Morgunblaðið - 03.02.1940, Blaðsíða 3
3
Laugardagur 3. febrúar 1940 MORGUN BLAÐIÐ
/Í >.|r . *---— ------------------------------------ "T"r ■ —t— 7----------------
ILiiiiiiiininimiviifiiiitiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiHiimmiiiiiifliiiiiiiiiiiiitiiiiiitiiimiiiiiiiuiitiiiiiiiiHiitiiiiiuniuiiiuiiiiuHiiiiiiiiiimiii miiiiiiiiiiiiinutmmtfiimittttmt«iiHmirs«ifiHiiiiiiiiiiiiiuiiiiiy_
I Sænskir sjálfboðaliðar í Finnlandi |
Hjálp Svía við Firnia fer siöSugt vaxandi. í gær tilkynti útvarpið í Stokkhólmi, að
sænsk sjúkrahús myndu taka á mióti hættulega særðum finskum hermönnum. Þannig
miunu Svíar ljetta starf hjúkrunarstöðvanna í Finnlandi, sem nú geta sent alla hættu-
lega særða menn yfir til Svíþjóðar. Fyrir hina finsku hermenn hefir þetta aukið öryggi
í för með sjer, því að Rússar virðast vera farnir að gera sjer leik að því að varpa
sprengjum yfir sjúkrahús.
Á laugardaginn ætla starfsmenn í 2300 iðnfyrirtækjum um gjörvalt sænska ríkið að
gefa 10% af launum sínum til Finnlandssöfnunarinnar. Er búist við að hjer muni safn-
ast 20—30 miljón krónur.
Myndin hjer að ofan er af sænskum sjálfboðaliðum, sem bíða á jámbrautarstöð-
inni í Torneá í Norður-Finnlandi, eftir lestinni, sem á að flytja þá til vígstöðvanna.
GeöbilaOur maður
ræðst á forsætisráð-
herrann á götu
Pegar Hermann Jónasson for-
sætisráðherra var á leið til
vinnu sinnar í stjórnarráðinu í
gærmorgun, varð hann fyrir árás
af geðbiluðum manni á götunni.
Forsætisráðherrann var kominn
niður í Austurstræti, er maður,
sem þar var á gangi, gaf sig á tal
við hann. Aðkomumaður kvaðst
þurfa að tala við ráðherrann.
Sagði ráðherra manninum, að hann
gæti talað við sig í stjórnarráð-
inu. Aðkomumaður gekk þá um
stund við hlið ráðherrans og var
ekkert að sjá óeðlilegt í hans.
framkomu. En alt í einu greip
þann með annari hendi í hönd ráð-
herrans og reiddi liina til höggs.
Enda þótt ráðherrann ætti sjer
einskis ills von, tókst honum að,
hörfa það undan, að höggið snart
hann aðeins lítillega. í andlitið og
hlaut hann smávægiiegan áverka.
Nú varð maðurinn alveg trylt-
ur. Rjeðst hann með feikna heift
að ráðherranum. En ráðherrann
gat komið á manninn höggi og
gert hann óskaðlegan. Kom svo
lögregluþjónn þarna að og tók
hinn geðbilaða mann.
Maður þessi hefir lengi verið
geðbilaður og oft verið sjúkling-
ur á Kleppi. Hann hefir fengið
bata á milli og þá verið hjer í
bænum. Hann var í gær fluttur
á Klepp.
Á dansleik knattspyrnufjelags-
ins Valur í Oddfellow í kvöld sýn-
ir frk. Elly Þorláksson listdans;
Ágúst Bjarnason og Jakob Haf-
stein syngja „Gluntarne“.
Mikll aðsókn
að kvöldvðku
blaðamanna
Pað verður margt um manninn
á kvöldvöku blaðamanna að
Hótel Borg í kvöld, og ekki síst
fyrir það, að takmarka verður að-
gang, svo að ekki verði of fult í
sölum veitingahússins.
