Morgunblaðið - 26.05.1939, Page 7
Föstudagur 26. maí 1939.
MORGíUNBLAÐJÐ
VærOarvoðirnar
íslensku fánalitirnir.
Nýkomnar.
„ÁIafossM
Þflngholtsstr. 2.
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaginn 29. J). m. (annan
hyítasunnudag) kl. 6 síðd. til
Kaupmannahafnar (um Yest-*
mannaeyjar og Thorshavií).
Þareð skrifstofunni verður lok-
að kl. 12 á hád. á laugardag,
þurfa farþegar að sækja farseðla
fyrir þann tíma.
Einnig þurfa vörur til útlanda
og Vestmaímaeyja að koma fyrir
, : í
hádegi á laugardag.
TryRRvaRÖtu. Sími 3025.
„ftallfoss”
fer á sunnudagskvöld 28. maí kl.
10 til Breiðafjarðar og Vestfjarða.
Pantaðir farseðlar óskast sóttir
1 DAG, verða annars seldir öðrum.
lfDottifosscs
fer á miðvikudagskvöld 31. maí
um Vestmannaeyjar til Grimsby
og Hamborgar.
SAðln
austur um til Seyðisfjarðar þriðju-
daginn 30. þ. m. kl. 9 síðd.
Plutningi sje skilað fyrir há-
degi á laugardag,
Pantaðir farseðlar óskast sótti'r
Minning Sigríðar
Gísladóttur.
¥ dag verður hún til moldar
borin. Mörgum vina hennar
mun þykja sem ský hafi dreg-
ið fyrir sólu við að frjetta það,
að hún, sem var í fullu fjöri
fyrir svo skömmu, skuli hafa
orðið dauðanum að bráð.
•f « *í $•
Við andláfc góðs vinar minn-
ist maður svo margs. Hugurinn
dvelur við minninjgar frá s^m-
verustundunum, \t§ ijmjnning^r
allra þeirra góðu verka og daða,
sem maður af þessum vini sín-
um þáði.
Sigríður var ein af þeim; serh
maður gat komið til á erfiðum
•tundum I'ífs síns og fengið góð
og holl ráð hjá auk þeirra góð-
verka, sem oftast voru láþin
fylgja með, án þess að hún ljeci
vinstri hönd vita hvað hih' HÍégri
hefðist að.
Lífið og lífshamingjan er
h'verfult, og margir eru þeir,
sem haming,ju hlotið Imfa- —
óg mist af henni, þegar hún var
hýléga tekin að ráða ríkjum í
sál þeirra. Einnig er það hverj-
um éinstaklingi í blóð borið. að
taka vonbrigðum og brostnum
vonum mismunandi hátt*
Vissa mín er sú, að Sigríður
Vár ein þeirrá fáu, sem var fær
vegna mjög sjálfstæðs og
traustbygðs sálárlífs, að taka
því, sem að höndum bar, með
þeirri geðró og trúnaðartrausti
á hið góða í tilverunni, að jeg
hefi eigi hitt annan ehpstakling
færari.
Sár harmur er kveðinn við
fráfall hennar af öldruðum föð
ur. Þau höfðu nú svo lengi verið
samrýmd og fylgst að í lífinu,
þegar systkini hennar voru flest
farin úr föðúrgarði. Systkini
hennar og aðrir vandamenn
ásamt okkur vinum hennar, sem
vorum svo að ségja daglegir
gestir á heimili hennar, eigum
nú um svo sárt að binda, að'
eigi mun oss bættur missirinn,
þótt við öll vitum með vissu,
að trú hennar, sem var svo
isterk á guð og því góða í mann-
lífinu, mun hafa flutt henni
heim sanninn um það, að ti:l-
vera lífsins var rjátt „byrjuð,
en heldur áfram til fullkomn-
unar á betra og hærra tilveru-
stigi, en vor mannlegu augu fá
litið. — Fylgi þjer guð, kæra
ina. Við vifcum; að við ujámnst
aftur og eigum- þá fyriú höffd-
um betra líf og fullkomnara,
þár: sem þú færð betur notið
hinna góðu eiginleika þinUa, en
hjer hjá oss. .
G. S.
Dagbók.
I. O. O. F. 1 = 12! 5268l/2 =
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Næturlæknir er í nótt Kjartan
Ólafssou, Lækjargötu 6 B. Sími
2614.
Hjúskapur. S.þ laugardag voru
gefin saman í lijónaband af síra
Arna Sigurðssyni ungfrú Jensína
Jónsdóttir, Laugaveg 75, og Björn
Ófeigsson bókari, Sjafnargötu 1.
Ólafur Thors atvinnumálaráðh.
er nú farinn að hafa fótavist. Tvo
síðustu dagana hefir hann komið
í stjórnarráðið, og hann býst við
að verða það hress eftir hvíta-
sunnu, að hann geti þá tekið á
móti inoniiúm til viðtals.
