Á leiðinni upp stigann datt honum aftur í hug, að maður, sem ekki hefði allskostar hreina samvisku út af fortíðinni, hlyti einhverntíma að taka taka ákvörðun um hvort framtíðin ætti að vera betri eða verri. Hann hafði ætlað sjer að fara beina Ieið upp til Marcelles, en fór í þess stað og barði að dyrum hjá Irene. Hún kom til dyra og' horfði spyrjandi á hann. Hann tók eftir því, að Ijósið fjell á liár hennar, svo að styrndi á það og hún var með litla smaragðeyrnalokka. Hún var föl ásýndum og' undarleg ró yfir andliti henn- ar. Hann fann, að þetta var uppgerðar rósemi, sem hún reyndi að dylja sig á bak við og Irene Mallory var ekki eins og hún átti að sjer að vera. „Komið inn fyrir, 0’Hare“, sagði hún brosandi. Og hönum var undarlega órótt, er hann steig yfir þrepskjöldinn. Ilún hafði tvö herbergi, og svefnherbergið var fyrir innan. I því sá hann opna ferðatösku og þóttist vita, að hún hefði verið að láta niður í hana. Hún settist með hendur í kjöltu sjei’, en O’Hare stóð kyr með ótendraða sígarettu milli fingranna. Hún beið eftir að hann segði eitthvað, með þetta sama daufa bros á vör. Það var eins og brosið lægi utan á þessum vegg af rósemi, en O’IIare hafði á tilfinning- unni, að á bak við vegginn þyti eitthvað eins og storm- ur, er liann ekki skildi. Hann byrjaði að ganga fram og aftur um g‘ólf, með- an hann velti því fyrir sjer, hvað það gæti verið, sem vakið hefði ótta hennar. „Mjer datt í hug, að yður langaði til þess að vita, hvernig það hefði gengið“, sagði hann Ioks. „Já, það vildi jeg gjarna“. „Jeg talaði við Marcelles“. „Núna, eftir að þjer komuð heim áðán?í‘ „Nei!“ svaraði hann og fanst eins og hefði hún haldið niðri í sjer andanum, meðan hún beið eftir' svari. „Nei“, sagði hann aftur og kveikti í sígarettu sinni. „Áður en jeg kom inn til ykkar í‘hljómleika- salinn. Jeg gat lítið sagt, meðan Janice var viðstödd“. „Jeg skildi vel, hvað þjer meintuð“v Hann tók brjefið, sem Marcelles hafði skrífað, upp • úi vasa sínum, og las það upphátt fýrir hana. Síðan stakk hann því í vasa sinn aftur, en liún sat og sneri hringnum á fingri síuum. „Hvernig finst yður það?“ spurði O’Hare. „Eins og Marcelles hefði skrifað það“, svaraði tiúri lágt og' leit niður á hringinn. „Hann lilýtur að hafa verið hræðilega á sig kom- inn, fyrst hann ljet tilleiðast að skrifa þetta“. „Það var hann“, sagði O’IIare þurlega. „„Símskeyt- ið til Yang“ dró úr honum allan mátt. Og þó trúði hann ekki á það nema í fáeinar mínútur. En vitið þjer það“, bætti hann við og leit á sígarettu síha, „pen- ingar Yangs eru ekki lengur til, nema um sex þúsund dollarar í franskri mynt. Hinu hefir Marcelles eytt í kauphöllinni og á veðreiðum. Að undánteknum þess- um frönsku peningum, tapaði hann síðustu 10 þús- undunum á Rangoon á laugardaginn. Þetta segir hann sjálfur að minsta kosti“. „Er þetta satt?“ sagði hún áköf. Hún liafði tekið fyrir munn sjer með annari hendi og fölnað. Og áður en hann gat svarað, sagði hún aftur: „Er þetta satt, O’Hare?" Hann botnaði ekkert í því, hvernig hún tók þessur og spurði: „Leiðist yður það ?“ „Leiðist?“ Ilún lokaði angunum og sársaukadrættir færðust yfir andlit hennar. „Nei! Jeg vildi óska, að jeg hefði aldrei heyrt getið um þessa peninga. Þegar-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.