Morgunblaðið - 15.08.1940, Qupperneq 3
Fiintudagur 15. ágúst 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Sleppið ekki sumar-
ms^-^sssssa
vinnunni, reykvískir
verkamenn
Það verður munað
eltir ykkur síðar
Þjettur
veggur af
síld við
Samtat við Kristínus Arndal, torstjúra
Vinnumiðlunarskrifstotunnar
Þ0 að útlit sje til þess, að hjer verði um tals-
verða aukna vinnu að ræða á næstunni, vil
jeg alvarlega ráðleggja mönnum, að sleppa
eMd vinnu, sem þeir kunna nú að hafa, í von um það, að
meira hafist upp úr vinnu þeirri, sem hjer kynni að verða
i boði.
Þetta voru uminæli Kristínusar Arndals, forstjóra Vinnumiðl-
unarskrifstofunnar í Reykjavík í gær, er Morgunblaðið ræddi við
h.ann um atvinnuhorfurnar í bænum. Og Arndal bætti við:
— Jeg býst við, að talsverð eft-
irspurn verði eftir verkamönnum
og iðnaðarmönnum1 (trjesmiðum
og múrururn) þegar frá líður. Bn
þessi vínna ber ekki svo ört að
enn gem| komið er, að nein vand-
kvæði sje á því að fá nóg af
mönnum hjer í bænnm, möiinum,
sem stopula vinnn hafa haft und-
anfarið. Bætist og það við, að nvi
hefir flestum verkamönnum verið
sagt upp vinnu í Hitaveitunni og
verðnr sennilega ekki meiri vinnu
þar að hafa fyrst um sinn, nema
úr rætist með efnið ti'l fyrirtæk-
isins, sem bíður í Kaupmannaliöfn.
— Hvað eru margir reykvískir
verkamenn nú í vegavinnu hjer í
nánd?
— Þeir eru 26 í Kömbtvm, 16 í
Svínahrauni, 14—15 við Kolviðar-
hól, 20 í Sogsvegi og auk þess
30 unglingar, 4 í Mosfellsvegi og
um 40 í Hafnarfjarðar og Elliða-
árvegi (í malbikuninni).
— Eru ekki reykvískir verka-
menn í Krýsuvíkurveginum ?
— Nei, enginn nú. Ilafa yfir-
leitt sárafáir verkamenn úr Rvík
unnið í þeim vegi í sumar.
— En hvernig er með vinnuna
Jijer við höfnina? Em þar ekki
margir verkamenn daglega í
vinnu ?
— Það er mjög misjafnt, eða
alt frá 30 mönnum og upp í 2—
300. í dag eru þeir t. d. nokkuð
á þriðja liundrað.
— Er iun að ræða nokkra aðra
vinnu lijá verkamönnum hjer í
hænuin, þegar frá er talin hæjar-
vinnan ?
— Já, hjá breska setuliðinu
vinna að staðaldri talsverður hóp-
nr verkamanna, eða frá 50 og upp
í alt að 100 verkamenn. Þetta er
nokkuð stöðug vinna.
— En hvernig er með vinnuna
við byggingarnar, sem ráðgerðar
voru?
— Þessi vinna er nú í þanr
veginn að hefjast hjer utan við
Jénas otf YllmBndur
Þegar gamí-
ír samherfar
deiía
eir hafa verið í miklum rit-
* deilum undanfarið samherj
arnir og vinirnir gömlu, Jónas
Jónsson frá Hriflu og Vilmund-
ur Jónsson landlæknir.
Kennir margra grasa í skirf-
um beggja. Það er ekki langt
síðan, að svo mikil vinátta var
ríkjandi milli þessara manna, að
þar komst ekkert á m.illi. Þá
voru þeir pólitískir samkejar
og þá var alt gott, sem frá þess-
um mönnum kom, að áliti
sjálfra þeirra.
En nú er annað upp á ten-
ingnum, samkvæmt lýsingu, er
þeir gefa hvor á öðrum, þessir,
gömlu samherjar og vinir. Þar
er ófagurt um að litast.
