Morgunblaðið - 19.04.1940, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.04.1940, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. apríl 1940. MORGUNBLAÐIÐ 3 Sjerstakir Islands- fulltrúar í U. S. A. og Englandi Samningar um beint stjórn- mála- og viðskif tasamband við nokkur ríki Ríkisstjórn Islands stendur í samningum við ríkis- stjórnir Bandaríkjanna og Bretlands, um að komið verði á beinu stjórnmálasambandi og viðskifta- legu sambandi milli þessara ríkja og Islands. Ekki er þessum samningum fulllokið ennþá, en frjettir hafa borist um, að utanríkismálaráðherra U. S. A., Cordell Hull, hafi fallist á þetta, fyrir hönd stjórn- ar Bandaríkjanna. Ríkisstjórnin mun hafa í hyggju að taka upp samninga við stjórnir fleiri ríkja um sams- konar ráðstafanir, og mun þá að sjálfsögðu fyrst verða snúið sjer til þeirra ríkja, sem við höfum mest viðskifti við og viðskiftaleiðir eru opnar til ennþá. Ekki hafa enn verið tilnefndir neinir ákveðnir menn til að taka við þessum nýju stöðum. ★ Danska stjórnin hefir falið sendiherrum sínum og ræðismönnum erlendis að greiða fyrir íslenskum borg- urum, eins og hingað til, fyrst um sinn, á meðan ekki hefir verið gengið frá þeim málum af Islendinga hálfu. Danir buðust til þessa, án þess að tilmæli kæmu um það frá íslensku stjórninni og her að skoða það sem vinar bragð í garð Islands, sem vafalaust mun koma sjer vel fyrir (slendinga, sem staddir eru erlendis og þurfa á aðstoð ræðismanna eða ráðum að halda. Dularfuilur reki (Ólafsfirði Ifyrradag og fyrrinótt rak á f jöru við Ólafsf jarðarkaup tún 7 málmílát eða dunka. Hafa þeir að geyma þykka feiti, sem Ólafsvíkingar telja að muni vera svínafeiti, og vegur hver þeirra um 20 kg. Dunkarnir eru auðsjáanlega komnir frá Brasilíu, og er á þá letrað ártalið 1940. Þeir eru flestir óskesmdir. Samtímis rak tvö járnföt, á stærð við olíuföt. Hafa þau einn ig að geyma feiti, sem er nokk- uð dekkri á lit en dunkafeitin. (PÚ.). Eldsvóði á Langanesi Aðfaranótt hins 17. þ. mán. brann til kaldra kola bær- inn að Brimnesi á Langanesi. Alt hey bóndans, sem áfast var við bæinn, brann einnig. Innanstokksmunir björguðust að nokkru og sömuleiðis mat- væli. Eldurinn kviknaði út frá pípu í torfþekju. (F.tJ). Sameiginleg ís- fisksala útvegs- manna í Eyjum Frá frjettaritara vorum. Vestmannaeyjum. tjórn Útvegsbændafjelags Vest- mannaeyja hefir haft for- göngu eða átt sinn hlut að stofn- un ýmsra þeirra fyrirtækja hjer í bæ, sem drjúgan þátt hafa átt í að gera útvegsmönnum það yfir- leitt kleift að gera út báta sína, svo sem Netagerðarinnar, Olíu- samlagsins o. s. frv. I vertíðar- byrjun var það sýnt, þar eð allir útgerðarmenn vildu selja sem mest af væntanlegum afla í ís, að næg skip myndu ekki verða til að koma aflanum á markaðinn. — Tók þá st.jórn Utvegsmannafje- lagsins fyrir hönd fjelagsins skip á leigu og hefir haft það í fisk- flutningum síðan. Leggja útvegs- menn fisk sinn, þegar hægt er við að koma, upp í þetta skip, er fiskurinn síðan seldur í Eng- landi fyrir útvegsmemi. Hver sala er gerð upp sjerstaklega, og fá útvegsmenn vitborgaðan aflann, eins og hann hefir selt fyrir, að frádregnum kostnaði við að koma honum í söluhæft ástand og á markaðinn, — með öðrum orðum sannvirði. Bíkisskip. Esja var á Raufar- höfn kl. 7 í gærkvöldi. Tííratin að atíka Latíga- veituna Tillaga frá Guð- mundi Ásbjörns- syni Tillaga lá fyrir bæjarstjórnar- fttndi í gær, sem samþyki var með samhljóða atkvæðum, frá Guðmundi Ásbjömssyui, um að flytja í sumar stærri borinn, sem notaður hefir verið á Reykjum, niður að Þvottalaugunuœ, og reyna með honum að auka hita- vatnið í Laugaveitunni. Guðmundur gerði grein fyrir þessari tillögu sinni, og mælti á þessa leið: Þann 9. apríl var heita vatnið úr borholunum á Reykjum orðið 216.4 Iítrar á sekúndn. En vatnið, sem ætlað er til Hitaveitunnar, til þess að hita upp bæinn, er 207 lítrar á 'sekundu, og á það að nægja í 10 stiga frosti. Ómögulegt er annað en líta svo á sagði ræðumaður, að stór hætta er á því, að framkvæmd Ilita veitunnar tefjist. En