Morgunblaðið - 30.12.1939, Síða 3
Laugardagur 30. des. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
1000 fflugferðir
TF-Örn
Hefir flogið 160
þús
1T 't'V'l /Eius og 4 sinnum\
• ivlIJL ykring um hnöttinnj
Frásögn Arnar Ó
Johnson, ílugmanns
ÞEGAR FLUGVJELIN TF-ÖRN lenti á Siglu-
firði í fyrradag hafði hún lokið þúsundasta
flugi sínu hjer á landi. Eru þá með talin öll
þau skifti, sem flugvjelin hefir hafið sig til flugs frá því
byrjað var að fljúga henni 2. maí 1938.
Á þessu 1Y2 ári sem, flugvjelin hefir verið í notkun, hefir
hún verið 972 klst. í lofti og flogið saxntals ca. 160 þúsund kíló-
metra, en það samsvarar því, að flogið hafi verið 4 sinnum kring-
um hnöttinn við miðjarðarlínu.
Hver flugferð hefir að jafnaði tekið tæpa klukkustund.
Með flugvjelinni T.F. örn
hafa verið fluttir um 1750 far-
,þegar, og til viðbótar 32 sjúk-
lingar. 17 þessara sjúklinga
hafa verið svo þungt haldnir, að
þurft hefir að flytja þá í sjúkra
körfu.
Þessar upplýsingar eru sam-
kvæmt samtali við örn ó. John-
son, flugmann. Hann sagði enn-
fremur:
— Flugdagar eru taldir 289.
Flugvjelin hefir flutt ca. 3000
kg. af pósti. Milli Reykjavíkur,
Siglufjarðar og Akureyrar hafa
verið flognar 160 ferðir og 14
ferðir til Vestfjarða.
50 lendingarstaðir.
Lent hefir verið á 50 stöðum
við strendur landsins, á 11 stöðu
vötnum og 2 fljótum. Fljótin
eru Hvítá í Borgarfirði og Lag-
arfljót. Meðal þeirra stöðuvatna
sem lent hefir verið á, eru Þing-
vallavatn, Miklavatn í Skaga-
firði og Miklavatn í Fljótum,
Haukadalsvatn í Dölum, Vatns-
dalsvatn á Barðaströnd, Svína-
vatn og Laxárvatn í Húnavatns-
sýslu, Svínavatn á Rauðamels-
heiði og Hraunhafnarvatn á
Melrakkasljettu.
Flestar hafa flugferðirnar ver
ið frá Akureyri, eða 308, en
þess ber að gæta, að þar hafði
flugvjelin aðal bækistöð sína
við síldarleitina. Frá Reykjavík
hafa flugferðir verið 244 og
194 ferðir frá Siglufirði.
Flugvjelin er stöðugt á ferð-
inni þegar veður leyfir og mikil
eftirspurn eftir farþegarúmi
1 desembermánuði, sem nú er
að líða, hefir verið flogið sjö
sinnum milli Reykjavíkur og
Norðurlands fram og til baka.
Einnig hefir verið flogið til ísa-
fjarðar, og Patreksfjarðar auk
margra styttri ferða.
Flugvjelin hefir reynst hið
besta. Vjelin er sem kunnugt
er eign Flugfjelags Akureyr-
ar h.f.
Maður kastar
sjer i höfnina
Um II leytiS í gœrmorgun
vildi það til, að maður
nokkur kastaði sjer út af Ing-
ólfsgarði hjer í höfninni, aug-
sýnilega með það fyrir augum
að stytta sjer aldur.
Bátur var þarna nærri og
tókst að ná í manninn. Hann var
þá meðvitundarlaus. Lögreglan
gerði lífgunartilraunir á mann-
inum og tókst að lífga hann við.
Maðurinn liggur nú á sjúkra-
húsi og mun ná sjer eftir þetta
volk.
Maður þessi hefir verið sjúk-
lingur um langan tíma og leg-
ið á sjúkrahúsi.
Síöasti dagur
matvælaúthlutuninnar
erídag
Um 20 þúsund skömtunar-
seðlar fyrir janúarmán-
uð hafa nú verið sóttir. 12 þús-
und voru sóttir í gær. I dag er
síðasti úthlutunardagurinn og
ei því fólk, sem enn ekki hef-
ir sótt seðla sína alvarlega á-
mint að gera það í dag.
Um 17 þúsund seðlar eru ó-
sóttir og má því búast við mikl-
um f jölda á skrifstofu matvæla-
úthlutunarinnar í dag. Reynsl-
an hefir sýnt, að mikill meiri
hluti fólks kemur til að sækja
seðla sína síðari hluta dags. Er
fólki, sem getur því við komið,
bent á að koma heldur fyrri
hluta dags til þess að komast
hjá bið og þrengslum.
