Morgunblaðið - 08.02.1940, Síða 8
É
Fimtudagur 8. febr. 1940L
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimtimiiiii
Síöari hluti Litla píslarvottsins
Síðasla afrek rauðti akuriiljunnar
Augnabliki síðar voru þeir
Heron og Chauvelin augliti
til auglitis við fangann.
Var það fyrir tilviljun, eða með
vilja gert, að lamþinn var settur
þannig, að birtan f jell beint í and-
iit þeirra fjelaga, er þeir gengu
inn, en á fanganum var skuggi?
Hann sat álútur með báða olnbog-
ana fram á borðirtu, en var að
fikta með mögru og fíngerðu fingr
anum við pennann og blekbytt-
nna, sem hafði verið sett á borðið
Syrir framan hann.
„Jeg vona, að alt hafi verið
gert eins þægilegt fyrir yður og
kostur var á, Sir Perry?“ sagði
Chauvelin spyrjandi, um leið og
lítið hæðnisbros sást á vörum
hans.
„Já, þökk, herra minn“, svar-
aði Blakeney kurteislega.
„Jeg vona, að þjer sjeuð styrk-
ai'i og hressari?“
„Já, mjög svo, fullvissa jeg yð-
Ur um. En svefninn sækir altaf
fast á mig; jeg verð þessvegna
að biðja yður að ljúka erindinu í
sem stystu máli“.
„Þjer hafið ekki breytt um
*koðun?“ sþurði Chauvelín, og
|»að mátti merkja nokkurn óstyrk
í röddimii, sem hann þó reyndi að
fela.
„Nei, kæri herra Chauvelin, jeg
hefi ekki breytt um skoðun“,
svaraði Blakeney rólega, en á-
kveðið.
Ánægjan skein út úr báðum fje->
lögunum. Fanginn talaði nú
greinilegar og styrkara en áður;
og þótt maturinn og vínið hafi
aukið þrótt hans^ var sýnilegt, að
öll þrjóska var horfin. Eftir
augnabliks þögn hjelt Chauvelin
áfram:
„Eruð þjer tilbúinn að fylgja
okkur á staðinn, þar sem Capet
litli er falinn?“
„Jeg er reiðubúinn að gera alt,
til þess að sleppa út úr þessu
hræðilega húsi“,
„Það er ágætt. Fjelagi minn,
4leron borgari, hefir til taks flokk
manna, tuttugu talsins, sem allir
Eftir Orczy baronessu
eru valdir hermenn, og eiga þeir
að fylg.ia okkur þangað sem þjer
segið til. Skiljið þjer mig?“
„Já, fullkomlega, herra minn“.
„Þjer megið ekki láta yður eitt
augnablik koma til hugar, að við
ætlum á móti áð gefa yður frelsi,
jafnvel þótt ferðin beri tilætlað-
an árangur“.
„Jeg mundi aldrei voga mjer að
koma með svo heimskulega uppá-
stungu“, svaraði Blakeney rólega.
Chauvelin leit nú skörpum
augum til fangans. Það var
hljómur í röddinni, sem hann gat
ekki felt sig við, eitthvað sem
minti á kvöldið forðum í Calais.
Hann sá ekki í augu fangans og
sneri þessvegna lampanum í
skyndi, svo að ljósið fjell á andlit
hans.
„Ójá, það fer víst betur þannig,
kæri herra Chambertin“, sagði Sir
Perey og leit brosandi til and-
stæðingsins.
Enda þótt. andlit fangans væri
jáfn öskugrátt og áðúr, viftist
fullkomin ró yfir svip hans. Eftir
stúúdarþögn hjelt Chauvelin á-
fram:
„Ef hinsvegar ferð okkar fær
farsælan endir — ef við getum
náð Capet litla í okkar hendur án
verulegs erfiðis fyrir okkar menn
— og ef þeir hlutir, sem jeg mun
nú brátt segja yður, fara að okk-
ar óskum — þá get jeg eltki sjeð,
Sir Perry, hversvegna stjórn þessa
lands skyldi ekki nota vald sitt
til þess að sýna miskunnsemi
gagnvart yður“,
„Yald, kæri herra Chambertin,
sem hlýtur að vera æði úr sjer
gengið, vegna þess hversu imjög
það hefir verið notað“, svaraði
Blakeney með sama óhagganlega
brosinu.
„Þessi möguleiki er í augnablik-
inu mjög fjarri. — — Þegar sú
tíð kemur munum við tala um það
mál.------ Jeg lofa engu, en við
getum í öllu falli rætt þetta síð-
ar“.
„Yið eyðum bara okkar dýr-
mæta tíma nú, im.eð því áð vera
að tala um þessa smámuni . . . Ef
þjer viljið hafa mig afsakaðan —
— jég er svo yfir mig þreytt-
ur------“.
