Morgunblaðið - 13.09.1939, Síða 2

Morgunblaðið - 13.09.1939, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. sept. 1939. Afstaða Itala og Rússa enn vafasöin o*EO qm u: Jy Vonast eftir sjerfrið við Frakka eftir ósigur Pólverja Frá frjettaritara vorum. Iíhöfn í gær. EFTIR AÐ ófriður hefir geysað í álfunni á aðra viku eru menn enn í fullkömn- um vafa um það, hvaða afstöðu ítalir ög Rússar taka í þessari styrjöld. Þessar tvær miklu gátur í heimspólitíkinni eru óráðnar. Breska blaðið „Daily Telegraph^ helduh því fram, að Rússar ætli sjer að sitja hjá, þa'ngað til þeir geti fullkomlega áttað sig á því, hvor aðil- ' inh muni bera sigur úr býtum. Eftir því eru þeir að bíða. Ýmsir eru aftur á móti þeirrar skoðunar, að Mussolini geti ekki öllu lengur verið aðgerðár- laus. Hann muni þá og þegar sýna það svart á hvítu, hvar hann standi. En aftur eru aðrir sem halda því fram, að Mússolini muni enn bíða við um hríð. Því hann sje einn af þeim, sem hafi ekki gefið upp vonina um það, að Frakkar fáist til að semja sjerfrið þegar Þjóðverjar hafa ráðið niðurlögum Pól- verja. Jafnframt er á það bent, að afstaða Itala í -styrjöld muni verða erfið. Einkum sje það aug- ljóst, að ítalir muni eiga í vök að, verjast í ófriði, síðan Tyrkir og Arabar hafa heitið Bretum lið- sinnis í ófriðnum. Þvíi þá hafi ítalir þessar þjóðir áð eiga við ásamt Bretum og Frökkum í Mið- jarðarhafi. EFTIRTEKTAVERÐAR HEIMSÓKNIR. Sendiherra Frakka í Róm er nú floginn til Parísar. En sagt er að sendiherra ítala í Berlín hafi gengið á fund Hitlers. Hafa Þjóðverjar tekið heimsóknir þessar sem ' tákn þess, að vaxandi vonir sjeu um það, að Ital- ir hafi ekki alveg horfið frá því að reyna að fá Frakka til sjerfriðar, enda þótt Bretar hafi ger- samlega vísað því á bug, er Göring í ræðu sinni á laugardaginn leitaði hófanna um það, hvort ekki mætti vænta friðarboða frá Bretum. Þá vekur það og athygli, að Neville Chamber- Táin, forsætisráðherra Breta, er kominn til Frakklands, til að ræða við Daladier. Og hertoginn af Windsor og hans frú eru kom- in til London. En hvort sú heimsókn kemur ó- friðarmálunum við, skal ósagt látið. ~%ÍÍ'Ó Þrændir farga refum Oslo í gær. FÚ. Það er búist við því, að ref- um verði fargað í stórum stíl á refabúum í Þrændalögum í haust. Refaeigendur telja horfurnar mjög alvarlegar fyr- ir refaræktina og að það muni^ verða miklum erfiðleikum bund-j ið að selja refaskinn í nánustuj framtíð. Líklegt er, að skinna-; uppboðum erlendis verði aflýst. NÝ GERÐ SPRENGI- DUFLA. Þýsku dufim í Eystrasjalti eru af alveg nýrri gerð. Þau springa sjálfkrafa ef þau losna og komast þannig ekki út fyrir hið afmarkaða duflasvæði. — Þýskum ióðsum við duflasvæð- ið hefir verið fjölgað úr 8 upp í 16. Þýska flotamálaráðuneyt- ið hefir skipað svo fyrir að farþegaskip skuli aldrei þurfa að tefjast við duflasvæðið. á vígstöðvunum Frá frjettaritara vw'um. Khöfn í gær. Þýsk blöð ræða mjög um fei’ðir Hitlers til vígstöðv- anná. Segja þau, að engipn þýskur þjóðhofðingi, að Friðrik mikla einum undan- skildum hafi sem Hitler um- gengist hermerinina á -víg- vellinum. Hann hefir, segja þau, tekið sjer hinn mikla herkonung til fyrirmyndar, og er sjálfur þar, sem at- burðirnir gerast. Á mánudaginn var hann •ekki nema XVt kílómetra frá fremstu víglínunni. Þar hjelt hann ræðu í vjelbyssuhvin. Gagnárásir Þjóðverja árangurslausar á vesturvígstöðvunum E Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. NGAR stórfrjettir eru frá vesturvígstöðvun- um síðasta sólarhringinn. En samt má ekki skilja það svo, segir 1 tilkynningu frá París, að þar hafi ekkert verið aðhafst. Þar er barist látlaust. Og franski herinn þokast hægt lengra og lengra inn yfir hið þýska landssvæði, enda þótt Frakkar hafi ekki sett aðalstyrk hersins í þessa viðureign. Breskt herlið er nú komið yfir til Frakklands, þó bresku hersveitirnar sjeu ekki ennþá lomnar á vígstöðvarnar. Er þeim er þegar ætlað þar ákveðin hlutverk að vinna við hlið og í sam- vinnu með hinum frönsku fjelögum sínum. Svo segir'í herstjórnartilkynningu frá París, að allar gagn- árásir Þjóðvérjá í Saarhjeraði hafi orðið árangurslaúsa'r. r r-úv Mannfall Þjóðverja í Póliandi 12-15 þús. Þeir telja sig ná Varsjá innan skamms ... HoiKlóa, í gaer. Fl'. Frá Póllandi berast mjög ósamhljóða fregnir og er því margt óljóst sem stendur- um eitt verður ekki deilt. Varsjá er enn í höndum Pólverja. Og svo harðvítug hefir vörn Pólverja verið þar síðasta sólarhrmg fyrir vestan borgina, að þeir hafa tekið nokkra skriðdreka af þýska hernum.