Morgunblaðið - 15.06.1939, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.06.1939, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 15. júní 1939, Olafur Magnússon, ljósmyndari fimtugur Olafur er íæddur 15. júní 1889 á Akranesi, sonur þeirra merkishjóna, frú Guðrún- ar Jónsdóttur og Mag;nsúar Ól- áfssonar, þáverandi verslunar- stjóra þár. Fléstir eldri Reykvíkingar tiiuna Magnús Óiafsson ljósmynd- ara, frá því hann fluttist hing- að, alkominn, laust eftir aidamót, og stofnsetti hjer ljósmyndastofu, er fljótt náði miklum vinsældum, sökum frábærra hæfileika Magn- úsar. Þótt Ólafur væri þá ungur að aldri, sást brátt að hugur hans hneigðist að sta^fsemi föð- urins, og má því með sanni segja, að hann sje starfinu samgróinn frá blautu barnsbeini. Ólafur er einn þeirra lánsömu manna, er hlotið hefir gott vega- nesti fyrir lífið, kominn af mikl- ■ um og góðum ættstofni, uþpalinn á hinu prýðilegasta heiifiili, og notið handleiðslu ástríkra föreldra fram á þroskaár, enda hefir Ól- afur borið því uppeldi best vitni með lífsferli sínum, því grand- varari og heiðariegri mann mun vart að finna. Að loknu námi hjá föður sínum fór hann til Kaupmannahafnar árið 1911 til frekara náms, dvaldi þar tvö ár, hjá einum allra þekt- asta og athafnamesta ljósmynd- ara Kaupmannahafnar, hr. Junker Jensen. Yar mjer persónulega kunnugt, að hann liafði hinar mestu mætur á Ólafi, og bar al- veg óvanalegt traust til hans, og voru það engin óveru meðmæli frá þeim manni, því satt að segja var Junker Jensen af starfsbræðr um sínum talinn vera sá maður- inn, er verst væri að gera til hæfis, og var víst stundum frem- ur stutt á milli með fólkshald- ið. Arið 1913 um sumarið kemur Ólafur heim og setur hjer á stofn ijósmyndastofu sína á þeim sama stað og hún nú hefir starfað rúra 2o ár, í Templarasundi 3. Það kom brátt í ijós, að Ólafur var óvenjulega vel búinn undir starf sitt, og • á mjög skömmum tíma náði hann alveg óvanaleg- um vinsældum með viunu sína, starfsfólk hafði liann oft margt í fjölda ára, og Ijósmyndastofa hans var ein sú allra stærsta hjer á landi, en tímarnir breytast og mennirnir með, og Ólafur er eng- inn kyrstöðumaður, Iians með- fædda listhneigð og fjölhæfni Hátt kaup í boði. Upplýsing- ar hjá Sigurjóni Danívalssyni. Sími 1540. Qlafur Magnússon. færðu honum ný viðfangsefni. Á síðari árum hefir liann lagt mikla rækt við „að mynda landið" á marga vegu/ og mun haiinnú tvímælalaust eiga það mesta safn, sem hjer er finnanlegt af slíkum myndum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu aðdáanlega hann litsetur (málar) ljósmyndir sín- ar. Þessar myndir eru Eeykvík- ingum svo kunnar og minnisstæð- ar, og svo lofsamleg ummæli hafa þær hlotið dómbærra manna, að óþarfi er að fjölyrða um það. Einasti Ijósmyndari hjer, er ráð- ist hefir í það þrekvirki að halda í tvö skifti stórar ljósmyndasýn- ingar í Kaupmannahöfn á eigin kostnað, er Ólafur. í fyrra skift- ið 1928, og síðar 1937. Að verð- leikum hlaut hann mjög lofsam- leg ummæli allra, er um það ræddu, og hafa þessar sýningar átt sinn’ þátt í því að kynna „land og lýð“. Árið 1922 útnefndi konungur Ólaf sem hirðljósmyndara, og er fjöldi ágætra mynda frá honum hjá konungsfjölskyldunni, bæði