Morgunblaðið - 23.05.1940, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 23. maí 19401
Samkvæmiskjólli
Kjóllinn yst til vinstri hefir á sjer listamannablæ. Loðbryddin Rarnar og sniðið gera það hvort
tveggja að verknm. — Bolerotreyjan (kjóllinn í miðjunni) er altaf í gildi. Bn bakið á þessum kjól
er með sjerst.ökum svip — fellingarnar settar undir þröngt mittisstykki, og enda í ofurlitlum slóða.
— Kjóllinn yst til hægri er skapaður fyrir fagran vöxt og grannan. —
Að þvo blúsur og annað
úr gerfisilki
Borðið salat með báð-
um máltfðum dagsins
Grænt salat.
alat, sem ræktað er í gróður-
húsum og vermireitum, kem-
tir daglega á markaðinn; ennþá
er það ekki þroskað í görðum.
JEn það er dýr fæðutegund; það
jer því nauðsynlegt fyrir alla, sem
hafa yfir garðbletti að ráða, að
rækta salait. Best er að sá því
þkki öllu í einu, heldur 2—3 á
isuwiri, því sje salatið of þroskað
{verður það trjenað og ekki eins
Ijúffengt til matar.
Verðmæti salatsins er ekki fólg-
ið í hitaeiningamagni þess, því í
100 gr. er aðeins 1 gr. eggja-
hvítuefni og 3 gr. kolvetni. Ekki
er salatið sjerlega anðugt af stein-
efnum. En aðal verðmætið er, hve
anðugt það er af a-, b-, e-, og e-
þætiefnum. Salat er oftast borðað
þrátt og er það best, því þá eyði-
leggjast ekki hætiefnin í því, við
matreiðsluna.
Salat má borða á margan hátt,
með alskonar sósum út á. Einnig
fer vel á að hafa það til skrauts
með kjöti og fiski. G'eyma má salat
í nokkra daga með því að láta rót-
ina fylgja höfðinu; láta rótina
vera niðri í köldu vatni og skifta
oft, um vatn.
Salatblöðin eru þvegin hlað fyr-
ír blað og raðað á hvolf í gata-
sigti svo vatnið sigi vel af því.
J>að má ekki kreista eða þurka
jblöðin.
Salat í súrmjólkursósu.
2 salathöfuð eru hreinsuð og
raðað í skál. 1 dl.. af súrmjólk
er þeytt með þeytara þar til hún
er froðukend. Got.t að setja M>
tesk. af sykri í mjólkina. Helt
yfir salatið í skálinni. Það er mjög
Ijúffengt að borða salat með þess-
ari imjólkursósu út á, því súr-
keimur á sjerstaklega vel við salat-
iðið. En með því að nota mjólk,
þarf ekki að hafa sítrónusafa eða
edik. Er ráðlegt að kaupa 1-
af súrmjólk sem svo má geymast
á köldum stað í 3 daga. Hafíð
tappa í flöskunni.
í staðinn fyrir súrmjólk má nota
áfir eða mjóikurafganga, sem hafa
súrnað.
Salat með gúrkum.
1 salathöfuð, Vfc gúrka, 4 matsk.
salatolía, 1 matsk. edik, salt og
pipar.
Gúrkan er þvegiu og skorin í
jbunnar sneiðar. Salatblöðin, sem
eru hreinsuð, skorin í ræmur.
dúrkunni og salatinu er raðað í
skál. Salatolía og edik er þeyti
saman í 5 mínútur, þar í sett
salt og pipar. Sósunni er helt yfir
isalatið, og það borðað með soðn-
xim eða steiktum fiskirjett.um til
kvöldverðar. í staðinn fyrir gúrk-
xir má hafa soðnar kartöflur í
salatið eða h&rðsoðín egg.
Helga Sigurðardóttir.
AUGAÐ hvílist TUICI [
með gleraugum frá I IIILLL
Radisur
Þá verða húsmæður að muna,
að radísur má ekki vanta í
garðinn. Radísunum verður að sá
3—4 sinnum á sumri, því sjeu þær
of stórar, verða þær trjenaðar og
bragðvondar. Radísur úr vermi-
reitum eru nú komnar á markað-
inn.
Radísurnar eru þvegnar úr
köldu vatni, stærstu blöðin tekin
burt, en 2—3 smáblöð látin vera
eftir; raðað í skál eða smáföt.
Einnig má raða radísunum í kring
um mjólkurost á fati. Radísur eru
borðaðar með smurðu rúgbrauði
Sjerstaklega er Ijúffeugt að hafa
mjólkurost ofan á brauðinu. Holl-
ast og best, er að hafa ostsneið-
ina eins þykka og brauðsneiðina.
