Morgunblaðið - 15.08.1940, Side 4

Morgunblaðið - 15.08.1940, Side 4
4 Fimtudagur 15. ágúst 1940. Gibraltar-vígið ósigrandi Spönsk blöð hafa krafist Gibraltar til handa Spáni. Þýskar og ítalskar flugvjelar hafa gert loftárásir á þetta heims- íræg vígi Breta. 1 þessu sambandi hefir verið um það rætt, hvort „lykillinn að Miðjarðarhafinu“, en svo hefir Gibraltar verið nefnt væri ósigrandi eða ekki. MORGUNBLAÐIÐ Hín ágætasta bók síðustu áratuganna Markmið og Einkum hefir verið um það deilt hvort Gibraltar væri örugt gegn loftárásum. Tveir sjerfræðingar í þessum efnum hafa látið áJit sitt í ljós í breskum blöðum. Báðir hafa verið landstjórar á Gibraltar, þeir Sir Alexander Godley Og Sir Edmund Ironside. — Báðir telja þeir Gibraltar vígið ó- vinnandi. Frá þeirra sjónarmiði er Gibraltar ósigrandi, hvort sem á það verður ráðist frá landi, sjó eða úr lofti. Gibraltar er traust vígi frá náttúrunnar hendi, einkum vegna hamranna, sem umlykja vígið. Jafnvel veðráttan er heppileg og loftgöt gera flug- árásir erfiðar. Gibraltar er lítill skagi, tengdur meginlandinu með mjóu eiði, sem er þriggja mílna langt og einnar mílu breitt. Klettarnir rísa svo að segja lóðrjett í 1400 feta hæð. ★ Það er svo að segja ógerning- ur fyrir flugvjelar að gera árás á klettana án þess að flúga beint fyrir kjafta loftvarna- byssana, sem eru bygðar inn í ilettinn. Eiðið er ekki aðeins varið frá landvirkjunum heldur má og verja það frá herskipum beggja megin eiðisins, bæði frá Miðjarðarhafi og Gibraltarflóa. Það er rjett, að Þjóðverjar hafa komið sjer fyrir lang- drægum ífallbyssum á Afríku- strönd, nálægt Ceuta í Spönsku Marokko, en þessar byssur eru líka í skotfæri byssanna á Gi- braltar. En jafnvel þó Þjóðverjum takist að skjóta á Gibraltar úr langdrægum fallbyssum frá Ce- uta eða spönsku ströndinni, gætu þær ekki unnið mikið tjón. ★ Borgin Gibraltar er að miklu leyti höggin inn í klettinn. Inn í klettinum eru íbúðir, geymslu- rúm fyrir skotfæri o. þ. h. Þar er ekki aðeins rúm fyrir alla íbúa Gibraltar, heldur og fyrir mikinn forða af bensíni, óg olíu, fæðu og vatni. Breska stjórnin skilur hve Gi- braltar er þýðingarmikið virki og undanfarna mánuði hefir verið unnið að því, að styrkja vígið ennþá meir en það var áður. Konur og börn hafa ver- ið flutt á brott og auk sterks setuliðs eru íbúarnir aðeins nú um 15,000 manns. Gibraltarkletturinn er þakinn stórskotaliðsbyssum og loft- varnabyssum og enginn flug- maður vogar sjer að fljúga yfir hann nema í mikilli hæð. Þeir flugmenn, sem sendir eru til árása á Gibraltar, verða að fljúga svo hátt að loftvarna- byssukúlurnar nái ekki til þeirra. Gibraltar er ekki heppi legur skotspónn fyrir flug- sprengjur, enda verður raunin sú, að flestar fara þær í sjó- inn. ★ Hingað til hefir lítið verið látið uppi um bústaði þá, sem höggnir hafa verið inn í kletG inn. Einn breskur hermála-rit- höfundur hefir lýst nokkuð hin- um svonefndu St. Michaels hvelfingu. ,,Þegar maður sjer þessar gífurlegu hvelfingar og þau ó- sköp af hernaðarvarningi, sem þar er geymdur, hlýtur maður að sannfærast um að Gibraltar sje ósigrandi. — Gibraltar er sterkara, en það hefir nokkru sinni verið fyr í heimssögunni" Einn af merkilegustu atburð unum í sögu Gibraltar er um- átur Spánverja um virkið 1779—1783. Spánverjar höfðu um 400,000 manna lið gegn 7,000 manna setuliði. Umsátin stóð svo að segja óslitið í þrjú ár, en virkið var ekki unnið. Foringi varnarliðsins var Sir George Augustus Elliot, síðar Heatfield lávarður. Gibraltar hefir mikla þýð- ingu í augum Mussolinis. ítalir þurfa að fá flutt um Gibralt- arsund margar nauðsynlegar innflutningsvörur, einkum ben- sín og matvæli, en Gibraltar- sunds er gætt dag og nótt og um sundið fer enginn nema með leyfi Breta. „Markmið og leiðir“, eftir prófesor Aldous Iluxley. — íslenskað hefir