einkamyndir og svo frá ferðalög- um hjer. Þar sein við ólafur höfum nú ekki þekst minna en rúm 40 ár, mætti lengi halda áfram að minn ast „gamalla og góðra vina“, auk þess sem við höfum verið starfs- bræður í rúman aldarfjórðung, en þar sem jeg geri mjer litlar von- ir um þakklæti fyrir slettireku- slíap minn, ineð þessum línum, la;t jeg staðar numið. Jeg vildi aðeins mega óska þess fyrir hönd allra starfsbræðra minna, að ’við mættum ávalt eiga einhvern inn- an okkar vjebanda, er væri jafn heilsteyptur og vandaður maður, til o,rðs og verka, og vinuí vor Ólafur er. Mínar bestu árnaðar- óskir og kærar kveðjur til handa Ólafi og fjölskyldu hans allri. Carl Ólafsson. Mr. Straníf í Moskva London í gær F.Ú. r. William Strang ,fulltrúi bresku stjórnarinnar kom til Moskva í morgun, til að vinna að bresk-rússnesku samkomulagsumleitununum. Rússnesk blöð hafa ekki get- ið um komu hans, enda er það venja í Moskva, að geta ekki um komu þeirra, sem þangað koma í samningserindum. Dómurinn i máli frú Goldsieio-Otfússon FRAMH. AP ÞRIÐJU SXOU. maður) 17. des. f. á. var frú Goldstein-Ottósson bannað, að viðlagðri 100 kr. dagsektum, að starfrækja saumastofu í Rvík og nágrenni og Hafnarfirði. — Þíáði bann þetta til tveggja ára írá því hún fór úr þjónustu frú Sigurðsson. Ennnfr. var frú Ottósson dæmd til að greiða 100Q k;r í skaðabætur og 250 kr. í málskostnað. Þessum dóíni áfrýjaði frú Goldstein-Ottósson til Hæsta- rjettar. I forsendum dóms Hæstarjettar segir: Ákvæðið í sanmingi aðilja frá 4. ágúst 1935 um það, að aðaláfrýjanda skyldi óheimilt ,.að taka starf hjá öðr- um eða vinna fyrir utan verslunina (þ. e. verzlun gagnáfrýjandi) á meðan jeg (þ. e. aðaláfrýjandi) dvel á íslandi“, felur í sjer ótímabundið og ótakmarkað bann við vinnu aðaláfrýjanda í sömn Starfsgrein, sem hún stúndaði hjá gagn- áfrýjanda. Viðbótarákvæði samningsins um það, að aðaláfrýjandi mætti starfa á Islandi utan Reykjavíkur og ná- grennis hennar og Hafnarfjarðar, tak- markaði bann þetta að stað, en ekki uð öðru leyti. Staðhæfing aðaláfrýjanda um það, að hún hafi skilið gagnáfrýj- anda svo, að bannið meinaði henni (aðaláfrýjanda) einungis að starfa hjá öðrum eftir að samningi aðilja væri slitið, getur ekki Jeyst hana undan framangreindum ákvæðum samnings- ins, með því að ekki er sannað gegn mótmælum gagnáfrýjanda, að hún hafi veitt aðaláfrýjanda nokkurt efni til þess að halda, að svo bæri að skilja þau, enda var það aðaláfrýjanda að kynna sjer Samninginn nægilega áður en hún gekk að honum. Hinsvegar verður að líta svo á, að hið ótímabundna Og víðtæka atvinnubann samningsins skerði svo óhæfilega atvinnufrelsi að- aláfrýjanda, að hún sje ekki bundin við það að fullu. Bannið virðist fyrst og fremst einungis geta, eins og þessu máli er farið, komið til greina um Stofnun samskonar saumastofu sem að- aláfrýjandi starfaði í hjá gagnáfiýj- anda og ráðningu hennar til starfs slíks hjá keppinautum gagaáfrýjanda. Og þegar meta skal, hversu lengi það megi standa, sbr. 37. gr. laga nr. 7/1936, þá virðist eitt ár mega telj- ast hæfilegt. En þar sem aðaláfrýjandi hefir rekið saumastofu sína, að því er virðist, 8—9 mánuði og hún er því væntanlega bundin við samninga um