Morgunblaðið - 24.07.1940, Page 2
2
M 0 RGUNBLAÐIÐ
?"'Svikudagur 24. júlí 1940.
„Teningunum er nú kastað“ segja Þjóðverjar
STRÍÐ UPP Á LÍF
OG DAUÐA
Þjóðvefjarsegjastqn nnn nnn nnn j
muni ákveða hve.31l lluu u"" llllu 11'
nær það hefst
PJÓÐVERJAR líta svo á, að Bretar hafi með
ræðu Halifax lávarðar í fyrradag, sagt Þýska-
landi stríð á hendur í annað skifti, Fulltrúi
þýska utanríkismálaráðuneytisins sagði við erlenda blaða-
menn í Berlín í gær, að „teningnum væri nú kastað“.
Hann sagði, að Þjóðverjar litu á ræðu Halifax lá-
varðar sem opinbert svar bresku stjórnarinnar við ræðu
Hitlers.
Ræða þessi, sagði fulltrúinn, er upphafið að endalokum
Englands og breska heimsríkisins.
Þýsk blöð hella úr skálum reiði sinnar yfir Breta. „Bretar
búa sig undir styrjöld upp á líf og dauða“, segir „Berliner
Börsen-Zeitung“. „Þjóðverjar munu miða við það sínar ráð-
stafanir“.
„Hamburger Fremdenblatt** segir: „Nú munu vopnin tala.
En hvenær það verður, það munu Þjóðverjar ákveða“.
Nýsköptín
Evrópti eftír
þýskrí fyrír-
mynd
, jóðverjax vinna að því áð
koma nýrri skipan á megin-
land Evrópu. í gær var það til-
kynt í Þýskalandi að forsætis- og
utanríkismálaráðherrum Búlgaríu
og Rúmeníu hefði verið boðið að
koma til Berlín um helgina, til
þess að ræða við þýsku stjórnina.
Það sem þýska stjórnin ætlar
að ræða við þá er um kröfur
Búlgara á, liendur Rúmenum og
um framtíð Rúmeníu.
Á kostnað
Rúmena.
1 London er litið svo á, að Þjóð-
verjar hafi lofað Ungverjum, á
ráðstefnunni í Miinchen á dögun-
um, að styðja kröfu þeirra um að
þeir fái aftur Transylvaníu. Þeir
muni nú ætla að knýja Rúmeníu
til þess að fallast á að Mta Fran-
sylvaníu af hendi og jafna um
leið ágreiningsmál Biilgara og
Rúmena. Búlgarar gera, eins og
kunnugt er, kröfu til Suður-Do-
forudja-hjeraðsins, sem Rúmenar
tóku af þeim árið 1913.
Bretar segja að Þjóðverjar sjeu
með því að látast hafa annríkt í
sambandi við nýsköpun sína á
meginlandi Evrópu, að reyna að.
leiða athyglina frá undirbiiningi
sínum undir innrásina í England.
Bretar greiða helminginn af
tekjum sínum tii ríkisins
SIR KINGSLEY WOOD, fjármálaráðherra Breta,
skýrði frá því í breska þinginu í gær, að gera
yrði ráð fyrir að útgjöld breska ríkisins myndu
á yfirstandandi fjárhagsári nema 3467 miljónum sterlings-
punda (ca. 90.000.000.000 ísl. króna).
Þar sem þjóðartekjur Breta verða í hæsta lagi metnar á 7
þús. milj. sterlingspund, leiðir af þessum gífurlegu útgjöldum, að
breska þjóðin verður að greiða helminginn af tekjum sínum til
ríkisins.
Hvernig svarið verður, má
nokkuð marka af þýskum
blöðum í gærmorgun. Blöð-
in birtu öll nær samhljóða
fyrirsagnir, sem voru á
þessa leið: „Glæpsamlegt
svar. Morðárásir á konur
og börn“.
FYRSTA SVARIÐ.
