Morgunblaðið - 27.01.1940, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 27. jan. 1940.
ur“-árásir á Bretland
Voroshilov.
Voroshilov ð
leiöinni til finsku
vfgstöðvanna
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gse-r.
Samkvæmt hernaðartilkyimingu
Finna í kvöld, gerðu Rússar
1 gær tvö áhlaup á Mannerheim-
línuna ;báðum var hrundið og
mannfall í liði Rússa var mikið.
Fyrir nórðan Ladogavatn halda
hárdágar áfram, og hafa þeir nú
staðið í fimm daga. í hernaðar-
tilkynningu Finna segir, að Rúss-
ar hafi gert mörg álilaup, og að
tekist hefði að stöðva þau. Virðist
sem Finnar hafi hvergi orðið að
víkja úr varnarstöðvum sínum.
Rússar gerðu í dag tvisvar á-
köf jihlaup á finsku eyjuna undan
norðurströnd Ladogavatns. Er
eyja þessi ramlega víggirt.
Finnum er það mikilsvirði að
' hafa þessa eyju, vegna þess að
þaðan er hægt að drotna yfir
Öllúm flutningum eftir þjóðveg-
únum fyrir norðan Ladogavotn.
Ef Rússum tækist að sækja fram
im.yndi vera hægt að stöðva að-
,flutninga til hersveita þeirra, ef
finnar halda eyjunni.
Ein fregn, frá Osló, segir, að
sókn Rússa fyrir norðan Ladoga-
vatn sje þegar farin að linast.
Voíoshilov í eftirlitsferð.
-e -l -frégn frá Khöfn segir, að
Voroshilov, yfirherforingi rauða
hersins, sje væhtanlegur til víg-
stöðvanna í Finnlandi, í eftirlits-
ferð.
Norðar á vígstöðvunum segjast
Finnar hörfa undan rússnesknm
hérdeildum inn í landið, tií þess
síðar að stöðva aðflutninga til
þeirra. Finnar segja, að jafnvel
þótt engar finskar hersveitir væru
þarna til varnar, þá myndi Rúss-
um reynast erfitt um sókn, vegna
þess, að um skóga og fen er að
fara. Er nær ókleift fyrir Rússa
að flytja hersveitum sínum þarna
skotfæri og matvæli.
2000 Eistlendingar herjast nú
með Finnum.
Leynivopn Hitlers
enn ekki tekið
í notkun
Alsherjarsókn
í
lars?
Frá frjettdritara vorum.
Khöfn í gær.
SAMKVÆMT samhljóða frjettum frá erlendum
frjettariturum í Berlín, eru Þjóðverjar nú að
undirbúa röð af „leiftur“-árásum á Bretland.
Talið er að Þjóðverjar ætli að tefla fram sameigin-
lega flugflota, kafbátum og tundurduflum, og gera loft-
árásir á hafnarmannvirki, forðabúr og aðra hernaðarlega
mikilvæga staði á austurströnd Englands og Skotlands.
Markmiðið með þessum leifturárásum verður að trúfla
iðnaðar- og viðskiftalíf Breta.
NÝTT leynivopn
Frá Hollandi hafa borist fregnir um að Þjóðverjar sjeu
um það bil að taka í notkun nýtt leynivopn, á svipaðan hátt og
er þeir hófu að nota segulmögnuðu tundurduflin.
Sú skoðun ryður sjer nú rúms, að segulmögnuðu tundur-
ruflin hafi ekki, þegar öllu er á botninn hvolft, verið leyni-
vopnið, sem Hitler sagðist hafa yfir að ráða, í ræðu sinni í
Danzig, í byrjun stríðsins.
Ýmsar sögur ganga um þetta leynivopn. Ein er á þá leið
— og er hent gaman að henni, einnig í Englandi — að
Þjóðverjar hafi fundið upp svefngas, svo að þeir geti svæft
fólkið á Bretlandseyjum, á meðan Hitler er að leggja landið
undir sig.
SIGURVISSAN
En hvað sem þessum sögum líður, þá er allur al-
menningur í Þýskalandi sannfærður um (að því er segir
í skeyti frá Berlín) að Hitler hafi yfir að ráða leynilegu
vopni, sem færi Þjóðverjum sigur. Almenningur í Þýska.
landi gerir ráð fyrir að Hitler láti hefja alsherjar sókn
í síðasta lagi í mars, og að úrslitin verði komin, með
sigri Þjóðverja, fyrir haustið.
Álitið er að flokksfjelög nazista dreifi þessum orðrómi
meðal almennings af ráðnum hug, til þess að hafa áhrif á
siðferðilegt þrek þjóðarinnar. Ýms ummæli opinberra stjórn-
málamanna, sem boðað hafa sókn Þjóðverja, hafa líka haft
áhrif í sömu átt.
H
og þjófur úr tieið-
skiru ioíti“
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Bresk sprengjuflugvjel hrap-
aði til jarðar „eins og þjófur
úr heiðskíru lofti“ nálægt
Duisburg í Vestur-Þýskalandi
í dag.
Flugvjelin hafði lent í við-
ureign við þýskar flugvjelar
svo hátt 1 lofti. að fólk sem
var á ferli, varð loftorustunn-
ar ekkert vart fyr en flugvjel-
in hrapaði til jarðar.
Samtímis gera þýsk blöð mik-
ið veður út af tjóni því, sem
þau segja að Bretar hafi þegar
beðið í stríðinu, og undirstrika
veikleika bresku yfirvaldanna
á sjónum.
