Morgunblaðið - 23.01.1940, Blaðsíða 8
s
Síðasla
------------------------v. Á
Síöari hluti Litla píslarvottsins
afrck ranðu akurlilfunnar
Þriðjudagur 23. janúar 1940U
Ji t ^ t-JS.ti ^ j r- • " t
VEFNAÐARVARA
með gpðu verðj. Úrval af silki-
sokkum og snyrtiyörum í versl-
un 1 Guðbjargar Bergþórsdótturp
Öldugötu 29. Sími 4199.
Eftir Orczy baronessu
WfífBSr'
l^* imm mínútum síðar vísaði hin
ágæta frii Bellhomme Mar-
gaerite inn í litla og vistlega dag-
stefu. Þar var gamaldags umhorfs,
ea alt með sjerstökum yndisþokka.
tlngfru Lange Sat. í stórum og
gjrttum hægindastól og var mjög
ftnleg á að líta.
Á borðinu við hlið hennar lá
-•pin bók, en alt látbragð hennar
sýndi, að hún hafði ekki verið
uiðnrsokkin í lesturinn, heldur sín-
ar eigin hugsanir. Hið barnslega
andlit hennar var mjög áhyggju-
folt og alvarlegt á svip.
Hún stóð á fætnr, þegar Mar-
gnerite kom inn. Það var aug-
Ijóst, að hún var hissa á hinni
óvæntu heimsókn og gagntekin af
fegurð þessarar tignarlegu konu
með sorgmæddu augun.
„Jeg bið yður að fyrirgefa, ung-
frú“, sagði Marguerite um leið og
hurðin lokaðist að baki hennar,
„að jeg ónáða yður svona snemma
dags. En jeg heiti Marguerite St.
Just, og er systir Armands“, bætti
liún við brosandi og rjetti Jeanne
hendina.
Unga stúlkan roðnaði feimnis-
lega, en augu hennar ljómuðu.
Marguerite gaf henni nánar gæt-
ur, og hjarta hennar komst við af
|)VÍ að sjá þetta yndislega barn,
sem hafði óviljandi orsakað slíka
sorg.
En Jeanne, sem var bæði feimin
og óróleg, flýtti sjer að draga
stól að arninum og bauð Marguer-
ite sæti. Hún reyndi að tala við
gestinn, en hætti oft í miðri setn-
íngu og horfði í laumi á systur
Armands.
i En Marguerite var svo róleg og
blátt áfram í framkomu, að Je-
anne komst fljótt yfir feimnina.
„Jeg verð enn að hiðja yður
afsökunar, ungfrú“, sagði hún.
„En jeg var svo hrædd um bróð-
ur minn. Jeg veit ekkert, hvar
hann er niðurkominn“.
„Pg þess vegna hafið þjer kom-
ið tii mín, frú ?“
„Var það rangtf'
„Nei, nei. En hvers vegna hjeld-
uð þjer, að jeg vissi hvar hann
væri?“
„Jeg gat mjér þess til“, sagði
Marguerite og brosti.
„Þjer hafið þá heyrt getið um
mig?“
„Já, jeg hefi heyrt talað um
yður“.
„Hjá hverjum ? Hefir Armand
sagt yður nokkuð um mig?“
„Nei, því miður. Jeg hefi ekki
sjeð hann í hálfan mánuð, síðan
hann kyntist yður, ungfrú. En um
þessar mundir eru margir vinir
Armands hjer í París, og jeg
frjetti um yður hjá einum þeirra“.
Fínlegur roði færðist yfir andlit
ungu stúikunnar og alla leið nið-
nr á háls. Hún beið, uns Marguer-
ite var sest, og sagði síðan feimn-
islega: „Armand hefir talað um
yður við mig. Honum þykir mjög;
vænt um yður“.
„Við Armand vorum börn, þegar
við mistum foreldra okkar“, sagði
Marguerite blíðlega. „Við vorum
alt hvort fyrir annað.. Jeg elsk-
aði hann me&t af öllum, þangað til
jeg giftist“.
„Hann hefir sagt mjer, að þjer
væruð gift. —■ Englending“.
„Jæja?“
„Hann elskar England. Fyrst í
stað talaði hann mikið urn það,
að jeg ætti að koma með honum
þangað sem konan hans, og að við
myndum verða mjög hamingjusöm
þar“.
„Hvers vegna segið þjer „fyrst
í stað“ ?“
„Nú talar hann sjaldnar um
England“.
„Honum finst það kannkse ó-
þarfi, þar sem þjer nú þekkið ’
landið, og þið skiljið hvort annað
hvað framtíðina snertir“.
„Kannske--------“.
Teanne sat á litlwin fótaskemli.
beint á móti Marguerite. Hún
studdi olnbogunum á knje sjer,
og andlit hennar var nærri falið
af brúnum lokkum.