20 daga fangelsi fyrir reið-
lijólsþjófnað. Maður einn, sem
stolið liafði reiðhjóli var í gær
dæmdur í 20 < daga, fangelsi- fiyrir
verknaðinn. ^ ~
Pjetur Zophoníasson ættfræð-
ingur verð.ur sextugur á miðviku-
daginn kemufí" (Si. niaij' jpann dag
ætlá vinir hans að halda honum
samsæti í 0d’cífóHó\vh úMnu. Þeir,
sem vildu vera þar með„ geta
fengið aðgöngumiða í Bókaverslun
ísafoldarprentsmiðju. Hinir, * sem
þegar hafa pantað aðgöngumiða,
eiga að vitja þeirra þangað fyrir
hádégi á morgun (laugatdág).
Súðin kom til Reykjavíkur í
gærkvöldi úr Strandferð að vestan.
Eimskip. Gullfoss t'er til Breiða-
fjarðar og Vestfjarða á sunnu-
dagskvöld kl. 10. Goðaföss er í
Hull. Brúarfoss kom til Kaup-
mannahaínái; kl. 4 síðdegis í fyrra
dag; Dettifoss var á Önundarfirði
í gær. Lágarfoss^ fór frá Leith í
gærmorgun, áleiðis til Austfjarða
Selfoss kom til Aútwerpen í gær
morgun. ... , .
Snýning á Tengdapabba í kvöld.
Sem framhald á h’inum ágætu
skemtunum mæðradagsins, kemur
nú gamanleikurinn ,Tengdapabbi‘,
sent Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
í kvöld kl. 8 í Iðnó. Verðið er svo
lá'gt að allir munu geta veitt sjer
að sjá leikinn og ekki dregur það
úr ánægjunni, að vita sjg um leið
styðja hið góða starf Mæðra-
stýrksnefndarinnar. — Leikendur
gefa sína vinnú og húsið er einnig
óke.ypis. Nú er bará að bæjarbúar
kaupi sig inn svo ekkert. sæti
verði autt. Þetta er allra síðasta
tækifærið til að sjá þenna bráð-
skemtilega leik.
Vargurinn í Hafnarfjarðar-
hrauni. Minkurinn, sem gengur
laus í Ilafnarfjarðarhrauni og sagt
hefir verið frá hjer í blaðnu, hef-
ir enn gert usla í hænsnabúúnt í
Hafnarfirði. Nýlega drap hann 5
hænsni á éinu búinu. Fjáreigend-
ur óttast að hann fari að leggjast
á fje þeirra.
Farfuglar fara gönguför á hvíta
sunnudag. Parið vérður í bíl suður
að Vífilsstöðum og gengið þaðan
á Búrfell, og um Kaldársel niður
í Hafnarfjörð. Önnur ferð verð-
ur farin í Borgarfjörð. Lagt af
stað með Pagranesi til Akraness
,a láughrdag. Farið á reiðhjólum
frá Akranesi til Hvanneyrar og
gist þar. A hvítasunnudag hjólað
að Hreðavatni. Snúið aftur til
Akraness á annan í hvítasunnu og
méð iUíPaífeáhesinu hingað um
kvöIdið.Þátttakendur gefi sig fram
á,.skrffstofu farfugla í Mentaskól-
aínun í kviild kl. 9^10 og. á morg-
un kl. 1—2.'“
Jón Bergsveinsson biður konu
þá,‘ sem í gær keypti minningar-
spjald um SigursVein R. Guðjóns-
son, að gefa sig fram á skrifstofu
Slysavarnaf jelagsins.
Vjelskipið Anna frá Ólafsfirði
hefir undanfarnar nætur látið
reka fram lijá Kolbeinsey, suður
af Lauganesi og víðar, en aðeins
orðið síldarvart. Síðastliðpa nótt
ljet það reka djúpt norðaustur af
Sjglufirði og fekk 40—50 tunnur.
Fitumagn síldarinnar er 5—6%.
(PÚ).
Ferðafjelag íslands biður þess
getið að m.s. Laxfoss leggur af
stað í Snæfellsnessförina kl. 7 síðd.
á laugardag. Parmiðar eru seldir
í Bókaversl. ísafoldarprentsmiðju
í dag og til kl. 3 á laugardag..
Jánúarheftið af belgíska mán-
aðarritinu „L’Espansion Belge“,
er helgað íslandi. Hefst það á
langri grein og vinsamlegri uin
Island, og fylgja henni myndir,
þ. á. m. landabrjef af Islandi, af
Kristjáni X., af Vestmannaeyjum,
litprentuð mynd af Elliðaánum
o. fl. I greininni eru upplýsingar
um verslun og iðnað á íslandi,
fjármál og búskap okkar yfirleitt
Til Strandarkirkju afh. Morgbl.
