Morgunblaðið - 16.05.1939, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. maí 1939.
-r
Ódýrar útsæðiskartðflur
FRÁ HORNAFIRÐI.
Nokkrir pokar óseldir.
H.f. Smjörlíkisgerðin.
WESSANEN'S CACAO er best.
Fyrirliggjandi í 5 kg., 1 kg., Va kg. og 14 kg. pökkum.
Sig. Þ. Skfatldberg.
(Heildsalan).
Pergament og silkiskermar
mikið úrval.
SKERMABÚÐIN, Laugaveg 15.
Bindindismálafundir í Kefia-
vík og á Rangárvöllum
Matar- og Kalfisteliin
falíegu og margefíirspurðu eru loks komin aftur.
Birgðir aðeins til einnar viku.
K. Einarsson & Björnsson.
Meðalafli Kefia-
víkurbátanna
550-600 skpd.
Vertíð er nú lokið hjer og
mun meðalafli á bát vera
550 til 600 skippund.
Aflahæsti bátur er „Guðfinn-
ur“, skipstjóri Guðmundur Guð-
finnsson. Aflaði hann yfir 1100
skippund.
Tregur afli síðari iiluta vertíð
arinnar, en óvenju góðar gæftir
Ulla vertíðina hafa skapað það,
að aíli er vel í meðallagi, enda
eru róðrardagar fjórðungi fleiri
en undanfaiún ár,
Bankastræti 11.
ÞingvailaferÖir.
Vegurinn opinn.
Ferðir alla miðvikudaga, laugardaga og sunnudaga, þar
til daglegar ferðir hefjast.
Sleindór
Símar 1580,1581, 1582, 1583, 1584.
Er nokkuS stór.
LITLA BILSTÖSIII
Sími 1380.
UDDhitaðir bflar.
Opin allan sólarhringinn.
MorgunblaðtB með morgunkaffinu
FlutnÍBigar
álíka vniklir
og x fyrra
Starfsmenn á skrifstofu Raf-
magnsveitunnar, sem taka á
móti flutningatilkynningum,
telja að álíka mikið sje nú um
flutninga og var í fyrrasumar.
í gær hafði Rafmagnsveitu-
skrifstofan fengið rúmlega 700
flutningatilkynningar, en búist
er við, að þær verði allt að 1000,
þegar allir hafa tilkynt flutn-
inga sína.
Flest flutti sig á laugardaginn
og fram að miðjum degi á sunnu
dag. Einnig var töluvert um
flutninga í gær.
Stúkan Frón boðar
til fundar í sumar
ÍÐAN lögin um aðflutningsbann á áfengi voru
afnumin árið 1935, hefir flætt yfir landið fer-
leg drykkjuskaparalda. Þjóðin er að verða mjög
illa á vegi stödd, sakir áfengisnautnar. íslendingar þamba
áfengi fyrir miljónir króna árlega, þó að þjóðin hafi varla
í sig eða á.
En þó að hið fjárhagslega tjón sje mikið og tilfinnanlegt, þá
er sarnt inenningarlega tjónið og þjóðspilling sú, sem áfengið veldur,
ennþá ægilegra og háskalegra. Mörg dæmi, sorgleg og sönn, mætti
færa þessu til sönnunar.
í'lygur um alt
WÍNflTHflNiOLSENTfíl
Lokunartími
brauðsölubúða
Bakarameistarar hafa lagt til
við bæjarráð, að brauðasölu-
búðir verði opnar frá kl. 8—5 á
sunnudögum (í stað kl. 9—1 eins
og nú er) og til kl. 6 fyrir alla
hátíðis- og tyllidaga. Að öðru leyti
verði lokunartíminn eins og hann
er nú.
Tillögum þeirra fyigir langur
rökstuðningur. Bakarasveinaf jel.
hefir tjáð bæjarráði að hinn stutti
tími, sem brauðasölubúðir eru opn-
ar nú á sunnudögum, hafi haft sí-
aukna næturvinnu í för með sjer
fyrir })á, og hafi styttingin þess
vegna koniið órjettlátlega niður á
þeim.
Fjelag afgreiðslustúlkna í
brauðasölubúðum (A. S. B.) vill
aftur á móti láta enn stytta tím-
ann, sem brauðasölubúðir eru opn-
ar á sunnudöguni og fyrir helgi-
daga.
EGOERT CLAE88EN
hæRtarjettarmálaflatningsmaður,
Skrifstofa: OddMlowhúsið,
Vonarstræti 10.
(Iimgangur um auaturdyr).
Það eru ekki einungis karlmenn
sem drekka, heldur er líka kven-
þjóðin farin að drekka, einhver
hluti hennar, og jafnvel sjást ung-
lingar um fermingu eða innan við
férmingu mikið ölvaðir á almanna-
færi. Æskulýðurinn er því í mik-
illi hættu, og þetta er fólkið, sem
á að erfa landið.
Þetta sjá Góðtemiilarar og aðr-
ir bindindismenn. Þetta sjá allir
þeir, sem hafa opin augun.