Ritdeila þessi er nú komin
á nýtt stig, þar sem Vilmundur
landlæknir hefir, í tilefni af
síðustu grein Jónasar í Tíman-
um 13. ágúst, ritað sakadóm-
aranum í Reykjavík svohljóð-
andi brjef:
„LANDLÆKNIRINN
Reykjavík, 13. ágúst 1940.
í Tímanum, sem kemur út í
dag, hinn 13. ágúst, birtir J'ón-i
as Jónsson alþingismaður fram-
hald greinar, er hann nefnir
„A public gentleman", og ræð-
ir þar ásamt öðru framkvæmd
fóstureyðingarlaganna (l.nr. 38,
28. janúar 1935) og segir með-
al annars:
„li einu meðalstóru læknis-
hjeraði báðu tíu stúlkur um
PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
fUJOL Á SJÖTTU
Grímsey
Siglufirði, miðvikud.
Sama síldarmagnið var úti við
Grímsey í gær og verið hef-
ir undanfarið á miðum hjer norð-
anlands.
Pengu mÖrg skip 800—1000 mál
í kasti NV af Grírnsey. Sjómemr
líktu síldinni við þjettan vegg,
svo þykkar voru torfurnar.
Hjá ríkisverksmiðjunum bíða nú
32 skip með 18—20 þús. mál.
Síðasta sólarhring nam söltun
6896 tunnum, þar af 1077 frá rek-
netahátum. Vestanhræla í dag og
ekki gott veiðiveður.
HJALTEYRI.
Þar lönduðu í gær: Yvonna
1656 mál, Norðurfari 1439, Próði
866, Thurid 892.
2048 bílai
á landinu ár-
ið sem leið
Alls voru til á öllu landinu
2048 bílar 1. júlí 1939,
segir í síðustu Hagtíðindum.
Af þeim voru 936 fólksbílar
og 1112 vörubílar. Meira en
helmingur bílanna, eða 1108
voru í Reykjavík, 660 fólksbíl-
ar og 448 vörubílar. Auk þess
voru 101 mótorhjól, þar af 49 í
Reykjavík og 19 á Akureyri.
Af fólksbilunum voru lang-
flestir Fordbílar, eða 202, þá
Chevrolet 142 og Studebaker
103. Af öðrum tegundum var
mikið færra, en alls voru teg-
undirnar 51.
Af vörubílunum voru einnig
flestir Fordbílar, eða 436, þá
Chevrolet 375 og Studebaker
43. Alls voru tegundirnar 39.
Bílunum fjölgaði árið 1939
um 39 frá næsta ári á undan,
eða um 2%. Af fjölguninni
voru 3 fólksbílar qg 36 vöru-
bílar.
Af fólksbílum voru 139 al-
menningsbílar, en svo eru þeir
bílar nefndir, sem h.afa fleiri
sæti en sex. Almenningsbílarnir
voru 51 Chevrolet, 38 Studebak-
er og 30 Ford. 117 vörubxlar
höfðu fleiri en eitt sæti fyrir
farþega og voru því jafnframt
notaðir til farþegaflutninga. Af
þeim voru 41 Chevrolet- og 30
Fordbílar.
Leynileg stutt-
bylgjustöð fundin
hjer í bænum
Eigandinn í varðhaldi
hjá breska setuliðinu
BRESKA SETULIÐIÐ hefir um nokkurt ^skeið
haft sterkan grun um, að rekin væri hjer í
Reykjavík eða annarsstaðar á landinu leyni-
leg stuttbylgjustöð, sem hefði samband við önnur lönd, m.
a. Þýskaland.
Síðastliðinn mánudag fann svo setuliðið eina slíka stuttbylgju-
stöð hjer í bænum og koinst að raun um, hver var eigandi lrennar.
Hann heitir Sigurður Finnbogason rafvirkjanemi, til heimilis á Ei-
ríksgötu 27. Var hann handtekinn og er nú í gæslu hjá setuliðinu.
Prestaíjelag
Austurlands
stofnað
Að tilhlutun hiskupsins, heira
Sigurgeirs Sigurðssonar var
s.l. þriðjudag haldinn fjölmennur
prestafundur að Ketilsstöðum á
Völlum.