Má heita að búið sje að selja
alla aðgöngumiða, en nokkuð er
ósótt af pöntuðum aðgöngumiðum.
Verður að sækja pantanir allar
fyrir hádegi, á afgreiðslu Morgun-.
blaðsins og Fálkans.
Aðsóknin er sýnu meiri nú en
var á fyrstu kyöldvökuna, en þá ;
urðu því miður margir frá að
hverfa.
Kvöldvakan hefst stundvíslega
ldukkan 9. Blaðamannaf jelagið
hefir gert þá samninga við Hótel
Borg, að engin borð verða tekin
frá, því ætlast* er til að menn
mæti það tímanlega, að hver geti
valið sjer borð. Það hefir oft vak-
ið óánægju, sem kunnugt er, að
frátekin borð standa auð fram
eftir ltvöldi, á meðan fólk, sem
komið er á tilsettum tíma, stendur
hópum saman og hefir engin sæti.
Reynt að jafna
deíítir
Tvær nefndir hafa verið skip-
aðar, sem fjalla eiga um
mál varðandi deilur Rússa og
Japana um landamæri Mansjú-,
kuoríkis og Ytri-Mongólíu.
Bellmans-
hljómleikar
á sunnudag
----- -v
Karlakór Iðnaðarmanna gengst
fyrir Bellmans-hljómleikum
í Gamla Bíó n.k. sunnudag í tilefni
af því, að þann dag eru 200 ár lið-
in frá fæðingu þessa vinsæla ’6g'
víðfræga söngvaskálds.
Aðalræðismaður Svía hjer á
landi, Otto Johansson flytur ræðu
við þetta tækifæri. Söngstjórj er
Páll Halldórsson, en Carl Billieh
annast undirleik á píanó.
Sungnir verða margir af vinsæl-
ustu söngvum Bellmans.
Það er vel til fundið hjá Karla-
kór Iðnaðarmanna að halda minn-
ingu Bellmans á lofti.
Aðalfundur
Fiskifjelagsins
Aðalfundur Fiskifjelags íslands
var haldinn í gær í Kaup-
þingssalnum/.
Á fundinum gaf Kristján Bergs-
son forseti skýrslu um störf fje-
lagsins á liðna árinu. Dr. Þórður
Þorbjörnsson gaf skýrslu um
rannsóknarstörf á vegum fjelags-
ins. Einnig gaf Þorsteinn Lofts-
son vjelfræðingur skýrslu.
Þá voru rædd ýms mál. Sigurð-
ur Kristjánsson alþingismaður
talaði um tvö frumvörp, sem
hann mun bera fram á Alþingi, en
það er um breytingu á vitalögun-
um. og jöfnunargjöld aflahluta.
Var þessum máluin vísað til að-
gerða Fiskiþingsins, sem kemur
saman hjer í bænum 16. þ. m.
Kartöflubirgðir
nægilegar til neyslu
og útsæðis
Meiri kartöflur
i mafinn!
HVAÐ líður kartöfluútsæði til vorsins? spurði
blaðið Árna G. Eylands forstjóra Grænmet-
isverslunarinnar í gær.
— Sú nýlunda hefir gerst, segir hann, eftir því sem
skýrslur herma, að kartöfluuppskeran í haust hefir orðið
svo mikil, að við þurfum á engum innfluttum kartöflum
að haldai.
Það sýnist vera alveg víst, að uppskeran hafi alls orðið 120
—130 þúsund tunnur. Og það er meira, en notað hefir verið í
landinu undanfarin ár til neyslu og útsæðis. Rjettu lagi ættum
við að nota eina tunnu á mann til fæðis á ári. En menn hafa gisk-
að á, að neyslan hafi að jafnaði ekki orðið meiri á mann en 50
—60 kílógrömm.
Eftir því þyrftum við að auka kartöfluátið um ein 40%, til
þess að nota upp þær kartöflubirgð.ir sem eru í landinu.
— Hefir Grænmetisverslunin
ekki keypt kartöflur af síðustu
uppskeru?
