Morgunblaðið - 20.05.1939, Blaðsíða 7
Laugardagur 20. maí 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
Vormót II. flokks.
mmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmm.
Fram - Valur 2:0
K. R. - Vfkingur 5:0
Vormót II. fl. hófust á fimtu-
dag með tveimur leikjum.
Lauk þeim svo. aS Fram vann
Val með 2 mörkum gegn 0, K. R.
vann Víking meS 5 mörkum gegn
0. —
Það var með talsverðri eftir-
væntingu að meiin biðu eftir II.
fl. niótinu að þessu sinni, og þó
einknm eftir leik Vals og Fram,
}>ar sem bæði þessi fjelög hafa
notið tilsagnar erlendra þjálfara.
Þess sáust líka glögg merki, að
piltarnir höfðu baft gott af til-
•^ögn hinna erlendu knattspyrnu-
.manna, og þá sjerstaklega Fram-
•arar. sem ljeku prýðisvel og skipu
ilega , á köfluni. Valsmenn voru
'ýfirleitt þroskaðri og sterkari
líknmlega. en siyrkur Framara lá
í stuttu og öruggu samspili, sem
án efa er verk Lindemanns, þjálf-
ara þeirra. Knattarmeðferð þeirra
er góð og þeir hafa vit á að hugsa
áður en þeir gefa knöttinn frá
sjer, en það er eitt af aðalatrið-
unum í knattspyrnu.
Valsmenn voru, eins og áður er
sagt, sterkari líkamlega og tókst
oft að „pressa“ sig fram með
knöttinn, en þeir virtust ekki eins
yel skilja nauðsyn, samleilts liðs-
ins. Ástæða er til að geta þess, að
einn maður í liði Vals bar sjer-
staklega af, en það var Bragi
Kristjánsson í framlínunni. Hann
sýndi bæði leikni í meðferð knatt
arins og skilning á nauðsyn sam-
leiks.
Sigurjón Jónsson var dómari
og fórst vel úr hendi.
Seinni leikurinn, milli K. R. og
,Víkings, var ekki eins skemtileg
Ur og sá fyrri, enda báru K. R.-
ingar af í leikni. I K. R.-liðinu
eru mörg efnileg knattspyrnu
mannaefni. Tveir þeir bestu, Skúli
Þorkelsson og Birgir Guðjónsson
mega þó gæta þess að venja sig
>ekki á hrottaleik.
Lið Víkings var mjög ójafnt
Innan um eru ágætir menn, en
aðrir ónýtir. Bestur Víkinga var
Þorsteinn Olafsson. Einar Pálsson
gæti orðið ágætis knattspyrnu
maður, ef hann gætti þess, að
með honum eru 10 samherjar
yellinum, sem eiga að vinna með
’honum.
Hermann Lindemann dæmdi af
nákvæmni og snild. Leikmenn
komust ekki upp með nein
„trick“ eða „kúnstir", svo sem
olnbogahrindingar nje brögð. ís
lenskri knattspyrnu væri mikill
fengur í að hafa átt marga slíka
,dómara, sem Lindemann er. Við
höfum sjaldan sjeð eins vel dæmt
hin síðari ár, nerna ef vera skyldi
'hjá Guðjóui Eiuarssyni.
Sii nýbreytni var tekin upp, að
aðgangur var seldur á lcappleiki
II. fl. við vægu verði. Mun eng
inn'sjá eftir því að styrkja knatt
•spyrnumenn með nokkrum aur
rum, til að sjá tvo kappleiki í einu
Næstu leikir II. fl. verða í kvöld
kl. 7V2. Fyrst. keppa K. IL og Val
•ur og verður Þrginn Sigurðsson
•dómari. Síðan koppa Fram og Vík
Ingur. Þorstéinn Einarsson dæmir
Vivax.
„Vindictive“
FRAMH AF ÞMÐJU SÍÐU.
breytt nokkuð og það „afvopnað'h
Enn er þó rúm um borð fyrir
tvær flugvjelar, sem liafðar eru
til að æfa sjóliðsforingjaefnin í
flugi.
Þó skipið sjálft sje úrelt, sem
herskip og gangi ekki nema 24
sjómílur í hæsta lagi (fer það þó
.sjaldan nema 17 sjómílur og var
daga á leiðinni frá Skotlandi),
er það að ýmsu leyti útbúið ný-
tísku tækjum til skólahaldsins. I
eldhúsi skipsins er t. d. alt rekið
með rafmagni, og alt skínandi
hreint óg fágað eins og ráunar
alt skipið.
