Morgunblaðið - 05.05.1939, Blaðsíða 3
3
Föstudagur 5. maí 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
Hjeðinn
varamaður
kommúnista
Úrskurður ríkis-
stjórnarinnar
■ . 11' I WW <■» .
Acur en gengiS var til dag-
skrár á beejarstjórnar-
fundi í gær, las forseti Jakob
Möller upp brjef frá ríkisstjórn-*
inni þar sem skýrt er frá, að
ríkisstjórnin staðfesti úrskurð
þann, sem h.c nn kvað upp á
bæjarstjórnarfundi í vetur, er(
þeir mættu þar tveir, Haraldur
Gucmundsson og Hjeðinn
Valdimarsson og vildu báðir
eiga sæti á fundinum sem vara-
inenn Jóns A. Pjeturssonar.
lijeðinn Vaidimarsson áfrýj-
aði þessum úrskurði til ráðu-
neyusins, en Skúli Guðmunds-
son i ."greiddi ekki málið meðan
hann var ráðherra.
Úrskurður ríkisstjórnarinnar,
er hún gaf út í gær staðfesti úr-
skurð Jakobs Möller frá í vet-
ur, um það, áð varamaður úr
hópi Alþýðuflokksins en ekki
úr hópi kommúnista skyldi
mæta á bæjarstjórnarfundum i
fyrir aðalfulltrúa Alþýðuflokks-!
ins. Úr þessu varð að skera til!
fulls, því Stefán Jóh. Stefánsson
verður ekki í bæjarstjórn eftir
að hann er orðinn fjelagsmála-
ráðherra, og var því ekki hægt
að hafa þar framvegis þessa tvo
„tígulkónga í spilinu“ til að
mæta þar fyrir hann, Harald
Guðmundsson og Hjeðinn Valdi
marsson.
1 úrskurði ríkisstjórnarinnar
segir svo:
Þegar tveir eða fleiri flokkar
gera með sjer kosningabanda-
lag við bæjarstjórnarkosningar,
svo sem Alþýðuflokkurinn og
Kommúnistaflokkurinn gerðu,
með því að hafa einn lista í
kjöri með flokksmönnum
beggja (allra) flokka, þá er
eðlilegast og í mestu samræmi
við tilgang löggjafarákvæðanna
um varámenn, að flokkarnir
fái kosna jafn marga varamenn
sem aðalmenn, — eftir því, sem
við verður komið, — og að vara
maður flokk.sins taki jafnan
sæti ef aðalmaður forfallast,
hváð sem líður röð manjia á list-
anum“.
Hjeðinn Valdimarsson mætti
á bæjarstjórnarfundi í gær,
ekki vegna þess að hann ætlaði
að vera þar í stað Haraldar
Guðmundssonar, sem vitanlega
var þar líka, heldur mætti Hjeð-.
inn sem varamaður Björns
Bjarnasonar kommúnista. Er því
sennilegt, að hann sje búinn að
finna þar sinn rjetta bás, og láti
sjer lynda að vera varafulltrúi
síns eigin flokks í bæjarstjórn,
en ekki fulltrúi þess flokks, sem
hann svívirðir daglega í blaði
sínu .
Norrænt æsku-
lýðsmót á Laug-
arvatni í sumar
Dagana 26. júní til 3. júlí
verður norrænt æsku-
lýðsmót haldið á Laugarvatni.
Forgöngu fyrir móti þessu hefir
hin svo kallaða Viggby-hólms-|
nefnd, sem áður hefir gengist
fyrir samskonar mótum í öllum
hinum Norðurlöndunum og í
fyrra í Eistlandi. Þátttakendur
í móti þessu í sumar eru vænt-
anlegir frá öllum Norðurlönd-
unum og Eistlandi.
Það fyrsta af þessum æsku-
lýðsmótum var haldið í Viggby-
holmskólanum í Svíþjóð sum-
arið 1934. Nemendasambönd
Norræna lýðháskólans í Genf
og Alþjóðalýðháskólans í Hels-
ingör gengust fyrir þéssu móti.
Mót þetta vakti mikla eftirtekt
og vinsældir og var þá ákveðið
að halda þessum mótum áfram^
og var þá sett saman nefnd hin
»vo kallaða Viggbyholmnefnd,
sem síðan hefir sjeð um öll slík
mót, sem síðan hafa verið hald-
in í öllum Norðurlöndunum og
Eistlandi sitt árið í hverju landi.
