Morgunblaðið - 11.08.1940, Blaðsíða 7
Sunnudagur 11. ágúst 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
SlQurður Pjetursson
sKipstjóri,
sextugur ð morgun
Sigurður Pjetursson skipstjóri
á sextugsafmæli á morgun.
Hann er nú staddur í Höfn, sem
kunnugt er, síðan Danmörk var
hernumin, en þá var Sigurður þar
jitaddur með Gullfoss sinn, og eru
tngar horfur á, að skipið losni
þaðan að óbreyttum hernaðará-
stæðum.
í 45 ár hefir Sigurður verið
^jómaður, fyrst við fiskiveiðar á
■þilskipum, en lengst af sem far-
maður. Verður hans jafnan inins'c
í siglingasögu íslendinga á þess-
ari öld, sem eins helsta og merk-
asta forystumanns f íslenskri far-
mannasveit. Honum var trúað fvr-
ir fyrsta skipi Eimskipafjelagsins,
og hann hefir aldrei neitt augna-
blik í þau 25 ár, sem hann hefir
staðið þar á stjórnpalli, brugðist
þeim vonuui og því trausti sem
alþjóð manna hefir til hans borið.
Fljótt kom það í Ijós, að hanu
hafði alla þá kosti sem íslenska
sjómenn má prýða í hirini ábyrgð-
armiklu stöðu sinni. Með fram-
komu sinni allri, sem vaskur og
varkár skipstjófi og um leið alúð-
legur og umhýggjrisamur leiðtogi
farþegariua, varð hann til fyrir-
mvmlar öðrum' íslenskum farmönn
um.
Vinsældir Sigurðar eru meiri og
almennari, eftir þessi mörgu sigl-
ingaár hans, en lýst verður í fám
orðum. Hann er alþýðlegur höfð-
ingi að skapi Islendinga. Enginn
getur kvnst honum án þess að
verða vinur hans. Allir, sem hafa
notið þess að vera farþegar á
skipi hans, bera t.il hans hlýhug.
Og’ þeir eru orðnir æðimargir.
Þetta hefði hann fengið að finna
á sextugsafmælinu, ef hann hefði
verið einhversstaðar þar, sem
skeyti og vinakveðjur hefðu náð
til hans.
„Skutalt" bjarg-
ar 27 sænskum
skipbrots-
mðnnum
SKUTULL, togari þeirra fs-
firðinga, bjargaði 27 sænsk-
um skipbrotsmönnum yið Skot-
landsstrendur 3. þ. m.
Skutull var á leið til Englands
og var staddur 8 sjóm. sunnan
Skeryvore, við Skotland. er sást
tii tveggja báta á siglingu. Skut-
ull hjelt til bátanna og reyndust
það véra skipsbátar af sænsku
skipi. „Atos“ frá Helsingborg,
sem kafbátur hafði skotið í kaf
þá um morguninn. Skipbrotsmenn-
irnir, 27 talsins, þar af ein kona
(sænsk) voru teknir um borð í
Skutul og- farið með þá tiI Fleet-
wood. Einn skipsmanna á „Atos“,
bátsmaðurínn, hafði farist, er
tundurskeytið hæfði skipið.
„Atos“ var á leið til Petsamo,
með ýmiskonar vörur.
Skipstjóri á Skutli þessa ferð
var Matthías Guðmundsson.
Umfangsmiklar
Áttræður verður þann 12. þ. m.
Þorgils Friðriksson, fyrrum bóndi
að Knararhöfn í Iívammssveit.
Hann er nú til hei'milig á Breiða-
bólsstað á Fellsströnd.
Egyptaland
PRAMH. AF ANNARI SÍÐU
Þjer getið yerið alveg viss-
ir um, minn kæri Duce, að
Egyptum hefir aldrei komið til
hugar að svíkja Breta.
Ef áróðursmenn yðar hafa
talið yður trú um nokkuð ann-
að, hafa þeir fært yður á bak
við sannleikann.
