Morgunblaðið - 21.05.1940, Síða 2

Morgunblaðið - 21.05.1940, Síða 2
2 MORGUNBLASIÐ Þriðjudaginn 21. maí 1940. ORUSTA VIÐ SOMME Þjóðverjar eru komnir á hinar gömlu vígstöðvar frá 1916 .Breskt herlið ver Ermarsunds- hafnirnar Lærisveinn Fochs tekur við aí lærisveini Joffres ÞJÓÐVERj AR tilkyntu í gær, að brynvagna- og bifhjólasveitir þeirra væru komnar til víg- stöðvanna, þar sem Somme-orustan var háð árið 1916 við veginn milli Cambrai og Peronne. Hersveit- ir þessar sækja vestur á bóginn frá La Cateau og St. Quentin, en þessar borgir tóku þær á sunnudaginn og stefna, að því er talið er, í áttina til sjávar. Markmið Þjóðverja virðist vera að ná á sitt vald íiafnarborgunum í Norður-Frakklandi, Dunkerque, Ca- lais, Boulogne og syðst borginni Abbeville, við mynni Som- me-fljóts, til að geta notað borgir þessar ásamt hafnar- borgunum í Belgíu og Hollandi sem stökkpall til árásar á England. í síðustu styrjöld hirtu Þjóðverjar ekki um að ná þessum hafnarborgum á sitt vald í fyrstu atrennu, í september 1914, þegar þeim var það e. t. v. mögulegt, og ekki fyr en Banda- menn höfðu eflst svo eftir sigurinn hjá Marne, að þeir gátu varið þær. Síðari tíma hernaðarsjerfræðingar hafa gagnrýnt mjög, að Þjóðverjar skyldu hafa látið undir höfuð leggjast að taka þessar borgir, ekki aðeins út frá því sjónarmiði, að þá hefði verið .auðveldara að ráðast á England, heldur einnig vegna þess, að þeir hefðu með því getað torveldað mjög samgöngur milli Englands og Frakklands, svo að Bretar hefðu átt örðugt með að veita Frökkum hjálp. Bæði þessi sjónarmið munu nú vaka fyrir þýsku hefstjórninni, er hún sendir hersveitir sínar ^frá Meuse í vesturátt til strandar. TANGARHALDIÐ. En síðan kemur þriðja sjónarmiðið, hið herfræði- lega, til greina, en það er að með sókn hinna þýsku her- deilda í Norður-Frakklandi til strandar, er herliði Banda manna í vesturhluta Belgíu stofnað í þann voða, að verða króað inni. Herlið þetta verst ysta, hægri, arm þýsku sóknarinnar, sem enn er í Belgíu, en á nú á hættu að þýski herinn í Frakklandi loki undanhaldsleiðum þess meðan hinn sækir á. T tilkynningu þýsku herstjórnarinnar í gær er þegar talað um að belgiskar og franskar hersveitir, sem verið hafa í Belgíu, hafi reynt að brjóta sjer leið suður á bóginn í gegnum herlínu Þjóðverja milli Maubuege og Valenciennes, en að áhlaupum þeirra hafi verið hrundið. UNDANHALDIÐ. I tilkynningu bresku og belgísku herstjórnanna í gær eri talað um að undanhald herja þeirra til nýrra. stöðva í Belgíu,; haldi áfram, og gangi samkvæmt áætlun, án þess að Þjóðverjum hafi tekist að valda manntjóni í liði þeirra. Það er enn ekki kunnugt, hvar Bandamenn ætli að taka sjer nýjar varnar. stöðvar í Belgíu, en talið að það verði í áframhaldi norður á bóginn, af víglínu þeirra í Norður-Frakklandi. I hernaðartilkynningu Frakka í gær, segir að ekkert sje tíðinda á vígstöðvunum í Belgíu. í Norður.Frakklandi, segir í tilkynningunni, halda Þjóðverjar áfram sókn sinni og að barist sje ákaft vestan við St. Quentin. SOMME-ORUSTAN. Frakkar viðurkenna að Þjóðverjar kunni að vera komnir til Peronne, en segjast enn hafa Cambrai á valdi sínu. Landslagið á milli þessara borga, hinna gömlu Somme-víg- stöðva, er talið vera hentugt til varnar, enda virðast Banda- menn leggja alt kapp á að stöðva sókn Þjóðverja þarna. Fyrir Breta er þetta ekki síst mikilsvert til þess að hindra að Þjóð- verjar komist til strandar. Mikið af breskum skriðdrekum hefir verið dregið saman þarna og telft út í orustuna. Einnig hafa Frakkar teflt þarna fram miklu brynvagnaliði. Weygand. Það var tilkynt í París í fyrra- kvöld, að Weygand hershöfð- ingi hefði tekið við yfirstjórn hers Bandamanna í Frakklandi, í stað Gamelins. Þessi ákvörðun kom öllum á óvart. Weygand, sem talinn er „meist- ari hreyfingarstríðsins“, á nú að stöðva sókn Þjóðverja í Norður- Frakklandi. Weygand