Tilgangurinn með mótum
þessum er að kynna og sameina
æskufólk frá öllum Norðurlönd-
unum, er áhuga hefir fyrir al-
þjóðamálum og sjerstaklega
norrænum sjermálum. Þeir, sem
standa fyrir þessum mótum á-
líta að þátttakendurnir fái við
það að kynnast þjóðunum og
hverir öðrum, aukinn skilning á
gildi þeirra í mörgum málum.
Jafnframt er tilgangurinn að
kynnast, sem best nágranna-
þjóðunum. Þetta er tilgangurinn
með þessu æskulýðsmóti að
Laugarvatni í sumar eins og
öðrum samskonar mótum, sem
áður hafa verið haldin í hinum
Norðurlöndunum.
í sambandi við mótið verða
farnar nokkrar skemtiferðir til
,þess að kynna gestunum landið
sem best.
Hjer í Reykjavík hefir verið
stofnuð sjerstök móttöku- og
undirbúningsnefnd og eiga sæti
í henni auk aðalræðismanns
Svía hjer, Sigurður Nordal pró-
fessor, Stefán Jóh. Stefánsson
f jelagsmálaráðherra, Jónas
Jónsson' alþingismaður, Thor
Thors alþingismaður og Guð-
laugur Rosinkranz yfirkennari.
Ýmsir þektir vísinda- og
stjórnmálamenn, íslenskir ^og
erlendir, hafa lofað að flytja
fyrirlestra.
Biskupsvígsla
25. júní
Sumindaginn 25. júní næstkom-
andi verður biskupimi vfir
íslandi, síra Sigurgeir Sigurðssön,
vígður til biskups.
Vígslúna framkvæmir dr. theol.
J.ón Helgason fyrverandi. bisltnp
íslands, og fer vígslan frain lijer
í. Dómkirkjuimi.
30 þús. smálesfa hafskipið
sem brann
Hafskipið Paris, senl brann á höfninni í „Le Havre“ fyrir skömniu.
Akveðið hefir verið að höggva upp skipið.
Kappleikur á sunnu-
daginn: Valur - Fram
Knattspyrnukappleikur verður
háður á sunnudaginn kem-
ur kl. 2i/2 á íþróttaveilinum. Leiða
þar saman hesta sína Valur og
Iram.
Það mun vekja áhuga knatt-
spyrnuunnenda, að * Herman
Lindemann, hinu þýski þjálfari
Fram, leikur með. Er ekki fuil-
ákveðið í hvaða stöðu hann verður
á vellinum, þó líklegast, megi teþia
að hann leiki sem miðframherji.
Bæjarbúar hafa átt kost á að
sjá meistaraflokka allra fjelag-
anna leika í ,vor nema Fram. Mun
margan fýsa að sjá hveruig þeir
standa sig, ekki síst þar setn nú
stendur fyrir dyrum hjá þeint
ferðalag til Damnerkur og Noregs.
Á undan kappleiknum á sumra-
daginn leikur lúðrasveit og einnig
á milli hálfleikja.
Ein elsta kona
landsins iátin
Elísabet Árnadóttir að Nesi í
Bíldudal andaðist í fyrra-
kvöld að heimili sínu.
Elísabet varð'ÍÖÖ ára 10. janúar
s.l. 8. febrúar birtist hjer í blað-
inu sarntal við Elísabetu, setn Þor-
jvaldur Friðfinnssoti ' vérksmiðju-
stjóri átti við hatta fvrir Morgtm-
blaðið. T samtáliim sagði liúit m.
a. .að sítt besta skemttm væri að
'vinna. Elísabet él allan sinn'ald-
'ur í Árnarfirði og lengsta..skeinti-
férð heiinar var er Kún fór til
ísafjarðar fyrir 8Ö árum.
Göring til
Spánar
Frá frjettaritara vonan.
Kh'ófn í gær.
öring er lagður af
stað til San Remo í
Ítalíu og er þetta í þriðja
sinn, sem hann fer þang-
að síðustu mánuðina.
★
,,Agence Have,s“ segir,
að för hans sje ,að þessu
sinni heitið um San Remo
til Spánar, og að hann ætli
að vera viðstaddur hina
rniklu sigurgöngu Francos í
Madrid 1,5. maí næstkom-
andi.
Útsvörin í Vest-
mannaeyjum
Frá frjettaritara vorum
í Vestmannaeyjum.
ýlega hefir verið lokið við
að jafna niður útsvörum í
Vestmannaeyjum. Gjaldendur eru
alls 1175. Jafnað var niður 221
þúsund krónum og er það rúm-
lega 20 þúsund krónum lægra en
í í'yrra.