Hún var yndisileg á að líta,
þarna sem hún sat, barnsleg og
alvarleg á svip.
Marguerite hafði verið sannfærð
nm, að hún myndi við fyrstu sýn
hata þá stúlku, sem hafði ekki
aðeins á fáeinum dögum stolið
hjarta Armands, heldur einnig
hollustu hans við foringjann. Hún
hafði hálft í hvoru hatað Jeanne,
síðan hún sá bróður sinn laumast í
hinum dimmu göngum Palais de
Justice eius og þjóf á nóttu.
En öll reiði var horfin strax við
fyrstu sýn stíilkunnar. Marguerite
fann strax það aðdráttarafl, sem
stúlka eins óg ungfrú Lange hlaut
að hafa á riddarlegt eðli, sem bjó
í Armand.
Það var eins og Jeanne fyndi
hin starandi augu Marguerite, því
að þótt hún sneri ekki höfðinu,
til þess að sjá hana, varð roðinn
æ meiri í kinnum hénnar.
„Ungfrú Lange“, sagði Marguer-
ite blíðlega, „finnið þjer ekki, að
þjer getið borið traust til mín?“
Hún rjétti út báðar hendur í
áttina til hinnar ungu stúllru, og
Jeanne kom hægt á móti henni.
Augnabliki síðar íjell hún á knje
fyrir framan fætur Marguerite og
kysti hinar fallegu hendur henn-
ar, sem voru rjettar móti henrii
með systurlegri ástúð.
Framh.
L O. G. T.
ST. VERÐANDI NR. 9.
Fundur í kvöld kl. 8Vk.
1. Inntaka nýrra fjelaga.
2. Skýrsla um útbreiðslufund-
ina á Vatnsleysuströnd og í
Grindavík.
3. Kvartett úr Söngfjelaginu
Fóstbræður syngur.
'4. Einsöngur: Ungfrú Lydia
Guðjónsdóttir.
5. Frumsamið: Stefán Þ. Guð-
mundsson. Æt.
FULLORÐIN STÚLKA
óskast I vist. V. , Thoroddsen,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
STÚLKA,
vön öllum algengum verslun-
arstörfum, vill taka að sjer
skrifstofu eða önnur verslunar-
störf hálfan daginn. Sanngjarnt
kaup. Umsókn merkt: „Versl-
unarstúlka“ sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir 27. þ. m.
OTTO B. ARNAR,
löggíltur útvarpsvirki, Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
SNlÐ OG MÁTA
Dömukápur, dragtir, dag-
kjóla, samkvæmiskjöla og alls
lconar barnaföt. Saumastofan
Laugaveg 12, uppi (inng. frá
Bergstaðastræti). Símar 2264
og 6464.
VETRARKÁPUR
með gjafverði. Kápuskinn, Lúff-
ur, Skinnhanskar, fóðraðir.
Verslun Guðbjargar Bergþórs-
dóttur, Öldugötu 29. Sími 4199.
KÁPU- OG KJÓLAHNAPPAR:
í öllum regnbogans litum..
Prjónagam og allskonar smá*
vara. Verslun Guðbjargar Berg-
þórsdóttur, Öldugötu 29. Sími:
4199.
SNYRTIVÖRUR.
Lido — Pirola og Amanti selur
Verslun Guðbjargar Bergþórs-
dóttur á Öldugötu 29.
KÁPUBÚÐIN
Laugaveg 35. Mikið úrval a£
frökkum fyrirliggjandi. Töskur
seldar með hálfvirði. Sigurður
Guðmundsson.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðnu
Guðmundsson, klæðskerL —
Kirkjuhvoli.
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og TómaÞ-
flöskur keypt daglega. Spari®
milliliðina, og komið Beint tli'
okkar, ef þið viljið fá hæsta-
verð fyrir glösin. Við sækjum
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek-
GULRÓFUR
seljum við í heilum og hálfúm
pokum á kr. 5.50 og kr. 3,0(K
Sendum. Sími 1619.
ÞORSKALÝSI
Laugaveg Apoteks viðurkenda*
meðalalalýsi fyrir börn og full-
orðna, kostar aðeins kr. 1,35*
heilfjaskan. Selt í sterilune.
(dauðhreinsuðum) flöskum. —
Sími 1616. Við sendum um allam
bæinn.
omjSJ' ornófcu/nhc^þsnu.
Söngkona frá Kaupmannahöfn,
sem. hafði lifað sitt fegursta, hjelt
söngskemtun í smábæ úti á landi.
Þar var svo lítið um skemtanir að
hún fjekk fult hús.
