Morgunblaðið - 14.09.1940, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.09.1940, Blaðsíða 5
ÍLaugardagur 14. sept. 1940. Útgef.: H.f. Árvakur, Keykjavlk. Rltstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgBarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Rltstjörn, auglýsingar og afgreiOsla: Austurstræti 8. — Siml 1600. Áskriítargjald: kr. 3,60 & mánuOi innanlands, kr. 4,00 utanlands. I lausasöiu: 20 aura eintaklG, 25 aura meO Lesbðk. Meinsemdin SNEMMA í vor gekk mikið á hjá hersingunni — Tíman- 'ínm, Alþýðublaðinu og Þjóðviljan- nm. Þá þurftu þessi blöð að skamma stjórn Reykjavíkurbæjar fyrir það, hve slælega gengi inn- heimta útsvaranna. Fengu blöðin hjá bæjarráði lista yfir mörg ihundruð gjaldendur, sem í mars- ílok áttu ógreidd útsvör frá s.l. ári eða eldri. Þarna bar að líta •vanskilamennina í Reykjavík. Frá og méð 1. júlí s.l. var tekin Tip'P ný aðferð við innheimtu iit- svaranna í Reykjavík. Á síðasta 'þingi voru samþykt lög, er heim- íluðu bænum að krefja atvinnu- rekendur og kaupgreiðendur um greiðslu útsvars þeirra manna, er hjá þeim ynnu. Samskonar heim- ild var áður til í lögum, að því er snertír ínnheimtu ríkisskattsins Þegar þes&i breyting á inn- heimtu útsvaranna var ákveðin, Ijet Morgunblaðið svo um mælt, að nú færi almenningur fyrst verulega að finna til skattanna. Ekki svo að skilja, að þessi inn- heimtuaðferð væri í sjálfu sjer rranglát. Þvert á móti. Hún kæmi Ijettasí níður á skattgreiðendum, ef skattarnir á annað borð væru viðráðanleglr. En eins og skatt- ■arnir væru hjer, þar sem megin- 'þorri gjaldenda væru að sligast undir byrðinni, myndi hin nýja innheimtuáðferð bitna harkalega á ffjölda gjaldenda. Þetta er mi fyllilega komið á •daginn. Og nú er að koma annað hljóð í hersinguna, sem í vor rjeðist á , stjórn bæjarins fyrir •slæiega innheimtu útsvaranna. Nú birtir Þjóðviljinn daglega svæsn- !ar árásargreinár á stjórn bæjar- ins fyrir harkalega innheimtu út- svaranna. Véslings blaðsnepillinn ættí að fara að læra hin algildn sannindi, að vandratað sje meðal- ihófið. Morgunblaðinu kom ekki á ó- vart, að þannig mýndi fara. Eu Tækningin fæst ekki, nema skorið sje fyrir sjálfa meinsemd- ina. En meinsemdina þekkjum við vel. Hún er sú, að menn.eru látn- ir greiða skatta af brýnustu þurft- aríaunum. Svona hefir þetta lengi verið og það er rauða hersingin «11, senr ábvrgð ber á þessum ó- sóma. Hún lagði gruudvöllinn að skattalöggjöfinni og aldrei þóttu ’henni beinu skattarnir nógu þung- ir. Til ríkisins voru krafðir skatt- ar af brýnustu þurftarlaunum. Þar á ofan skyldi svo bætt útsvarinu, sem var margfaldur ríkisskattur- inn. Svona hefir þetta gengið, og er þá furða, þótt mörg yrðu nöfnin á „vanskilalista“ bæjarráðsf Og ’þegar bærinn fer nú að beita sömu Innheimtuaðferð og ríkið, þá er ! •ekki við iiðru að búast en að margnr kveinki sjer undan skött- nnum. s " Herferðin gegn fyrírbænunum w (H I MMtaC Eftir sira Jóo Anðnns egar hr. Ól. Ólafsson, trú- boði, var búinn að svala sjer á mjer fyrir það, að jeg leyfði mjer þá óhæfu að biðja sjálfur fyrir látnum mönnum og hvetja aðra menn til að gera hið sama, hjelt jeg