enda þótt svo yrði ekki, þá er nú sem sagt komið nægilegt vatn þar efra í hina fyrirhuguðu hitaveitu. Þess 'vegna má stóri borinn missa sig þar í sumar. En þannig er frá Laugaveitunni gengið, að hún getur flutt meira vatn til hæjarins en fengist hefir úr Laugunum. Hver sekúndulítri, sem þar fengist til viðbótar, er mikils virði. Kostnaður við að flytja horinn frá Reykjum er hins vegar ekki mikill, og því eðlilegt að vinda að því í sumar að reyna að afla sjer meira vatns við Laug- arnar, þar sem hitavatnið er nú sjerlega verðmætt. Annars hýst jeg við, sagði ræðu- maður, að framvegis verði unnið að borunum á Reykjum, meðan sýnt er að boranir þar auka vatns- magnið að mun. Ibúðarskúr við Undraland brennur ¥ búðarskúr á Kirkjubletti, skamt -■ frá Undralandi, brann í gær til ösku. Var slökkviliðið kallað á vettvang, en ógemingur reyndist að slökkva eldinu, því skúrinn var alelda að innan er slökkviliðið komi á yettvang. Eigandi skúrsins var Ingimund- ur Gíslason. Ekki er kunnugt um eldsupptök. Fallby ssuskolhiíðin á Slavanger Fallbyssuskothríð frá ensku orustuskipi. Pegar bresku herskipin gerðu fallbyssuskothríð á flug- völlinn í Stavanger í fyrradag, var það í fyrsta skifti í sögu breska flotans, sem skipun hefir verið gefin um að gera árás á flugvöll. Flugvöllurinn er nokkra kílómetra frá borginni. Árásin var gerð í myrkri um morguninn og stóð yfir í 80 mínútur. Breskur flugmaður var sendur til þess að aðstoða við skot- hríðina. Flaug hann yfir flugvöllinn og varpaði niður ljós- sprengjum. Það var merki til skyttanna á bresku herskipunum, sem miðuðu bvssum sínum eftir ljósmerkjunum frá flugmann- inum. Þegar herskipin voru lögð af stað heimleiðis náðu þeim þýskar flugvjelar og hæfði ein þeirrá breskt beitiskip með 500 kg. sprengju. Bretar segja að skipið liafi laskast, en hafi þó komist til hafnar, en Þjóðverjar segja að það hafi sokkið. Þjóðverjar segjast hafa laskað mörg herskipin. 150 ný hús bygð í bæn* um s. i. ár íbúðarhús voru bygð hjer í bænum árið 1939, segir í skýrslu byggingarfulltrúa bæjar- ins, Sigurðar Pjeturssonar. Auk þess voru bygð 17 vinnu- stofur eða verksmiðjuhús, 3 gripa- og alifuglahús og 54 geymsluhús og bifreiðaskúrar, eða alls 150 ný hús. Þá var aukið við og endur- bætt mikill sægur liúsa. Langsamlega flest hús, sem bygð voru á árinu, eru steinhiis. Tvö íbúðarhús, hæði 1 hæð, voru bygð úr timbri. 2 vinnustofur eða verk- smiðjuhús úr timbri, 1 gripahús og 6 geymslulms og bifreiðaskvir- ar úr timbri; hin húsin voru öll bygð iir steini. íbúðarhúsin skiftast þannig, eftir því hve margra hæða þau eru: 5 einnar hæðar hús, 62 tveggja hæða og 9 þriggja hæða hús. 14 vinnustofur og verksmiðju hiis einnar hæðar, tvö tveggja hæða og eitt þriggja hæða. Hafí§ Undanfarna daga liafa borist frjettir um að hafíss hafi orðið vart norður af Horni. í gær sáust sundurlausar ís- spangir norður og norðaustur af Horni, um 25 mílur frá landi. Hert á eftirliti meO útlending- urn I bænum Lögreglustjóri hefir skipað svo fyrir, aS allir erlend- ir sjómenn, sem hjer eru stadd ir, skuli vera komnir um borð í skip sín, eða á náttstað, ef þeir búa í landi, fyrir klukkan 9 á kvöldin. Nær þetta til allra erlendra sjómanna, hverrar þjóðar sem þeir eru. Verði vart við erlenda sjómenn á ferli eftir kl. 9 á kvöldin, mun lögreglan gera ráðstafanir sínar gegn þeim. Ýmsar sögur hafa gengið um bæinn um viðbúnað og örygg isráðstafanir lögreglunðar vegna hins alvarlega ástands, sem nú ríkir um alla álfunar ep þær sögur um þetta munu vera allmikið ýktar, að því er lögreglustjóri skýrði blaðinu frá í gær. Ein sagan er t. d. sú, að lög reglustjóri hefði gert boð fyrir alla Dani, sem búsettir eru hjer í bæ og sem hafa lokið her- þjónustuskyldu í danska hern- um. Þessi saga hefir ekki við nein rok að styðjast. Hinsvegar bauð einn danskur maður, sem verið hefir um tíma í danska hernum, lögreglustjóra aðstoð sína, ef hann þyrfti á henni að halda, en lögreglustjóri sá ekki ástæðu til að þiggja boðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.