Söngkónan var svo fegin þess-
tun óvæntu móttökum að hún gekk
fram á leiksviðið að söngskemtun-
iani lokinni og sagði:
— Mig langar innilega til að
jþakka hverjum einstökum ykkar
fyrir móttökurnar, en því miður
verður því ekki komið við í þessu
roargmenni.
Þá heyrðist rödd meðal áheyr-
enda er sagði:
— Þjer munuð komast yfir það
á næstu söngskemtun.
★
Fjögra ára drengur lá á sjúkra-
húsi og var að leika sjer að kýr-
höfðum, sem skorin voru út í trje.
Vfirlæknirinn var á eftirlitsferð
og nam staðar við rúm hnokkans
og sagði:
En hvað þú hefir falleg kýr-
höfuð að leika þjer að.
— Þetta eru ekki kýr heldur
kvígur, sagði drengurinn snúðugt.
— Nú, eru það kvígur, en er
það ekki sama og kýr, sagði yfir-
læknirinn vingjarnlega.
— Nei, það er ekki það sama,
það ér ekki von að þú skiljir það.
— Jeg sendi son minn ef tir kílói
af eplum, en hann kom ekki með
nema hálft kíló.
— Hafið þjer vigtað eplin?
— Já.
— Jeg held, að þjer ættuð að
vigta son yðar líka.
★
Ung skólastúlka í Svíþjóð hefir
fengið stranga áminningu og ver-
ið rekin úr skóla um tíma fyrir
móðgandi svar, sem hún gaf við
spurningu eins kennarans.
Kennarinn var að ávíta hana
fyrir athugunarleysi í kenslustund
og sagði:
—' Um hvað er yður eiginlega
að dreymaf
— Ekki um yður að minsta
kosti, svaraði sú litla.
★
— Mamma, má amma ekki gefa
mjer meðalið í kvöld?
— Af hverju viltu það, drengur
minn?
— Það er svo gaman að sjá
hvað hendin á henni liristist.
★
— Hvernig gengur það? Vel?
— Nei, ekki vel, en betur.
— Það var gott að það gengur
betur.
— Það hefði samt verið betra ef
það hefði gengið vel.
★
Jón Brynjólfsson á Ólafsvöllum
koinst eitt sinn þannig að orði:
„Það eru þrír menn hjer í sýsl-
unni með hökutopp: Böðvar á
Laugarvatni, Páll á Ásólfsstöðum
°S jeg. — Jeg tel ekki Gústa í
Steinskoti“.
HRAÐRITUNARSKÓLINN.
Get bætt við í íslenska, enska
og danska hraðritun. Helgi
Tryggvason. Sími 3703.
SKINNHANSKAR,
karlmanns, töpuðust á fundin-
um í Nýa Bíó á sunnudaginn.
Skilist á afgr. Morgunblaðsins
gegn fundarlaunum.
<%0 > + •
GÓÐ ÍBÚÐ
tveggja til þriggja herbergja,
óskast 14. maí. Tilboð merkt:
„768“, sendist Morgunblaðinu
fyrir næstkomandi föstudag.
HÆNSAFÓÐUR,
blandað korn, kurlaður maís,
heill maís. Hænsamjöl í heilum
pokum og smásölu. Þorsteins-
búð, Hringbraut 61. Sími 2803.
Grundarstíg 12. Sími 3247.
KARTÖFLUR
valdar og gulrófur í heilum
pokum og smásölu. Þorsteins-
búð, Hringbraut 61. Sími 2803.
Grundarstíg 12. Sími 3247.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5395.
Sækjum. Opið allan daginn.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Björn Jónsson, Vesturgötu 2&.
Sími 3594.
SPARTA- DRENGJAFÖT
Laugaveg 10 — við allra hæfil
VIL KAUPA
notað baðker. Uppl. í síma 284T
STRAUJÁRN TIL SÖLU
á Vatnsstíg 7
EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR
og blúsur í úrvali. SaumastofaEi
Uþpsölum, Aðalstræti 13. —
Síini 2744.
NÝA FORNSALAN
Kirkjustræti 4, kaupir og selmr
allskonar notaða muni og fatn-
að.
VERÐLISTI YFIR ÍSLENSK~
FRlMERKI FYRIR ÁRIÐ 194%
16 síður með fjölda mynda
kostar kr. 0.50. íslensk frí-
merki ávalt keypt hæsta verðL
Gísli Sigurbjörnsson, Austurstr,
12, 1. hæð.
ÞAÐ ER ÓDÝRARA
að lita heima. Litina selur-
Hjörtur Hjartarson, Bræðra-
borgarstíg 1. Sími 4256.
HARÐFISK5ALAN,
Þvergötu, selar saitflsk nr. 1,.
2 og 3. Vérð frá 0,40 au. pœ;.
kg. Sími 3448.