Blöðin skýrðu frá því, að
„fyrsta svar Churchills við ræðu
Hitlers hefði verið loftárásir áj
konur og börn. Bretar hefðu
aukið mjög loftárásir sínar í
Þýskalandi frá þeim degi, er^
Hitler hefði flutt ræðu sína, og
í flestum tilfellum varpað' niður
sprengjum af handahófi á staði,
sem enga hernaðarlega þýð-<
ingu hefðú. Til sönnunar því, að j
bresku flugsprengjurnar hafi,
ekki hæft neitt ákveðið mark, j
skýra þýsku blöðin frá því,
að flugmennirnir hafi varpað
niður leitarljósum í fallhlífum,
til þess að finna skotskífu.
BARNALEIKUR.
I Ítalíu taka blöðin í sama
streng og blöðin í Þýskalandi.
Þau tala um það, að það sem
gerst hafi í Frakklandi, sje að-
eins barnaleikur hjá því, sem
gerast muni í Englandi.
Bæði þýsku og ítölsku blöðin
ráðast ákaft á breska stjórn-
málamenn, Churchill, Halifax
lávarð, Eden o. fl. Þau segja, að
þessir menn muni koma sjer
undan til Kanada, en skilja
bresku þjóðina eftir til að bera
þjáningarnar.
Yfirleitt láta blöðin í veðri
vaka, að það sje ekki breska
þjóðin, sem hafi sagt nei, „held-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Feiknatjónaf
loftárásum
á Bergen
Breskar flugvjelar söktu þýsku
loftvarnaskipi hjá Bergen í
fyrradag, að því er breska flug-
málaráðuneytið tilkynnir.
Þrátt fyrir slæmt skygni tókst
flugvjelunum einnig að varpa
sprengjum yfir sjóflugvjelabæki-
stöð í grend við Bergen.
Norskur liðsforingi, sem fór frá
Bergen 5. júlí síðastliðinn, hefir
skýrt frá feiknar tjóni, sem varð
af loftánás, sem breskar flugvjel-
ar gerðu á Bergen í bvrjun júní.
• Stór hópur þýskra liðpforingja
var samankominn í Bergen í til-
efni af úthlutun stríðsheiðurs-
merkja. Veisla var haldin í flota-
stöðinni og er sagt að þar hafi
verið staddir 200—300 Þjóðverj-
ar. í miðjum fagnaðinum rendu
breskar flugvjelar sjer niður og
sleptu sprengjum sínum yfir flota-
stöðina, sem eyðilagðist algjör-
lega. Örfáir af þeim sem viðstadd-
ir voru komust undan. Það tók
marga daga að rvðja burtu rúst-
unum og finna lík þeirra sem
fórust.
Heimavarn-
arlið Breta
Laudvarnasjáifboðaliðið í Eng-
landi hefir fengið nýtt nafn.
Það verður kallað: „Heimvarna-
liðið“, samkvæmt tillögu Chur-
chills. í liðinu eru nú 1.300.000
manns, að því er Eden upplýsti í
breska þinginu í gær.
Verður nú hætt um stundarsakir
að taka við nýjum sjálfboðaliðum,
Þegar Sir John Simon lagði
fjárlagafrumvarp sitt fyrir
breska þingið í apríl síðastliðn-
um, voru útgjöldin áætluð 2000
milj. stpd. En síðan hafa út-
gjöldin aukist gífurlega.
Miklar skatta-
hækkanir,
Til þess að mæta þessum
auknu útgjöldum, hefir fjár-
málaráðherrann orðið að hækka
bæði beina og óbeina skatta.
Tekjuskatturinn hefir verið
hækkaður úr 7shilling í 8V2
shilling sem greiddur er af
hverjum 20 shillingum (stpd.)
þ. e. skatturinn er hækkaður úr
37i/2% í 421/2%.
Háskattur af tekjum yfir
2000 stpd. hefir verið hækkað-
ur úr 1.3 shilling í 2 shillniga.