G. J. 5 kr. A. Þ. 15 kr. N. N. 2
kr. Jóhannes Sveinbjörnsson 10
kr. E. B. 5 kr. A. Z. 5 kr. P. h.
10 kr. Á 1 kr. Ónefndur 1 kr. N.
N. 50 kr. Ónefndur 14 kr. S. Þ. 2
kr. Sína 2 kr. N. N. 2 kr. Eyja-
skeggi 5 kr. N. N. 10 kr. B 5 kr.
N. N. 2 kr._____________________
Gjafir til Slysavarnafjelags ís-
lands á árinu 1939: Frá Konráð
Gíslasyni, Rvík 5.50. Ólafur Ei-
ríksson, Bergst.str. 27, 10.00. Göm-
ul kona 10.00. María HannéSdóttir
10.00. Kvenfjel. Hvammshrepps,
Vílc í Mýrdal 60.00. Nikulás E.
Þórðarson 10.00. S. J. 50.00. Líkn-
arsjóður íslands 1000.00. Bjarni
Bjarnason 2.00. Jónas Jónasson
(hjá Raftækjaversl. ísl.) 47.70.
Daníel Sigurbjörnsson 2.00. Sig-
urður Þorkelsson 2.00. Sigurður
Sigurbjörnsson 10.00. Sigurður Sig
urðsson 5.00. Þorkell Gíslason
5.00. Óskar Gíslason 5.00. Ungm.-
fjel. „Drengur“, Kjós 79.00. Sig-
urður Jóhannesson 8.00. — Kær-
ar þakkil’. —= J. E. B.
Farsóttir og manndíruði í Rvík
vikuna 30. apríl til 6. maí (í svig-
um tölur næstu viku á undan) :
Hálsbólga 63 (35). Kvefsótt 93
(86). Giftsótt 1 (0). Iðrakvef 18
(14). Inflúensa 13 ,(20). Kvef-
lungnabólga 3 '(4;. Taksótt 3 (1).
Hlaupabóla 0 ,(!)• Ristill 0 (2),
Þrimlasó.tt 0 (1) Heimakoma 1 (0)
títvarpið:
Föstudagur 26. maí.
11.00 Veðurfregnir.
12.00 Iládegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir.
19.15 Hljómplötur: Slavnesk lög.
19.45 Prjettir.
20.10 Veðurfrígnir.
20.20 Erindi: -30 ára starfsemi
Kennaraskólans (Preysteinn
Gunnarsson skólastjóri).
‘20.45 Strokkvartett útvarpsins
leikur.
21.10 Avarp frá Hestamannafje-
laginu Fákur (dr. Björn Björns-
son). jr
21.20 Illjómplötur: Lög leikin á
harmóníku og.ýms lilýððfæEÍ.
(22.00 Frjettaágríp).
22.15 Dagskrárlök.
Deilan um
Koo-ling-su
FRAMH. AF ANNARI SÍDU
og æsinga í garð Japana, og
myndi það ekki verða þolað.
★
Þótt ekki búi nema 250 Ev-
rópuménn í Koo-ling-su, þá er
fylgst um allan heim með
athygli með því, sem þar 'er
,að gerast, því að Evrópubúar
njóta þar nákv3esmlega,ysömu
rjettinda og í alþjóðahverfinu
í Shanghai. Ef Bretar og Bánda
ríkjamenn ,láta undan í Koo-
ling-su, er óttast, að Japanar
færi sig líka upp á skaftið í
| Shanghai. En það er alvarlegt
I mál.
Það tilkynnist hjermeð, að
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, járnsmiður,
Lindargötu 28, andaðist í dag.
Reykjavík, 25. maí 1939.
Gunnar A. Pálsson Þórður Þórðarson
cand. jur. læknir.
Það tilkynnst hjermeð vinum og vandamönnum, að
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Barónsstíg 21, andaðist að sjúkrahúsi Hvítabandsins þ. 24.
þessa mánaðar.
Aðstandendur.
'V » ¥.•*»• i
Móðir okkar,
GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR
frá Eystri .Kirkjubæ, andaðist í gær 25. maí, að heimdli sínu
Hringbraut 66, Reykjavík.
Elín Hjartardóttir. Sigríður
" fí.
Oddgeir Hjartarson.
xrdóttir
Jarðarför minnar hjartkæru eiginkonu
GUÐRÍÐAR EYJÓLFSDÓTTUR,
fer fram frá Fríkirkjunni laugardaginn 27. maí og hefst með
húsk\ . öju á heimili okkar, Njálsgötu 40 B, klukkan 1 e. h.
Kransar eru afbeðnir.
Jón Steinason.