Morgunblaðið - 23.01.1940, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 23. janúar 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
í P 't ' ‘ . r ;
r rr i r.
Finskir hermenn á skíðui
i 4-
Þannig eru her-jnenn Finna á nor ðurvíðstöðvunum búnir. Þeir ern í hvítum klæðum til þess að
beri á þeim í snjónum.
nunna
íslenskur prentari
fær mikið lof
meðal danskra
stjettarbræðra
J_| AFSTEINN Guðmundsaon,
ungur setjari í ísafold-
arprentsmiðju var í sumar, á-
samt Viíhelm Stefánssyn; á 6
vikna námskeiði í Bókiðnaðar.
fagskólanum í Höfn. Þar er kent
alt sem að bókaframleiðslu lýt-
ur. Var námskeið þetta í 4
deildum, tvær fyrir setjara og
tvær fyrir prentara.
Alls voru þarna 30 nemend-
ur. Þarna voru kend ýms grund-*
vallaratriði iðnaðarins og kynt->
ar fyrir nemendunum mismun-
andi stefnur og stíll í prentun.
í fagblaði danskra prentara
,,De grafiske Fag“, desember-
heftinu, er grein um nám og
frammistöðu Hafsteins Guð-
mundssonar á námskeiði þessu.
Heitir greinin ,,En ung Islænd-
ers Udbytte af et Kursus paa
Fagskolen. — Með greininni
birtast 5 myndir af teikningum
og setningu Hafsteins, og er far.
ið um þær miklum lofsorðum,
enda hafði teiknikennari skól-
ans látið svo um mælt við fje-
lag Hafsteins, að hann væri
allra besti nemi, sem til skólans
hefði komið“. Fyrir tilstilli
Teiknikennara og setjarakenn-i
ara Hafsteins, komst hann í
Gutenberghus og vann þar í
mánuð. En þá skall styrjöldin á,
og þá kaus Hafsteinn að koma
heim.
Með línum þessum er ein af
myndum þeim eftir Hafstein, er
birtist í hinu danska fagblaði.
Hún nýtur sín vitanlega ekki
sem skyldi þar eð hún er gerð í
tveim litum, brúnum og svörtum
lit. I greininni segir m. a.:
Á námskeiðinu í sumar var
!o.r £o#ri)ffiiníku
fin oprínbfífc í SC ítta?
éíí
Finnar fá
1 miljón $
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Finnlandshjálpinni bárust 1 dag
400.000 dollarar frá Ameríku.
Áður hafði verið sent frá Banda-
ríkjunum 600.000 dollarar, þannig
að alls hefir Finnlandshjálpinni
borist ein tniljón dollara frá Atne-
ríku, en það samsvarar 6 miljón-
um og 500 þús. krónnm íslenskum,
eftir núverandi gengi.
Aðvörun
Sandlers
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
O andler, fyrverandi utanrík-
' ismálaráðherra Svía, hef-
ir opinberlega viðhaft þau orð,
að aðeins með því, að vera við
öllu búinn og með því að vera
reiðubúinn til að beita vopna-
valdi, geti Svíþjóð vænst þess,
að fá að vera óhult.
ísland - fyrsta
lýðræðislandið
Fyrirlestur í breska
útvarpinu
rindið um ísland í breska út-
i varpinu í gærkvöldi tókst
| með ágætum vel og var lands og
j þjóðar n?inst af skilningi og þann-
j ig að við munum hafa hinn mesta
I sóma af.
Inn í erindið, sem flutt var af
mörgum, var fljettað hljómlist, þar
sem raest bar á þjóðsöngiium.
Einnig var farið með rímur og
lesinn upp kafli úr Landnámu á
íslensku.
Til þess að undirstrika og skýra
það sem sagt var, heyrðust eftirlík-
) ingar af brimhljóði, stormi, elds-
umbrotum o. þ. h. í útvarpinu, eft-
I ir því sem við átti í það og það
skiftið.
Þetta var í rauninni frekar leik-
rit heldur en erindi. Það stóð yfir
í tæpan klukkutíma.
Erindið var kallað „ísland —
elsta lýðræðislandið".
Mesta áherslan var lögð á að
lýsa landnámi Norðmanna hjer á
landi og söguöldinni. í því sam-
bandi voru látnar koma fram og
mæla nokkur orð ýmsar frægar
persónur, svo sem Haraldur hár-
fagri, Ingólfur Arnarson o. fl.
Sagt var frá víking íslendinga og
Norðmanna og landafundum Ei-
ríks rauða og Leifs hepna.
Þá var lögð áhersla á að skýra
stjórnarfyrirkomulagið til forna
og í því sambandi Þingvöllum lýst.
Kristnitökunni var og lýst, en
eftir það var farið fljótt yfir sögu.
Að lokum komu svo fram menn
frá ýmsum stöðum í Bretlandi,
aðallega Norður-Englandi. Þeir
töluðu hver sína mállýsku. Báru
þeir íslendingum vel söguna.
Erindinu lauk með því, að leik-
inn ivar þjóðsöngur íslandsi
menn taka við
Dagsbrún
Fjárhagur fjelagsins
slæmur, þrátt fyrir
hið háa árstillag
IN nýkogna stjórn í verkamannafjelaginu
Dagsbrún tók við fjelaginu á aðalfundinum,
sem haldinn var í Gamla Bíó á sunnudaginn
var. Fundurinn var fjölmennur, 6—700 manns.