að hann hefði lok- ið trúboði sínu að sinni, en ekki reyndist svo. Raunar er herferðinni gegn fyr- irbænunum lokið, en á undan- haldinu sendir hann kveðju sína í Mbl. þ. 10. þ. m. ' Þessi síðari ritsmíð er ljóslif- andi dæmi þess hvernig fer fyrir mönnum þegar þeir missa fótfest- mm og þá fer að svima. Allra bragða er nevtt til að flýja rök- ræður um málefnið sjálft, leiða umræðurnar yfir á annan vett- vang og krydda málið þeim stór- yrðum, sem fáir menn nota fyrr en vanmáttarkendin er farin að ónáða þá alvarlega. Þótt jeg eigi örðugt með að gera mjer ljóst hvað sje í raun- inni svara vert í síðari greininni, mun jeg láta undan þeirri sjálf- sögðn kröfu, sem lesendurnir eiga á því, að jeg geri mína skyldu t.il að skýra málið betur. I. í síðari grein hr. Ó. Ó. er sára- lítið vikið að því, sem okkur deil- ir á um': hvort kirkjan eigi að biðja fyrir látnum mönnum. Hann vill bersýnilega flýja það umræðu- efni. Mjer er ekki grunlaust um, að einhver, sem hann tekur mark á, muni hafa stungið því að hon- úm, í allri vinsemd, að þar væri hann kominn út á svo hálan ís, að liann væri ekki maður til ao standa á svellinu. Samt víkur hann að þessu ó- skaplega og ókristilega athæfi, og gerir það með þessum dæmalausu orðuni; „Syndugir menn, sem ekki geta hjálpað sjer sjálfir, hlaupa til (leturbr. mín) í eigin krafti að rjettlæta framliðna mena fyrir Guði, með bænagerð fyrir þeim“. Mjög liefði jeg óskað þess, að audstæðingum kristindómsins og kirkjunnar hefði verið eftirlátið svona orðbragð, því að það er af þeirra vörum tekið, en af munai þess manns, sem vill vera kristni- boði, verða slík ummæli um bæn- ina vægast sagt ógeðsleg. En hvernig fer nú ef þessu vopni er beitt gegn hr. Ó. Ó. sjálfum? Jeg geri ráð fyrir, að hann sje synd- ugur maður svona rjett á borð víð ýmsa aðra menn, a. m. k. er hann nokkuð óvæginn við sann- leikann, og mjer skilst að Kristur hafi ekki talið það athæfi synd- laust, „ldeypur hann ekki til“ og biður fvrir syndugum mönnum sjálfur — svo að jeg noti hans eigið orðalag, þótt mjer sje ógeð- felt. Mín mikla synd er sú, að jeg hefi svo mikla trú á bæninni, að jeg treysti því, að hún geti orðið beim til hjálpar, sem komnir eru yfir landamærin miklu. Hr. Ó. Ó. hefir enga trú á slíku. Hjer mun- ar miklu, því að jeg trúi því, að kærleikur Guðs sje ekki takmark- aður við „góðu börnin“, lieldur nái einnig til þeirra, sem „deyja í synd“, og að Guð gefi þeim möguleika til að bæta ráð sitt fyr- ir handan gröf og dauða, þótt þau óhlýðnist honum hjer. Vegna þess að jeg hefi þetta traust á lang- lundargeði Guðs bið jeg fyrir látnum mönnum. Hr. Ó. O. talar háðslega um „möguleikann fyrir afturhvarfi eftir dauðann“, það er svo sem skiljanlegt að ekki sje verið að biðja fyrir þeim, sem engin von er um. En við erum orðin því óvön hjer á landi, að menn hafi þor til að flytja opin- berlega þann boðskap, að helvíti sje um eilífð lokað og hlið þess Um aldur læst, og hafa þó jafn- hliða á vörunum orð um kærleika Guðs og fyrirgefningarboðskap Jesú Kristst. Þesskonar prjedik- anir munu algengari í löndunum, sem þær „vakningar“ hafa flætt yfir, sem hr. Ó. Ó. og