Morgunblaðið - 30.12.1939, Síða 5

Morgunblaðið - 30.12.1939, Síða 5
s ILaugardagur 30. des. 1939. JRorcjiíttMaMd Ötgef.: H.f. Árvakar, Reykjavlk. i Rltstjórar: Jðn Kjartansson, Valtýr StefánsBon (ábyrcBaras.). Auglýsingar: Árni Óla. Rltstjórn, auglýsingar og afgrelBsla: Austurstrœti 8. — Sfml 1680. Áskrlftargjalð: kr. 8,00 á mánuBI. 1 lausasölu: 15 aura elntaklB, 25 aura meB Lesbók. Viðskifta- samningar yrir 16 árum var gerður v.ið- -*■ skiftasamningur við Spán. Pá höfðu Spánverjar í mörg ár i^erið aðalkaupendur að fiski pkkar. í margar aldir hafa þeir verið einhverjir mestu fiskkaup- endur Evrópu. Þeir eru fiskætur miklar en lifa við fiskisnauð Jiöf. Þetta hefir komið okkur ís- lendingum að góðu haldi. En síðan alt fór í uppnám á Spáni og rústjr í borgarastyrj- öldinni, hafa Portúgalar orðið 'drýgri við að kaupa af okkur fiskinn. Þeir hlupu í skarðið. Nema 1938. Ef fiskafli hefði ekki verið hjer óvenjulega lítill hndanfarin ár, hefðu markaðs- töp okkar á Pyreneaskaganum orðið okkur geysilega þungbær. Pó tekist hafi að milgra fiski yíðsvegar um ný markaðslönd, þá er það víst, að undir eins og þorskafli verður hjer svjpaður ög hann var meðan Selvogs- bankaveiði var eins og hún á að sjer að vera, þá kemst ekki afl- inn í verð, nema þeir Spánverj- ar og Portúgalar taki sinn drjúga skerf. Bindindisvinir og ýmsir aðrir góðir menn vilja loka áfengisút- sölunum. Frumvarp hefir leg- ið fyrir Alþingi um það, að at- kvæðagreiðslur innan hjeraða skuli ráða því hvort útsölustað-> iv áfengis yrðu hafði opnir eða ekki. Nú er svo tilskilið í samn- ingum við Spánverja og Portú- gala, að leyfi til víninnflutnings hingað verði ekki ónýtt með því .að loka útsölustöðum. Nú getur verið að ýmsir kjós- endur vildu fórna Spánar- og Portúgalsmarkaði saltfisks fyr- ir það að fá útsölustöðunum lokað. En það kemur ekki aðeins einstökum kaupstöðum við, held ur öllum landsmönnum, hvort fisk er hægt að selja í Spáni og Portúgal. Með þeim samningum sem gerðir hafa verið við þessi ríki, nýtur fiskur okkar þar bestu tollkjara. M.issum við af þeim kjörum þá útilokast fisk- urinn frá markaði þar, verður ekki samkepnisfær. Ef taka á upp það mál, að loka áfengisútsölunum með at- lcvæðagreiðslu, þá þyrfti að byrja á byrjuninni, og spyrja menn hvort þeir vildu loka Spánar- og Portúgalsmarkaðin- um, ekki aðenis um eitt ár eða tvö, heldur um langa framtíð. Það kann að vera, að menn ^jeu svo bindindissamir í land- inu, að þeir vilji koma þessum viðskiftum fyrir kattamef. En rjettast væri að allir fengju a. m. k. að greiða atkvæði um það, því slíkt viðskiftaafsal lcemur allri þjóðinni við. Steinn K. Steindórsson gerir Athugasemdir við ritgerð meistara Hallgríms Mallgrímur meistari Hall- grímsson ritar í Alma- nak Þjóðvinafjelagsins (fyr- ir árið 1940) um Píus páfa XII. Þó ritgerð þessi sje ekki beinlínis skrifuð í á- sökunartón, finst mjer þó, að töluvert vanti af þeim sanngirniseinkennum, sem annars eru vön að prýða rit- smíðar þessa höfundar. Yirð- ist mjer því nokkur ástæða til að taka sumar staðhæf- ingar hans til athugunar. Hann segir: „Þó það virðist augljóst, að trúaráhugi kaþólskra manna hafi farið dvínandi upp á síðkastið í ýmsum löndum, ekki síst þar sem