Morgunblaðið - 26.05.1939, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 26. maí 1939.
Matador
Hið margrþráða spil Matador kom á markaðinn í morgun, undir
nafninu Miljóner.
Nýa LeikfangagerÖin,
Skólavörðustíg 18.
Sími 3749.
Hveragerði - Olvesá
Evrarbakki - Stokkseyri.
Kvöldferðir austur annað kvöld og sunnudagskvöld kl. 6 síðd úr
Reykjavík.
Að austan alla sunnudaga og mánudaga kl. 10 Ardegis.
Bifreiðaslöfi Sleindórs.
Símar: 1580, 1581, 1582, 1583, 1584.
Fyrirliggf andi:
Hveiti, 4 tegundir.
Hrísgrjón — Haframjöl.
Hrísmjöl — Kandís.
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Kaupi kálfaskinn,
söltuð og hert — hæsta verði.
§ig. Þ. §kjaldberg.
Tilkvnning
frá Gjaldeyris- og
innflulningsnefnd
Þeir innflytjendur, sem óska að flytja til landsins,
á síðari helmingi yfirstandandi árs, vörur, sem
innflutningsleyfi þarf fyrir, samanb. reglugerðir
um gjaldeyrisverslun o. fl. 14. júní 1938 og 15. þ.
m., þurfa að senda oss umsóknir um gjaldeyris-
og innflutningsleyfi fyrir 20. júní n.k.
Umsóknir um leyfi fyrir útgerðai vörur þarf þó
ekki að senda fyrir tímabil þetta í einu lagi, held-
ur nægir að senda þær með hæfilegum fyrirvara
áður en kaup þarf að gera í hverju tilfelli.
í þessu sambandi koma að sjáífsögðu ekki til
greina þær vörur, sem þegar hefir verið úthlutað
fyrir alt árið, en það eru vefnaðarvörur til versl-
ana og byggingavörur til verzlana utan Reykja-
víkur.
Umsóknir um leyfi til innflutnings á ofangreindu
tímabili, sem berast oss eftir hinn tilskilda tíma,
verða yfirleitt ekki teknar til greina nema um sje
að ræða nauðsynjar til útflutningsframleiðslunnar
Umsóknum um leyfi fyrir vörum öðrum en út-
gerðarvörum, sem þegar hafa borist nefndinni
og ekki hafa verið afgreiddar, verður ekki svarað
fyr en úthlutun fer fram.
Reykjavík, 24. maí 1939.
Gjaldeyirs- og innflutningsnefnd.
MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU.
Kappleikurinn
fi gærkvöldi
0E
:qoqe
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Af einstaka mönnum báru af í
gærkvöldi eins og svo oft áður
Ellert og Jóhannes í Val og
Brandur og Þorsteinn Ólafsson í
Víking. Hinn nýi meistaraflokks-
maður Vals, Hannes Thorsteinsson
fer vel með bolta, en það var eins
og hann væri ekki í sambandi við
meðleikendur sína. Hann gæti orð-
ið ágætt skemtiatriði á leiksviði,
ef settir væru tveir til þrír menn
á móti honum og hann isvo látinn
,,piata“ þá eins og sagt er á knatt-
spyrnumanna máli.
lreður var hagstætt til kepni í'
gærkvöldi og völlurinn í góðu á-
sigkomulagi.
Fyrri hálfleikur 3:0.
Víkingar byrja með sókn og eftir
tvær mínútur fá Víkingar hornspyrnu
á Val. Isebarn tekst illa spyrnan og
ekkert verður úr. Víkingar halda sókn
sinni og knötturinn berst um miðjan
vpllinn. Á 4. mínútu fær Björgvin
tækifæri á markið, en missir marks.
A 5. mínútu er tekin aukaspyma á
Val, en ekkert verður úr henni. Næstu
5 mínútur voru skemtilegasti kafli alls
leiksins, Bæði lið gerðu góð upphlaup,
sem vit var í, án þess þó að þeim
tækist að skora mark. Á 11. mínútu
fjekk Víkingur á sig aukaspymu frá
vítateig. Víkingar röðuðu sjer upp
eins og veggur fyrir framan mark-
manninn, svo að hann fær ekki tæki-
færi til þess að sjá neitt. Jóhannes
spyrnir knettinum með jörðu í hægra
horn marksins — 1:0.
Víkingar reyna nú að herða sig
og gera hættulegt upphlaup. Auka-
spyrna er tekin á Val á 13. mínútu
fyrir olnbogahrindingu, en ekkert varð
úr. Ur þessu fara Víkingar að linast.
Þó tekst þeim að gera nokkur upp-
hlaup. Á 23. mínútu nær Þorsteinn
knettinum og hleypur npp, en fyrir
opnu markinu dettur hann og Grímar
bjargar marki með því að spyma
knettinum þvert út af vellinum. Á
25. mínútu gera Vals-menn hættulegt
upphlaup og verður úr því hornspyma
á Víking. Homspyman mistekst, en
•skömmu síðar verður þyrping fyrir
framan mark Víkings. Ellert kemur
eins og elding, þegar búið er að losa
knöttinn úr þvögunni, nær í hann og
spymir í mark — 2:0.
Valsmenn gera nú hvert upphlaupið
á fætur öðru og á 36. mínútu fær
Víkingur á sig aukaspymu á nákvæm-
lega sama stað við vítateig eins og er
fyrsta markið var sett. Jóhannes spym
ir og setur mark — 3:0.