Þjer skuluð gera yður alveg
ljóst að Egyptum kemur ekki
til hugar að skifta á samvinnu
Breta og nokkurrar annarar
þjóðar. Jafnvel þó Egyptar
sæktust eftir samvinnu annara
þjóða, þá myndu þeir velja sjer
aðra þjóð en þá, sem hefir í,
hyggju að endurreisa gamla
rómverska keisaradæmið
Að lokum segir ritstjórinn í
hinu opna brjefi sínu
„Jeg ráðlegg yður að leita
fyrir yður annarsstaðar en í
Egyptalandi. Egyptar munu
seint gleyma hvernig fór fyiúr
Abyssiníu.
Verði gerð tilraun til að ráð-J
ast inn í land vort mun öll
þjóðin rísa upp sem einn maður
til-að verja frelsi sitt“.
Finnbogi R. Ólafsson rafvirki,
Lindargötu 41, er fimtugur í dag
1 þessum mánuði á hann eimiig
20 ára starfsafmæli hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Hann er mörg-
um bæjarbúum kunnur að dugu-
aði og árvekni í starfi sínu.
FYRIRUGO J ANDl
Kokosmjöl — Kanell,
Pipar — Hjartarsalt —
heill. — Cacao
Natrón.
Te
Eggert KristfAnsson & €o. li.f.
á morgun
Breska setuliðið hefir tilkynt,
að það ætli að hafa um-
fangsœáklar skotæfingar á morg-
un hjer í nágrenni bæjarins. Verð-
ur bæði skotið af fallbyssum og
loftvarnabyssum. Þá er almenn-
ingur og varaður við skotæfingum
flugvjela í Skerjafirði.
Tilkynning bresku setuliðs-
stjórnarinnar er á þessa leið:
1. í norðvesturenda Viðeyjar kl.
11—12 f. h. ÍSkip frá breska
flotanum muii verða á vett-
vatígi til þess að vara skip
við að vera fyrir innan línu,
dregna frá Engey upp að
Grímsnesi á Kjalarnesi.
2. Á norðurenda Álftaness eftir
kl. 2.30. Þar verða hermenn á
verði til þess að sjá um að
menn fari ekki inn á æfinga-
svæðið.
3. Á lítinn hólma eða eyju á
Skerjafirði kl. 4.
Skotæfingar úr loftvarnabyss-
um í nágrenni Reykjavíkur fara
fram kl. 2.30 í norðvesturátt út
ó sjó ,kl.. 3.30 í suðvesturátt, einn-
ig út á sjó, og kl. 4.30 í vestur-
át-t út á sjó.
Reykjarmeklcir mnnu sjást á
lofti, þegar kúlurnar springa.
Framvegis munu flugvjelar ef
til vill öðru hverju varpa niður
æfingasprengjum yfir Skerjafjörð
frá kl. 8 á morgnana til kl. 8 á
kvöldin, Sprengjur-þessar eru með
öllu óskaðlegar og hættulausar.
Hernám Noregs
og Danmerkur
FRAMH. Á ANNARl SÍÐU.
sigldi lystiskipi sínu alla leið norð
ur til Narvíkur. Voru margir hátt-
settir þýskir herforingjar í fylgd
með honum. Það vakti strax grun
iim liið sanna erindi þessa mekt-
ármanns þarna norð.ur eftir. að þó
þetta- ætti að heita skemtiför, var
hún farin þegar svo var áliðið
llausts, að allar skemtiferðir voru
rim garð gengnar um þær slóðir
það árið. En hann sigldi skipi
sínu alla leið norður á Narvíkur-
höfn, og Ijet hjá líða að leita til
hafnsögumanns eða fá nokkurt
levfi til siglingárinnar þangað inn.
Æfingar hjelt þýski flotinn síð-
pn undir Noregsströndum svo
næstu ár, og komust Norðmenu
fyrst og fremst að þessu er nokk-
ur hinna þýsku herskipa urðu að
leita til hafna. Meðal þeirra var
herskip þeirra Köln, er kom til
Stavangurs 1938 vegna sjóskaðá,
og hefðu norsk yfirvöld ekki heyrt
nefnt á nafn, að skip það eða önn-
ur þýsk herskip væri á ferðinni
þar um slóðir.
Flotaæfingar fói'n og fram
við strendur Danmerkur og það
svo áberandi sumarið 1938, að
danska stjórnin har fram mót-
mæli gegn þessu í Berlín.