fasistastefnan hefir náð miklum álirifum, þá er þó hið andlega og siðferðislega vald páf- ans ennþá sterkt afl í heiminum“. Það er hæpið, hvort rjettmætt sje að tala um augljósa hnignun í trúaráhuga, þó valdhöfunum í einhverju landi eða löndum tak- ist um skeið að halda hinu ytra trúarlífi í viðjum. Þannig var trú- aráhugi manna síst dvínandi í hinu forna rómverska ríki á of- sóknartímabilum kristninnar, þó að hið ytra trúarlíf væri svo lam- að, að hinir kristnu söfnuðir yrðu að flýja af yfirborði jarðar, niður í grafhvelfingar (Katakombur) eða aðra leynda staði, til þess að fá næði til að tigna Drottinn sinn í sameiningu. Eða hvaða sanngirni leyfði þann dóm, að trúarbragða- ofsóknir Englendinga á hendur ír- um,"undanfarandi aldir, hafi staf- að af „augljóslega dvínandi trú- aráhuga“ írlendinga. (Yil jeg í því sambandi benda á ágætan og skemtilegan greinaflokk, „írski presturinn* ‘, eftir Knút Arn- grímsson, er birtist fyrir nokkru síðan í blaðinu ,,Vikan“). Það er með kirkjuna eins og með þjóðir og einstaklinga, að hún hefir ekki altaf gott af of einhliða og lang- varandi velgengni, en það ein- kennilega kemur í ljós, að á erf- iðleika og þrengingartímum vex safninu. af öðru hvoru liafa átt sjer stað. Um aldamótin 1400, þegar svarti dauði geysaði um álfuna, hófst grimmileg 'Gyðingaofsókn í Aust- urríki; taldi lýðurinn, að Gyð- ingar hefðu eitrað neysluvatnið víðsvegar um landið og hefði það orsakað pestina. Páfinn Bonifacius IX. tók þetta athæfi óstint upp, og hótaði vægðarlausri bannfær- ingu öllum þeim, sem sök ættu á hermdarverkum gagnvart Gyðing- um. I Póllandi, Ungverjalandi og víðar liafa kirkjunnar menn tal- að djarflega fyrir bættri aðbúð Gyðinga og jafnrjetti þeirra við aðra menn. Enda fer mat kirkj- unnar á mönnum ekki eftir því, hverjir þeir eru, lieldur hvernig þeir eru. Frá hennar sjónarmiði er það aukaatriði, hvort maðurinn er gulur, rauður, brúnn, svartur eða hvítur, eða hvaða kynflokki hann tilheyrir. Handhægt og nærtækt dæmi, í sambandi við Gyðingamálin í Þýskalandi að minsta kosti, er hin drengilega og ákveðna framkoma Faulliabers kardínála, er hann hjelt jólaföstuprjedikanir sínar í St. Michaelskirkjunni í Miinchen (dagana 3., 10., 17. og 24. des. 1933). Vítti kardínálinn eindreg- ið kynþáttadekrið, og andmælti því einarðlega, að Gyðingar væru látnir gjalda ætternis síns. Enda fjekk kardínálinn svar frá ein- hverjum, sem ekki hefir verið á sama máli, því nokkrum nóttum síðar var þremur skammbyssu- skotum skotið gegnum glugga á heimili kardínálans, án þess þó að slys hlytist af. Vegna þess hve mikla athygli prjedikanir þessar vöktu, voru þær nokkru síðar gefnar út í bók- arformi; „Judentum, Christentum, G«rmanentum“. Og er sú bók væntanlega til hjer á Landsbóka- er að minsta kosti ekki kunnugt um annað, en að alstaðar þar sem jafnaðarmenn hafa borið gæfu til að losa sig við „órólegu deildina“, sje sambúðin við kaþólsku kirkj- una góð, og víða um heim meira að segja ágætlega góð. í Belgíu, Sviss, Hollandi og fleiri löndum hafa þingflokkar kaþólskra og jafnaðarmanna haft nána og góða samvinnu og staðið að stjórnar- myndunum. í Englandi eru all- margir þingmenn jafnaðarmanna kaþólskrar trúar, og í Þýskalandi var