dr. Guðm. Finnbogason. etta kann að þykja mikið sagt um eina bók, að hún sje sú ágætasta, sem iit hefir komið hjer á landi síðustu áratugina. En hver maður hefir þó leyfi til þess að segja álit sitt. Blíkri bók er erfitt að lýsa, því híín er sennilega ein hin altækasta og efnismesta bók, sem þessi mikla bókmentaöld hef- ir í heiminn borið. Margir munu skrifa um hana og þannig kann almenningi að síðustu að gefast sæmileg heildarmynd af henni, en hætt er við, að hver einstakur mikli það helst sem honum vex mest í augum í þessu glæsilega ritverki. Hiin er heill heimur speki, djúphygli, fróðleiks og mikil- vægra sanninda. Hinn snjalli þýð- andi bókarinnar, dr. Guðmundur Finnbogason, sagði við mig, að hún væri „frá upphafi til enda skrautlaus röksemd“. I meira en hálft ár hefi jeg gætt mjer á því að lesa þessa bók, brunnið af löngun eftir að fá hana á íslensku, og áræddi seinast að færa hana í tal við dr. Guðmund Finnbogason og fleiri fjelaga Mentamálaráðs. Það var óneitan- lega skemtilegt að Mentamálaráð skyldi nú hefja útgáfustarfsemi sína á ný með þessu merkilega verki. Enga bók hefi jeg fyrir- hitt síðustu áratugina, sein jeg te] heppilegri og þýðingarmeiri fyrir nútímamenningu, en einmitr; þessa. Hvílík heilsulind fyrir sál- arsjúk'Ieik yfirborðsmenningar og tilfinningaofsa öfga- og heittrúar- stefnanna. Bókin skorar alla lmgs- andi og greinda menn á hólm við aig. Hinir liafa ekkert með hana að gera, en hugsandi menn og greindir vilja flestallir teljast, og jinunu því margir hnýsast í bók- na. Það borgar sig líka, því þang- að má sækja auðlegð. Bókin er í raun og veru. hinn prýðilegasti skóli, sem meira gildi hefir fyrir hið hagkvæma líf, heldur en marg ur hinna. Þetta, er nú aðeins vitnisburður minn um bókina .Enn hefi jeg ekki reynt að segja frá efni henn- ar, og er jeg þar mjög hikandi, því jeg gæti auðveldlega skemt fyrir henni, þótt jeg reyndi að benda á þann rauða þráð bókar- innar, sem mjer finst mikilvæg- astur. Eins og há fjöll sjást úr mikilli fjarlægð, svo er um mikla menn. Það þarf jafnve'l ekki bókfróða ,menn til þess að kaonast við þessi nöfn: Thomas Huxley, Julian Huxley og Aldous Huxley. Allir hafa þessir frændur verið lær- dómsmenn miklir, rithöfundar og vísindamenn. Þeir eru ekki fyrst og fremst postular tilfinninganna, heldur talsmenn raunveruleikans, þekkingarinnar, fróðleiksins og sannLeikans.Ekki mundi heimurinn kalla ]>á trúmenn á almenuan mæli kvarða, en þeir hljóta að vera trúaðir á lífið og eflífa mögu- leika þess. Aldous Huxley er höf- undur bókarinnar, sem jeg er að tala um'. Hann er þegar heims- Efflir A. kunnur rithöfundur og fræðimað- ur, skáld og vísindamaður. Á höf- undarins eigin máli heitir bókin: „Ends and Means“ — Markmið og leiðir. I upphafi bókarinnar getur höf- undui-inn þess, að í þrjú þúsund ár hafi menn yfirleitt verið sam- mála um markmiðið — hið eftir- sótta og ákjósanlega takmark mannkynsins og menningar þess. Alt frá dögum Jesaja til Karl Marx hafi spámenn þjóðanna tal- að sem einn maður um gullöld vonanna, að þar .muni ríkja: rjett- læti, friður, frelsi og bróður-elska. A'llir sammála um takmarkið. Það er bræðralag manna á jörðu, en — leiðimar, þær eru margar og þar skifta skoðanir manna og þjóða þeim' í harðvítuga andstöðu- flokka. Höfundurinn leiðir svo les- ara sinn út á þessar mismunandi leiðir, sem flestar bera eitthvert, „isma“-nafn, og vekur það undr- un og aðdáun lesarans, hve víð- tæka þekkingu höfundurinn á á öllum þessum mismunandi leiðum. llann virðist vera kunnugur öll- um „ismum“ veraldarinnar. Þar er rætt af víðsýni, þekkingu og næm Um skilningi jafnt um kristindóm, Búddatrú eða kenningu, dulspeki og raunvísindi, kommúnism'a og fasisma, Ilitlerisma og lýðræði, viðskifti, atvinnumál og stórpóli- tík, einnig- um uppeldi og hinar innri hliðar