Morgunblaðið - 24.07.1940, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 24. júlí 1940-
**Fjelagslíf
SAMKÖMA
í kvöld kl. 8% í Varðarhúsinu.
AUiri velkomnir I Arthur Qook.
Á KVÖLDBORÐIÐ:
Skyr, Hákarl og Harðfiskur.
Von. Sími 4448.
NÝSKOTINN SVARTFUGL
og nýr Lundi. Fiskverslunin
Hverfisgötu 123. Sími 1456.
fiskbOðin
Þingholtsstræti 21, hefir ávalt
nýjan og góðan fisk.
MINNINGARSPJÖLD
Bókasjóðs blindra
fást hjá frú Maren Pjeturs-
dóttur, Laugaveg 66, Blindra-
skólanum Ingólfsstr. 16, frk.
Þóreyju Þorleifsdóttur Bók-
hlöðustíg 2 og Körfugerðinni.
KÁPUBÚÐIN, Laugaveg 35
Svaggerar, frakkar og kápur,
se.ljast með niðursettu verði út
þennan mánuð og næsta mán-
uð. Ódýrar kvenleðurtöskur og
kjólablóm.
KAUPUM
allskonar húsgögn, skófatnað
og karlmannaföt. Staðgreiðsla.
Nýja fornsalan, Kirkjustræti 4.
MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR
keypt daglega. Sparið millilið-
ina og komið til okkar, þar sem
þjer fáið hæst verð. Hringið í
síma 1616. Við sækjum. Lauga-
vegs Apótek.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5395.
Sækjum. Opið allan daginn.
FLÖSKUVERSLUNIN
á Kalkofnsvegi (við Vörubíla-
stöðina) kaupir altaf tómar
flöskur og glös. Sækjum sam-
stundis. Sími 5333.
SLYSAVARNAFJELAG
ÍSLANDS
selur minningarspjöld. — Skrif-
stofa í Hafnarhúsinu við Geirs-
götu. Sími 4897.
SMURT BRAUÐ
fyrir stærri og minnl vewlur.
Matstofan Brytinn, Hafn*r-
gtræti 17.
REYKHÚS
Harðfisksölunnar við Þvergötu,
tekur lax, kjöt og fisk og aðrar
trörur til reykingar.
ÍmíIí^ffvnin^cw
HAFNFIRÐINGAR.
Vanti yður leigubifreið, þá
hringið í síma 9084. Á kvöldin
í síma 9141. Turninn.
2 HERBERGJA ÍBÚÐ
óskast 1. október neðarlega í
Austurbænum. A. v. á.
JftoröttttMa&jfc
Búðarfólkið
43. dagur Eflir VICKI
fiðleikum Steve Thorpes nándar
nærri lokið þetta kvöld. Einmitt
þegar hann var búinn að raða
taflmönnunum sínuni og leika þrjá
fyrstu leikina, kom Trompsted
inn í bókaherbergið, beygði sig
niður að húsbónda sínum og hvísl-
aði einhverju í eyra hans.
„Hvað? Hvað eruð þjer að
segja?“ spurði Thorpe. Tromp-
sted sem var fyrirmynd kurteisi
og varfærni, endurtók hvíslandi
' skilaboðin. — „Afsakið“, sagði
Thorpe í geðshærinu og þaut út
úr herberginu. Burtför hans var
svo í skyndi, að meira segja bridge
spilararnir litu upp úr spilum sín-
um. Green sat önugur eftir fyrir
faman skákina.
Þegar Thorpe kom út í and-
dyrið með þjóninn á hælunum,
spurði hann:
„Hvar er húnf' Trompsted benti
með hökunni í áttinni til dyranna.
Sú hreyfing var laus við alla
virðingu.
„Hvernig í ósköpunum stendur
4 að þjer látið hana bíða fyrir
utan?“ sagði Thorpe lágt.
„Frú Thorpe vildi alls ekki
koma inn fyrir, herra Thorpe“,
sagði þjónninn, sem ekki var laus
við að vera móðgaður.
Thorpe ýtti honum til hliðar
og snaraðist fram að útidyrun-
um.
TJndir ljóskeri fyrir utan stóð
Lucie. Hún leit illa út.
„Lucie — en hvað þú hefir hor-
ast“ — var það fyrsta, sem Thorpe
sagði.
„Þakka þjer fyrir, jeg hefi líka
Ijest um 22 p"und“, svaraði hún,
sem þrátt fyrir óhamingju sína
gleymdi ekki að stíga á vigtina á
hverjum morgni.
„Hvað get jeg gert fyrir þig —
jeg meina — viltu ekki koma inn
fyrir — það eru nokkrir gestir
hjá mjer — þú þekkir þá alla —
Green og Back læknir — það gleð -
ur mig að sjá þig“ — stamaði
Thorpe. Orðin komu í einnu þvögu.
