Morgunblaðið - 16.07.1940, Blaðsíða 6
M ORGUN B LAÐIÐ
Þriðjudaginn 16. júlí 1940.
—■
Ur daglega lífinu
„Rusticus“ skrifar um Shellvík og
Náuthólsvík:
Enginn veit hvað átt hefir, fyr en
noist hefir, segir máltækið.
Undanfarin sumur hafa margir þeir
baðgestir, er sótt hafa tii Skerja-
fjarðar sjóböð og sól, haft það mjÖg
á hornum sjer, hvernig sólskýlum
þeim væri hagað, er bærinn hefir
látið setja upp við Shellvíkina, að
þau lægju illa við sól, að þeim væri
illa valinn staður o. s. frv.
En nú, þegar skýlin eru rifin nið-
ur, vegna þess að fyrirsjáaniegt er,
að þau geta ekki komið að notum í
sumar, þá er farið að fjárgviðrast
yfir því, að þau sjeu tekin.
Það er þó ekki til of mikils ætlast
af þeim sem á annaðborð sækja til
Skerjafjarðar, að þeir kynni sjer
hvernig umhorfs er í Nauthólsvík.
Hún er ekki síður góður baðstaður,
en Shellvikin. Þar hefir verið komið
fyrir stórum flotbúkka úti á víkinni,
stigar verið settir við bergið, fyrir
þá sem kynnu a'ð vera helst til iengi
í fjörinni í básunum í víkinni o. s.
frv.
En þetta er gamla sagan. Það sem
bærinn lætur gera, það er vanþakk-
áð, en skammað fyrir það sem van-
gert er.
Að jeg svo tali ekki um umgengni
fólks um opinbera staði og meðferð
á munum almenning... Dæmi um það
er t. d. hvernig farið er með bekki
sem hafðir eru til almenningsnota
á strætum og torgum og í skemti-
görðum, þeir allir rispaðir og út-
krotaðir. En margt fleira því líkt
mætti til tína. H
★
Brjef hefir verið sent blaðinu und-
iskrifað „Margir“, þar sem skorað er
á Morgunblaðið að það beiti sjer fyr-
jr því, að öllum húseigendum í
*Reykjavík og Hafnarfirði sje skrifað
ög skorað á þá að leigja engum
kvenmanni húsneæði, sem „geri sig
Sekan í að hafa afskifti af breska
setuliðinu hjer“. Vilja brjefritararnir
koma því kvenfólki fyrir í sjerstakt
jhús í bænum.
Segir svo í brjefinu: „Hjer er um
svo alvarlegt mál að ræða, að allur
jbærinn logar af gremju út af því,
ihvernig íslenskar stúlkur hegða sjer
jí þessum efnum.
★
Það er vafalaust rjett, að gremjan
er mikil, og því er þessi tillaga
hinna „mörgu“ látin koma fram, m.
a. til þess að sýna hvernig gremjan
!fær alskonar útrás. Því það liggur
I
í augum uppi, að þó siík brjef yrðu
•skrifuð, og þó tilmælin fengju hínar
eindregnustu undirtektir meðal hús-
eigendanna, þá liggur í augum uppi,
að húseigendur allir sem einn geta
ekki sjeð það á öllu kvenfólki, hverri
einstakri stúlku, sem falar eftir hús-
næði, hvaða menn eða hverrar þjóð-
ar menn hún umgengst. Það þyrfti
: j þá beinlínis að auðkenna þær stújk-
ur, sem ekki ættu að vera í húsum
hæfar. Og hver gerir það?
★
Annars er rjett að minnast hjer
á eina tillögu, sem borin hefir verið
i. fram í þessu máli. Ok hún er sú, að
ráðnir yrðu tveir, þrír kvenmenn í
lögregluna, til þess að taka þátt í
eftirliti því, sem lögreglunni er ætl-
að, og að siðferði lýtur.
★
Svo er annað mál, sem líka snertir
bæjarbúa og hermennina, sem vert er
að minnast á, og altof mjög hefir
legið í þagnargildi.