um langt skeið hin besta sam- vinna milli jafnaðarmanna og kaþólska miðflokksins, á þingi. Jafnaðarmaðurinn Fr. Ebert, fyrsti forseti hins þýska lýðveld- is, var kaþólskrar trúar (og hafði J esúítaprest fyrir skrif taf öður sinn). Þessi dæmi ættu að nægja til þess að sýna, að kirkjan beitir ,sjer ekki gegn jafnaðarstefnunni. Enda er markviss mannrjettinda- þróun á lýðræðisgrundvelli alveg í samræmi við kenningu kirkj unnar. skyldur atvinnurekenda fyrir bættum kjörum verkamanna. í sambandi við afstöðu kirkjunnar mætti einnig benda á hinn stór- merka mann, Manning kardínála (1809—1892), sem ætíð var reiðu- búinn til að tala máli verka- mannsins, naut enda fádæma hylll þeirra án tillits til trúarskoðana. I vinnudeilu hafnarverkamanna í London 1889 kom Manning kar- dínáli mikið við sögu, og var hann talinn eiga mikinn þátt í þeim málalokum, • sem þar feng- ust. Verkalýðsleiðtogarnir Benja- jnín Tillett og John Burns vorn tíðir gestir á heimili kardínálans, góð vinátta var einnig milli Mann- ings og hins þekta blaðamanns ogr ándatrúarfrömuðar William Stead, var Stead þó 40 árum yngri en Manning. Virðist það benda til þess, að kardínálinn hafi, jafnvel í hárri elli, verið frjálslyndnr æskumaður. Þegar Manning kardínáli var jarðaður, var likfylgdin svo fjöl- menn, að slíks hafði vart þekst og magnast trúaráhugi meðlima hennar. I fasistalöndunum og þó einkum í Þýskalandi hefir nú á stag m;]]; Gyðinga og kaþólskra síðustu árum sambúðin milli ver- aldarvaldsins og kirkjuvaldsins verið allörðug, en slík fyrirbrigði eru ekki ný þar í landi. Jeg hefi góðar heimildir fyrir því, að kirkjusókn og trúaráhugi kaþ- ólskra manna er síst minni nú í Þýskalandi en undanfarin ár (áð- ur en nasistar komust til valda). Annars væri gaman að vita, hvaðan höf. kemuf þessi staðhæf- ingarvissa um „augljósau, dvín- andi trúaráhuga kaþólskra manna“. En sennilega er þar þó aðeins um ágiskun eina að ræða. Þá segir höf., að oftast liafi ver- ið fátt milli Gyðinga og kaþólsku kirkjunnar, en bendir þó rjetti- lega á, að Píus páfi XI. hafi mót- mælt Gyðingaofsóknum þeim, sem átt hafa sjer stað hin síðustu ár. En það er ekkert nýtt, að kirkj- unnar menn tali máli þeirra, sem ofsóttir eru. Og hægt er að benda á mörg dæmi um afstöðu páfanna til Gyðingaofsókna þeirra, sem alt Að ágreiningur og jafnvel full- komin óvild kuniii að eiga sjer Um það atriði, að kirkjan hafi dæmi áður, einkum þótti eftir- manna, sem einstaklinga, er hreint ekki ósennilegt. En kirkjan sem heild hefir aldrei staðið að Gyð- ingaofsóknum, og í messubænum og guðsþjónustugjörð kirkjunnar er Gyðinga meira að segja sjer- staklega minst með fyrirbænum. Þá segir höf.: „Hún (þ. e. kaþ- ólska kirkjan) var andvíg nas- ismanum og hún liefir jafnan beitt sjer gegn jafnaðarstefnunni. Yfirleitt má segja, að höfuðsynd kirkjunnar sje, að hún hefir ekki sem skyldi beitt sjer fyrir bætt- um veraldlegum kjörum fátækl- inganna". Kirkjan var og er andvíg nas- ismanum af sömu ástæðu og hún er andvíg kommúnismanum, eða liverri annari stefnu, sem ekki samrýmist kenninga og siðakerfi hennar, og kirkjunni ber nauðsyn til og skylda að verja rjettindi sín, þegar svo ber undir. Um við- horf kirkjunnar til jafnaðarstefn- unnar