A 42. mínútu kemur fyrir leiðinlegt
atvik. Haukur nær knettinum af Hrólfi
en Hi’ólfi mislíkar augsýnilega og
hrindir Hauk. illa og ólöglega, svo að
hann fellur við. Dómarinn dæmir auka
spymu á Val fyrir.
Fyrri hálfleikur endaði með 3:0.
Víkingar áttu mörg tækifæri til þess
að setja rnark og sýndu í fyrri hluta
hálfleiksins, að þótt vöm Vals sje
sterk, er hún stirð og vel hægt að
komast fram hjá henni með góðum og
liprum leik. Menn munu vera sam-
mála um það, að Víkingur hafi verið
óheppinn í þessum hátfleik og hefði
átt betri útkomu skilið.
Seinni hálfleikur 2:1.
Strax og leikurinn hófst, má sjá
að Víkingar hafa gefist upp. Á 8.
mínútu gera Vals-menn upphlaup. —
Björúlfur sendir knöttinn til Jóhann-
esar, sem er fyrir opnu marki og Jó-
hannes spymir óverjandi skoti. Á 10.
mínútu meiðist Ólafur Jónsson í Vík-
ing og verður að fara út af um stund.
Eftir það hefst daufasti og leiðinleg-
asti kafli leiksins. Víkingar veita ekk-
ert viðnám, en þó tekst Vals-mönnum
ekki að setja rnark, þótt þeir s.jeu svo
að segja altaf með knöttinn upp við
mark Víkings. Víkingar gera fá og
ónýt upplaup. Á 25. mínútu kernst
Isebarn með knöttinn að marki Vals,
en þegar hann er að komast að mark-
inu, hleypur Grímar á hann ólöglega
og Víking er dæmd vítaspyma á Vai.
Þorsteinn spyrnir og setur mark —
4:1. Þrátt fyrir þetta ná Víkingar
s.jer ekki upp og enn liggur á þeim.
Á 32. mínútu fá Víkingar á sig liorn-
spyrnu. Þvaga verður framan við mark
ið og Vxxls-menn setja mark — 5:1.
Vals-menn fá enn góS tækifæri á mark
Víkinga, en missa altaf marks.
Vívax.
Oðnsk bók um gæslu
Bíll tll sftlu.
Ódýr 5 manna drossía til
sölu. Upplýsingar í síma
2287, kl. 6—8 í kvöld.
i
IQBEIt
□
3Q
Decca-,
Brunswick-,
Polyphon-
plötur komnar.
Mjallhvít,
ásamt mörguxn
Nýlega er konrin út á dönsku
bók, sem fjallar um hirð-
ingu og gæslu xniðstöðva. Bókin
nefnist á dönsku „Vejledning i
Pasning af Centralvarmeanlæg“,
og er gefin út af bókaforlagi
Teknologisk Institut. — Höfundar
bókarinnar eru verkfræðingarnir
Otto Juel Jörgensen og Lorentz
Petersen. Bókin er 320 bls. með
175 myndum. 25 töflum og fylgja
henni 5 laus blöð með myndum af
mismunandi miðstöðvarofnutn.
Bókinni er skift í 14 kafla, þar
sem rætt er um ýmsar tegundir
miðstöðva og um upphitun húsa
alment, svo sern upphitun með
vatni, lofti, gufu, rafmagni. Þá eru
sjerstakir kaflar um eldsneyti,
gæslu miðstöðva og loks um hvað
gera skuli ef slys ber að höndum.
Utgefendur telja að tilgangur-
inn með bók þessari sje fyrst og
freinst sá, að nota hana sem kenslu
bók á námskéiðum sem Teknolog-
isk Institut heldur um gæslu mið-
stöðva, en bókinni er einnig ætlað
að vera leiðarvísir fyrir þá fjölda
mörgu, sem ekki hafa tækifæri til
að sækja námskeið stofnunarinnar.
Bókin byggist á margra ára
reynslu, sem fengist hefir á efna-
rannsóknastofum og við gæslu mið
stöðva.
nótnanýjungum.
Fiðlustativ, kassar, strengir
o. fl.
Hljóðfærahúsið.
Góðar bækur.
Bókmentasaga íslendinga I—II
5 kr. Fernir, fornísl. rímnafl. 1 kr.
íslendingabók 1 kr. Kvæði Stefáns
Ól. I—II 8 kr. Minningarrit Bók-
mentafjel. 8 kr. 2 bd. Minningar-
rit Jóns Sig. I—II !) kr. Norður-
iandasagan eftir P. Melsted 3 kr.
Prestatal og prófasta 2 kr. Þegar
Reykjavík varð 14 vetra 1.50. Ras-
mus Kr. Rask 2 kr. Um kristni-
tökuna 1.50. Upphaf allsberjar-
ríkis 2 kr. Víkingasaga I—II 4.80.
Willard Fiske 75 au. Endurminn-
ingar Fr. Guðmundssonar I—II 10
kr. Kveldræður í Kennaraskólan-
um 6 kr. fsl. annálar 1400—1800.
Verkin tala 1.50. Hjer er um gíf-
urlega eftirsóttar bækur aS ræða,
sem eru hver annari vinsælli.
Bókabúð Vesturbæjar.
Vesturgötu 21.
X
Speglar
Glerhillur
Baðherbergis-
áhöld
Snagabretti
alt nýkomið.
X
T
I
T
f
t
x
x
T
Ludwig §lort |
Laugaveg 15. t
Farið að
dæmi þeirra
og þvollur-
inn mun
takast vcl.
Fæsfi fi næsfiu búð.