samherjar hans sakna hjer á fslandi. Hr. Ó. Ó. virðist harma það, að fjötrar þessara gömlu og lirylli- legu kenninga skulu vera höggnír af ísl. kirkjunni. Jeg harma það. að þær skuli eiga málsvara enn. Það nauðsynjaverk var af engum betur unnið en síra Haraldi og Jóni bisk. Helgasyni, og í þeim efnum stendur kristni landsins í mikilli skuld við sálmaskáldið síra Matthías, sem trúboðinn er nú svo elskulegur að vara menn við, vegna þess að hann hafi ekki ver ið nógu sterkur í hinum lútherska rjetttrúnaði. í grein sinni minnist trúboðinn á bókina „Brjef frá Júlíu“, sem blaðamaðurinn frægi og mannvin- urinn William Stead gaf út á sín- um tíma, en Einar H. Kvaran þýddi fyrir mörgum árum og Bjöihi heitinn Jónsson, ráðherra, gaf út á íslensku. Þar stendur setning, sem heldur en ekki virð ist hafa velgt trúboðanum fyrir brjósti. Þar eru nfl. sett fram þau sígildu orð, og höfð eftir lát- inni merkiskonu, að það sje „fögn- uður himnaríkis að tæma helvíti" Þann fögnuð á þessi boðberi hins kristilega kærleika bágt með að skilja! Það himnaríki virðist honum eitthvað undarlegt, sem slíkan fögnuð geymir og kýs fremur slíkt fórnarstarf en sálmasöng og á- liyggjulausar skrúðgöngur um garða og gulli lögð stræti. Sú staðhæfing hinna frægu 'Júlíu-brjefa — sem í sinni ein- földu fegurð og speki eru hr. Ó. O þyrnir í augum —- að það sje fögnuður himnaríkis að tæma hel- víti — tæma vansælustaðiná •— er í sem stvstu mál það, sem spiritisminn telur sig vita um lífið á hærri sviðum andaheimanna. Þar er fögnuðurinn ekki í því fólginn að njóta sjálfur himneskra hnossa og kæra sig kollóttan um þrautir og þjáningar hinna, sem voru svo ógæfusamir að revnast óhæfir fyr- ir æðri vistarverur — eins og Kristur kendi að margir reyndust. Nei, þar er fögnuðurinn fólginn í hinu, að vinna raunverulegt starf í þjónustu Krists, heilagt kær- leiks- og trúboðsstarf, þótt þeir trúboðar flytji fráleitt þann dimma boðskap, að hlið vansælu- staðanna sjeu að eilífu læst eða tali liáðslega um ..möguleikana fyrir afturhvarfi eftir dauðann“. Það er fornkirkjuleg og fögur kenning, að í þessu háleita starfi eigi allir Kristsdýrkendur á himni og jörð að taka þátt og vinna þannig að framþróun tilverunnar, og þessi kenniiig er gruiidvollur- inn að trú kirkjunnar á mátt bæn- arinnar fvrir lífs og liðnum; þessi kenning á sjer nákvæmlega jafn mikla stoð í veruleikanum hvort sem hr. Ó. Ó. aðhyllist hana eða ræðst á menn fyrir að halda henni fram. Jeg held að tniboðanum geti naumast verið ljóst hvað hann er að fara, en svona fer mönnum, þegar þeir missa fótfestuna, þá er stundum í ofboðinu |leira sagt en hægt er að standa við. Þessi kenning er miklú eldri en sálarrannsóknir nútímans, en hef- ir fengið máttugan stuðning frá þeim. Og þegar hr. Ó. Ó. er að hella úr skálum sinnar vanmátt- ugu gremju yfir, því, að álitlegur hópur frægustu vísindamanna ver- aldarinnar sje spirtitístar, skal jeg segja honum það, að heldur mun það hafa stvrkt mafgra trú á bænir fyrir framliðnum, að ann- ar eins maður og Sir Oliver Lodge, hinn nýlátni, heimsfrægi eðlisfræð- ingur, sem jafnvel ísl. .blöðin mint--. ust er hann fjell frá