Kvenfólkið er skammað fyrír fram
komu sína. En það er tegund fólks,
sem með framferði sínu setur blett
á þjóð vora, og það eru ósiðlátir
fylliraftar, sem þykjast sýna einhvers
Konar karlmennsku með því að vaða
upp á breska menn með ónotum og
ruddaskap, gefandi það í skyn," hvaða
pólitískum stjórnmálastefnum þeir
fylgi, sem vitað er að eru Bretum
andstæðar. Jj
Þessir menn gléyma því, að það er
skylda okkar Islendinga gagnvart
þjóð okkár og framtíð, að sýna full-
komið hlutleysi gagnvart hernaðar-
þjóðum, hver sem í hlut á. Og strák-
dkapur gagnvart setuliði því, sem
hjer er, sýnir ekkert ánnað en aga-
leysi og ruddaskap og getur engu
nema illu til leiðar komið.
Loitorustur yfír
Ermarstmdí
FRAMH. AF. FIMTU SIÐU.
Dniikerque og mætti'í matsaJunnt
okkat- um kvöldið.
Er við yorum búuir að afgreið;:
þenna lióp af Mes.serf^hmitt 10!)
lent.um við í öðrum»hóp, Messer-
sehmitt 110. Þær geta vissulega
steypt sjer hratt niður á við. Jeg
mán, áð éinu sinni seinni hluta
dags rar jeg að elta éina úr,
15.000 feta hæð og hraðamælir
minn ltafði tvisvar sinnum snúist
heilán hring áður en jeg ákvað
að hætta eftirförinni. -Teg hlýt að
hafá farið hreð 550 mílna hraða
á lclukkustund, feí' jeg Iiætti, en
Ilúninn hjelt áfrain.
Eftir þessa ferð varð j.eg hlind-
ur, fyrst sá jeg gult fyrir augum,
síðan rautt og l.oks varð alt svart.
Maður er við fulla- rænu, en get-
ur þó hvorki sjeð njeheyrt, og
loks þegar birtan kemur aflur,
heyrir maður mótorskröltið mikið
hærra en áður.
Orusturnar yfir Dunkerque vor ,
okkur góður skóli..'Sjálfur held
jeg að fæstir flugmenn Húnannö
sjeu góðir flngmenn. Jeg hefi lent
á örfánm, sem hafa haft ánægju
af lortorustu, en flestir flvja
Þeir kunna bókstaflega ekki sitt
fag og ftkkar vjelar ern ábyggi-
lega betri.
Þeir hafa fjöldann fram yfir
okKur, það er rjett, en í svo að,
segja hverri einnstu • löftörustu,
sferu einhver hraði er í, endar það
pieð eiuvígi.
AUGAÐ hvílist
með gleraugum frá
THIELE
KF LOFTUR GETUR ÞAÐ
k’KKI — — ÞÁ HVER?
KOLASALAN S.Í.
Slmar 4514 og 1845.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Sprauta garða
við kartöflusýki.
Jón Arngrímsson.
Baldursgötu 4. Sími 1375.
I Silfurbrúðkaup |
25 ára hjúskaparafmæli eiga á morgun, miðvikudag 17. júlí,
frú Elísabet Þórðardóttir og Yaldimar Guðmundssou, bóndi i
Varmádal, Kjalarnesi.
Úr Rangár-
valiasýslu
Úr Rangárvallasýslu er
blaðinu skrifað:
Aðfaranótt þess 28. júní gerði
hjer um austan- og pfan-
verða Rangárvelli a. m. k. svo
mikið hvassviðri, að líkast var
mestu vetrarveðrum.
Hjelst veðrið, en aðeins vægara
franiundir kvöld daginn eftir, með
úrkounnhraglanda, svo kýr voru
sumstaðar ekki látnar út fyr en
undir kvöldið og mun það sjahl-
gæft, að kúm sje gefið hey 28.
júní.
Viða skemdust mjög garðar.