Munið að í dag er síðasti út-
hlutunardagurinn fyrir janúar-
mánuð. Sækið skömtunarseðl-
ana tímanlega.
Gestapo auglýsir
eftir Thiessen
(fyrv. vini Hitlere)
ýska ríkislögreglan (,Gestápo‘)
hefir auglýst eftir Fritz
Thiessen, iðjuhöldinnm þýska, sem
hjálpaði Hitler með fjárfrainlög-
um til að komast til valda. Thies-
sen er sakaður um skattsvik og
um að hafa gerst brotlegur við
gjaldeyrislög Þjóðverja.
Fritz Thiessen flúði til Sviss í
ágúst síðastliðnum, þar sem hann
var ósammála utanrikismálapólitík
Hitlers. Hann er nýlega farinn frá
Sviss til Portiigal.
Atkvæðagreiðsla
um fjárlögin
í dag
IFYRRADAG hófst 3. umræða fjárlaganna og var
henni haldið áfram þangað til kl. 6 í gærmorg-
un, en var þá ekki lokið. Hófst umræðan aftur
kl. 5 síðdegis í gær og var gert ráð fyrir að henni yrði
lokið einhverntíma nætur.
Fjöldi breytingartillagna liggur fyrir, bæði frá fjárveitinganefnd
og einstökum þingmönnum. Gert, er ráð fyrir að atkvæðagreiðsla fari
fram í dag og að fjárlagafrv. verði þá afgreitt sem lög frá Alþingi.
í gær v-oru fundir í báðum deildum. I efri deild voru 5 mál á
dagskrá en 13 mál í neðri deild.
Fern lög Voru afgreidd:
1. Lög um tollskrá.
2. Lög u(m dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimtu o. fl. í
Reykjavík.
3. Lög utn breytingu á löguxn um útvarpsrekstur ríkisins.
4. Lög um stríðstryggingarfjelag íslenskra skipshafna.
Þessi mynd er af tveim finskum bændum, sem flytja her-
mönnunum vistir á sleðum sínum.
Bændur trey sta ekki
loðnum loforðum
Burt með 17. grein
jarðræktarlaganna í
ITímanum 16. f. m. er skýrt frá, að fjórir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins í neðri deild flytji
frv. um afnám 17. gr. Jarðræktarlaganna.
Á grein þessari er að sjá, að hjer hafi verið um ilt verk að
ræða. Þetta m,ál sje í höndum Búnaðarfjelags íslands, o. s. frv.,
og að fjelagið ætti að fá að vera „í friði að leita að lausn þessa
viðkvæma deilumáls“.
Einnar mfnútu þögn
í Sviþjóð á miðnætti
aðra nótt
Qustaf Adolf krónprins Svía
hefir gefið út yfirlýs-
ingu, sem er í aðaldráttum á
þessa leið:
Jeg hefi verið spurður að því,
á hvern hátt jeg tel rjett að
nýjai árinu skuli fagnað. Jeg
þarf ekki að taka fram, af
hverju þessi spurning er fram
komin, hana munu allir vita.
Jeg lít'svo á, að gleðin sje
eðlileg öllum æskulýð, ef henni
er haldið innan takmarka vel-
sæmis og hófsemi. Jeg myndi
því .leggja til að þegar klukkan
slær 12, verði látin ríkja alger
þögn í eina mínútu og menn
dvelji þá með hugann við þá at-
burði, sém eíu að gerast um-
hverfis þá.
Á eftir legg jeg til að menn
gleðjist, en gæti þó hófs í sam-
ræmi við þá 'örlagaríku tíma,?
sem við lifum á.
Hverjum getur verið viðkvæmt
þó þetta mál væri fært í það sama
horf, sem það áður var í? — Eng-
um nema ef til vill höfundum þess,
— sósíalistunum.
Þeir menn, sem ljetu ginna sig
til að vera með. í að breyta Jarð-
ræktarlögunnm eins ög gert var
þegar umrædd 17. gr. varð til,
ættu Uú að vera búnir að sjá sig
um hönd, og taka fegins hendi í
árina með þeim, sem hafa vit og
vilja á að færa lög þessi í rjett
horf, og eðlilega hafa frá byrjun
haft skömm á því, að þeim var
svo stórmikið spilt, þegar þeim
var hreytt. Það væri drengilegra,
en að streitast við ár frá ári, að
vinna rnóti því að þetta illræmda
ákvæði sje felt úr gildi.
Að húnaðarfjelagsskapnum sje
trúandi til að leysa málið á við-
unandi hátt, er ósennilegt, meðal
annars og einkum vegna þess, að
núverandi aðalráðamenn hans (for-
maður Búnaðarfjelags íslands og
búnaðarmálastjóri) hafa í sámr
bandi við þetta nmrædda frv. báð-
ir látið sig í það, að reyna af veik-
um rnætti að vinna á móti fram-
FRAMH. Á SJÖUXDU ifBV.