(Þunt skorinn ostur á ekki að
eiga sjer stað; þess vegna hafa
ostahnífar engan tilverurjett).
H. S.
Barnablejur
úr hinu cvíofna, mjúka blejuefni,
fást nú aftur í
Laugavegs Apóteki.
Blúsur og annað úr gerfisilki
þarf að þvo mjög varlega.
Gerfisilki verður undarlega stökkt
við að vökna, þó að það virðist
annars vera þrælsterkt.
Ef flíkin er mislit má reyna
litinn með jiví, að væta pjötlu af
efninu í köldu vatni og leggja
hana innan í hvítan klút. — Það
má þvo flíkina, þó að hún liti
svolítið frá sjer ’— en ]>að þarf
bara að gerast í flýti. Því er best,
að hafa alt við hendina, áður en
Verndið heilsu barnsins
yðar.
Kaupið kerrupoka frá
Magna.
byrjað er. — Þvottaefnið er sleg-
ið út í vatnið — sem má ekki
þvo upp úr heitara en ea. 25° C. —
Svo þarf að hafa kalt vatn í öðru
fati — tvö stór frotté-handklæði
og edik.
Flíkin er fyrst vætt í köldu
vatni — síðan sett niður í þvotta-
vatnið og kreist varlega upp úr
því — ekki nudduð. — Sjeu blett-
ir er nuddað varlega yfir þá
sápufroðunni með fingrunum. Síð-
an er flíkin skoluð úr köldu vatni
með ofurlitlu af ediki í. Síðan má
skola úr köldu, edikslausu vatni,
svo að lyktin hverfi. Kreistið hana
svo upp — og leggið sem sljett-
asta á annað handklæðið og hitt
ofan á — ef flíkin er mislit, þarf
eitt á milli laga. Svo eru hand-
klæðin vafin, upp og undin var-
lega. ílengið flíkina upp á meðan
hún er að taka sig — en látið
hana ekki lig'gja innan í hand-
klæðinu. Dregið á hana deiga.
MUNIÐ
— að sinnep er vanalega þynt
út með vatni — en eigi að hafa
það með svínakjöti, hrærir mað-
ur það með ediki og ofurlitlu af
sykri.
Sildin
Ogrynni af síld er veidd hjer
við land og flutt til út-
landa. Þar er hún talin kosta-
fæða, enda er hún bæði holl off
ljúffeng.
En þótt við fslendingar veiðum
ósköp af þessari hollu fæðuteg-
und, höfum við Reykvíkingar ekki
tækifæri til að borða hana nema
einstaka sinnum, því að söltuð
eða ný síld er mjög sjaldan fáan-
leg í fiskbúðum bæjarins. En síld
í ediki eða kryddsíld er hægt að
kaupa í kjötverslunum bæjarins,
en verðið er mjög hátt.
Nii fyrir stuttu símaði jeg í 2
stærstu fiskverslanir bæjarins og
bað um nýja síld. Daginn áður
hafði staðið í blöðunum, að síldin
væði uppi hjer í flóanum. Mjer
var svarað í báðum verslununum:
Engin ný síld til! Þá spurði jeg
um saltaða síld. I annari verslun-
inni var hún búin fyrir löngu,
en í hinni voru nokkrar síldar til
á 10 aura st.ykkið!
Hvað á að gera? Húsmæður í
Reykjavík verða að geta keypt
góða saltaða síld eða nýja hvenær
sem er, alt árið, með sanngjörnn
vérði. í raún rjettri ætti að borða
mest af síld af öllum fisktegund-
um. Síld á að vera á borðum í
aðra máltíð dagsins alt, árið um
kríng. N úer nauðsynlegt að borða
rnikið af kartöflum, þar sem nóg
er til af þeim í landinu. Kartöfl-
xir og síld eiga að vera þjóðrjettir
okkar íslendinga. Það er skylda
íslensku húsmæðranna, að koma
því til leiðar að svo sje. Síldin er
okkar hollasta og ágætasta fæðn-
tegund og veiðist ótakmarkað af
henni hjer við land.
Húsmæður segjast ekki geta
skamtað síld, því hún sjé ekki
fáanleg. Fisksalarnir segja, að það
borgi sig ekki að bafa síld, því
svo lítið sje keypt af henni. !Á
þessu þarf að ráða bót nú þegar.
Skora jeg á alla fisksala bæjarins
að hafa salta og nýja síld á boð-
stólum með sanngjörnu verði. Þá
treysti jeg líka húsmæðrunum til
að hafa hana daglega á borðum.
H. S.
MUNIÐ —
— að bayerpylsurnar springa
ekki, ef potturinn er hafður op-
inn.
Bestl
Skóglf áinn
Mýkir leðrið og gljáir
skóna afburða vel.