„Þá er jeg þess fullviss, að þjer
munuð helst kjósa að fá alt klapp-
að og klárt sem fyrst“.
„Já, það vil jeg, herra minn“.
Heron tók engan þátt í þess-
um viðræðum. Hann vissi,
■ að hann mundi hafa átt erfitt imeð
að stilla skap sitt. Og þótt hann
fyrirliti kurteisi f jelaga síns, varð
hann að viðurkenna, að sennilega
væri heppilegra, að Chauvelin
ræddi við Englendinginn. Það
myndi altaf vera hætta á, að reið-
in næði þeim tökum á honum, að
hann á elleftu stundu gæfi fyrir-
skipun um, að þessi ósvífni Eng-
lendingur yrði leiddur undir fall-
öxina, eftir stutta yfirheyrslu.
Með því myndi glataður eini
möguleikinn til margfalt stærri
veiði.
Hann sat á stólnum, samanrek-
inn, með höfuðíð fallið niður milli
axlanna og horfði til skiftis á fje-
laga sinn og andstæðinginn.
En nú heyrðist skyndil^ga frá
lionum hljóð, sem gaf vott um
óþolinmæði.
„Við förum illa með tímann,
‘Chauvelin borgari“, muldraði
hann. „Jeg á mikið ógert enn, ef
við eigum að komast af stað með
birtingu. Fáið bölvað brjefið
skrifað, og----------“.
Meira heyrðist ekki, aðeins
muldur, sem enginn skildi. Chau-
velin ypti öxlum og hirti ekkert
um, hvað fjelagi hans sagði. Hann
leit enn vingjarnlega til fangans.
„Það gleður imig að sjá, Sir
Percy, að við skiljum hvorn ann-
an fullkomlega“, sagði hann. „Jeg
veit, að þegar þjer hafið fengið
'TBBxT nTU^i^LbTlhc^p^UJ,
Innheimtumaður einn hefir sagt
danska blaðinu B. T. eftirfarandi
Kögu:
— Jeg átti að innheimta reikn-
ing hjá frú einni á Austurbrú.
Jeg var í sjerlega góðu skapi og
í einhverjum galsa hringdi jeg á
dyrabjölluna tvisvar sinum stutt
<»g einu sinni langt.
Auglabliki síðar voru dyrnar
npnaðar örlítið og konurödd sagði:
„Þjer er óhætt að koma inn, Ad-
«lf“.
Það er ekki Adolf, svaraði jeg,
Iieldur reikningur.
Dyrnar voru nú opnaðaí* upþ á
gátt og jeg sá framan í frúna
sjálfa, en röddin var ekki sem
blíðust er hún sagði:
„Reynið að hypja yður á brott
sem bráðast, og næst þegar þjer
komið vil jeg biðja yður að
hringja kurteislega á dyrabjöll-
lina!“
★
Passíuleikarnir í Oberammergau
áttu að fara fram að sumri, en nú
hefir þeim verið frestað vegna ó-
friðarins. Þessi ákvörðun hefir
orðið til þess, að rakarinn í Ober-
ammergau hefir fengið nóg að
sýsla. Karlmejmirnir eru vanir að
láta sjer vaxa skegg vegna leik-
anna, en nú eru þeir kallaðir til
herþjónustu og þá eru þeir neydd-
ir til að raka sig. Aðeins Alois
Lang, sem leikur lilutverk Krists
í passíuleikunum, hefir fengið
leyfi til að lialda sínu skeggi.
★
John A. Wilson í Texas dó ný-
lega 94 ára, sem ekki þykir neitt
sjerstakt út af fyrir sig. En það
einkennilega var það, að hann
hafði barnatennur er hann dó —
allar heilar og óskemdar.
★
Ástralskur teiknari, Zexiis að
nafni, teiknaði á dögunum mynd
af sjálfum sjer á pappírsblað.
Hann hló svo mikið að myndinni
að það varð hans bani. Hann fjekk
hláturskrampa. Áströlsk blöð
gerðú mikið veður iir þessu.
★
Dómarinn: Kærandinn heldur
því fram, að þjer hafið slegið
hann fimm löðrunga.
Ákærður: Það er ekki rjett.
Þetta var venjulegt kjaftshögg,
en vegna þess að maðurinn var
veiklulegur skifti jeg því í fimm
smáskamta.
★
Þegar Englendingur verður
sköllóttur eyðir hann stórf je í hár-
meðul — en þegar Skoti verður
sköllóttur selur hann greiðuna sína
og hárburstann.
★
— Þjer eruð fullkominn asni,
piltur minn. Yður vantar bara
hornin!
— Asnar hafa ekki horn.
— Nú, jæja, þar getið þjer sjeð.
Það er enginn munur á yður og
asna.
nokkurra tíma svefn, munuð þjer
vera tilbúinn að leggja úpp í ferð
ina. Viljið þjer vera svo góður mð
segja mjer, í hvaða átt við eigum
að halda?“
Framh.
