Morgunblaðið - 21.04.1940, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.04.1940, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 21. apríl 1940. Her Bandamannaátveim stöðum milii Bergen og Þrándheims Við mikilvægar samgönguæðar Elverum og Hamar sagðar fallnar í hendur Þjóðverjum PÓTT ÞRIÐJA TILKYNNING breska hermála- ráðuneytisins um landsetning breskra her- manna í Noregi, sem birt var í gær, gefi í jafn litlar upplýsingar og hinar fyrri um það, hvar her- * liðið hafi verið sett á Iand, verður þó ráðið af öðrum fregnum, að Bandamenn hafa nú her skamt fyrir norðan Bergen og við tvær mikilvægar samgönguæðar, bæði fyrir norðan og sunnan Þrándheim. Að norðanverðu er herinn við járnbráutina frá Namsos til Þrándheims, en að sunn- anverðu — og það varð ekki kunnugt fyr en í gær — við Raumsdals-járnbrautina, sem greinist efst í Guðbrands- dalnum út frá aðaljárnbrautarlínunni frá Osló til Þránd- heims. *f. r '■> 54 ORÐ 1 tilkynningu breska hermálaráðuneytisins segir að- eins, að hernaðaraðgerðir í Noregi gangi samkv. áætlun, að franskt herlið hafi verið sett á land, og að Bandamenn hafi náð á sitt vald nokkrum mikilvægum stöðum, Það vekur nokkra áthygli, hve fáorðar tilkynningar hermála- ráðuneytisins eru, þar sem með þessari þriðju tilkynningu hefir ráðuneytið látið frá sjer fara aðeins 54 orð um land- setningu breska og franska hersins í Noregi. Þetta hefir vakið mikla óánægju, sem kom fram í sumum Lundúnablöðunum í gær, en sú skýring er gefin á þessu, að nauðsynlegt sje að halda einstökum atriðum um landtökuna leyndum eins lengi og kostur er fyrir Þjóðverjum. En fregnin um að Bandamenn hafi sett her á land viS Raumdalsfjörð, í Andalsnes, kemur frá þýskum heimildum. I tilkynningu þýsku herstjórnarinnar í gær segir að þýskar hernaðarflugvjelar hafi gert loftárás á bresk herskip og herflutningaskip í Raumdalsfirð. inum og sökt bresku beitiskpii, sem varð fyrir 500 kg. sprengju. Einnig höfðu — samkvæmt tilkynningu herstjórnarinnar — margar sprengjur hæft 15 þús. smálesta herflutningaskip og kviknaði í því. Telja Þjóð- verjar að skipið hafi verið gert ósjófært. En búið var að setja hermennina á land úr skipunum, þeg- ar árásin var gerð. í tilkynningunni segir að árangursrík loft- árás hafi verið gerð á herbúðir Bandamanna í Andalsnes við Raumdalsfjörðinn. ÁRÁSIR Á HERFLUTNINGASKIPIN Bretar staðfesta í tilkynningu, sem breska flotamálaráðu-J neytið gaf út í gær, að Þjóðverjar hafi undanfarna tvo dagí gert ítrekaðar árásir á herskip þeirra og herflutningaskip, og aukið þessar árásir í gær, en segja afdráttalaust að ekkert tjón hafi verið unnið í þeim. Aftur á móti segjast Bretar h'afa skotið niður þýskar flugvjelar. Skeyti, sem barst frá einu herskipinu í hinum „þogla flota“ Breta við Noreg í gær, hefir verið birt og hljóðar það svo: „Loftárás gerð á okkur aftur, hefi skotið hann niður“. Þótt fregnin um Iandsetning bresks eða fransks hers í Andalsnes við Raumdalsfjörðinn sje nú langsam- lega mikilvægasta, sem enn hafi borist um hernaSar- aðgerðir Breta í Noregi, þá er þó ekki síSur mikil- vægt, ef sú fregn reynist sönn, sem birt var í Stokk- hólmi í gær, aS hersveitir Bandamanna hefSu veriS settar á land viS Lærdal viS Sognfjörðinn, skamt fyrir norSan Bergen. ■FallhlífarliD- Þjóðverja 9 f * jóðverjar eru sagðir hafa sent fallhlífarherlið (þ. e. herhð, sem landsett er úr flugvjelmn með fallhlífum, vegna þess að flugvellir eru ekki fyrir hendi) á nokkra mikilvæga staði, til að hefta sókn Bandamanna eftir Raumsdalsbrautinni og frá Lærdal við Sognfjörðinn. Málmsöfnun, afmælisgjöf til Hitlers FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU Snemma í gærmorgun fóru yf- irmenn landhers, sjóhers og lofthers Þjóðverja, Göring mar- skálkur, von Brauchitsch, hers- höfðingi og von Raeder stórað- míráll, á fund Hitlers til að óska honum til hamingju á fimtugasta og fyrsta afmælisdegi hans. Gör- ing tilkynti Hitler, að hvatning