Áður en blaðaménnirnir hjeldu
frá borði var farið til skiplierr-
ans, Captains H. C. Bovell, og
setið þar góða stund. Fengu hinir
bresku yfirforingjar þar ýmsar
upplýsingar er þá fýsti að vita
um land og þjóð, og blaðamenn
reið sVör við spurnihgum sínum.
H. M. S. „Vindictive“ stendur
hjer við í viku, en fer síðan til
Skotlands og suður með Englands
ströndum. Skipið er venjulega á
þriggja mánaða ferðalagi með sjó-
liðsforingjaefnin.
Yfirmenn H. M. S. „Vindictive“
höfðu boð um borð í gærdag kl.
5y2—-7y2. Var þangað boðið ræð-
ismönnum erlendra ríkja og ýms-
um embættisimönnum og borgur
urn.
I dag kl. 4:—6 verður almenn-
mgi gefinn kostur á að skoða
skipið og verða skipsbátar í förum
milli Geirsbryggju og skips. Á
uppstigningardag var almenningi
gefinn kostur á að skoða skipið,
en svo mikill fjöldi fólks sóttist
eftir að komast um borð, að skips-
bátarnir höfðu ekki við að ferja.
Var um tíma. -svo mikill mann-
fjöldi á bryggjunni, að til stór-
vandræða horfði Var mildi að
ekki skyldi slyS hljótast af troðn-
ingnum. Einn maður var svo ákaf-
nr að hann ætlaði að hlaupa út í
bát áður en hann var kominn upp
að Ibryggjunni. Fjell maðurinn í
sjóinn og var dreginn upp í bát-
inn.
Ef til vill verður því svo fyrir
komið einhvern næstu daga, að
drengjum verði sjerstaklega boðið
að skoða „Vindictive".
Eimskip. Gullfoss fór frá Leith
kl. 12 í gærkvöldi, áleiðis til Vest-
mannaeyja. Goðafoss er í Ham-
borg. Brúarfoss fór frá Vestmanna
eyjum í gær, áleiðis til Leith.
Dettifoss fer vestur og norður í
kvöld. Lagarfoss fer frá Kaup-
mannahöfn í dag. Selfoss fór frá
Vestmannaeyjum í fyrrakvöld,
leiðis til útlanda.
a-
a » » b ■ m
Enrþhcg
M.b. Sæhrfmoir
fer hjeðan n.k. mánuda,e: til
Sauðárkróks, Siglufjarðar
oy Akureyrar.
Tekur flutRÍng til þessara
staða eftir því sem ástæður
leyfa.
Dagbók.
Næturlæknir er í nótt Gísli Páls-
son, Laugaveg 15. Síini 2474.
NæturvörSur er í Reykjavíkur
Apótekí og Lyfjabúðinni Iðunn.
Messað í Dómkirkjunni á morg-
un kl. 11, síra Garðar Svavarsson.
Kl. 5 safnaðarfundur.
MessaS í Fríkirkjunni á morg-
un kl. 2, síra Árni Sigurðsson.
Messar í Laugarnesskóla á morg-
un kl, 2, síra Garðar Svavarsson.
MessaS í Hafnarfjarðarkirkju á
morgun kl. 2, síra Garðar Þor-
steinsson. (Ferming). Kirkjan opn
uð fyrir almenning kl. 1.50.
Sjötugsafmæli á í dag Ingvar
Guðmundsson, stýrimaður, Strand-
götu 45, Hafnarfirði. Ingvar er
vel metinn borgari í Hafnarfirði
og dugnaðarmaður hinn mesti.
Sonur Ingvars er Þorgils, banka
fulltrúi.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af dr. theol.
Jóni Helgasyni ungfrú Jóna Ein
arsdóttir, Tjarnargötu 24, og Óli
Vestmann Einarsson prentari, Vest
urgötu 51 C. Heimili ungu hjón-
anna verður á Leifsgötu 12.
Hjónaband. 1 dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú , Sigríður Jóns-
dóttir, Frakkastíg 19, og Viggó
H. V. Jónsson gjaldkeri. Heimili
ungu hjónahna verður á Sjafnar-
götu 5.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú Gunn-
þór.unn Einarsdóttir frá Vík
Mýrdal og Matthías Guðmundsson
starfsm. á Tollpóststofunni. Heim-
ili þeirra verður á Bergþórugötu
öd. — „ ,
Hjúskapur. f dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni Ágústa Sigurðardóttir
- (Sigurðssonar frá Sámsstöðum í
Fljótshlíð) og Axel Reinh. Kristj-
ánsson (Benediktssonar trjesmiðs).