í s.l. mánuði, hvetur eindregið til slíkra fyrir- bæna og leggur vísindamannsheið- ur sinn að veði. fyrir því, að hann viti hvað hann sje að segja. Bétur að hr. Ó. Ó. vissi það. Anars skil jeg ekki almennilega þessa herferð hr. Ó. Ó. gegn því að beðið sje fyrir látnum mönn- um, mjer finst það væri ábyrgð- arminst fyrir hann, að láta hvern og einn sjálfráðan um það. En annað mál er, að við ýmsa, sem hafa spurt mig, liefi jeg látið það uppi, að jeg mundi e. t. v. sækja um eltthvert af nýju prestaköll- unúm í Rvík nú í haust. Gefur þetta ekki nokkra skýring á her- ferðinni gegn fyrirbænunum ? Gat það ekki verið vissara að benda mönnurn á, að hjer væri hætta á ferðinni? Fer ákefð hans nú ekki að verða skiljanleg, þar sem, hann stimplar mig í fyrri greininni heiðingja og fullyrðir í þeirri seinni, að Kristur sje sá eini, seru hvergi komi nærri mínu málefni. Þetta er vægast sagt óvenjulega blygðunarlaus fullyrðing ef hún er tekin alvarlega. Það gleymist of mörgum, sem síra Hallgrímur segir: „Athugagjarn og orðvar sjert einkum þegar þú reiður ert“. II. Áður en jeg sleppi pennanum neyðist jeg til að víkja að enn einni fullyrðing hr. Ó. Ó., vegna þess að hún snertir rætur þess máls, sem hjer ræðir. í fyrri greininni segir svo: „Ekki er heldur einn stafur fyrír því í Nýjatestamentinu, að þeir „sem hafa fengið hvíld frá erfiði sínu“, fylgist með í lífsstríði okk- ar, eða biðji fyrir okkur. Sú trá hangir því fullkomlega í lausn lofti“. . Náttúrlega er sú fjarstæða ekki svara verð, að alt „hangi í lausn lofti“, sem ekki er minst á í Nýjá- testamentinu, hvernig ætti að vera hægt að minnast á alt þar? En þessu má sleppa. því að þessi full- yrðing hr. Ó. Ó. sýnir hve við- sjárvert það er að lesa heilaga Ritning þannig, að hafa ákveðið það fyrirfram sjálfur hvað megi standa þar! Athugum nú nánar þessa full- yrðing hins biblíufróða manns, að „hvergi sje einn stafur fyrir því í Nýjatestamentinu, að látnir menn fylgist með lífsstríði jarð- neskra manna. Þegar Saddúkearnir, sem ekki trúðu á framhaldslífið, spyrja Jesú um hag framliðinna manna, svar- ar hann þeim og segir, að látnir menn sjeu „eins og englar í himn- unurn* ‘. Ætlar hr. Ó. Ó. að fara að boða þá trú, að englarnir viti ekki um það, sem á jörðunni gerist? Hann um það, en hann ætti ekki að leyfa sjer að bera Nýjatestamentið fyrir því. Birtust englarnir ekki við fæðing Jesú? Komu þeir ekki til hans að aflokinni freistingunni? Kom ekki einn þeirra blátt á- fram til að styrkja hann í „lífs- stríði“ hans í Getsemane og var þeim ekki eitthvað kunnugt um upprisu hans, að því er guðspjöll- in herma? Komu ekki þeir Móse og Elía, sem báðir voru framliðn- ir menn, til hans á fjallinu, í aug- sýn þriggja lærisveina, til þess að tala við hann um nálægan dauða hans í Jerúsalem? Vissu þeir þá ekkert hvað „lífsstríði" hans leið? Veit hr. Ó. Ó. ekkert hvað hana er að segja ? Og enn má lengur rekja: Post- ulasagan geymir, ekki aðeins eina heldur margar, frásagnir af því hvernig ósýnileírir verndarar vöktu yfir starfi postulanna, Pjet- urs og Páls „fylgdust með í lífs- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.