Morgunblaðið - 08.10.1940, Síða 7

Morgunblaðið - 08.10.1940, Síða 7
f í' Þriðjudagur 8. október 1940. MORGUNBLAÐIÐ Baldvin Einarsson aktýjasmiður 65 ára Átökin I Austur- Asíu Idag, 8. okt. er 65 ára einn af velþektum borgurum þessa bæjar, Baldvin Einarsson, aktýgjasmiður, til heimilis á Mánagötu 17. Baldvin er uppalinn í Herríð- arkoti í Holtahreppi og átti þar heima fram yfir tvítugs aldur, en um það leyti fór hann hing- að til Reykjavíkur að læra söðla smíði hjá Ólafi Eiríkssyni. Eft- ir nokkurn lærdómstíma þar, rjeðist hann, þótt fátækur væri og lítt að sjer í útlendu máli, til utanfarar, til að afla sjer frekari þekkingar í leðuriðnaði í Noregi. — Þar lærði hann til fullnustu aktýgjasmiði, sem þá stóðá háu stigi þar í landi, enda mun Baldyin hafa. verið fær- ástur maðyr í þeirri iðngrein eftir lærdóm sinn í Noregi. — Baldvin er vandvirkur og góð- ur smiður í sinni grein, og hefir stundað hana með mikilli elju og kostgæfni hjer í bænum ó- slitið alla tíð síðan og þekkja hann því margir, bæði hjer í bæ og úti um land í gegnum iðngrein hans. Starfsþrek hans virðist enn lítt bilað þrátt fyrir þennan aldur, enda vinnur hann enn fullum fetum við þetta iðn- fyrirtæki, þótt hann hafi látið af forstöðu þess í hendur son- ar síns. Baldvin er kvæntur norskri konu, sem reynst hefir honum hinn sterkasti förunaut- ur á lífsleiðinni. Jeg, sem þessar línur1 rita, hefi þekt Bldvin að öllu í meir en 20 ár, og höfum við oft átt saman skemtilegar samræð- ur þegar næði hefir verið ’til, því Baldvin hefir staðgóða nátt- úrugreind til að bera. Jeg vil því þakka Baldvin fyrir alla góða viðkynningu á liðinni tíð, og veit jeg, að margir verða til að taká undir með mjer um, að honum megi verða framtíðin sem ánægjulegust þótt æfisólin sje gengin þetta langt á vestur- loftið. Þ. J. J. FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. á Austur-Asíumálin væri heppi- legast að Japanar og Rússar iÖfnuðu öll ágreiningsmál sín. En Matzuoka tók það fram (að því er segir í fregn frá Lon- don), að Japanar gætu ekki leyft það, að kommúnisminn flæddi yfir Japan, eða Kína. \í tilkynningu, sem birt var i Tokio í gær segir, að japanska stjórnin fylgist með áhuga og at- hygli með því, sem gerist í Kyrra- hafi og Austur-Indíulöndum, þeim er varða lífshagsmuni Jap- ana. Japanar óska ekki eftir því, segir í þessari tilkynningu, að stríðið breiðist út og verði heiins- stríð, sem spennir um állar álfúr. En Japan hlýtur að vænta þess, að hollensku Austur-IndíUr og franska Indó-Kína láti sjer skilj- ast, að dagar hinna svókölluðn móðurlanda þeirra eru liðnir und- ir lók og að eina lífsskilýrði þess- ara landa er að fylkja sjer und- ir merki Jaþana, um nýsköpun Austurálfu, eiris og Þýskaland er nú að skapa nýja Evrópu. Rúmenía Loftárásirnar á London FRAMH. AF ANNARI SÍÐU tókst að brjóta sjer leið yfir Mið-London í gær og varpa niður sprengjum Opinberlega hefir verið skýrt frá því, að nokkuð manntjón hafi orðið, nokk- ur hús hafi verið eyðilögð og önnur hafi laskast. Eldar komu upp áð nokkrum stöðum í borginni, en það tókst fljótt að ná tökum á þeim, seg- ir í fregn frá London. Engar fregnir höfðu borist um tjón af árásinni, sem hófst snemma í gærkvöldi og stóð enn yfir, í nótt. Loftvarnaskothríðin var sögð ákfaari en nokkru sinni fyr. Nokkrum flugvjelum hafði þó tekist að komast inn yfir borg ina og varpa niður sprengjum. FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. einnig við hergagnaiðjuna í Þýskalandi. Staðfest í