Blöðin reyna á allan hátt að
gera sem minst úr siðferðilegu
•þreki bresku þjóðarinnar.
Þannig er frá því skýrt, að
Lundúnabúar hafi orðið mjög
skelkaðir í gær, er þeir sáu
hakakrossfána á stöng í miðri
höfuðborg Bretaveldis. En
hræðslan hvarf, segja blöðin,
þegar það kom í ljós, að fán-
ana átti breska ,,Gaumont“
kvikmyndafjelagið, sem er að
kvikmynda nýja áróðurskvik-
mynd gegn Þjóðverjum.
Nákvæmni Þjóðverja.
í skeyti frá Amsterdam til
„Daily Telegraph“ segir, að Þ.jóð-
verjar sjeu ekki í nokkrum vafa
um, hvermg úrslit stríðsins verða.
Þeir eru nú byrjaðir, með hinni
venjulegu nákvæmni sinni, að
undirbúa þýska embættismenn
undir að stjórna í Englandi, eftir
að Þjóðverjar hafa tekið völdin í
sínar hendur í óvinalandinu. Er
farið að kenna hinum tilvonandi
fylkisstjórum („gauleiter") í Eng-
landi ensku og enska siði, í for-
ingjaskólanum í Marburg. Einnig
fá þeir sjerstaka tilsögn um ein-
staka landshluta í Englandi, sem
hverjum þeirra er ætlað að stjórna
á sínum tíma.
„Ekkert að frjetta“.
Það heýrist ekki minst á Frakk-
land.
Á vesturvígstöðvunum gerist
ekki neitt. Ilernaðartilkynningar
ófriðarþjóðanna eru nú dag eftir
dag aðeins fjögur örð: „Ekkert
markvert að frjetta“.
Þjóðverjar
berjast ekki
gegn Versala-
samningum,
heldur --
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
-J „ Robert Ley, foringi
Ll 1 • þýsku vinnufylkingar-
innar, hefir látið svo um mælt
í ræðu, að það sje ekki gegn
Versalasamningunum, sem Þjóð
verjar berjast, heldur gegn
friðinum, sem saminn var í
Westfalen árið 1648.
Friðurinn í Westfalen batt
enda á þrjátíu ára stríðið. Með
þessum samningi voru m. a. við-
urkend yfirráð Frakka í Elsass.
og auk þess var alt samband
rofið milli þýska ríkisins ann-
arsvegar og Hollands og Belgíu
hinsyegár. Bnm-
Með þessum friði trygðu
Frakkar sjer forustuna á meg-
mlandi álfunnar um næstu
aldir.
Skipatjón
Breta
Khöfn í gstr.
Pjóðverjar lialda því fram, að
Bretar hafi í síðustu viku
mist 10 skip, samtals 47 þúsund
smálestir.
Af þessum skipum voru tvö olíu-
flutningaskip. En í Þýskalandi er
álitið að Bretar hafi mist svo
mörg olíuflutningaskip, að olíu-
aðdrættir þeirra sjeu í hættu.
Tveim norskum skipum og tveim
sænskum var sökt við austurströnd
Englands í gær.
Svíar
búast til
varnar
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Miklar loftvarnarráð-
stafanir er nú farið
að gera í Stokkhómi.
Hinum heimsþektu Bo-
fors-Ioftvarnabyssum hef-
ir nú verið komið fyrir um-
hverfis borgina.
/ Dag og nótt er unnið að
því að gera 9 þús. loftvarna
byrgi víðsvegar í borginni.
Byrgi þessi eiga að geta tek
ið helminginn af íbúum
borgarinnar.
1 stærsta byrginu á að
vera rúm fyrir 40 þús.
rruanns. Þetta eina (byrgi
kostar miljón krónur.
Hrikfir
í breska
heims-
vcldinu
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Itveim samveldislöndum
Breta, Kanada og Suður-
Afríku, fara nú fram hörð átök,
út af þátttöku þessara ríkja í
Evrópustríðinu.
, II Kanada hefir forsætisráð-
herrann, Mr; Mc Kenzie-King,
rofið þing og ákveðið að nýjar
kosningar skuli fara fram, að
líkindum 26. mars n. k. Me
Kenzie-King tilkynti ákvörðun-
ina um þingrof, öllum á óvart,
á sambandsþingi Kanadamanna
í gær. Hann kvaðst vilja fá dóm
þjóðarinnar um það, hvort hún
líti svo á, að stjórnin legði ekki
nægilegan kraft í stríðsundir-i
búning sinn.!
En gamall andstæðingur Mc
Kenzie-Kings, Mituhel Hepburn
fylkisstjóri í Ontario, hafði bor-
ið fram þingsályktunartillögu
á fulltrúaþingi Ontario, þar sem
sambandsstjórnin er vítt fyrir
a,ð fylgja stríðsundirbúningnum
slælega fram.
En í Kanada er ekki um neinn
ágreining að ræða, um það
hvort Kanadamenn eigi að taka
þátt í stríðinu með Bretum eða
ekki, heldur um það, á hvern
hátt Kanadamenn geti best orð-
ið Bretum að liði.
í SUÐUR-AFRlKU.
öðru máli gegnir í Suður-
Afríku. — Þar snýst deilan
um það, hvort sambandsrík-
ið skuli draga sig út úr stríð-
inu, eða halda áfram að berjast
með Bretum. I fjóra daga hefir
sambandsþingið í Höfðaborg
verið vettvangur einvígis milii
Búahöfðingjanna Smuts hers-
höfðingja og Herzogs hershöfð-
ingja, sem hvor vill fara sína
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.