vandamálanna og dýpri rök tilverunnar. Hann er ekkert feiknari yið að gagnrýna sína eigin þjóð og afglöp hennar, heldur en öfgastefnurnar með hættum þeirra og ofsafengi. En höfundurinn gerir meira en að gagnrýna, bók hans er jákvæð og slcapandi. Hún bendir á hinar á- gætustu leiðir. Og þar er ekki að ræða um einhverja hugmynda- þoku milli hiœins og jarðar. Nei, höfundurinn. hefir fasta jörð und- ir fó/um. Ilann kemur töluvert inn á skipulagningu atvinnumála og viðskifta og annara stórmála, sem þjóðunum hefir enn eltki tek- ist að gefa viðunandi jafnvægi. Prófessor Iluxley varar við þeirri hugsanavillu, sem vel mætti kallast villutrú, að álíta lausn vandamálanna Íiggja í ein- liverju einu, og aðeins einu. En við þessu hefir mönnum og þjóð- um löngum hætt. Lausnin er auð- vitað fólgin í mörgu, en þeir mörgu þræðir renna þó saman í eitt, er höfundurinn nefnir sem hið einasta bjargráð framtíðar- menningarinnar. Og þetta. tel jeg vera hina skemtilegustu athugun þessa lærdóms og vísindamanns í umræddri bók. Hann segir, að einasta og öruggasta bjargráð menningarinnar hljóti að felast í því, að þjóðunum takist að ala upp „the Ideal Man“, — hinu rjetta og ákjósanlega maon. Það er erfitt, segir höfundurinn að finna eitthvert eitt orð, er rjetti- lega lýsi þessum .manni, eða sje heppilegt nafn á honum, en jeg mundi helst kalla hann „The Non- attached Man“, hinn óháða, al- lelöir Iluxlcy frjálsa og sjálfstæða mann. Eu til þess að maðurinn geti verið /alfrjáls og óháður fjötrandi stefn- um, fjötrandi nautnum og hinni óæðri tilveru, verður hann að vera háður einhverju, sem er manninum æðra eða meira —* „Attached to something greater than Man himselF ‘. Spámenn þjóðanna og hinir mestu hugsuðir þeirrra, segir höf- undurinn, verða að vera „Arki- tektarnir“. Þeir verða að gera. uppdráttinn að húsinu, það er: skapa hina fegurstu og ágætustu mynd af menningu og siðgæði, sem keppa ber að, en samkvæmt þeirri mynd, eða þessum upp- drætti, verða svo sm'iðirnir að l*yggja húsið, það er uppalararnir að annast þjóðar og einstaklings uppeldið. En með þetta fer höf- undur bókarinnar snildarlega og kemur þar fram bæði sem hug- isjónamaður og raunsær vísinda- maður. I seinni tíð hefir allur heimur- inn verið að svipast um eftir mönn jim — miklum mönnum, er leyst gætu þjóðirnar frá þjáningum. styrjakla, atvinnuleysis, fjárhags- vandræða og annara þrenginga, og miklir nrenn þjóðanna hafa ver ið að svipast um eftir bjargráð- um. Aldous Huxley hefir komið auga á rjetta manninn — „The Tdeal Man“, og hið áægtasta bjargráð, og það er sönn nautn að lesa bók hans um þessi vanda- mestu viðfangsefni mannsandans. Sennilega þykir óðagotum vegur sá, er höfundur bókarinnar vísar, seinfarinn, en mannkynið á sjálf- sagt ekki völ á öðrum leiðum til farsældar. Að lokum leyfi jeg mjer aS liafa eftir örfá orð, er blaðið „The Peetator“ segir um bókina: „Þetta er bók, sem á skilið aS vera lesin, og lesin aftur og ígrunduð .... Þar fer sama» hið mesta vitsmunalega afrek, yfirburða þekking og athugun á hinum algildu og æðstu sannind- um, og hin ítrasta hreinskilni á sviði tilfinninga og listar. Þetta, sem á voruím; dögum er heimsíns brýnasta þörf“. Pjetur Sigurðsson. Fyrstu árin Guðrún Jónsdóttir fri Prestkbakka: Fyrstu ár- in. ísafoldarprentsm. h.f. jer er sagt, að höfundur þesarar bókar sje ung stúlka og að líkindum er þetta. hennar fyrsta ritsmíð. f bókinni er lýst sálarlífi lítils drengs, alt frá því að meðvitund- in vaknar til fullra 9 ára aldurs, ásamt umhverfi baxnsins og áhrif- um þess á sál og líkama. Og þetta er gert af svo mikilli hlýju og skilningi, að drengurinn, verðnr góður vinur les. ekki síður en amm an f litla leyndardómsfulla horn- ,inu, sem sefur í brúnmálaða lausa TBHJOL A 5JÖTTTJ SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.