Berlín. í fyrstu voru fregnirnar um að þýskt herlið væri komið til Rú- meníu, en þær höfðu komið frá Bukarest, bornar til baka í Þýskalandi, en síðar í gær var það viðurkent, að þýskt herlið væri komið þangað, í þeim til- gangi að kenna rúmenska hern- um meðferð nýtísku vopna; þess vegna hefði þýski herinn allan útbúnað. Þýski herinn er ságður vera að- allega í olíunámahjeruðum, og í borg einni á Svartahafsströnd, sem olíuflutningarnir frá Rú- meníu fara um. Það er tekið fram í Reuters- fregn frá Rúmeníu, að alllangt sje þaðan sem þýsku hermenn- irnir eru, til landamæranna, þar sem hermenn Rússa eru. Reutersfregnin hermir, að 12 lýskir liðsforingjar sjeu komnir til Bukarest til þess að ræða við rúmensku stjórnina um hvar lýska herliðinu skuli komið fyrir. I fregn þessari segir, að háttsett- ur, þýskur hershöfðingi, sem staddur var nýlega í Bukarest, hafi komist að þeirri niðurstöðu, að nauðsynlegt væri að rúmenski herinn yrði endurskipulagður. Eru Þjóðverjar sagðir hafa tekið að sjer að kenna 8 rúmenskum her- fylkjum (division) meðferð ný- tísku hergagna. Þjóðverjar munu telja sig hafa rjett til íhlutunar um hermál Rú- mena, þar sem þeir tóku að sjer að ábyrgjast landamæri Rúmeníu með Vínarúrskurðinum um Tran- Sylvaníu. ftalir eru sagðir hafa tekið að sjer að kenna rúmenska hernum aðallega á sviði flugmála. Eru ít- alskir flugkennarar sagðir hafa verið í Rúmeníu um nokkurra mánaða skeið. Verslunarmannafjelag Reykja- víkur hóf vetrarstai'tjemi sína í síðastliðinni viku með vígslu hins myndarlega Fjelagsheimilis, sem skýrt hefir verið frá hjer í blað- inu. Fjelagið heldur fund í kvöld til þess að ræða um framtíðár fyrirkomulag og rekstur Fjelags- heimilisins og önnur fjelagsmál. Starfseini V. R. er sívaxandi og hefir fjöldi verslunarfólks sótt um inngöngu í fjelagið síðustu dag- ana. Slapp úr fanga- búðum Breta I gærkvöldi var lýst eftir þýsk um flugliðsforingja í breska útvarpinu, en flugliðsforinginn hafði slc^ipið úr fangabúðum Englandi um miðjan dag í gær. Nákvæm lýsing var hirt á mani: inum, hann sagður vera 26 ára og tala reiprennandi ensku. Þriðjudagsveltan. Ýmsar veltur komu til uppbótar fyrir þá sunnudaginn og voru misjafnlega birtingarhæfar. Ein þeirra var Jiessi: Jeg er að velta því fyri mjer, hvort Jónasarmenn geti ver ið hermannlegir. Höfundurinn skrifaði „Hermannlegir“ með stór um staf. I. O. 0. F. Rb.st. 1 Bþ. 901089y2 I. E. Næturlæknir er í nótt Eyþór Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími 2111. Næturvörður er í lugólfs Apó- teki og Laugavegs Apðteki. Næturakstur annast Litlá Bíl- stöðin. Sími 1380. 50 ára er í dag frú Jónína Guð- jónsdóttir, Hringbraut 32. Frú Vilborg Jónsdóttir, Berg- staðastræti 56 er 75 ára í dag. Þegar jeg mæti henni á‘ leið til vinnu minnar á morgnana, finst mjer það æfinlega jafn ósenni- legt, að þar fari kona, er kom- in sje þetta til ára, ekki hafi ver- ið heilsusterk og sje að koma frá sinni vinnu — Vilborg vinnur úti enn — hefir starfað um 30 ára skeið eða lengur að ræstingu hjá Búnaðarfjelagi íslands og um langan tíma hjá Rafveitu Reykja- víkur. Vilborg er vinsæl, enda trölltrygg, glaðlynd og skemtileg í viðræðum. Þeir muiiu áreiðan saman í hjónaband ungfrú Mar- grjet Kristjánsdóttir, Sellandsstíg 14 og Guðmundur Sæmundsson, bóndi að Eiði-Sandvík í Flóa. Hjónaefni. S.l. fimtudag opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Jeni\ý Sigmundsdóttir frá Þingeyri og Guðmann Högnason frá Laxárdal í Gnúpverjahreppi. Fyrsti