Morgunblaðið - 23.01.1940, Side 5
Jt'ieÁji, Ji'. X* }'.&>'$■•
fnSðjndagtir 23. jattúar 1940.
m
Ötget.: H.f. Arraknr, Heykjavtk.
Bltatjörar:
J6n KJartanaaon,
Valtýr Stefánsaon (á.byr»Oar*.).
Auglýsingar: Árnl Óla.
Rltstjörn, auglýsingar og afgrelSsla:
Austurstrœtl 8. — Slssl 1800.
Askriftargjalð: kr. 8,00 á, mánuOI.
t lausasölu; J.5 aura eintakiO,
25 aura sseO Lesbök.
■ ■«1 fí ?■ o 8 0 M
Hin raunverulegá
skoðun Þjóðverja?
Sigurinn
Sigur lýðræðisverkamanna í
stjórnarkosningu Dags-
brúnar, markar tímamót í sögu
verklýðsmálanna á Islandi. Sig-
urinn er ekki aðeins í því fólg-
inn, að hafa náð öflugasta
verklýðsf jelagi landsins úr hönd
um kommúnista, heldur mun á-
hrifanna frá þessum kosninga-
sigri gæta í verklýðsmálunum
alment og verða þess valdandi,
að verklýðsfjelögin verða nú
bygð upp á nýjum og heilbrigð-
um grundvelli.
Um langt skeið hefir barátt-
an innan verklýðsfjelaganna
verið háð milli tveggja póli-
tískra aðila, sósíalista (Alþýðu-
flokksmanna) og kommúnista.
Sjálfstæðismenn, sem eiga mik-
ið fylgi meðal verkamanna,
hafa látið afskiftalaus átök
hinna flokkanna, um völdin í
verklýðsfjelögunum. Þeir hafa
fordæmt aðfarir beggja. Þeir
hafa sýnt fram á, að með þess-
um átökum hinna pólitísku
flokka væri verið að veikja
verklýðsfjelagsskapinn og
sundra honum. Verklýðsfjelög-í
in yrðu að vera bygð upp á ÖJ
pólitískum grundvelli og óháð
flokkunum.
Svo verða straumhvörf í
þessum málum, eftir Dagsbrún-
arkosninguna í fyrra. Þá koma
Sjálfstæðisverkamenn í fyrsta
skifti fram og stilla sínum eigin
lista. Þeir höfðu þá um nokkurt
skeið haft málfundafjelag (Óð-
inn) og haldið saman. Og þegar
Sjálfstæðisverkamenn í fyrsta
slifti, komu fram með sinn eigin
lista við stjórnarkosningu í
Dagsbrún, kom í ljós, að þeir
vroru sameinaðir öflugt vald,
sem baráttuflokkamir urðu að
taka fult tillit til.
Það má án efa eingöngu
þakka það þrautseygju og dugn-
aði „Óðins“-fjelaganna, að lýð-t
ræðisverkamenn tóku höndum
saman við stjórnarkosningu
Dagsbrúnar nú í vetur, með
þeim glæsilega árangri, að nú er
vald kommúnista í öflugasta
verklýðsfjelagi landsins brotið á
bak aftur.
En þessi sigur lýðræðisverka-
manna er aðeins upphaf stærri
og glæsilegri sigra. Því að ef
lýðræðisverkamenn skilja sína
köllun, á að vera fulltrygt, að
hjer eftir þurfi ekki að óttast
áhrifa sendimannanna frá
Moskva í verklýðsfjelögunum.
Þetta á að vera lokaþátturinn í
þeirra sögu þar.
Nú hefst umbótastarfið í
verklýðsfjelögunum. Vonandi
fylgir gæfa og blessun þeim,
sem umbótastarfið eiga að
vinna. En takmarkið er: Frjáls
-og óháð verklýðsfjelög, þar sem
.allir verkamenn njóta fylsta
jafnrjettis.
, sem
N or ður-E vr ópu
stafar úr austri
—
■l
*
*
k '
I
Eftirfarandi greinarstúfur er
tekinn úr bókinni „Russlands
Griff um Nordeuropa“, eftir
Vitalis Pantenburg. Kom liún
út í Leipzig í snmar, áður en
Þjóðverjar gerðu vináttu-
samninga sína við Rússa.
dag getur ekki leikið nokkur
vafi á þvi, að alþjóðasamband
kommúnista er í ágengnihug gagn-
vart Norðurlöndunum.