Hæstu gjaldendur eru:
Anders Bergesen Ilals útgerðar-
maður 1.700.00. Anna Gumdaugs-
son kaupkona 5.330.00. Ársæll
Sveinsson útgerðarm. 1.385.00
Ástþór Matthíasson útgerðarm.
2.400.00. Bjarni Jónsson útg.m.
,1.010.00. Brynjólfur Sigfússon
kaupm. 1.185.00. Eggert Jónsson
útgerðarm. 2.530.00. Einar Gutt-
ormsson læknir 1.360.00. Einar
Sigurðsson kaupm. 1.370.00. Frain,
kaupfjelag 1.200.00. Georg Gísla-
son kaupm. 1.085.00. Guðmundur
Vigfússon útgerðarm. 1.025.00.
Gúntiar M. Jónsson skipasmiður
1.510.00. Giumar Ólafsson & Co.
16.400.00. jGhiinlaugfur Jljoftsson
kaupm. 1.280.00. Hannes Ilansson
útgerðarm. 1.350.00. Haraldur
Loftsson beykit' 1.200.00. Helgi
Benediktsson kaupm. 4.615.00,
Haraldur Eiríksson raffræðingur
1.520.00. Haraldur Viggó Björns-
'son bankastjóri 1.640.00. Helgi
I ____
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Kommúnistar vilja íá
hlutdeild i hlunnindum
Aljiýðusambandsins
Tillaga kom á bæjarstjórnar-
fundi í gær frá Hjeðni Valdi-
i irarssyni um það, að Styrktarsjóð-
ur sjómanna og verkamanna yrði
| leystur undan yfirráðum Alþýðu-
! sambandsins, svo fjelög eða með-
limir fjelaga, sem eru utan við
Alþýðusambandið, gætu fengið
; styrk úr sjóði þessum.
Tillaga Hjeðins var svohljóð-
andi:
..Bæjarstjóru Reykjavíkur lítur
svo á, að ineð reglugerð fvrir
Styrktarsjóð verkamanna- og sjó-
mannafjelaganna í Reykjavílt nái
sjóðurinn ekki lengur tilgangi sín-
uin, að vera til st>rktar verka-
fólki og sjómönnum í bænum, þar
sem fjölmenn stjettarfjelög, eins
og Verkamanuafjelag'ið Dagsbrún,
hafa sag't sig laus frá Alþýðusam-
bandi Islands vegna laga þess.
Bæjarstjórn ályktar því að fela
bæjarráði Reykjavíkur, að gera
frunivarp til nýrrar reglugerðar
fyrir Styrktarsjóð verkamanna- og
sjóniannáfjelaganna í Reykjavík í
samræmi við tilmæli frá Verka-
mannafjelaginu Dagsbrún og leggi
bæjarráðið hið fyrsta frumvarpið
fyrir bæjarstjórnarfund til sam-
þyktar í stað hinnar fyrri reglu-
gerðar“.
Styrktarsjóður þessi á, sem
kunnugt er, upptök sín frá því
er togararnir flestir voru seldir
lijeðan úr landi á ófriðartjmúii-
um. Var stofnfje hans kr. 100
þús. En sjóðurinn er nú 130.000.
Tekjur fær sjóðurinn af því, að
fjelögin sem njóta hans greiða í
liaiin 1 kr. fyrú' hvern f'jelaga
siima á ári.
Jón A. Pjetursson mælti á móti
tillögu Hjeðins, sagði m. a., að
Hjeðinu hefði unnið sjálfur að þyí
að sjóður þessi yrði undir yfirráð-
um Alþýðusambandsins. En Hjeð-
inn kvartaði undan því, að Al-
þýðuflokksmenn hjeldu því á lofti,
að Dagsbrúnarfjelagar fengju
ekki styrk úr sjóði þessum, nema
Dagsbrún gengi inn í Alþýðusam-
bandið aftur.
Nokkrar orðabnippingar urðu
um þetta, og var tillögu Hjeðins
síðan vísað til bæjarráðs til at-
hugunar.
— Sigaretturnar —j
korna á morgun
Reyktóbak og sígarettur
koma með Brúarfossi í dag'
og önnur sending með Goða-
fossi á morgun. Tóbakseinka-
salan á von á birgðum með
þessum skipum, sem nægja í
ireira en mánuð.
Síðustu tvo dagana hefir
verið nær alveg sígarettu-
laust í bæhum. Og reyktó-
bak hefir verið af skornum
skamti.
Hefir verið svo annað veif-
ið í vetur, að skortur hefir
verið á tóbaksvörum.