Af tekjum yfir 20 þús. stpd.
verður að greiða í skatt 9/10
eða 18 shillinga af hverjum 20.
Skattur á bjór hefir verið
hækkaður um penny á hvem
pott, skattur á ljettum vínum
um 2 shillinga á gallon, á sterk-
um vínum um 4 shillinga á gall-
on og á tóbaki um 2 shillinga á
hvert pund; einnig hefir skemt-
anaskattur verið hækkaður.
Nýr viðskiftaskattur verður
iögfestur. Nemur hann 24% af
smásöluverði luxusvara og 12%
af vörum, sem teljast til
nauðsynja. Þó eru undanskildar
matvörur, og nauðsynjar eins og
gas og rafmagn, barnaföt, ýms
lyf o. fl.
Meðal luxusvara eru t. d. tal-
in húsgögn; en einnig skinn,
silki, djásn.
Með þessum auknu sköttum
gerir fjármálaráðherrann ráð
fyrir, að auka tekjur ríkisnis
um 239 milj. pund. En það sem
þá vantar — eða um 2200
pund — verður að taka með
lánum..
Kommúoistar
framselja sjálf-
stæði Eystra-
saltsrikjanoa
I Moskva
Eystrasaltlöndin þrjú, Eist-<
land, Lettland og Lit-
hauen hafa hvert um sig kosið
20 manna nefnd til að fara til
Moskva, til þess að bera fram
óskir þjóða sinna um að fá að
ganga sem sjerstök ráðstjórn-
arríki í Samband rússnesku
ráðst jórnarríkjanna. Það verður
sjeð hverjir standa að þessari
ósk á því, hvernig nefndir þess-
ar eru skipaðar, því að í lett-
nesku nefndinni er auk forsætis
ráðherrans, sem er kommúnisti,
framkvæmdanefnd lettneska
kommúnistaflokksins.
Æðsta ráð Sovjetríkjanna
tekur fyrir málaleitan Eystra-
slatsríkjanna 1. ágúst næstkom
andi.
Sumner Welles, aðstoðar ut-
anríkismálaráðherra Bandaríkj-
anna skýrði frá því í gær, að
Bandaríkin myndu hafa áfram
sendiherra í öllum þrem
Eystrasaltsríkjunum. Bandarík-
in myndu líta á Eystrasaltsríkin
sem sjálfstæðar þjóðir, sem ættu
við erlenda kúgun að búa um
stundarsakir.
Þar með neita Bandaríkin að
viðurkenna að Eystrasaltsríkin
sjeu ekki sjálfstæð ríki.
Eistlendingar hafa nú farið
að dæmi Lithaua og sett allan
iðnrekstur og bankastarfsemi
undir stjórn ríkisins. En verslun
og siglingar eru enn í höndum
einstaklinga.
Eistlenska þingið hefir einn-;
ig lýst yfir því, að jarðir í Eist-
landi skuli vera eign allrar
þjóðarinnar. Enginn bóndi má
hafa til umráða meir en 30
hektara lands.
En hinsvegar verða gerð-
ar ráðstafanir til að koma í veg
fyrir að sett verði upp sam-
yrkjubú.
Breskar flugvjel-
ar yfir Helsingör
Uregnir frá Ilelsingborg í Sví-
1 þjóð herma, að merki um loft-
árásarhættu' liafi verið gefið í
Helsingör í Danmörku um miðj-
an dag í gær. Nokkru sícfar sáust
nokkrar flugvjelar nálgast og
flugu þær inn yfir Sjáland.
Engar fregnir höfðu borist um
að 'spreíigjum hefði verið varpað
niður. Merki umi að liættan vséri
liðin hjá í Helsingör var gefið
eftir hálfa lrlukkustund.
En ferðir ferjanna frá Helsing-
ör til Helsingborg lágu niðri í gær.
Þýsk flugvjel flaug yfir Svíþjóð
í gær. Sænskar flugvjelar hófu
sig til flugs og hröktu liaua 4
haf út.