fundur V arðarfj elagsins á þessu hausti verður haldinn annað kvöld kl. 8y2 í Varðarhús- inu. Árni Jónsson alþm. mun hefja umræður um samstarf flokkanna. Atli Már Árnason verður kenn- ari á námskeiði verslunarmanna í auglýsingaskrift og auglýsinga- teikningu, sem hefst á morgun í Handíðaskólanum. Atli Már hefir stundað teikninám í þrjú ár í Listiðnaðarskólanum í Kaupmanna höfn, og útskrifaðist þaðan með góðum vitnisburði s.l. vetur. —. Kenslan fer fram á kvöldin, eftir vinnutíma verslunarfólks. Slökkviliðið var um 11-leytið f gærkvöldi kallað að Ægisgarðí, þar sem línuveiðarinn Sigríður liggur. Hafði kviknað í háseta- lega nokkuð margirý sem óska klefa út frá olíulampa. Búið var að slökkva eldinn að mestu, er slökkviliðið kom, og skemdir voru lítilfjörlegar. Til fatlaða mannsins: Z. A. Z. 50 kr. Til Strandarkirkju: G. H. 10 kr. H. J. 3 kr. Ónefnd kona 5 kr. J. B. 5 kr. M. 10 kr. G. G. 10 kr. Y. D. 10 kr. S. J. 2 kr. Útvarpið í dag: 12.00—13.00 Hádegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Lög úr tón- filmum og óperettum. 20.00 Frjettir. 20.30 Erindi; Kvikmyndalistin og Luis Trenker (ungfrú Rannveig Tómasdóttir) . 21.00 Hljómplötur; Píanótríó í a- moll, Op. 50, nr. 2, eftir Tschai- kowsky. henni af alhug til bléssunar um ókomná æfi. ! H. J. Hjúskapur. Á laugardaginn gaf síra Friðrik Hallgrímsson saman í hjónahand ungfrú Guðfjnnu Lárusdóttur og Gunnar Gunnars- son trjesmið. Heimili þeirri er á Hverfisgötu 102. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Sigríður Jóhannesdóttir ljósmynd- ari og Sigurjón Vilhjálmsson mál- ari. Heimili ungu hjónanna er við Öldugötu 18 í Hafnarfirði. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman í hjónaband hjá lög- manni ungfrú Steinunn' Sigur- björnsdóttir og Hafsteinn Ólafs- son harmonikuleikari. — Heimili þeirra er á Karlagötu 13. Hjónaband. í dag verða gefin Ltmdtínabúar ,br essír og glaðí r ‘ rkibiskupinn af Kantara- borg ræddi í gær um fram- komu Lundúnabúa í loftárás- um og kvað hann aðdáunar- vert hversu mikla hugprýði þeir hafa sýnt. Kvaðst hann geta um þetta dæmt af eigin sjón og raun. Óskaði hann þess að Hitler og Göring hefði tæki færi til þess að sjá, hversu hug rakkir menn væru, hressir í lundu og glaðir, þrátt fyrir alt, sem á hefir dunið. Sprengju- árásirnar, sagði erkibiskupinn, hafa ekki aukið likurnar fyrir sigri Þjóðverja. Kaupi og sel allsbooar M ðl i^veröbrfef og fasfeftgnir. Til viðtals kl. 10—12 alla virka daga og endranær eftir samkomulagi. — Símar 4400 og 3442. GARÐAR ÞORSTEINSSON. V'_ '.X. • » . -'VvA 22 ítalskir kafbátar B resk herskip í Miðjarðarhafi söktu í vikunni sem leið tveim ítölskum kafbátum. ítalir hafa þar með mist 22 kafbáta frá því að stríðið hófst iJi -|f. ■ f Jarðarför konunnar minnar JÓHÖNNU GÍSLADÓTTUR fer fram frá fríkirkjunni á morgun, miðvikudaginn 9. þ. m., og hefst með húskveðju að heimili okkar, Leifsgötu 22, kl. 1 e. h. Kirkjuathöfnixmi verður útvarpað. Fyrir hönd barna okkar, fjarstaddrar móður og annara vandamanna Guðbrandur Guðjónsson. Jarðarför ÞURÍÐAR NIKULÁSDÓTTUR frá Hjörsbæ í Keflavík, fer fram föstudaginn 11. þ. m. og hefst með húskveðju frá heimili hinnar látnu, Vesturgötu 9, Kefla- vík, kl. 2. — Bílaferðir frá Bifreiðastöðinni Geysi. Aðstandendur. Hjartanlegar þakkir öllum þeim, sem vottað hafa virðing minningu móður okkar GUÐRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR. Kristinn Níelsson. Níels Níelsson. Á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.