Hve liarðskeytti hefir hún ekki
verið, nú þegar, hin eirðarlausa
eyðileggingarfýsn gagnvart öllum
lífsskoðunum og stjórnfyrirkomu-
lagi, sem ekki vill játast undir
bolsjevismann? Sá afkimi hefir
ekki verið til, jafnvel yst á hjara
veraldar, sem hefir verið laus við
áróður holsjevismans. Hugsjónin
um heimsbyltinguna, vildarhugs-
sjón Sovjet-Rússlands, á sjer eng-
in takmörk. Það er takmark Sov-
jet-Rússlands að sjá allar þjóðir
sameinaðar undir forræði Stalins.
í þessari vildarhugsjón skjalfest-
ist. einnig löngunin til að afnema
sjálfstæði allra annara þjóða.
Og nú er Rússum hendi næst,
að hramsa nágrannalönd vor og
draga þau inn undir hið kom-
andi heimsveldi sitt. Sovjet þarf
bækistöð við hafið til þess að
stofna þetta heimsveldi.. Landa-
mærabreytingarnar eftir heims-
styrjöldina, sem færðu saman kví-
arnar hjá Rússum, hafa aðeins orð-
ið til þess, að auka útþensluorku
þeirra.
Ef liernaðarvígbúnaðurinn við
norðvestur-landamæri Rússlands
og hinar stórfeldu njósnir þeirra
í löndunum, sem liggja að þeim,
nægir ekki til þess að sýna, hve
ískyggilegar horfurnar eru fyrir
Norðurlönd, má benda á það mold-
vörpustarf, sem unnið er gegn
hervörnum Norðurlandaþjóðanna
Þriðji internationale er ekkert
annað en utanríkismálalið Sovjet-
Rússlands. Með þeirri stofnun
teygir heimsbyltingin anga sína í
allar áttir frá Moskva. Kommún-
istaflokkarnir í hinum svokölluðu
„kapitalistisku" löndum, eru hjálp
arlið heimsbyltingarinnar. Herr-
arnir í Kreml munu hefja sókn
undir eins og þægileg aðstaða
heimsstjórnmálanna gefur þeim
tækifærið.
gegna herþjónustu eiga að afla
sjer upplýsinga um liðstyrk,
vopna- og skotfærabirgðir, vopna-
búnað virkja og herskipa, fyrir-
komulag á útvegun fatnaðar og
matvæla, svo og um flugher og
tæki til gasstyrjaldar. Það varðar
miklu, að f jelagarnir fái allar upp-
lýsingar sínar munnlega og án þess
að vitni sjeu viðstödd og að upp-
lýsingunum sje skilað áfram til
sveitarforingjans. Sje her kvadd-
Ur til vopna eða ef styrjöld hefst
skal sjerhver sá kommúnisti, sem
kvaddur hefir verið í herþjónustu,
hlýða öllum hernaðarfyrirskipun-
um. og ekki undir neinum kring-
umstæðum haga sjer þannig, að
það veki athygli“.
Náið samband Norðurlandaríkj-
anna er afar mikilsvert gagnvart
árásaráætlunum Rússa í Norður-
Evröpu, og það mun vekja al-
menn ánægju í Evrópu. í Þýska-
landi mun því og verða fagnað,
ef Norðurlönd gera með sjer her-
varnabandalag.
Sem nyrsti útvörður hinnar
geysilöngu landamæralínu gegn
eyðileggingaranda moskóvítanna
stendur liið æskuhrausta, -sterka
Suomi aleitt. Að sá vörður reyn-
ist ekki árangurslans er ekki að-
eins áhugamál Finnlands og ann-
ara Norðurlanda, heldur varðar
það alla þá, sem meta menningar-
fjársjóði Vesturlanda og telja end-
urreisn Evrópu nauðsynlegasta
verkefni núlifandi kynstóðar.
Rækor |
Tng
og bókin
um Ceylon
John Hagenbeck: O’eylon. ! kaupmaður, dýrasali og plant-
Tuttugu og fimm ár í | ekrueigandi í samfleytt 25 ár. En
paradís liitabeltisins. Með árið 1914, er heimsstyrjöldin
h
myndum. Ársæll Árnason.
Reykjavík 1939>
öfundur þessarar bókar, John
Ilagenbeck, var bróðir
Karls Ilagenbecks, stofnanda hins
fræga dýragarðs í Hamborg. Karl
Hagenbeck rak einnig stórfelda
verslun með allskonar dýr og
hafði sambönd úti um allar jarðir
um kaup og sölu dýra. Gerði hann
út marga leiðangra suður og norð-
ur í heím til þess að veiða villi- ! æfintýralega land, sem var starfs
braust, út, gerðu Bretar hann lanö-
rækan af ástæðum, sem honum
tókst aldrei að fá að vita, hverj-
ar voru. Varð hann þá að yfirgefa
alt sitt fyrirvaralaust og bótalaust
austur á Ceylon og flýja heim tií
Þýskalands. Gaf hann út bækling
um það, er nefnist „Hinn æfin-
týralegi flótti Johns llagenbecks.