„Jú — ég ætla ekki að koma
inn fyrir, fyrst það eru gestir hjá
þjer — jeg vil gjarnan fá að tala
við þig undir fjögur augu —“,
sagði Lucie. Ilún kipti í slörið á
háttinum sínum, sem huldi enni
hennar og augu, með titrandi
fingrum. Á hattinum voru eftir-
líkingar af fjólum eins og vor-
tískan sagði fyrir. Thorpe fanst
hann aldrei á sinni æfi hafa sjeð
neitt eins raunalegt eins og fjólur
þessar.
„Jú, komdu samt inn — við er-
um að spila — það þarf enginn að
sjá þig“, sagði hann, greip í hönd
hennar og dró hana inn fyrir. —
Þegar þau stóðu í anddyrinu, var
hann óákveðinn í hvert hann ætti
að fara með hana. Hún skalf um
allan líkamann, og — vissulega
skalf hann líka. Þau heyrðu hlát-
ur gestanna frá bókaherberginu.
Ofan frá svefnherberginu heyrði
hann tilbreytingarlausan orða-
flaum. Back læknis. Það var einna
líkast því, að hann væri að biðj-
ast fyrir. Alt í einu blóðroðnaði
Steve við hugsunina um að Nína
var í húsinu. Hann dró dyratjöldin
til hliðar inn í setustofuna, en dró
þau snögglega fyrir aftnr. Þar
hafði hinn móðgaði Green sest
við arininn og las í tímariti.
í útvarpinu voru hljómleikar,
Tony tók til í borðstofunni og
Trompsted hringlaði í glösum í
frammistöðuherberginu. 1 flýti dró
Steve Lucie inn í svonefnda Ping-
Pong herbergið, þar sem svefn-
körfur hundanna stóðu þ4. Þeir
flöðruðu upp um Lucie; gleðigelt
þeirra liljómaði hláf aumingja-
lega, því kæti þeirra var svo mik-
il. Samræður um Max og Moritz
Iijálpaði þeim yfir fyrstu mínút-
urnar. Thorpe ljet Lucie setjast
í strástól og flutti Ijósið dálítið
frá henni. Hann tók nærri sjer
að horfa á hana og hann undraðist
yfir því, með sjálfum sjer. Mörg-
um sinnum hafði hann reynt að
gera sjer í hugarlund hvernig fara
myndi þegar hann hitti konu sína
aftur. Hann hafði hugsað sjer alls
konar upphrópanir, alveg frá
kaldhæðni að móðgunaryrðum. Að
heilsa henni ekki og jafnvel að
myrða hana. Nú þegar hún var
fyrir framan hann, skammaðist
hann sín fyrir áð horfa á hana,
og hann fann til í hjartanu.
BAUM
„Yiltu ekki fá eitthvað að
borða?“ spurði hann, því andlit
hennar var svo horað.
„Nei, þakka þjer fyrir, jeg borða
ekki nema einstaka mat núna“,
svaraði hún líka núna og Steve
mintist þess, að oft áður fyr hafði
þetta sjerstaka mataræði gert
hann öskureiðann. Án þess að
spyrj a hana frekar, fór hann í
búrið, helti í tvö koníaksglös,
leitaði í íssfoápnum og fann leyf-
ar af humarnum. Á meðan elda-
stúlkan stóð hjá, móðguð yfir að
hann skyldi ráðast inn á sitt verk-
svið, bjó hann út diskinn og fór
með alt inn til konu sinnar. Það
var eðlishvöt liellisbúans — fyrst
mat handa konu sinni —* alt ann-
að lagast af sjálfu sjer. Lucie gat
ekki stilt sig um að drekka kon-
íakið og byrjaði að fá sjer smá-
bita í einu. Á vissan hátt reyndi
hún að dylja sig þess að hún var
að borða humar.
Augnalok liennar voru bólgin af
gráti og á því hvernig varalitnum
var makað út fyrir varirnar á
kæruleysislegan hátt, benti til þess
að hún var örvæntingarfnll. Steve
kveikti í sigarettu handa henni,
rak hundana upp í körfurnar og
settist svo lijá Lucie. Nú var hún
hætt að skjálfa.
„Yiltu ekki taka ofan hattinn?“,
spurði hann .
„Nei, þakka þjer fyrir“, sagði
hún, og dró slörið niður fyrir
augu.
„Það var eitthvað, semj þú ætl-
aðir að segja mjer“, sagði hann.
„Þú getur látið seih jeg sje lög-
fræðingur þinn — ekkert annað
— jeg hefi nokkra æfingu í að
hlusta á — og ef þiá þarft að láta
ráðleggja þjer —“.
„Jeg þarf engar ráðleggingar“
sagði Lucie og^ hristi höfuðið á-
kaft, svo sorgmæddu fjólurnar 4
hattinum skulfu. „Jeg veit ósköp
vel hvað jeg á að gera. Jeg hefi
hagað mjer mjög kjánalega og nú
verð jeg að bæta fyrir •—“.