var lrægri hönd Fochs (sjá grein bls. 4). FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Marie Gustave Gamelin hershöfð- ingi er 68 árá gamall. Hann var í herforingjaráði Joffres 3 914— 1916 og hefir gegnt ýmsum þýð- ingarmiklum störfum ínnan franska hersins og verið yfirmað- ur herforingjarnðsins í fjölda- mörg ár. Hitler rífur út enn eitt blað Ver- salasamninganna Hitler tilkynti á sunnudaginn, að hjeruðin Eupen, Malme- d3r og Manschan, sem tekin. voru af Þjóðverjum og gefin Beigum með Versalasamningunum, hefðu verið innlimuð í þýska ríkið. Sæta þessí hjeruð annari meðferð, en önnur hjeruð og lönd, sem Þjóðverjar hafa lagt undir sig, vegna þessarar sjerstöðu sinnar, íbúarnir í Eupen, Malmedy og Manchan eru um 60 þús. Churehill býst við innrás i England Þegar stoðugleiki er kom- ino á, á vesturvígstöðvunum'4 Mr. Churchill sagði í ræðu, sem hann flutti á sunnudagskvöldið, að eftir orustuna, sem nú er háð í Frakklandi, myndi hefjast or- ustan um England. „Þegar stöðugleiki er kominn á á vest- urvígstöðvunum, mun meginhlutinn af her þeim, Sem óð yfir Holland, verða sendur gegn voru landi“, sagði Mr. Churchill. Með þessum ummælum ljet hinn nýi forsætisráðherra Breta, skýrt og skorinort í ljós, það sem fyrirrennari hans, Mr. Chamberlain, hafði stundum verið að tæpa á, að árás á Eng- land væri yfirvofandi. Churchill talaði í 11 mínútur og sagði meðal annars: Landsstjóri Htíters í Hollandí að var tilkynt í Berlín á l"-^ sunnudaginn, að dr. Seyss- Inquart hefði verið skipaður lands stjóri Þjóðverja í Hollandi, „til tryggingar opinberu lífi og opin- berri reglu“, eins og komist er að orði. Seyss-Inquart hefir í höndum æðsta vald landsins í öllum mál- um, er ekki snerta hernaðarmál, og gengur næstur Hitler að völd- um. Hann getur beitt fyrir sig hollenskum embættisstofnunum til framkvæmdar stjói’narrekstri sín- um. Yfirforingi þýska hersins í Hol- landi hefir aftur á móti æðsta vald í öllum hernaðarefnum. Hol- lensk lög verða í gildi framveg- is að því leyti sem þau samrým- ast hernámi landsins. Seyss-Inquart mun hafa aðsetur sitt í Haag. Seyss-Inquart kom fyrst við sögu árið 1938, er hann var>gerð- ur að innanríkismálaráðherra I ráðuneyti Schusschniggs, sam- kvæmt kröfu Hitlers. Síðar hjálp- aði dr. Seyss-Inquart til að steypa dr. Schusschnigg. Werner von Heidem- stam látinn Werner von Ileidenstam, rithöf- undurinn heimskunni, andaðist í Svíþjóð í gær. Jeg tala til ykkar, sagði Chur ehill, í fyrsta skifti sem forsætisráðherra á hátíðlegri stundu ættjarðar okkar og þess málstaðar, sem við berjumst fyr ir, frelsisins. I orustu þeirri sem geisar í Norður-Frakklandi, hefir Þjóð- verjum tekist að brjótast í gegn, ekki í gegnum hina raunveru- legu Maginotlínu, heldur í gegn um framhald hennar í Norður- Frakklandi. Brynvagnasveitir þeirra hefðu brotist langt inn í varnarvirkin, og á bak við þær komu fótgönguliðssveitir og á eftir þeim kom síðan meginher- inn. Það er rjett, sagði Churchill, að þessar hersveitir eru nú komnar á bak við víglínu Frakka, en það er ekki síður rjett, að Frakkar eru á bak við þeirra víglínu. Báðir eru þess vegna í hættulegri aðstöðu. Það væri því heimskulegt að neita því, að horfurnar væri al- varlegar, sagði Churchill, en það væri jafn heimskulegt að missa kjarkinn. En jeg hefi þá trú á hinum mikla hæfileika Frakka til ^að ná sjer aftur, og kunnáttu þeirra á gagnsókn, og á hinu óbifanlega þreki breska hers- ins, að hægt muni verða að sigrast á sókn Þjóðverja. Þótt Þjóðverjum hafi tekist að gera skyndi áhlaup með vjelaher- sveitum sínum, inn í varnarlínu Frakka, þá væri það fjarstæða að halda því fram, að mótstaða prýðiléga skipulagðs, þriggja til fjörga miljóna hers, væri þar með brotin á bak aftur. Slíkur her væri ekki bugaður í nokkurra daga, vikna eða FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.