Bindindismenn hafa nú liafist
handa, að reyna að vinna bug á
þessum ófagnaði. Ilafa þeir hafið
nýja sókn og volduga \ bindind-
ismálunum, enda fjölgar stöðugt
þeim konum og körlum, ungurn og
gömlum, sem fylkja sjer undir
merki Góðtemplarareglunnar og
annara þeirra fjelaga, sem hafa
bindindi á sinni stefnuskrá. Er
og ráðið ti.l úrbóta það sama og
áður: að kenna sem flestum mönn
um albindindi.
Á undanförnum árum hafa ver-
ið haldnir, víðsvegar um landið,
margir og áhrifaríkir fundir urn
bindindismálin, og hafa menn átt
greiðan aðgang að þeim. Hafa
fundir þessir opnað augu fjölda
mætra manna, sem áðúr voru tóm-
látir um þessi mál, fyrir þörfinni
á föstum og einbeittum aðgerðum,
til að sporna við áfengisvoðanum,
sem hefir dunið yfir þjóðina.
Enn herða Góðtemplarar á sókn-
inni. Mætti sú sókn leiða til þess,
að stöðugt fækki þeim, sem sitja
hjá aðgerðarlausir með hendur í
skauti. Áfram, er heróp allra fram
sækinna bindindismanna, áfram,
þar til fullum sigri er náð. Og
eftir sigrinum verður skemst að
bíða, ef jafnan er vakandi áhugi
um boðuu bindindis.
Á þessu sumri efnir stúkan
Frón nr. 227, hjer í bænum, til
tveggja funda um bindindismál,
og verður annar háður í Keflavík,
sunnud. 11. júní, og hinn á Strönd
á Rangárvöllum, sunnud. 2. júlí.
Fara þar fram umræður um þetta
mikilsverða þjóðmál, ennfremur
verða ályktanir gerðar um það.
Þá verða og flutt fræðsluerindi
um Góðtemplararegluna og bind-
indismálið.
Til fundanna eru allir menn
boðnir og velkomnir, ekki einung-
is fjelagar Regltinnar, heldur og
líka allir bindindissinnaðir menn.
En alveg sjerstaklega eru fjelag-
ar stúknanna á Suðurnesjum og
aðrir Suðurnesjamenn boðnir og
velkomnir til fundarins í Kefla-
vík og fjelagar stúknanna í Rang-
árvallasýslu og aðrir Rangvelling
ar til fundarins á Strönd. «
Á Suðurnesjum eru starfandi
þessar 5 stúkur: I Keflavík st.
Leiðarstjarna nr. 240, í Garðinum
st. Framför nr. 6, í Sandgerði st.
Ilekla nr. 241, í Grindavík st.
Járngerður nr. 238 og á Yatns-
leysuströnd st. Ströndin nr. 211.
Og, í Rangárvallasýslu eru þess-
ar 3 stúkur; Á Strönd st. Gróandi
nr. 234, í Þykkvabæ st. Djörfung
nr. 235 og í Vestur-Eyjafjalla-
hreppi st. Drífandi nr. 245.
Báðir fundirnir munu hefjast
með guðsþjónustu, hinn fyrnefndi
í Keflavíkurkirkju og sá síðar-
nefndi í Oddastaðakirkju, en
vegalengdin milli Strandar og
Odda er mjög stutt.
í Keflavík annast st. Leiðar-
stjarna móttökurnar og á Strönd
og í Odda st. Gróandi, enda ann-
ast stúkur þessar, hvor á sínum
stað, ýmsan annan undirbúning,
undir yfirstjórn st. Frón.
Þá er ráð fyrir gert, að þegar
að loknum hvorum fundi, efni st.
Frón til kvöldskemtunar og mun
skemtiskf-áiii verða fjölbreytt.
Stúkan Frón lie.fir jafnafi á síð-
ari árum sýnt stórhug og fram-
tak inikið til útbreiðslu bindindis
í landinu. Þessir fundir, sem st.
Frón boðar nú til, bera enn vott
um eftirtektarverða og þarfa við-
leitni og á hún þakkir skildar fyr-
ir þessa tilraun til að sáfna sam-
an öllum þeim kröftum, sem bind-
indishreyfingin á til á Suðurnesj-
um og í Rangárvallasýslu, innan
og utan Góðtemplarareglunnar,
safna þeim til sameiginlegrar sókn
ar í bindindismálunum, svo að
hafist verði handa gegn áfengis-
bölinu með ódeigum liug.
Er þess að vænta, að Góðtempl-
arar og aðrir þeir, sem unna bind-
indi, fjölmenni til þessara funda
og haldi blysum áliuga og mann-
vits hátt á lofti, svo hátt, að þjóð-
;! in megi við skin þeirra halda inn
á rjettar brautir í áfengismálun-
um.
Ofursti O. Westby frá Noregi
er nýkominn úr för sinni vestur
og norSur um land. Hann dvelur
hjer enn í tvo daga og talar á
samkomu í Hjálpræðishernum í
kvöld og annað kvöld.