Morgunblaðið - 29.07.1939, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 29. júlí 1939.
3
Astandið í Austur-Asíu
Eins og Vesturveldin eiga í erfiðleikum með samninga við Rússa,
eins gengur einræðisríkjunum illa að fá Japani til að gera við sig
hernaðarbandalag. En Japan hefir nóg að hugsa um þessar mundir
í Kína, um leið og andúðin gegn BretUm er mögnuð heima í Japan.
Hjer birtist kort, sem sýnir aðstöðuna í Kína eins og hún er nú.
Svörtu reitirnir sýna landflæmi það, sem Japanar hafa þegar lagt
undir sig og í þeim landshlutum, sem merktir eru með skásrikum
eiga japanskar hersveitir í hardögum og þar halda Kínverjar uppi
smáskærubardögum. í bæjunum, sem merktir eru með því að undir-
strika nöfn þeirra, liafa úflendingar sjerrjettindi og eins og sjest á
kórtinu hafa Japanir þegar margar af þessum borgum á sínu valdi.
Loks eru sýnd herskip úti fyrir ströndinni, sem sýna hafnbann Japana.
Island er ómissandi
fyrir Norðurlönd
---- segir Kaper borgarstjóri
Landsýn íslands í góðu veðri verður öllum ógleym
anleg er hana sjá í fyrsta sinn, sagði Kaper
borgarstjóri er jeg hitti hann að máli í
„Stavangerfjord“ áður en hann fór.
Við höfðum sjeð Shetland og Færeyjar í þoku. En er við að kvöld-
lagi nálguðumst Vestmannaeyjar, risu þær úr hafi með kvöldsól að
baki. Farþegarnir störðu á þá undrasjón, og Eyjafjallajökulskalla
uppljómaðan í aftanskini.
Fyrir sjónum vorum urðu
hamraveggir Vestmannaeyja
sem táknmynd af þeirri hörku
og karlmensku, sem til þess
þarf að ryðja sjer hjer braut og
skapa sjer lífsskilyrði norður í
hafi.
En er við komum til Reykja-
víkur, fengum við fyrst nánari
kynni af hinni litauðgu, ís-
lensku fjallanáttúru, og hinu
merkilega landslagi, sem víða
er alveg án nokkurrar fegrunar
af jurtagróðri. Það vekur undr-
un og aðdáun aðkomufólks, að
hjer norður frá skuli vera svo
miklir og skærir litir í náttúr-
unni og svo margbreytilegir.
Seinna fengum við tækifæri
til þess að kynnast landinu bet-
ur, er við fórum austur í sveit-
ir, og gátum virt fyrir okkur
hið mikilfenglega landslag,
bæði hraunmyndanirnar, hinar
víðáttumiklu flatneskjur og
fljótin, sem eru allmjög stór-
fenglegri, en árnar okkar í Dan-
mörku.
Fyrir okkur er alt þetta mikil
viðbrigði, okkur, sem erum vön
því að ganga frá ökrum inn í
skuggasæla lundi og garða.
Jafnvel fyrir þá, sem alt frá
æskudögum, hafa kynst íslensk-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Hvar kom
Leifur hepni
að landi í
Ameríku?
Rannsókn þýskra
vísindamanna
hjer á landi
Bílar á landinu
orðnir yíir 2 þús.
35 ár frá fyrsta bílnum
Isumar eru liðin rjett 35 ár frá því að fyrsti bíll-
inn kom hingað til lands, Thomsens-bíllinn. Síð-
an hefir bílunum fjölgað um rúmlega 58 árlega
ef tekið er meðaltal.
Samkvæmt skýrslu vegamálaskrifstofunnar (birtri í síðustu
Hagtíðindum), komst tala bifreiða á landinu í fyrsta skifti yfir 2000
1. júlí 1938 — var þá 2009.
¥ þýska blaðinu ,,DPZ“ er ný-
lega sagt frá því, að von sje
á til íslands tveimur stjörnu-
fræðingum, þeim próf. dr. R.
Miiller Potsdam og dr. O. Sig-
fried, Bremen. Koma þeir hing-
að á vegum Alfred Rosenbergs
til þess að kynna sjer áttaskipt-
ingu og mið Islendinga til
forna.
Vakir fyrir þeim með þessu
að fá skorið úr, hvort Leifur
hepni hafi lent á Floridaskag-
anum er hann fann Vínland,
eða á Labradorskaganum.
I Eiríks sögu rauða er á ein-
um stað greint frá stöðu skips-
ins eftir þeirri tíma afstöðumæl
ingum og er það von vísinda-
mannanna er þeir hafa kynt
sjer áttaskiftingu íslendinga á
þeim tíma, að fá skorið úr þessu
mjeð kortmælingum o. s. frv.
Gert er ráð fyrir, að vísinda-
mennirnir komi fyrst hingað til
Reykjavíkur, síðan til Þingvalla,
vestur í Dalaöýslu og loks til
Flateyjar á Skjálfanda.
Engin síld*
.4 IÍ1ÍII8 KÍ*
veiði í gær
Sama og ©ngin síld barst á
land í Verstöðvunum
Norðanlands í ,gær, enda var
veður ekki hagstætt -á miðun-
tun, austan strekkingur og þoka.
Als var j gær búið að salta
678 tunnur síldar á öllu land-
inu á móti 36.200 tunnum á
sama tíma í fyrra.
E.s. Katla hlóð í gær full-i
fermi af síldarmjöli frá ríkis-
verksm,iðjunum bæði frá Siglu-
firði og Raufarhöfn.