Heimili ungu hjónanna verður á
Gunnarsbraut 32.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af hr. biskupi
Sigurgeir Sigurðssyni ungfrú Anna
Ólafsdóttir frá ísafirði og Ás-
grímur Ragnars bankaritari. Ileim-
ili þeirra er á Reynimel 56.
Fimtug verður í dag frú Guð-
laug Björnsdóttir Leví, Sólvalla-
götu 6. Munu þinir fjölmörgu vin-
ir hennar senda henni hlýjar kveðj
ur í dag, með þakklæti fyrir góða
vináttu og von um farsæla kom-
andi daga.
Fósthúsinu verður lokað kl. 4 á
laugardögum sumarmánuðina.
Mæðradagsblómið er merki morg-
undagsins.
Skátar, drengir og stúlkur, eru
beðnir að mæta á Veghúsastíg kl.
1 á morgun (sunnudag).
Útbreiðslufundir. St. „Einingin“
fer í heimsókn til stúknanna
Strönd á Vatnsleysuströnd og
Framför í Garði á morgun. Lagt
verður af stað kl. 12.30 stundvís-
lega frá Góðtemplarahúsinu. Út-
breiðslufundir verða á báðurn stöð-
unuin. Þátttakendur gefi sig fram
í Templarahúsinu í dag kl. 2—5.
Utvarpið:
Laugardagur 20. maí.
12.00 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir.
19.15 Hljómplötur: Kórlög.
19.45 Frjettir.
20.10 Veðurfregnir.
20.20 Leikrit: „Einkaritarinn",
gamanleikur eftir Charles Hawt-
rey (Nemendur Mentaskólans í
Rvík).
22.05 Frjett.aágrip.
22.10 Danslög.
Regnhlífasýning
stendur yfir þessa dagana í sýningarglugga Gefjunar í
Aðalstræti. Nýasta tíska. Bestu efni.
Regnhlifagerð Láru Siggeirs.
Hverfisgötu 28. Sími 3646.
f V If Hf
Safnaðarfundur
í Dómkirkjunni á morgun, sunnudag, kl. 5 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Kirkjubyggingarmál safnaðarins.
2. Heimsóknir í sorgarrann. Undirritaður flytur fyrir-
lestur um það efni.
3. Önnur mál fundarmanna.
S. Á. GÍSLASON
(p. t. formaður sóknarnefndar).
Vegna jarðarfarar
verður bankinn lokaður
mánudaginn, 22. þ. m.
Vixlar, sem falla I gfald-
daga föstudaginn 19. mai,
verða afsagðir laugar-
daginn 20»
Búnaðarhankinn.
MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að kveðju-
athöfn móður minnar,
BJARGAR EMILÍU SNORRADÖTTUR JOHNSON,
sem andaðist sunnudagsmorgun 14. þ. mán., fer fram í dóm-
kirkjunni í dag og hefst með bæn að heimili okkar, Framnes-
veg 23, kl. 4 e. hád. — Líkið verður flutt til Húsavíkur með
Dettifossi, og jarðsungið verður að Grenjaðarstað föstudaginn
26. maí kl. 2 e. hád. i
Guðrún Johnson.
Vinum og ættingjum tilkynnist að
HELGA ÁSMUNDSDÓTTIR
andaðist 16. maí að heimili frænku okkar, frú Elínar St. Briem,
Oddgeirshólum. Jarðarför fer fram frá Dómkirkjunni miðviku-
dag 24. þ. fm. kl. 3 e. h. Blóm og kransar eru vinsamlega afbeðin.
Anna Ásmundsdóttir, Guðrún og Anton Schneider.
Jarðarför konu minnar og móður okkar,
HELGU S. KRISTJÁNSDÓTTUR,
frá Súgandafirði,
fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 20. maí, og hefst kl. 1 e.
með bæn á heimili okkar, Reykjavíkurvegi 29.
Jarðað verður í Fossvogi.
Jón S. Steinþórsson og börn.
h.
Öllum þeim, fjelögum og hinum mörgu einstaklingum, er
sýndu okkur hluttekningu og samúð við andlát og jarðarför
YILHELMÍNU S. SVEINSDÓTTUR,
vottum við okkar innilegasta þakklæti.
Tóœas Jónsson, börn, tengdabörn og barnabörn.