„Stundum geta tveir og tveir
verið fimm í þessum heimi — guði
sje lof“, sagði Thorpe. Þessa setn-
ingu hafði hann iðulega notfært
sjer í starfi sínu. Þessi mikla,
reynsla sem virtist liggja í þess-
ari setningu, hafði róandi áhrif át
Lucie. Hún athugaði hann gaum-
gæfilega. j
„Steve, þú hefir breyst mikið“r
sagði hún.
„Jeg tek það sem hrósyrði“r
svaraði hann. Hún leit á hanix
annars hugar og tók ekki eftir*
svarinu.
„Á leiðinni hingað, hugsaði jeg
líka að þú mundir hjálpa mjer.
Þú segir að segja, frá — það er
nú ekki svo ljett, Steve“. Hún.
hafði ekka eins og barn, sem hefir
grátið lengi. Það fór jekki vel við
andlit hennar en það hrærði Torpe'
Síðasta stundarfjórðunginn hafði
hann alveg gleymt Nínu eins og
hún hefði aldrei verið til.
Framh.
Sníðum oo mátum 1
allan kvenna- og barna- •■■
fatnað. •
»•
Saumastofa *
Guðrúnar Arngríms- J
dóttur, •
Bankastræti 11. Sími 2725. •
Framköllun
Kopiering
Stækkun
framkvæmd af utlærðum ljós-
myndara.
Amatörverkstæðið
Afgreiðsla í Laugavegs-apóteki;
Eniol
Palm-Emól
handsápur,
Heildsölubirgðir
Magni li.f.
Þegar Tómas prestur Sigurðs-
son var í Garpsdal, hjelt hann
vinnumann, er Guðlaugur hjet og
kallaður var goggur. Þegar prest-
ur eitt sinn embættaði og snýr sjer
frá altarinu til að tóna pistilinn,
sjer hann, í því hann byrjar, að
Guðlaugur stendur við kirkjudyr
úti. Prestnrinn tekur til og tónar;
„Kæru bræður! Kippið honum
gogg inn fyrir stafinn" — og
hjeJt síðan áfram með pistilinn.
Frá Garpsdal fluttist Tómas
prestur að Holti í Önundarfirði.
Var hann þé gamall orðinn. Ilanu
gifti hjón og hafa Önfirðingar
eftir honum, að hann hafi haft
fyrirbæn sína fyrir brjúðhjónun-
um á þá leið, að hann bað guð að
Jýsa þeiin með sínu náðarljósi alt
inn í eilífustu myrkur.
★
Á dögum Stefáns prests Bene-
diktssonar í Hjarðarholti í Dölum
bjuggu hjón á Goddastöðum, er
Loftur hjetu og Margrjet. Þau
Loftur áttu jörðina, er þau hjuggu
á. Er þau höfðu skamma stund
búið þar, veikist Loftur og lá
rúmfastur um hríð. Varð þá Mar-
grjet að sjá ein fyrir búinu og
^tunda mann sinn í legunni.
Dag einn er Margrjet var við
búverk, kemur henni í hug að
maðurinn sinn hafi beðið sig um
að drekka. Lætur hún þá mjólk
í ask, her inn í baðstofu og kall-
ar: „Hjerna er að drekka, Loftur.
Sestu upp og taktu við“. Loftur
svarar ekki og hreyfir sig hvergi.
Margrjet kallar aftur og í þriðja
sinn, en ekki svarar Loftur. —
Gengur Margrjet þ4 að rúminu,
heldur hann sofi og ætlar að vekja
hann, en finnur brátt að Loftur
er dauður.
Stundu síðar fór hún ofan að
sinna búverkum sínum, sem áður.
Þegar hún kemur í eldhúsið sjer
hún að eldurinn er dauður og
mjólkin í pottinum orðin að gelli.
Verður henni þá enn meira ama-
samt, gengur út, mætir manni á
hlaðinu og segir, er þau höfðu
heilsast;
„Það er stand á Goddastöðum
núna; drepinn eldurinn, kolyst í
pottinum, og Loftur dauður inni í
rúmi!“
Prófessorinn í tannlækninga-
stólnum: — Verið þ.|er nú ekki
alt of fljótnr að draga tönnina
úr mjer.
★
Prestur einn var að spyrja
,börn í kirkjunni. Hann hyrjaði
oneð þessum orðum:
„Guð hjálpi ykkur nú, börn;
það skal ekki vara lengi“.
Framkðllun
Kopiering
Stækkun
Fljótt og vel af hendi leyst.
TIIIELE H.F.
Austurstræti 20.
KOLASALAN S.I.
Símar 4514 og 1845.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Borgarnes - Búðir
Ölafsvík
Frá Borgarnesi
alla þriðjudaga og föstudaga.
Frá Ólafsvík
alla miðvikud. og laugard.
Helgi Pjetursson.