Voru þar rnættir, auk biskups,
9 af 12 prestum Múlaprófasts-
dæmis, þeir prófastarnir síra Stef-
án Björnsson á Eskifirði og síra
Jakob Einarsson, Hofi í Vopna-
firði, og prestarnij- síra Vigfús
Þórðarson, Eydölum, síra Pjetur
Oddsson, Djúpavogi, síra Pjetur
Magnússon, Vallanesi, síra Sigur-
jón Jónsson, Kirkjubæ, síra Vig-
fús Ingvar Sigurðsson, Desjamýri
og- síra Sveinn Víkingur, Seyðis-
firði.
Fundurinn samþyfeti einróma að
,stofna prestafjelag fyrir Austur-
Jand, er jafnframt sje deiíd í
Prestafjelagi íslands. Stjórn hins
nýstofnaða fjelags skipa: síra
Sveinn Víkingur, Seyðisfirði, for-
maður, síra Jakob Einarsson pró-
fastur að Hofi og síra Stefán
Björnsson, prófastur á Eskifirði.
Auk hinna þjónandi presta, sem
allir teljast til fjelagsins, er með-
al stofnenda skólastjóri alþýðrr-
skólans á Eiðum, Þórarinn Þórar
insson cand. theol.
Orðsending frá
úthlutunarskrifstofu
Reykjavfknr
Aukaskamti af sykri til sultu-
gerðar verður úthlutað í dag-
og á morgunj í Tryggvagötu 28,
gegn framvísun stofna af mat-
vælaseðlum fyrir ágúst—septein-
ber. Afgreiðslutíminn er frá 9—
12 f. h. og 1—6 e. h. báða dag-
ana.
Þeir, sem vitja skamtsins ekki
þessa daga, fá hann afgreiddan
við næstu aðahxthlutun.
Þegar tíðindamaður frá Morg-
unblaðinu sneri sjer í gær til Wise
liöfuðsmanns, til þess að fá nán-
ari vitneskju um þetta mál, stað-
festi hann fregn þessa.
Eftir þeim upplýsingum sem
capt, Wise gaf, höfðu Bretar kom-
ist á snoðir um stöðina á þann
hátt, að þeir náðu skeyti með
vissu kallmerki, sem sent var til
Þýskalands. Um innihald þessa
skeytis láta Bretar ekkert uppi að
svo stöddu. En kallmerkið, sem
notað var í skeytinu, var skráð á
uafn Sigurðar Finnbogasonar.
Þegar capt. Wise var spurður
um það, hvernig með mál þetta
yrði faiúð, kvaðst hann ekki geta,
neitt um það sagt á þessu stigi.
Málið yrði rannsakað og svo rætt
um það við íslensk stjórnarvöld.
eftir því sem það upplýstist,
★
Á þessxi stigi verður vitanlega
ekkert um það sagt, hversu aL
varlegt rnálið er fyrir Sigttrð
Finnbogason. Veltur vitanlega alú
á því, hvað hann hefir verið að
aðhafast með þessari stuttbylgju-
stöð. Ekkert er upplýst xxm það,
hvort Sigui-ður hafi sent skeytið.
sem Bretar náðu.
Athæfi Sigurðar er undir öll-
um kringumstæðum brot á ís-
lenskum lögum. Sá verknaðxp*
einn, að hafa slíka stöð í fórum
sínxxm og nota hana í óleyfix ,er
brot á ísl. lögum og getur varðað
sektum, alt að 10 þús. krónum.
En hjer er vitanlega aðalatriðið
hitt: Hvaða verknað var maður-
|inn að vinna með stöðinni? Not-
aði hann stöðina til þess að gefa
ófriðaraðila upplýsingar, se.m; geta
haft þýðingu í ófriðnum, sem nú
geisar ?
TJm þetta liggja engar upplýs-
ingar fyrir frá breSka setuliðinu.
En ef um' slíkt brot vær-i að ræða,
livaða víðurlög væri í ísl. lögum
fyrir því?
Samkvæmt nýju hegningarlög-
unum varðar það alt að 5 ára
í’efsingu, að fremja slíkt afþrot.
í 93. gr. segir svo:
„Stuðli maður að því, aS njósn-
ir fyrir erlent ríki eða erlenda
stjórnmálaflokka þeinist að ein-
hverju innan íslenska ríkisins eða
geti beint eða óbeint farið þar
FRAMH. Á SJÖTTU 8ÉÐU-