- Beint vestur af ■ Varsjá ‘eiga pólskar hersveitir frá Pomórgie í mfkilli orustu við þýákar hersveitir, Frjettaritari með þýsku hersveitununum segif, að þe'ssi orusta hal'i, staðiö yfir í tvo sólarhringa og hafi, færst í aukana í morgun. Þjóðverjar, segir hann, ætla að gert verði út um úrslit Varsjá á þessum vígstöðvum. ' -sr Fyrir norðan og norðaustan Varsjá telja Þjóðverjar Sjer sigra, en það er ekki viðurkent í frjettum Pólverja. Þá segjast þeir stöðugt sækja fram suður á bóginn frá Austur-Prússlandi. Þessar hersveitir, segja Þjóð- verjar, eru komnar yfir .járn- braut, sem þarna er, og eftir því ætti þeir að hafa sótt fram j á 5 mílna svæði. Ef þetta væri| rjett hefði Þjóðverjar einnig. sigrað eða komist á snið við! pólsku hersveirnar við Narew-:| fljótið og Bugfljótið. Pólverjar segja hinsvegar, að Þjóðverjum hafi, ekkert orðið ágengt á þess-1 um slóðum, og benda á, að þeir hafi orðið fyrir miklu mann- falli og beiti nú mjög skrið- drekum í viðureigninni við Pól- verja. Á suðurvígstöðvunum segjast Þjóðverjar vera komnir yfir Sanfljótið, en einnig þessu er neitað af Pólverjum. Frjéttáritari fyrir aftan póhku víglínuna skýrir frá því, áð giskáð sje á, að Þjóðverjar h'áfi mist 12—15000 menn á vígvöllunum í Póllandi,, flesta seinustu dagana. Bretar greiða skaða- bætur ef sprengjurnar voru breskar Kalundborg í gær. FÚ. Danski sendiherrann í Lon- don hefir lagt kæru fyrir bresku stjórnina vegna flug- árásarinnar á Esbjerg, og einn- ig vegna þess, að breskir flug- menn hafa tvisvar flogið yfir Danmörku. Breska stjórnin tilkynti að hún hefði gefið flugmönnum sínum strangar fyrirskipanir um að fljúga ekki yfir hlutlaus lönd, einnig kvaðst hún vera fús , til að greiða skaðabætur fyrir slys þau og skemdir, sem sprengjurnar hefðu valdið í Esbjerg, svo framarlega sem hún fengi áreiðanlegar sann- anir fyrir því, að sprengjurnar hefðu verið enskar. FLÓTTAMENN London í gær. ,FÚ. Það er staðfest í París, að þýskur yfirforingi og 20 menn hafi gerst liðhlaupar úr þýska bernum á Hunangsvæðinu á yesturvígstöðvunum. Yfirforing- inri á að hafa sagt, að ef lÖgð væri flotbrú yfir Rín, myndú þúsundir Þjóðverja koma yfir ána og ganga Frökkum á hönd. Fylgi Breta ‘Smuts herforingi, forsætis- og hermálaráðherra Sttðúr- Afrífcú hefir ■s.ent orðsendingu til Suður- afríkönsku þjóðarinnar. 1 orð^ sendingunni segir hann, að Þjóð þingið hafi tekið þá ákvörðun að segja Þýskalandi stríð á hendur, af því að Þýskaland hefði tekið valdbeitingarstefnu. Smuts segir í ávarpinu, að það sje alveg ljóst mál, að nú sje rjetti tíminn til þess að verja Suður-Afríku, þegar aðrir væru að gera tilraun til þess að koma í veg fyrir, að Þjóðverjar gæti haldið áfram að beita valdi, einmitt nú, endurtekur Smuts, er rjetti tíminn til þess að vernda Suður-Afríku, en ekki þegar hún verður tekin út úr eins og Pólland nú. Enginn, segir Smuts, sem iætur sjer ant um framtíð Suður-Afríku, fylg- ir hlutleysisstefnu — stefnu hugleysingjanna. Besti vinur okkar, sagði, hann, er hið breska ríkjasamband, og það væri blettur á Suður- Afríku, ef hún skærist úr leik,: þegar allar hinar bresku sam- bandsþjóðirnar fylkti sjer undir merki Bretlands. GEGN OFBELDINU London í gær. FÚ. Indverska ríkisráðið hefir sent orðsendingu til pólsku stjórnarinnar og látið í ljós mikla aðdáun á hugrekki og dirfsku pólsku þjóðarinnar í baráttunni gegn ofbeldinu. — Ráðið kveðst vera sannfært um FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.