Morgunblaðið - 23.05.1940, Blaðsíða 7
Fimtudagur 23. maí 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
Minningarorð um
Jðhónnu Eirfksdóttur
Eiríksdóttir, Spítalastíg 4 kjer í
t>æ, er andaðist þ. 16. þ. m.
Hún var fædd í Reykjavík þ.
9. jiiní 1882, dvaldi lijer aila sína
ævi, og átti heimili altaf á sama
«tað í bænum, að Spítalastíg 4.
Foreldrar hennar voru Guðrún
Magnúsdóttir og Eiríkur Magnús-
son, er bjuggu lenggt af sínum
búskap í Reykjavík, að Spítala-
stíg 4, en fluttust til bæjarins úr
Árnessýslu. Voru þau hjónin sam-
taka um iðjusemi og ráðdeild og
búnaðisl vel, þó þau hefðu fyrir
mörgum börnum að sjá.
Jóhanna sál. var gift Jörgen
Þórðarsjmi kaupmanni og eignuð-
ust þau 4 börn, sem öll eru á lífi:
Guðmundur Marino, sem lengi var
starfsmaður við afgreiðslu Eim-
skipafjelagsins í Hull, Óskar, kaup
maður hjer í bæ, Eyþór og Guðný.
Hún var einstaklega atorkusöm og
stjórnsöm, sístarfandi alla ævi, og
lilýfði sjer ekki við vinnu, þó
heilsa hennar, upp á síðkastið,
væri mjög svo þrotin. Umhyggja
iiennar og fórnfýsi gagnvart börn-
um sínum og heimili var alla tíð
til fyrirmyndar og bar vott um
göfugmensku og ríka ábyrgðartil-
finningu. Frændfólki sínu reynd-
ist hún mjög hjálpsöm og vel-
viljuð og kunningjum sínum hinn
ágætasti trygðavinur. Mun nú
imargur sakna Jóhönnu sál., er
naut hjálpfýsi hennar og' trygðar,
og ekki síst hennar nánustu, er
svo mikið hafa mist.
Blessuð sje minníng hennar.
Fr.
Pjetur Magnúsnon..
Kinur B. Guðtntmdsson.
Guðlaugur I»urlákssou.
Síiuar 3602. 3202, 2002.
Austurstræti 7.
Skrifstoftitími kl. 10—12 og 1—6.
000000000000«©0«6fl
Sólskinssápa,
Radion,
Rinso,
Vim-ræstiduft,
Lux sápuspænir.
VillR
Laugsaveg 1.
Útbú: Fjölnisveg 2.
Herstjórnartííkynn-
íng Þjóðvcría
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Frakka og 13,000 Hollendinga
höndum.
Hið nýlega bygða og ram-
gera vígi Neuf Chateau hjá
Liege er fallið, og tókum vjer
þar höndum 12 liðsforingja og
500 óbreytta hermenn.
I gær vann þýski loftherinn
aðallega að árásum á hinn hop-
andi her bandamanna, og varð
mikið ágengt. Auk þess rjeðist
hann á ýmsa flugvelli þar sem
fjöldi flugvjela var fyrir og
varpaði þar niður sprengjum,
sem eyðilögðu flugstöðvarnar og
flugvjelar. Flugvellirnir í Com-
piegne og Kræ brenna.
Fyrir strönd Frakklands var
sökt einu beitiskipi og ellefu
verslunar- og herflutningaskip-
um. — Mörg fleiri skip voru
skemd. Hraðskreiðir bátar
þýska flotans gerðu árás á
frönsku hafnirnar við Ermar-
sund og söktu þar einu hjálp-
arbeitiskipi.
í gær mistu óvinirnir 120
flugvjelar, þar af voru 35 skotn-
ar niður í loftorustum, 14 skotn-
ar með loftvarnabyssum, en
hinar, þar sem þær voru á flug-
völlum. Þjóðverjar mistu tíu
flugvjelar.
í fyrradag gerðu þýskar flug-
vjelar árásir á ensk herskip hjá
Narvik. Þungar sprengjur
hæfðu eitt orustuskip og eitt
stórt beitiskip. Auk þess komu
sprengjur á tvö önnur herskip
og þrjú flutningaskip. Önnur
árás var gerð í gær og hæfðu
þá þungar sprengjur einn tund-
urspilli og eitt herflutningaskip.
í grend við Bergen hafa
Þjóðverjar tekið fimm skip úr
norska flotanum og bætt þeim
við sinn flota.
Hjá Narvik verjast Þjóðverj-
ar enn ofurefli liðs og halda
orustu áfram þar. Þýsku her-
sveitirnar, sem sækja fram
norður frá Þrándheimi, eru
komnar 400 kílómetra norður
fyrir Niðarós og hafa tekið Mo,
og Storfosshei. Tóku þær hönd-
um marga norska og enska her-
menn. Englendingarnir höfðu
lagt á stað að heiman hinn 7.
apríl, verið sendir fyrst til Nar-
vik, en svo þaðan suður til Mo.
1 nótt vörpuðu óvinflugvjelar
niður sprengjum af handahófi
1 suðvesturhluta Þýskalands, og
komu þær flestar niður á víða-
vangi. Engar hemaðarstöðvar
urðu fyrir skemdum. Tvær af
óvinaflugvjelunum voru skotn-
ar niður með loftvarnabyssum.
KOLAMLAN S.f
Símar 4514 og 1845.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Dagbók
I. O. O. F. 5= 1235238'/2 =
Nætxirlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Nætnrvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Trúlofun sína opinberuðu í gær
ungfrú Sigríður Björnsdóttir
(heitins Björnssonar teiknikenn-
ara), Bankastræti 14B og Har-
aldur Gíslason trjesmiðnr, Hverf-
isgötu 86.
