Morgunblaðið - 29.07.1939, Blaðsíða 2
2 -
MORGUKBLAÐIÐ
Laugardagur 29. júlí 1939.
Franco „hreinsar
til á Spáni
íí
Alvarleg átök
fascista og
kongungssinna
Hætt við uppþotum
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Franco hefir gefið utanríkismálaráðherra sínum,
Suner, eftirlætisgoði öxulsríkjanna, Þjóð-
verja og ítala, í spönsku stjórninni, umboð
til þess að „hreinsa til“ innan spanska hersins og meðal
starfsmanna hins opinbera á Spáni. Meðal annars er gert
ráð fyrir að gerðar verði mikilvægar breytingar á stjórn
Francos.
Koht
r •
„HREINSUNIN“ BYRJUÐ
Wt
stríði
Khöfn í gser F.Ú.
Halfdan Koht, utanríkis-
málaráðherra Noregs,
hefir látið svo um mælt, að bú-
ast megi við styrjöld, og muni
hún verða ,,alger“ (total) og
beinast gegn íbúum bak við víg-
línurnar engu síður en herruÖÚÚ
unum á vígvellinum.
Koht ljet þess getið, að Nor-
egur væri nú betur undir styrj-
aldarástand búinn en árið
1914, og hefðu verið gerðir
samningar við önnur Norður-
lönd um gagnkvæma víxlun
vista og nauðsynja.
Suner hefir þegar tekið til starfa við hreinsunina
og vikið frá fjölda opinberra starfsmanna sem verið hafa
konungssinnar, þ. e., viljað að konungsveldi á Spáni verði
endurreist. Stöður þeirra hafa verið veittar hreinrækt-
uðum fascistum, eða falangistum, eins og þeir eru kall-
aðir á Spáni.
Danzig býr
sig undir
stríð
Það hefir verið kunnugt um nokkurt skeið, að hörð átök
ættu sjer stað bak við tjöldin milli konungssinna og falangista
Þegar í upphafi spönsku borgarastyrjaldarinnar var því.spáð
af kunnugum mönnum, að falangistarnir og konungssinnarnir í
liði Francos gætu ekki átt samleið nema í því að reyna að
steypa þáverandi Spánarstjórn.
Ágreiningurinn milli hinna ólíku skoðana, hefir nú blossað
upp síðustu tvo dagana.
ER JAFNVEL TALIÐ, AÐ ÞESSI ÁGREININGUR
GETI ÞÁ OG ÞEGAR LEITT TIL BLÓÐUGRA
UPPÞOTA.
Síðustu dagana hafa mörg blöð verið bönnuð og fjölmarg-
ir málsmetandi menn verið handteknir. 1
■ .......— ■ .«-L ■■■■■-
1 opinberri tilkynningu, sem
stjórnin í Burgos gaf út í dag,
er reynt að breiða yfir það, að
nokkur ágreiningur sje ríkj-
andi á Spáni. 1 þessari tilkynn-
ingu segir aðeins, að tilskipun
hafi verið gefin út nýlega, þar
sem ákveðið hafi verið, að eft-
irlit með opinberum fundum og
samkomum skyldu verða aukin.
En ráðstöfunin hafi verið mis-
skilin af erlendum frjettaritur-
um, og að það sje tilhæfulaust,;
að þessi ráðstöfun hafi verið
gerð vegna ástandsins í innan-
landsmálum.
Fyrir nokkrum dögum barst
fregn um að alvarlegur ágrein-
ingur væri risinn milli Queipo
de Llano hershöfðingja og
Francos og að Franco hefði
gert de Llano ,,útlægan“ með
því að skipa hann sendiherra
Spánverja í Argentínu. í hinni
opinberu „skýringu" er því mót-
mælt að nokkur ágreiningur eigi
sjer stað á milli þessara manna.
Því er líka mótmælt, að Yag-
ue hershöfðingi, sá er stjórn-
aði Mára-hersveitunum í sókn-
inni til Barcelona, hafi verið
handtekinn.
FRANCO REYNIR
AÐ SÆTTA.
Kunnugt er, að Franco hefir
lagt sig í lím|a við að eyða á-
greiningnum milli falangista og
konungssinna undanfarnar vik-
ur. En þessi ágreiningur er ekki
aðeins um innanríkismál á
Spáni ,heldur líka um utanrík-
ismál. Falangistarnir vilja í ut-
anríkismálum binda trúss ,, við
Þjóðverja og ítali og reka fram-
sækna utanríkismálapólitík,
með því m. a. að leggja undir
Spánverja Gibraltar — og
Portúgal.
Sjálfur er Franco sagður and-
vígur æfintýrum, í utanríkis-
málum, og vilja frið til þess að
helga sig viðreisnarmálum á
Spáni.
AFVOPNUN.
1 fregn frá Burgos í dag seg-
ir, að Franco hafi fyrirskipað
afvopnun 50.000 hermanna í
næsta mánuði. Verður þá svo
komið, er þeir hafa verið leyst-
ir úr herþjónustu, að ámóta
margir verða í spánska hernum
og vanalega á friðartíma, eða
250.000 menn.
London í gær. FÚ.
Hin ýmsu landvarnaf jelög í
Danzig hafa verið sam-
einuð undir yfirstjórn austur-
prússnesku herstjórnarinnar í
hinn svokallaða Fyrsta Dan-
zigher, o$ mun hann koma fram
í fyrsta sinni á mikilli hersýn-
ingu, sem haldin verður í lok
ágústmánaðar.
Sumarleyfi skólabarna í Dan-
zig verður framlengt, þar sem
allir skólar- eru nú notaðir sem
hermapnaskálar.