frá Ceylon“. Hins vegar fjallar
bók sú, er að ofan getur um hið
dýr af öllu tagi. John, bróðir hans,
gekk fyrst í þjónustu hans, ann-
aðist um flutninga á dýrum, sem
er vandasamt verk, sá um dýra-
sýningar í ýmsum borgum og lönd-
um Evrópu og rak margs konar
vandasöm erindi fyrir bróður sinn
þegar á unga aldri. Við þessi
störf fekk hann náin kynni af
dýrum og háttum þeirra og jafn-
fraint seiðandi löngun til þess að
sjá og skoða heimkýnni hinna
helstu þeirra, sjálf hitabeltislönd-
in. Hann tók því fegins hendi að
sjer að fara sendifÖr austur til
Ceylon til þess að kaupa fíla óg
ráða til ferðar með sjer heim hóp
innfæddra manna þaðan til sýn-
inga í Hamborg og víðar. Sú ferð
tókst mjög giftusamlega. En hún
varð til þess að hugur hans dróst
fastar og fastar að því áformi að
setjast að þar eystra. Hann sagði
sig því úr fjelagi við bróður sinn,
fluttist til Ceylon og settist þar
að. Þar starfaði hann síðan sem
Hið leynilega umburðarbrjef
til meðlimanna í kommún-
istasellunum, sem náðist í Svíþjóð,
talar Ijósu máli. Það hljóðar svo:
„Fjelagar! Stórveldissinnar og
auðvaldsmenn vinna af kappi að
því, að umkringja eina verka-
mannaríkið í veröldinni. Ný heims
styrjöld er fyrir dyrum, og þá
veltur alt á því, að allir öreigar
í lieiminum noti þau vopn á rjett-
an hátt, sem þeim eru fengin í
hen^ur, Þeir sellufjelagar sem
Þessi mynd er frá brautarstöðinni í pólska bæmm Przemysl, þar
sem Þjóðverjar eru nú að byggja olíuleiðslur til þe«w að fljótar gangi
að afferma olíuvagnana frá Rússlandi og Rúmeníu,
syið hans og heimkynni á bestn
þroskaárum hans, paradís hita-
beltisins, eyjuna Ceylon.
Höfundur er svo vel kunnugm
háttum og högum Austurlanda-
búa, að honum er það leikur einfc
að segja frá því, sem oss norður-
byggjum, þykir merkilegast og
einkennilegast um hina fjarlægœ
hitabeltisey. Því lýsir hann land-
inU og íbúum þess mjög skilmerki-
lega, segir frá mörgu . skemtilegu
og fróðlegu um hið fjölbreytta
jurta- og dýralíf, lifnaðarháttnm
og lyndiseinkennum eyjarskeggja.
Hann bregður upp mjög lífandi
myndum af fílum og fílaveiðuinv
segir frá risavöxnum skjaldbök-
um, slöngum, krókdílum og mörga
fleira. Mjög gainan er og að Ies»
frásagnir hans af meinlætamönn-
um, töframönnum. ng sjónhverf-
ingamönnum, sem leika listir sín-
ar þar eystra. Oll frásögnin vek-
ur traúst og tiltrú lesandans.
Þetta er bæði fróðleg bók og
skemtileg. Hún er þýdd á góða í»-
lensku og prýdd mörgum myndum.
Rudyard Kipling; Rikki-
tikki-tavi. Með trjeskurð-
armyndum eftir Barbara
Árnason. Ársæll Árnason.
Reykjavík 1939.
ú hefir Ársæll Árnason þýti
og gefið út liina frægu
dýrasögu, Rikki-tikki-tavi, eftir
Kipling. Það er saga um mongó-
ann, litla dýrið, sem slöngurnar
óttast mest. Honum er í blóðið
borið óslökkvandi hatur á slöng-
um, og hvar sem, hann sjer þær,
ræðst hann á þær, þótt lítill sje,
og venjulega ber hann sigur úr
býtum. í þessari sögu segir Kipí-
ing frá bardaga tamins mongóa
við tvær hræðilegar eiturslöngur
og hvernig hann bjargar með þvi
lífi fjölskyldunnar frá bráðum
bana. Frásagnir þessar færir skáld-
ið í skemtilegan sögubúning, þar
sem dýrin ræðast við og lýsa þann-
ig eðli sínu og háttum. Það er
alkunnugt, að dýralýsingar Kipl-
ings í hinum frægu Jungle Books
eru sannleikanum samkvæmar og
frásagnarlist hans er viðbrugðið.
Sagan af Rikka-tikka er tilvaKn
barnabók, sem, fulloðnir hafa líka
ánægju af að lesa.
Guðni Jónsson.