Jýófuplöntur og aðrar álíka sner-
ust, upp og sjást ekki, rabarbari
eyðilágðist sumstaðar alveg og
kartöflugrös skemdust mikið, með
Grúðuiinn breyt-
ist á Flóaáveitu-
svæðinu
Steindór Steindórsson kelinan
frá Akureyri er staddur hjer
í bænum. Hánn hefir undanfarna
viku verið austur í Flóa og gert.
athuganir á gróðri áveitusvæðis-
ins. Hann athugaði svæðið fyrst
árið 1930, og gerir nú samanburð
á því, hvernig gróðurinn var þá
og hvernig hann er nú.
I gær skýrði hann tíðindamanni
blaðsins svo frá:
:— Yfirleitt þykir nrjer spretta
áveituávæðisins vera furðaplegá
góð, og þó kvarta bændur undan
því, að hún sje tn.eð lakara móti
í sumar, samanborið við sprettuná
undanfarin ár.
Þurkun áveitusvæðisins hefir
jnikið fariV|ram síðan jeg fór þar
,um sumurin 1930 og 1931. Allvíða
’liafa engjar áveitunnar orðið
greiðfærarí til heyskapar en áður,
dregið úr mýraþýfjnu, og á stöku
stað hafa spildur, sem voru þýfð-
ar, orðið vjeltækar.
Mýrastörin ér ríkjandi fóður-
jurt áveitunnar. En gulstöriu hef-
ir breiðst furðú mikið út á ýinsum
slöðum, én hennar gætti ]>ar ekk-
ert áður, ]>ó hiin væi'i þar til á
stangli. Nú ern komnir allvíða á-
litlegir gulstarartopþar, einkum í
nánd við skurði.
Jeg líki því ekki saman, hve
nijer sýnist engjarnar, sem áveitan
nær til, vera álitlegri en þær voru
fyrir 9—10 árum.
Mikið er það bagalegt, hve fáir
bændur á, áveitusvæðinu hafa sint
því, að athuga heyfeng af he'ktara
engjalands árlegá, svo hægt væri
að fvlgjast með því, hvernig hey-
fallið breytist.
— Hver eru önnur verkefni þín
i sumar?
— Næst fer jeg npp á afrjett
Iíreppamanna og geri þar gróðttr-
■athuganir og fer síðan norður á
Kjöl. Þar vil jeg- koma upp smá-
girðingum í sumar, svo hægt sje
að sjá hve gróðurmagn eða gras-
vöxtur er ]>ar ínikill á friðuðu
landi. Af athugunum á því et'
hægt að giska á, hve tnikið gfóð-
urmagn er á afrjettarlandinu þar,
til grundvallar fyrir álitsgerð uin
]>að, hve mikinn búfjenað haglendi
þetta getur með góðvi móti borið,
án þess að .gróðri sje ofboðið.
Fjelag ungra Sjálí-
stæðismannaíAustur-
Hunavatnssýslu
Síðastliðinn laugardag var
stofnað, á Blönduósi, fje-
lag ungra Sjálfstæðismanna í
Austur-Húnavatnssýslu. Stofn-
endur voru 24 alls, og fulltrú-
ar úr öllum hreppum sýslunn-
ar, nema tveim. Miklar annir,
einkum við heyskap og sjósókn,
öftruðu þó verulega frá fundar-
sókn.
Jóhann Hafstein mætti á
fundinum fyrir hönd miðstjórn-
ar Sjálfstæðisflokksins, ,en Jón
á Akri, alþingismaður, hafði
öðrum fremur undirbúið fjelags
stofnunina, með þeim dugnaði
og áhuga, sem hans er vandi
um öll flokksmálefni.
Fjelagið heitir F. U. S. „Jör-
undur“, en nafngiftin er dregin
af Jörundarfelli, sem er hæsti
tindur í sýslunni, og ber vott
um vonir og óskir ungu mann-
anna, að bera hátt merki sjálf-
stæðisstefnunnar í hjeraðinu.