— Jú, við keyptum í haust
einar 3000 tunnur. Þær kartöfl-
ur liggja að mestu óseldar. Eng-i
in eftirspurn eftir þeim, eða þörf
fyrir þær í matvöruverslanir. —
Svo mikið sem flyst til bæjarins
af kartöflum úr sveitunum jafn-!
óðum og verslanirnar þurfa á
þeim að halda. Engin ástæða til
þess að fara að selja þessar
birgðir í samkepni við framleið-
endur, meðan flutningur á kart-
■öflum til bæjarins nægja til
neyslunnar.
Norður á Akureyri liggja, að
jeg hefi heyrt, einar 10 þúsund
tunnur óseldar af kartöflum. —
Þeir eru þar nyrðra orðnir óþol-
inmóðir að koma þeim ekki út.
En í Eyjafirði hefir kartöflu-
framleiðslan aukist ,alveg gíf-i
urlega mikið á síðustu árum.
Annars verða menn að taka
tillit til þess, hve tíðarfar var
óvenjulega hagstætt í sumar og
kartöfluuppskeran þess vegna
svona mikil. Ef við eigum yfir.
leitt að geta haft árvissu fyrir
því, að hafa nægilegan kartöflu-
forða handa þjóðinn.i i hvaða ári
sem er, þá verður framleiðslan
að vera langt fram yfir það sem
fer til manneldis og útsæðis í
bestu árunum. Þá verðum við
að nota ljelegustu kartöflurnar
þil skepnufóðurs. Þessu kunna
menn illa, eru því ekki vanir,
þykja kartöflurnar of dýrar til
þess að nota þær á þann hátt.
En ekki er lag á þessu hjá
okkur, fyr en aðeins bestu kart-
öflurnar verða notaðar til
manneldis í góðu árunum og úr-
kastið til skepnufóðurs.
— Er ekki hætt við, að tals-<
vert af þeim birgðumí sem í
landinu eru skemmist fyrir vor-
ið, og útsæði verði ekk,i sem
best fyrir hendi, þó mikið verði
til af kartöflum frá haustinu?
— Það má vitaskuld búast við
því, að allmikill úrgangur verði
úr kartöflunum í vor. En erlenda
útsæðið, sem keypt hefir verið
til landsins á stíðustu stundu
undanfarin vor, hefir ekki held-
ur verið gallalaust. ,
Annars væri náttúrlega æski-
legt að sem mest af góðum út»
sæðiskartöflum geymdist tU
vorsins, því nú ríður á að ekki
verði dregið úr kartöfluræktinni
að sumri; því þó eitthvað kunni
að ganga treglega út af kartöfl
um frá síðastliðnu sumri, má
vera að flutningateppa og hátt
verðlag á kornvöru kenni okk-
ur betur næsta vetur að auka
kartöfluneysluna að miklum
mun frá því, sem verið hefir.
Samúðarskeyti frð
ÞjÉðræknisfjelaginu
til ættingja
dr. fíognvaldar heit.
Pjeturssonar i
Stjórn bins nýstofnaða Þjóð-
ræknisfjelags lijer í Reykja
vík sendi í gær ættingjum dr.
Rögnvaldar heitins Pjeturssonar
svohljóðandi samúðarskeyti:
„Hugir Islendinga fyllast harmr
og söknnði við fráfall dr. Rögn-
valdar. Virðing og þakklæti mun
ávalt fvlgja minningu hins fallnÚ
foringja, fyrir fórnfýsi hans og
afrek í þágu íslenskrar menning-
ar og þjóðrækni. Vottum ástvin-
um hans innilegustu samúð“.
Stjórn Þjóðræknisfjelags
íslendinga.
Jónas Jónsson. Ásgeir Ásgeirsson.
Thor Thors.
Björgtin í stríðí
Frá því er styrjöldin byrjaðl
hafa sjómenn á breskum
skipum bjargað 1300 mannslíf-
um, þaraf 733 í janúarmánuðl
■íðastljðnum. FtJ