Vjelbðtur strandar
f Hólmasundi
Vjelbáturinn „Ársæll“, hjeð-
an úr Reykjavík strand-
aði í gærkveldi á Hólmasundi,
er hann var á siglingu inn.
Stóð þáturinn svo hátt, að
hægt var að ganga þurrum fót-
um úr honum um fjöru.
Veður var stilt í gærkvöldi og
skipverjum; engin hætta búin í
bátnum. Ætluðu þeir að bíða
flóðs í nótt og sjá hvort bátur-
inn næðist ekki út á flóðinu.
Margir bátar voru á sveimi
kringum strandstaðinn.
Mrs. M. J. Corbelt Ashby, forseti
alþjóða kvenrjettindasambandsins
íslenskar konur
i alþjóBaþingi
i Kitöfn
Með Gullfossi frá útlöndum
síðast komu 7 konur úr
Kvenrjettindafjelagi íslands, er
sátu 13. þing alþjóða kvenrjett-
indafjelagsins í Kaupmannahöfn
da,gana 8.—15. júlí.
Morgunblaðið hefir átt tal við
eina- kenuna, frú Maríu Knudsen,
og sagðist henni svo frá mótinu:
Á þingi þessu voru um 200 kon-
ur, fulltrúar frá kvenrjettinda-
fjelögum ýmsra lýðræðislanda, þar
á meðal Egyptalandi, Indlandi,
Palestínu og Ástralíu.
Voru rædcl þar öll helstu vanda-
mál þjóðanna, auk ýmsra kven-
rjettindamála. Meðal annars var
rætt um hlutverk konunnar í þjóð
fjelaginu nú á tímum, áhrif kon-
unnar í opinberu lífi, mæðra- og
barnavernd, nnga fólkið og fram-
tíðina, siðferðislegar jafnrjettis-
kröfur til kvenna og karla, sam-
ræmi í vinnuskilyrðum kvenna og
karla o. fl. o. fl.
Fulltrúarnir islenskn á þinginu
voru: Aðalbjörg Sigurðardóttir,
varaform. K. F. í., María Knud-
;sen, Jónína Jónatansdóttir, Ingi-
björg Benediktsdóttir, Þóra Vig-
fúsdóttir, Katrín Pálsdóttir og
Guðnin Ryden.
Voru konnrnar gestir Kvenrjett
indafjelagsins danska á þinginu
og fengu jafnframt nokkurn styrk
úr ríkissjóði til fararinnar.
Móttökur þær, sem við fengum
sem íslendingar, voru prýðilegar,
FRAMH. Á SJÖUNDU Sfi)U.
En gæta verður þess, að ekki
er allskostar rjett \að miða upp-
haf bílaaldarinnar hjer á landi
við komu Thomsensbílsins. Þessi
bíll var af gamalli gerð og var
brátt sendur utan aftur og
næstu níu ár kom hingað enginn
bíll. Það var ekki fyr en Svein-
björn Oddsson og Jón Sigmunds
son komu með Fordbílinn sinn
árið 1913 (eða fyrir 26 árum)
að bíllinn ruddi sjer hjer raun-
verulega til rúms.
Með komu þessa Fordbíls —
og 5 bílar fylgdu eftir næstu
ár — var fyrst hafist hana um
að setja hjer bifreiðalög og í
júlí 1914, eða fyrir rjettum ald-
arfjórðung, voru fyrstu bifreiða
lög íslands samþykt á Alþingi.
Fjölgun bifreiða hjer hefir
verið mjög misjöfn frá ári til
árs. Frá því 1929 til 1930 fjölgi
aði þeim t. d. um nær 400. En
á árunum 1931—1933 fækkaði
þeim úr 1577 í 1569. Frá 1933
hefir aukningin verið nokkuð-
jöfn, rúmlega 100 árlega og á
árunum 1937—1938 fjölgaði
þeim um 102 (eða 5%). Þetta
síðasta ár, sem skýrslur eru til
yfir, fjölgaði fólksbifreiðum um
57 og vörubifreiðum um 45.,
Fólksbifreiðar í landinu eru
nú samtals 933, en vörubifreið-
ar 1076. t
Flestir bílarnir eru 1 Rvík,
eða 1108. í öðrum sýslum, eða
kaupstöðum fara bílarnir ekki
yfir 100 nema á Akureyri (146)
og í Gullbringu og Kjósarsýslu
(103).
Mest er hjer um Fordbíla
(21.5% af fólksbifreiðum, 40 %\
af vörubílum) og Chevroletbíla
(14.9% og 34.2%).
Af fólksbifreiðum voru árið
1938, 120 alnienningsbifreiðar,
með fleirum en sex sætum.
Síðustu 10 járin frá 1929—
1938 hefir tala bifreiðanna nær
tvöfaldast (úr 1065 í 2009).
Hefir bílum því fjölgað jafn-
mikið á 10 árum og á fyrstu
25 árunum.
KAPPLEIKIR I. FL.
andsmót I. fl. hjelt áfram í
gær og keptu fyrst ísfirð-
ingarnir og Víkingur. Unnu ís-
firðíngar með 5 mörkum gegn
2. Þeir eru auðsjáanlega farnir
að kunna betur við völlinn og
stóðu sig verulega vel. Reykvík-
ingár mega gæta sín ef þeir ætla
ekki að láta Isfirðingana fara
með bikarinn vestur.
í seinni leiknum keptu Vahir og
K. R. og fóru leikar svo að Valur
vann með 5 mörkum gegn 2.