Er ekki að efa, að Sjálfstæðis-
flokknum verði mikið lið að
þessari virku þátttöku í Austur-
Húnvatnssýsiu í flokksstarfsem
inni.
Stjórn fjelagsins skipa: Torfi
Jónsson, Torfalæk, formaður,
Konráð Eggertsson, Haukagili,
ritari, Gísli Jónsson, Ásum,
gjaldkeri, Ingvar Jónsson,
Skagaströnd, varaform., Stein-
grímur Guðjónsson, Marðar-
núpi, meðstj. Varastjórn: Ottó
Finnsson, Skrapatungu, Einar
Sigurðsson, Litlu-Giljá og Valde
mar Pjetursson, Blönduósi.
„Sjómaðurinn" 2. hefti 1940 er
kominn út. Efni ritsins er m. a.:
„íslenskir fiskimenn í Boston“.
„Æfintýrai'ík för Súðarinnar“,
„Segulmögnuð tundurdufl gerð ó-
virk“, „Saga Eddistone vitaus“,
„Nýtísku togarar með vjelldædd-
um stállestum“, Nýtt sjómanna-
lag eftir Sigvalda Kaldalóns,
„Á fjárflutningaskipinu ,,Farce“
með Zöllner“, eftir Guðjón S.
Jónsson, „Þegar farþegaskipum
var sökt í gróðaskyni“. —
Fjöldi mynda fylgir með grein-
um til skýringar efninu. Það er
Stýrimannafjelag Islands, sem
gefiir Jætta hlað út.
fram vegua þess, að næstu þrjái’
nætur áður en veðrið kom, var
talsvert frost, svo sá á grösum,
en þessvegna voru þau veikari
fýrir. Grjótgarðaj' fnku u'in og a'lt
fauk, sem fokið gat.
Annars er vor þetta með þeitn
erfiðai'i. Maí var .ekki afleitur, þó^
sífelt væri kuldarok og' sjaldaú
sæi til sólar og þó ávalt þerri-
laust, sem best sjest á því. að
skán. sem stungin var út 6.—10.
niaí, var fyrst verið að hirða inn
núna þann 27. og 28. júní.
Gróður kom ekki mjög seint, ext
víða m.jög lítill fram ' að fardög-
uni, svo skepnur voru að leggja
af fram eftir öllu vori. Stafaði
það einnig af kuldanumi og sól-
arleysinu. í júní hefir verið með
afbrigðum vond tíð, sífeld rok og'
rigningar.
Vill ekki hr. Jón Eyþórssop
upplýftí, af hverju svona tíðai'-
far stafar?
Talsvert hefir unnist af refum,
og þó sífeldur bítur.
Eldur í skógarkjarri
FRAMH AF ÞRIÐJU 8ÍÐU.
ins og voru menn í vafa í
fyrstu, hvað gera skyldi.
En á sunnudagskvöld varð
það að ráði, að safna liði, og
fóru þá um 40 manns á vett-
vang til þess að koma í veg
fyrir, að eldurinn breiddist frek
ara út. Voru flestir sjálfboða-
liðar þessir sumardvalarfólk, ,en
í hrauninu eru nú um 50 tjöld
og sumargistihúsið að Hreða-
vatni er fult. Var því allmikill
mannfjöldi við hendina.
Var rudd þriggja metra
braut kringum alt svæðið nema
að norðanverðu, en þar stöðv-
aðist eldurinn við veginn. Vák-
að var í alla fyrrinótt í nánd
við skógareldssvæðið og er nú
eldurinn slokknaður. Hjálpaði
og til, að í gærmorgun brá til
úrkomu. Allmiklar skemdir
urðu á svæði, sem giskað er á,
að sje um 3—4 dagsláttur að
stærð. (F.Ú.).
Danir hafa gert verslunar-
samning við Svissland, sem gild
ir til næstu áramóta. Verslun
þessara landa á að byggjast á
jafnvirðiskaupum, samkvæmt
verslunarsamningnum.