Jarðarför Björns Þorsteinssön-
ar hryggnvarðar í Hafnarfirði fór
fram í gær að viðstöddu feikna
fjölmenni. Fjelagar úr skipstjóra-
fjelaginu „Kára“ gengu undir
fána fjelagsins. Fulltrúar Sjálf-
stæðisfjelaganna báru kistuna í
kirkju, menn úr „Kára“ út og úr
f jelaginu Magna inn í kirkju-
garð.
Leikfjelag Reykjavíkur biður
blaðið að vekja athygli á því, að
sýningin á skopleiknum „Stund-
Um og stundum ekki“ byrjar kl.
8% í kvölcj, en ekki 8 eins og
venjulega, og að verð aðgöngu-
íniða er lækkað um 75 aura stk.
Breska togaranum Rifsnes hefir
verið sökt við Engánd, að því er
tilkynt hefir verið í London. Tog-
ari þessi hefir oft verið hjer við
land.
Dettifoss kom frá New York í
gærkvöldi um miðnætti. Hafði
skipið fengið góða ferð. Með skip-
inu voru 17 farþegar. Þar á með-
al voru Sigurður Benediktsson
blaðamaðnr, nngfrú Kristín. Jolui-
son og Hector Sigurðsson, sjóm.
frá Akureyri.
Ótrúlegt — en satt, nefnist rit,
sem er að hefja göngu sína. Ut-
gefandi er Lithoprent (Einar
Þorgrímsson). „Tilgangur ritsins
er að flytja stuttar frásagnir. eft-
ir erlendum og imilendum lieim-
ildum, um kynlega atburði og ein-
kennilegar staðreyndir, sem vitað
er að eru sannar“, segir í formála,
. Margar myndir eru í þessu fyrsta
' héfti, af hinum kynlegu fyrir-
brigðum og eru þær eftir þektan
amerískan teiknara. Utgefandi
segir, að ætlunin sje að láta ritið
koma út vikulega, ef því verður
vol tekið.
Mæðradagurinn er á sunuudag-
inn kemur. Þá v,erða að vanda
seld mæðrablómin og að líkind-
um verða ýms skemtiatriði til á-
góða fyrir sumarstarfsemi mæðra-
styrksnefndarinnar. Eins og nú
er ástatt er það vitanlegt, að þörf
in er ineiri en nokkru sinni ella á
því, að hægt sje að bjálpa mæðr-
um og börnum til að komast burt.
úr bænum í sumar. Þessvegna
munu Reykvíkingar ekki bregð-
ast nú frekar en ella, en leggja
jafn fúslega og áður fram skerf
til hins mjög svo mikla nauðsynju
máls, sem mæðrastyrksnefndm
hefir með höndum.
Útvarpið í dag:
20.25 Gárðyrkjuerindi (Jóhann
Jónasson frá Öxney).
20.45 Einleikur á celló (Þórhallur
Árnason); Nocturno o. fl., eftir
Chopin.
21.00 Frá útlöndum..
Tvær ferðir á dag
kvölds og morgna, austur og að austan.
•Eyrafbakkl og Stoklsejrl
Steindér. símiisso. ~
Rámenar her-
væðast
RJÁR frjettastofur birtu
frjettir um það í gær, að öll-
um heimferðarleyium í rúmenska
hemmn hafi verið frestað, og all-
ir varaliðsmenn hafa aftur verið
kvaddir í herinn.
Talið er, að Rúmenar hafi nú 1.3
miljón manna undir vopnum.
í ítölskum fregnum segir, að
Rúmenar hafi gert þessar ráðstaf-
anir vegna þess að nágrannaþjóð •
ir þeirra hefðu gert hliðstæðar
ráðstafanir.
500 milj. króna
landvarnalánið
í Svíþjóð
Landvarnaláninu, sem boðið
var út í Svíþjóð fjrrir nokkr.
um vikum, hefir verið tekið
frábærlega vel. Lánið var að
upphæð 500 miljón sænskar
krónur.
I gær höfðu einstaklingar og
fyrii'tæki skrifað sig fyrir 225
miljónum króna.
I gær höfðu á aðeins einum degi
horist um 20 milj. krópa.
Móðir okkar og tengdamóðir
GUÐRÚN SIGMUNDSDÓTTIR
andaðist að Vífilsstöðum hinn 22. maí.
Sigmundur Pálmason. Kristinn PáJmason.
Margrjet Gísladóttir. Einbjörg Einarsdóttir.
Jarðarföl móður minnar
MARGRJETAR BJARNADÓTTUR
fer frami föstudaginn 24. maí frá dómkirkjunni, en hefst kl. 3
frá sjúkrahúsi Hvítabandsins við Skólavörðustíg.
Sigmundur Þorsteinsson.
Jarðarför elsku dóttur minnar
GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR
fer fram föstudaginn 24. maí og hefst kl. 11/2 e. h. frá heim-
ili minu, Hverfisgötu 41, Hafnarfirði.
Fyrir mína hönd og annara aðstandenda
Guðrún Árnadóttir.
Ilnnilegar þakkir fyrir hluttekningu við fráfall og jarð-
arför
MORITZ V. ÓLAFSSONAR
verslunarmanns.
Aðstandendur.
Hjartans þakkir mínar til allra þeirra mörgu, er sýndu
mjer samúð og aðstoð við fráfall og jarðcirför mannsins míns
ÞÓRARINS YALDIMARSSONAR.
Sjerstaklega vil jeg þakka samstarfsmönnum hans fyrir hjálp
þeirra og velvild við okkur.
Jórunn S. Daníelsdóttir,
Bárugötu 14.
\