75 ára verður í dag frú Hólm-
fríður Jónsdpttir, Brekkugötu 4,
Siglufirði.
FXngárás Br«ta
á Guernsey
gær rjeðust breskar f lug-
X- vjelar á flugstöðina á
Ermarsundseyjunni, Guernsey,
en ÞjÖðverjar hafa nú yfir-
ráð á eyju þeirri.
Segir í Lundúnafregn að
flugmenn þeir, er árásina gerðu
hafi sjeð 40~50 þýskar flug-
vjelar á flugvellinum. Beridir
það flugvjelasafn til þess að
Þjóðverjar hafi liðsamdrátt
þar um slóðir, til þess að ráð-
ast m. a. þaðan á England.
Hinar bresku flugvjelgr
"V 9
gerðu nokkurn usla 'á flugstöð-
inni þar í gæi*. En ekki ef þess
getið hve mikið tjón Þjóðverj-
ar hafi þar beðið.
Dómkirkjan. Vegna lasleika síra
Friðriks Hallgrímssonar messar
síra Garðai' Svavargson kl. 11 árd.
í dag. v
Helgidagslæknir er í dag Jónas
Kristjánsson, Grettisgötu 67. Sími
5204.
Nætnrlæknir er í nótt Þórarinu
Sveinsson, Ásvallagötu 5. Sími
2714.
Nætnrvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Otvarpið í dag:
11.00 Messa í dómkirkjunni (sú’a
. Garðar Svavarsson).
21.00 Leikþáttur: „Nilli í Naust-
inu, III.: Hjá spákonumi,i“
(Friðfinnur Guðjónsson., Anna
Guðmundsdóttir, Gunnþórurm
Halldórsdóttir). . -■,,
Útvarpið á morgun:
20.30 Sumarþættir (Gylfi Þ. Gísla
’son hagfræðingur).
20.50 Einsöngur (frú Guðrún
Ágústsdóttir): Lög eftir Sigv.
Kaldalóns: a) Jeg bið að heilsa.
b) Jeg lít í anda liðna tíð. e)
SVanasöngur á heiði. d) Betli-
kerlingin. e) Ave María. f)
Sofðu, sofðu góði.
V'b'-/
"Ví-,tr-
\1 -- v'
Faðir nkkar,
BJARTMAR KRISTJÁNSSON,
andaðist 9. þ. xn.
Griðlaug- Bjartmarsdóttir. Steinunn Bjartmarsdóttir.
Óskar Bjartœarz. Kristján Bjartmarz.
Móðir okkar og tengdamóðir,
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR,
andaðist á Landakotsspítala í gær. Jarðarförin fer fram frá
Fríkirkjuimi laugardaginn 17. þ. m. kl. 1.30 e. h.
Sigríður Jakobsdóttir, GuðJmmdur Torfason,
Framnesveg 13.
Konan mín, móðír okkar, dóttir, stjúpdóttir og tengda-
dóttir,
HULDA KARLSDÓTTIR
verður jarðsungin þriðjudaginn 13. ágúst frá heimili sínu, Sól-
vallagötu 7 A, kl. 4 e* h.
Eyjólfur Einarsson og böra.
Karl Moritz. Hermannía Markúsdóttir.
Efimía Vigfúsdóttir. Einar Jónsson.
Móðir okkar
frú Anna M. L. DANÍELSSON
verðnr jarðsungin þriðjudaginn 13. þ. m. og hefst athöfnin
með húskveðjn að heimili hennar kl. iy2 e. h.
Sofía Daníelsson. Leopoldína Eiríkss.
Elsku litli drengrirínn okkar
HALLDÓR HELGI,
er andaðist 6. þ. m., verður jarðaður frá heimili okkar, Grettis-
götu 64 þriðjud. 13. þ. m.
Steinunn Kristinsdóttir. Jóhannes Eggertsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för mannsins míns og föðnr okkar
EINARS INGJALDSSONAR frá Bakka.
Halldóra Helgadóttir og börn.
Þakka hjartanlegaýauðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för sonar míns,
GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR
frá Staðarhóli.
Fyrir hönd mína og- annara aðstandenda.
Kristín Jósefsdóttir.