er því til að svara, að mjer ekki beitt sjer sem skyldi fyrir bættum kjörum fátæklinganna, sem höf. telur vera höfuðsynd kirkjunnar, má ef til vill segja; að í þeim efnum sje seint gert sem skyldi. En kirkjan liefir gert svo mikið í þeim málum, að óhætt er að fullyrða, að engin stofnun í öllu'm heiminum hefir lagt meira af mörkum en hún, til útrýming- ar fátæktarinnar og allsleysisins. Fjölda margar klausturreglur starfa víðsvegar um heim að margskonar líknarstörfum. Læt jeg nægja að nefna tvær þeirra: „Petites Sæur des pauvres“ (Litlu systur hinna fátæku), sem lyfta hinum ótrúlegustu Grettistökum í baráttu sinni gegn fátæktinni. Og Salesiana-regluna, sem hl. Jón Bosco stofnaði. (Sjá um hl. Jón Bosco, eftir próf. Guðbrand Jóns- son, í Gyðingurinn gangandi, bls. 117—132). En Salisiana-reglan sjer einkum um uppeldi munaðar- lausra barna, auk margvíslegra annara miskunnarverka. Kenni- menn kirkjunnar hafa altaf brýnt fyrir mönnum mildi og mannúð gagnvart náunganum, og í kristni- fræðakenslubók kirkjunnar (eða kverinu, eins og það er venjulega kallað) kemur hið sama fram. Þar segir m. a.: „Það er ekki einung- is skylda húsbændanna, að gjalda vinnufólki sínu rjettmæt laun, heldur ber þeim einnig að sýna því nærgætni og láta sjer ant um stundlega og andlega velferð þess“. Talar þetta einnig skýru máli um hug kirkjunnar gagn- vart hinum minnimáttar. Með atvinnuhátta breytingu þeirri, sem hin mikla vjeliðja skapaðist á öldinni sem lei|S, myndaðist fjölmenn stjett lág- launamanna og öreiga, og ljet Leo XIII. (páfi 1878—1903) þau fmál mjög til sín taka og sendi út hvert páfabrjefið á fætur öðru uin tektarvert, hversu ótrúlega mikill fjöldi verkamanna fylgdi honun* til grafar, en með fráfalli hans þóttust þeir eiga að baki að sjá góðum talsmanni og vini. Athyglisvert er það einnig fyr- ir meistara Hallgrím og aðra, sem kunna að vera sama sinnis og- hann, að kynna sjer það, hversu margir menn af alþýðuættum hafa komist til æðstu metorða innaa kaþólsku kirkjunnar; má þar nefna páfana tvo: Píus X. (páfi 1903—1914), sem var af blásnauðu bændafólki kominn, og Píus XI. (páfi 1922—1939), en faðir hans var fátækur verksmiðjumaður, og má það kallast hending ein, að hann fjekk notið framhalds- mentunar. (Sjá ágæta ritgerð um Píus páfa XL eftir próf. Guðbr. Jónsson í Skírni 1939, bls. 99— 118). Þá er síðasta og veigaminsta. atriðið í umræddri ritgerð meist- ara Hallgríms. Hann segir, að sagnfræðingar sjeu vantrúaðir á að páfaröðin sje óslitin, frá Pjetri postula og til vorra daga. Menn greinir nú einu sinni á um svo margt, og því skyldu þeir frekar vera á sama máli um þetta atriði en flest annað, en vissulega eru kunnug nöfn og stjórnarár Bóma- borgar biskupa frá Pjetri postula til vorra daga, en biskupinn í Bóm var frá öndverðu skoðaður sem yfirbiskup hinnar kristnu kirkju, þó riafnið „páfi“ liafi ekki verið viðhaft um þá frá fyrstu tíð. Annars má í sambandi við þetta atriði vitna í stórmerkilegt rit eftir einn af okkar ágætustu vísindamönnum: dr. próf. Magn- ús Jónsson: „Saga Nýja-testa- mentisins", fylgirit með Árbók Háskóla fslands 1932, þar sem hann er að tala um stofnun hinn- FBAMH. A SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.