húsnroði og við starfstúlkur m. fl., þá þykir, eins og á stendur, rjett að taka til greina þrautavarakröfu henn- ar að því leyti, að hún verði dæmd til að greiða gagnáfrýjanda bætur fyr- ir tjón, er telja má hana bíða sakir brots aðaláfrýjanda á oftnefndu at- vinnubanni. Þykja þær bætur hæfi- lega metnar 3000 krónur. Sjeu þær að fullu greiddar innan 3 mánaða frá birtingu dóms þessa. Annars kostar skal aðaláfrýjanda vera óheimilt að reka sjálf eða starfa á samskonar saumastofu sem hún vann á hjá gagn- áfrýjanda í Reykjavík eða nágrenni hennar eða í Hafnarfirði eitt ár talið frá lokum greiðslufrests áðumefndra 3000 króna. Samkvæmt því, sem fram er komið í málinu, hefir aðaláfrýjandi áður eða um það loyti sem hún fór frá gagn- áfrýjanda leitast við og að nokkru leyti tekist að ná frá henni starfsstúlkum hennar til fyrirhugaðrar saumastofu sinnar. Þá er það óvjefengt, að aðal- áfrýjandi brendi af ásettu ráði bæk- ur, sem voru eign gagnáfrýjanda og höfðu að geyma nöfn, heimilisfiing og líkamsmál kvenna, sem aðaláfrýjandi hafði afgreitt starfstíma sinn hjá gagnáfrýjanda. Þ'etta var aðaláfrýj- anda óheimilt. Það er ennfremur kom- ið fram í málinu, að aðaláfrýjandi Sendi viðskiptavinum gagnáfrýjanda prentaðar tilkynningar um stofnun saumastofu sinnar, ásamt ósk um við- skipti við þær. Telur gagnáfrýjandi aðaláfrýjanda muni hafa notað eða látið nota áðúrnefndár nfálbækur beint cða' óbeint í þessu skýni. Aðaláfrýj- andi, sem gaf aðiljaskýrslu í málinu í hjeraði, hefir að vísu neitað þessu, en jafnframt hefir húu skorast undan að gera fulla grein fyrir því, hvemig eða með hverra aðstoð hún, sem er útlend- ingur og tjáist lítið kunna í íslenskri tungu, hafi aflað sjer nafna og heim- ilisfanga kve.rma þeirra, er hún sendi íiðurpefndar tilkynningar. Með því að aðaláfrýjánda virðist hafa verið unt að gefa nægilega glögga skýrslu um þessi atriði, þá virðist bera að leggja til grundvallar staðhæfingu gagná- frýjánda um misnotkun bókanna að þessu levti, sbr. 116. gr. laga nr. 85/ 1936. Verður að telja aðaláfrýjanda hafu með framangreindum athöfnum bragð- ist því trausti, er gagnáfrýjanda var nauðsyn að geta borið til hennar ,og að sumu leyti misbeitt aðstöðú sinni sjer í hag, en gagnáfrýjanda til óhágs, sbr. 12. gr. laga nr. 34/1933. Virðast fram- antaldar athafnir aðaláfrýjanda hafa Verið lagðar til að valda gagnáfrýj- anda óþægindum og tjóni. Og þvkja bætur fyrir það til handa gagnáfrýj- anda hæfilega ákveðnar 1000 krónur, sbr. 4. málsgr. 16. gr. síðastnefndra laga, eins og í hjeraðsdóminum segir. Eftir atvikum þykir rjett að dæma eðaláfrýjanda til þess að greiða gagn- áfrýjanda samtals 500 krónur í máls- kostnað í hjeraði og fyrir hæstarjetti. Því dæmist rjett vera: Aðaláfrýjandi, Johanna (toldstein- Ottósson, greiði gagnáfrý.janda, Helgu Sigurðsson, 1000 krónur. Emifremur greiði aöaláfrýjandi gagnáfrýjanda 3000 krónur innan 3 mánaða frá birtingu dóms þessa. En ef full greiðsla þessarar uppbæðar hefir ekki farið fram innan þess tíma, þá skal aðaláfrýjandi þess i stað óheimilt að starfrækja eða vinna á samskonar saumastofu og hún vann á hjá gagná- frýjanda í Reykjavík og nágronni hennar og í Hafnarfirði eitt ár, talið frá lokuin framangreinds