hans til þjóðarinnar um að safna málmi og láta það vera afmælis- gjöf hennar til foringjans, hefði fengið góðar undirtektir. Síðar í gær fóru ráðherrar og aðrir samverkamenn Hitlers á fund hans til að árna honum heilla. f skeyti frá Berlín segir, að Hitler hafi haldið daginn hátíð- legan í hópi hernaðarlegra og pólitískra samverkamanna sinná. von Falkenhorst, yfirhershöfð- ingi þýska innarásarhersins í Nor- egi, hjelt daginn hátíðlegan með því, að birta ávarp til norsku þjóðarinnar, þar sem öllum, sem fram tjl þessa hafa haldið holl- ustu við norsku stjórnina (stjóru Nygaardsvolds) er heitið fyrir- gefning, ef þeir hverfi nú frá villu síns vegar og taki upp samvinnu við Þjóðverja. En hinsvegar er þeim hótað með „engri miskunn", sem halda áfram að vinpa með stjórn sinni, gegn Þjóðverjum. 1 Englandi er mikið veður gert út af þjóðrjettarbroti, sem Þjóð- verjar eru sagðir hafa gerst sekir um, með því að neyða norska bifreiðastjóra til að aka með þýska hermenn til vígstöðvanna ,alla leið fram' í fremstu víglínu, þar sem þeir hafa orðið fyrir skothríð samlanda sinna. Bretar og Frakkar tjá Itölum ósk sína um „góða sambúð“ En Júgóslafar eru viðbúnir MUSSOLINI flytur ræðu af svölum Palazzo Venezia-hallarinnar í Rómaborg í dag. í ræðu þessari mun hann e. t. v. gera grein fyrir fyrirætlunum ítala í utanríkismálum, bæði gagnvart Balkanþjóðunum og gagnvart þeim þjóðum, sem hafa hagsmuna að gæta í Miðjarðarhafi. í ræðu, sem JCvetkowitsch forsætisráðherra Júgóslafa flutti í gær, lýsti hann yfir því, að Júgóslafar myndu verjast öllum tilraunum, sem gerðar kynnu að verða til að rjúfa hlutleysi þeirra. En hann sagði, að þeir vildu vinsamlega sambúð við alla nágranna sína. Samskonar óskir um góða sambúð við ítali, komu fram bæði í Frakklandi og Englandi í gær. Barðttan gegn „Quisling- unum“ Dr. Stoyadenowitsch fyr- verandi forsætisráðherra Júgóslafa hefir verið gerður út- lægur til smáþorps eins í Ser- bíu. Verður hann þar undir eft- irliti hins opinbera. En bróður hans, sem var eig- andi júgóslafneska stórblaðsins ,,Ureme“, hefir verið handtek- inu. Báðir þessir menn eru miklir Þjóðverja- og Ítalíuvinir. í Svíþjóð var í gær gerð húsleit í aðalbækistöð nasista í Stokkhólmi og blað nasista, er átti að koma út í gær, gert upp- tækt. 1 Hollandi hafa kunnir nas- istaforingjar, þ. á. m. þingmað- ur í hollenska þinginu, verið handteknir. Roosevelt ekki I kjflri ? Frá Washington hefit- borist fregn um það, að Roosevelt hafi tilkynt opinberlega, að hann muni ekki gefa kost á sjer við næstu kosningar. (FÚ.). 1 París flutti Poul Reynaud forsætisráðherra ræðu á fuiidi utanríkismálanefndar öldunga- deildarinnar, þar sem hann ljet m. a. svo um mælt, að þótt ítalir hefðu fram til þessa virt að vett- ugi alla viðleitni Frakka til þess- að koma til leiðar með samningum friðsamlegu sam- komulagi um öll deilumál í sambandi við Miðjarðarhafið, þá væri það stefna Frakka að halda áfram að vinna að þessu marki. Hann sagði, að það væri ósk Frakka að geta lifað í góðri sambúð við ítali, og að þeir litu svo á að það væri brýn nauð- syn fyrir báða aðila, að frið- ur hjeldist í Miðjarðarhafinu. Afstaða Breta. í Englandi flutti Mr. Hugh Dalton, einn af foringjum sósíat- ista, ræðu í gær, þar sem hann sagði, að Bretar óskuðu þess að halda vináttu ítala. Hann kvað óvissu ríkjandi um afstöðu ítala og það væri skylda Breta að tala skýrt og skorinort. Vjer eigum í stríði við Iíitler og nazismann, sagði Dalton, en vjer munum ekki leggja á flótta undau neinuui bandamanni, sem Hitler kynni að fá. — Dalton kvaðst unna Ítalíu og kvaðst aldrei gleyma hugprýði og hreysti ítala, sem hann hefði bar- ist með í heimsstyrjöldinni. I mín- pm augum, sagði hann, og Eng- lendinga yfirleitt, væri það miklu meii’a, hrygðarefni að verða að heyja stríð við Ítalíu en Þýska- land. Hann kvoðst vona, að til þess mundi ekki koma, en ef svo FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.