1.0.-G. T.
ST. FRÓN NR. 227.
Fundur í kvöld kl. 8. — Dag-
skrá: 1. Upptaka nýrra fjelaga.
2.* Kosning embættismanna. 8.
Ársfjórðungsskýrslur embættis-
manna og nefnda. 4. Vígsla em-
bættismanna. 5. Skipun nefnda.
6. Kosning kjörmanna. — Hag-
skrá: a) Einleikur á píanó. b)
Tvísöngur. — Að loknum fundi
hefst kynningarkvöld, undir
stjórn hagnefndar. Fjelagar eru
beðnir að taka með sjer spil og
tafl. — Reglufjelagar, fjöl-
mennið og mætið í kvöld kl. 8
stundvíslega.
BÝLI ÓSKAST
til leigu í vor við Reykjavík.
Upplýsingar í síma 4697.
GRASBÝLI
í eða við bæinn óskast leigt. Til-
boð sent á afgreiðslu blaðs.ins
fyrir þriðjudag, merkt: „Gras-
býli“.
DÖMUR, TAKIÐ F.FTIR!
Saumanámskeið byrjar föstu-
daginn 9. febrúar. Get bætt við
nokkrum dömum. — Upplýsing-
ar í síma 1987 og 4345. —
N. Áberg.
LÁN ÓSKAST
3—4 þús. gegn góðri tryggingu.
Þeir, sem vilja sinna þessu,
leggi nafn sitt í umslag á afgr.
Morgunblaðsins fyrir 18. þessa
mánaðar, merkt: „Lán“. Þag-
rnælsku heitið.
í KVÖLD KL. 81/2
talar síra Garðar Svavarsson á
á fundi í K.F.U.M. Allir karl-
menn eru velkomnir.
AÐALFUNDUR
Kristniboðsfjelags kvenna verð-
ur fimtud. 15. þ. m. á venjul.
stað og tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
í kvöld kl. 8I/2: Söng- og
hljómleikasamkoma (Barnaleik-
sýning). Majór Sannes stjórnar.
Fjölbreytt efnisskrá, inng. 25 au
— Allir velkomnir!
FILADELFIA,
Hverfisgötu 44. Samkoma í
kvöld kl. 81/2 Eric Ericson og
Jónas Jakobsson tala. Allir vel-
komnir! 1
Jt2
ÁRABÁTUR
með 10—11 feta kjöl óskast
keyptur. Uppl. í síma 4594.
MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR
keypt daglega. Við sækjum-
Hringið í síma 1616. Laugavega-
Apótek.
ÞORSKALÝSI
frá Laugavegs Apóteki kostar
aðeins kr. 1,35 heilflaskan. Við
sendum. Sími 1616.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela*.
glös og bóndósir. Versl. Aldas-.
sími 9189, Hafnarfirði.
KALDHREINSAÐ
þerskalýsi sent um allan bae. —
Bjöm Jónsson, Vesturgötu 28*
Sími 3594.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðnbt
Guðmundsson, klæðskeri. -—
Kirkjuhvoli.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela*.
glös og bóndósir. Flöskubúðiiw-
Bergstaðastræti 10. Sími 5395*:
Sækjum. Opið allan daginn.
GULRÓFUR
seljum við í heilum og hálfuns
pokum á kr. 5.50 og kr. 3,00
Sendum. Sími 1619.
NÝA FORNSALAN
Kirkjustræti 4, kaupir allskonar*
notaða muni. Staðgreiðsla. Sækj—
um heim.
KOPAR KEYPTUR
í Landsmiðjunni.
SPARTA DRENGJAFÖT
Laugaveg 10 — við allra hæfí
HARÐFISKSALAN,
Þvergötu, selur saltfisk nr. X
2 0g 3. Verð frá 0,40 au. pr
kg. Sími 3448.
£■&>***s_
SNlÐ OG MÁTA
Dömukápur, dragtir, dag
kjóla, samkvæmiskjóla og alls
konar barnaföt. Saumastofan
Laugaveg 12, uppi (inng. frá
Bergstaðastræti). Símar 2264
og 5464.
GÓÐURSTAÐUR
Við eina aðalgötu bæjarins eru*
til leigu 2—3 herbergi, eitt me5
stórum glugga að götunni (búð-
arglugga) mjög hentugt fyrir
klæðskera eða annan fínan
iðnað. Sölubúð fylgir. Tilboðj
sendist blaðinu merkt: „Góður.
staður“.
LfTIÐ HERBERGI
óskast til leigu sem næst mi5-
bænum, helst í nýju húsi. Til-
boð merkt „Miðbær“, sendist.
Morgunblaðinu.
FÆÐI
er selt á Vatnsstíg 4. Stakar.-
máltíðir líka.
íí