Alþýðublaðið - 17.06.1958, Blaðsíða 9
1 Alþýðuhúsinu
Þriðjudaginn 17, júní 1958
Opnar daglega kl. 8,30 árdegis.
Mmennar veitingar allan daginn.
Góð þjónusta.
Sanngjarnt verð.
Reynið viðskiptin.
Heitur matur framreiddur
á hádegi frá
að kvöldi frá
kl. 6 -• 8 síðdegis
Ingólfs Café
S. L. sunnudag var vígður
og tekinn í notkun hér í bæn-
um, nýr knattspyrnuvöllur. —
Völlur þessi er staðsettur við
félagsheimili Víkings í Bústaða
!og smáíbúðahverfinu, en þar
hefur Víkingur komið sér fyr-
ir til frambúðar, svo sem kunn-
ugt er. og reist þar mjög mynd
arlegt félagsheimili, en fram-
kvæmdir við það hófust í febrú
ar 1954. Jafnframt því sem
unnið var að félagsheimilismál
inu, var og haf.zt handa um
vailargerð. Hefur að þessum
framkvæmdum verið unnið. af
miklum dugnaði og bjartsýni en
þegar bvrjað var, voru aðeins
til um 80 þúsundir króna í
reiðu fé. I dag eru þær fram-
kvæmdir, sem þarna hafa ver-
ið gerðar, í húsakosti og velli
metnar á nær 2 milljónir kr.
Styrks hafa þessar framkvæma
ir skiljanlega notið af hálfu op-
inberra aðila, bæði Reykjavík-
urbæjar og ríkisins og frá IBR.
En nr.kiu hefur féiagið sjálft
safnað. með vmsum hætti. svo
sem- hlutaveltum, happdrættí,
heimsóknum erlendra knatt-
spyrnúflokka, samskotafé með-
al fé'lagsmanna og meðal íbúa
hverfisins, þar sem fjölskyldur
greiða 10 kr. á mánuði í félags
heimilisjóðinn mánaðarlega, —
hið svonefnda ,,10 kr. plan“. —
Fyrsta áriði ^em þetta. var
reynt greiddu um 200 fjöiskyld
ur og á þessu ári mun þær vera
um 300. Með öliu þessu starfi,
félagsheimilinu, vellinum sem
vígður var á sunnuaaginn og
Þelákur Þórðarson
öðrurn þeim völlum, sem síðar
koma þarna, hefur verið lagð-
ur öruggur og traustur
grundvöllur að framtíð Vík-
ings, sem á bessu ári átti 50
ára afmæli og sem minnst yar
af miklum royndarskap í vor,
og áður hefur verið rækilega
urn getið.
Vígsla vallarins fór fram með
hátíðlegum hætti og að við-
stöddu allmörgu fólki, einkum
úr hverfinu, bæði fullorðnum
og börnum og unglingum, sem
bó voru í meirihluta. svo og
nokkrum forustumönuum í
bróttahreyfingarinnar. Formað
ur félagsins, Þorlákur Þórðar-
son flutti víg'sluræðuna, bar
sem hann lýsti undirbúningi öll
um, gat um kostnað við fram-
kvæmdirnar og þakkaði marg-
þætta aðstoð ýmissa aSiia, auk
félagsmanna sjálfra, sem mjög
mikið hafa lagt af mörkum m.
a. með sjálfboðavinnu eða bein
um fjárframlögum. -— Minntist
svo að lokum á margbætt fram
tíðarverkefni sem enn biðu úr-
lausnar.
Tvieir kappleikir yngri flokk
anna fór svo fram og keppti 3.
og 4. flokkur Víkings við jafn-
aldra sína úr Val og KR. Fór
fyrst fram leikur Víkings og
Vals í 3. flokki. En áður en
leikurinn hófst, skipuðu bæði
liðin sér á miðjan völlinn, en
tveir litlir Víkingar strengdu
borða yfir völlinn bveran, sem
formaður klippti síðan á. um
leið og hann tilkynnti völlinn
tekinn í notkun, með þeim ósk
um að hann mætti verða Vík-
ing og knattspyrnuíþróttinni í
heild til aukinnar feflingar og
gengis. Að því búnu hófst leik-
urinn, sem Einar Hjartarson,
formaður knattspynudómara-
félags Reykjavíkur dæmdi. •—
Leikar fóru svo, að Víkingur
beið ós'igur í þessurn fyrsta
leik á hinum nýja velli sín-
um. Valur sigraði með 3:0. —
Þegar eftir að þessum leik lauk
hófst leikurinn við KR og sigr-
uðu KR-ingar með 1 marki
Framhald á 2. siSu.
A-SVF.IT Reykjavíkur í 4x200 m. skriðsundi karla á Sundmcist
aramótinu á Akureyri.
Mdtið í Vsrsjá:
Valbjörn setíi Islandsmet, 4,42 m.
Á frjálsíþróttamóti því, sem
lialdið var í Varsjá s. 1. laug-
ardag, sigraði Valbjörn Þor-
láksson í stangarstökki og setti
jafnframt nýtt Islandsmet. —
stökk 4,43 m.
Metið er þrem sentimetrum
hærra en gamla metið, sem Val
björn átti sjálfur. — Það setti
hann á Stockholms Stadion 19.
júlí í fyrra. Meðal keppenda í
Varsjármótinu að þessu sinni
voru allir beztu stangarstökkv
arar Póllands o. fl. — Með Val-
birni er í Póllandsförinni Örn
Eiðsson. Eru þeir væntanlegir
heim í kvöld.