Fráfarandi formaður, Hjeðimi Valdimarsson, skýrði frá úrslitum
kosninganna í Dagsbrún. Atkvæði fjellu þannig við stjórnarkosn-
inguna: _______________
A-listi, Hjeðins og kommúnista,
hlaut. 636 atkvæði.
B-listi, lýðræðisverkamanna,
hlaut 729 atkvæði.
24 seðlar voni auðir og 7 ógild-
ir. —
Samtímis stjórnarkosningunni
fór fram kosning trúnaðarráðs,
sem skipað er 100 mönnutn. Þar
hlaut A-listi (Hjeðins & Co.) 622
atkv.; en B-listi, lýðræðisverka-
manna, hlaut 717 atkv. 42 seðlar
voru auðir og 9 ógildir.
Listar lýðræðisverkamanna fengu
þannig fullkominn sigur í báðum
kosningunum og alla kosna, því að
hlutfallskosning er ekki viðhöfð.
Nýja stjórnin.
Hin nýja stjórn Dagsbrúnar er
skipuð þessum mönnum:
Einar Björnsson formaður.
Sigurður Halldórsson varaform.
Gísli Guðnason ritari.
Torfi Þorbjarnarson gjaldkeri.
Sveinn Jónsson fjármálaritari.
Þrír í stjórninni, Sigurður, Gísli
og Sveinn, eru úr hópi Sjálfstæð-
ismanna, en þeir Einar og Torfi
fylg'ja Alþýðuflokknum að málum.
Varastjórn skipa: Jón S. Jóns-
son, Kristinn Kristjánsson og Sig-
urbjörn Maríusson.
Endurskoðendur voru kosnir:
Auðunn Auðunsson og Eggert Jó-
hannesson.
í stjórn Vinnudeilusjóðs eru:
Sigurður Guðmundsson, Bjarni
Sæmundsson og Ágúst Jósefsson.
Trúnaðarráð er skipað 100 mönn
um og eru 50 úr hvorum flokki,
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokknum.
Ráðið á að kjósa 91 manna trún-
aðarmannaráð úr sínum hóp.
Fjárhagur slæmur.
Fráfarandi stjórn lagði fram
reikninga fjelagsins, sem sýndu að
fjárhagurinn er ekki góður, þrátt
fyrir há fjelagsgjöld (16 kr. af
hverjum fjelagsmanni).
Tala fjelagsmanna er 2200, en
alls innheimtist í fjelagsgjöldum
á s.l. ári 22 þús. kr. í inntöku-
gjöldum innheimtust kr. 1105.00,
en gjaldið er 5 kr. Allar tekjur
fjelagsins á árinu námu kr. 27,-
847.69.
Helstu útgjöld voru: Greiðsla
til landssambands stjettarfjelaga
(kommúnista) kr. 4641.00, til
skrifstofumanns (laun) 4200 kr.
og til aðstoðarmanns 3300 kr.
Halli var á starfrækslu fjelagsins
á árinu og nam hann 2902 kr.
Verður nú eitt af fvrstu verk-
um hiiinar nýju stjórnar, að koma
fjárhagnum í lag og öðrum innri
málefnum fjelagsins. Eu þar hef-
ir fráfarandi stjórn hundið fjð-
jaginu bagga, með því að ráða
starfsmánn með löngum uppsagn-
arfresti og gerir það erfiðara um
vik.
Aðrar tillögur.
Fráfarandi formaður, H. V., bar
fram tillögu þess efnis, að skora
á stjórn fjelagsins að fá gengia-
lögunum breytt á næsta þingi.
Var tillagan samþykt.
Þá kom og fram (dulbúin) til-
laga um, að gera Hjeðinn gjald-
fríaii í fjelaginu, eða heiðursfje-
laga. Taldist hún einnig samþykf,
enda þótt meirihluti fundarmanna
sæti hjá.
Skákmót
Reykjavíkur:
1. umferð
Skákþing Reykvíkinga hófst á
sunnudaginn var í K. R.-
húsinu uppi. Þátttakendur eru 52
og skiftast þannig í flokka:
Meistaraflokkur: 1. Guðmundur
S. Guðmundsson. 2. Sæmundur Ó-
lafsson. 3. Hannes Arnórsson. 4.
Sturla Pjetursson. 5. Benedikt Jó-
hannsson. 6. Hermann Jónsson. 7*
Eggert Gilfer. 8. Hafsteinn Gísla-
son. 9. Áki Pjetursson. 10. Ásmúnd
ur Ásgeirsson.
Fyrsti flokkur: 1. Geir Jón
Helgason. 2. Ingimundur Gu8-
mundsson. 3. Magnús Jónasson. 4.
Aðalsteinn Halldórsson. 5. Óli
Valdimarsson. 6. Pjetur Guð-
mundsson. 7. Ragnar Pálsson. 8.
Sigurður Gissurarson. 9. Kristján
Sylveríusson.
Annar flokkur A: 1. Áskell
Kerúlf. 2. Stefán Jóhannsson. 3.
Ólafnr Einarsson. 4. Þorsteinn
Þorsteinsson. 5. Jónas Karlsson.
6. Lárus Johnsen. 7. Friðbjörn
Benónýsson. 8. Áskell Norðdahl.
9. Gestur Pálsson. 10. Þorleifur
Þorgrímsson.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.