2. ágúsf
London í gær. FÚ.
Dagurinn 2. ágúst næstkom-
andi verður hátíðlegur hald
nn af landher, flugher og sjóher
>ýskalands, samkvæmt tilkynn-
ngu, sem birt var í dag í Ber-
ín.
Þann dag eru 25 ár liðin frá
ví er fyrstu hersveitir Þjóðverja
óru inn yfir Istndaínærj Frakk-
ands í heimsstýtjöldínni.
LISTSÝNINGIN
í GAUTABORG
Khöfn í gær F.Ú.
Danska blaðið „Berlingske
Aftenavis" birtir grein
im norrænu listsýninguna í
Sautaborg.
Lýkur blaðið mestu lofsorði
í myndir Gunnlaugs Schevings,
;n hrósar einnig mjög myndum
jeirra Jóns Stefánssonar, Kjar-
,mls og Gunnlaugs Blöndals.
nitiiiiiiimHHitiiiiiiuiiiiiniiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii]iiiiiiiiiii!iiiii!Ui!iiiiiiim]ii]i!iiiiiiiii]iiiiiiu|
I Roosevelt hefir 1
| styrkt hendur |
I Breta í Austur- (
I Asíu 1
immiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHUtnfiiiiiiiiiiiiiiimiiiii) iiiiiiiiiiiuimiiiiiiimimiiifmnmiiiiiiimiiiiiiiii
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
New York Times“ kallar uppsögn Banda-
ríkjastjórnar á verslunarsamningi Banda
ríkjanna og Japana mikilvægasta sporið,
sem stigiðliefir verið í Austur-Asíumálunum síðan styrj-
öldin í Kína hófst. Blaðið segir að þessi ráðstöfun sýni
að Bretar standi ekki einir, þótt þeir taki upp ákveðnari
st^fnu gagnvart Japönum.
Blöðin í Tokio segja, að tilgangur Roosevelts með uppsögn
samningsins sje tvenskonar: 1) að blása nýjum kjark í Breta
og 2) að gera vinsældir Roosevelts meiri fyrir forsetakosning-
arnar sem fara í hönd í Bandaríkjunum næsta ár.
KEPPA AÐ SAMA MARKI
London í gær F.Ú.
1 London er litið svo á, að það hafi ekki komið bresku
stjórninni algerlega á óvart, að Bandaríkjastjórn sagði upp
samningunum. Hinsvegar mun breska stjórnin ekki hafa búist
við uppsögn samninganna nú þegar.
Uppsögn samninganna er talin enn ein sönnun fyrir því,
að Bretar og Bandaríkjamenn hafi samræmt sjónarmið sín að
því er tekur til Austur-Asíu og leiðir beggja liggi að sama marki
— Hreinsun —
hjá Stalin
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Skeyti frá Moskva til
„Daily Telegraph“ í London
hermir:
Stalin hefir látið svifta
embætti 79 kunna liðsfor-
ingja í rauða hernum og fjöl-
marga starfsmenn þess opin-
bera og eru þeir sakaðir um
gagnbyltingar undirróður.
Meðal þessara manna eru
Tairof, sem áður var lands-
stjóri Stalins í Ytri Mongoliu
og Lapin yfirhershöfðingi í
flugher Rússa í Austur-Asíu.
Búist er við að menn þessir
verði dæmdir til dauða.
Bretar óttast
um þinghús
sitt
London í gær. FÚ.
jerstákar Varúðarráðstafan-
ir hafa verið fyrirskipað-
ar í Englandi um stundarsakir,
vegna tilræða I.R.A. Til dæmis
er lagt bann við því fram yfir
helgi, að almenningur skoði
þinghúsbygginguna.
Lögin gegn starfsemi I.R.A.
voru samþykt í dag.
Helgi Þ. Steinberg, Sölvhólsveg
7, verður 56 ára í dag.
í London er talsvert um það
rætt, hvort Bretar muiii grípa
til svipaðra ráðstafana og
Bandaríkjamenn til verndar
rjettindum sínum og hagsmun-
um í Kína. Athygli er leidd að
því, að Bretland hafi einnig
gert viðskiptasamninga við
Japan.
En þótt breska stj órnin sj e frá
hverf því, að gera nokkuð, sem
spilt gæti samkomulagsumleit-
ununum í Tokio, hafa þær skoð
anir komið fram í London, að
til svipaðra ráðstafana myndi
verða gripið, ef nauðsynlegt
reyndist.
FÖGNUÐUR KlNVERJA.
Samkomulagsumleitunum um
Tientsindeiluna var haldið á-
fram í dag í Tokio, og er svo
sagt, að hinir japönsku fulltrú-
ar hafi mælst til þess, að bresk
yfirvöld ljetu af hendi við Jap-
ana silfurbirgðir þær, sem Kín-
verjar eiga á forrjettindasvæði
Breta í Tientsin.
Uppsögn viðskiftasamnings-
ins hefir vakið mikinn fögnuð
meðal Kínverja í Chungking,
og er þar litið svo á, að með
uppsögninni hafi Bandaríkja-
stjórn veitt Chungkingstjórninni
kínversku siðferðislegan stuðn-
ing og hvatningu.
UÓSMYNDATAKA
I MOSKVA
London í gær F.Ú.
tofnandi og aðalritari
breska hermannasam-
bandsins í nýlendunum, Sir
Ivon Frehch, var handtekinn í
Moskva í gær ásamt konu
sinni. Hann var sakaður um að
hafa tekið ljósmyndir í óleyfi.
Þau hjónin hafa nú verið lát-
in laus.