þriggja mán- aða frests. Aðaláfi’ýjandi gi'eiði gagnáfrýjanda 500 krónur samtals í málskostnað i hjeraði og fyrir hæstarjetti. Dóminum ber að fullnægja að við- Jagðri aðför að lögum. Láras I’jeldsted hrm. flutti málið fyr ir frú Ottósson, en Garðar Þorsteinsson hrm. fyrir fvú Helgu Sigurðsson. BYGGINGARFJELAG ALÞÝÐU I UPPLAUSN ? FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU sig og 3 samherja í stjórn fje lagsins, sem vitanlega er lögleysa frá rótum, eins og til kosningar- innar var stofnað. Gengu margir af fundi í mótmælaslcini gegn of- ríki lljeðins. Er nú alt í óvissu livað við tek- ur. Haldi Hjeðinn fast við ofrílri sitt, fær Byggingarfjelag alþýðu ekkert fje til umráða. Gæti þá svo farið, að nýtt f jelag yrði stofn- að til þess að byggingar gætu haldið áfram. Kappleikur K. R. ogVíkingsíkvöld með Buchlob í marki Ikvöld fer fram á íþróttavell- inum kappleikur milli K. R. og Víkings og hefst hann kl. 8.30. Það senn einkum vekur athygli í sambandi við kappleikinn er, að þjálfari Víkings, Fritz Buchloh, verður í marki Víkings, en marga fýsir að sjá hann í marki vegna frægðar hans sem markmanns. Bæði fjelög nranu tefla fram sínum bestu mÖnnum. Víkingar eru svo illa settir, að Brandur Brynjólfsson, þeirra besti maður, er ekki í bænum og heldur ekki Björgvin Bjarsason, en þetta kem- ur ekki að sök fyrir áhorfendur,. því þeim mun þvkja mest varið í að vörn Víkinga verði sem opnust, til að fá tækifæri til að sjá Buch- loh verja skot K. R.-tríósins. Reykvíkingar hafa ekki fyr fengið tækifæri til að sjá svo- frægan markmaun sem BuchloH er, og því mun verða mannmargt á vellinum í kvöld. ★ í grein, sem hirtist hjer í blað- inu í fyrradag um þenna kapp- leik, er mishert hvernig leikar hafa farið undani'arið milli K. R. og Víkings, Á Islandsmótinu í fyrravor vann Víkingur með 1:0 og á Reykjavíkurmótinu í fyrra vann Víkingur einnig, þá með 3:2. Síðast þegar fjelögin keptu í sum- ar varð jafntefli (1:1). Vívax. SJÓMANNASÝNINGIN í MARKAÐSSKÁLANUM FRAMH. AF FIMTU SÍÐU. að með Engeyjarlagi, bæði að formi og smíði. Jeg vil'með þess- um línum nota tækifærið og skora á Bjarna, meðan tími er til, að smíða fallegan bát, sem megi greina Engeyjarhátalagið, eins og það var fallegast lagað og best smíðað frá hans hendi, svo að það megi geymast öldum og óbonrain. Jeg hefi þá látið hugann reika og hugsað um fortíð og nútíð. Margt af því, sem jeg sá á sýn- ingunni, hefir verið unnið af út- lendum höndum. En hún færðl mjer heim sanninn um, að ís- lenskar hendur geta unnið alt, sem þarna var sýnt. Já, framtíðin er, að við byggj- um okkar eigin skip! Gerum við okkar eigin skip, hæði stór og smá! .Teg þaklra svo þeim, sem stað- ið liafa að þessari sjómanna- sýningu. Ragnhildur Pjetursdóttir. AUGLÝSINGUM í Morgunblað- ið h.k. sunnudag verður að skila til blaðsins fyrir föstudagskvöld. Eimskip. Gullfoss er~ í Kaup- mannahöfn. Goðafoss fór frá Vest- mannaeyjum í fyrrakvöld, áleiðis til Húll. Brúarfoss var á Önund- arfirði í gær. Dettifoss fór frá Hull í fyrradag, áleiðis til Vest- mannaeyja^Lagarfoss fór til Aust- fjarða og Kaupmannahafnar kl. 6 síðdegis í gær. Selfoss er í Reykja- vík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.