Morgunblaðið - 29.10.1940, Qupperneq 7
Þriðjudagur 29. okt. 1940.
7
Stjórn SKíðafjelagsins
endurkesin
Aðalfundur Skíðafjelags Reykja
víkur var haldinn í Kaup-
þingssalnum í gærkvöldi. Formað-
ur fjelagsins og tveir menn aðrir,
sem gengu úr stjórninni, voru
endurkosnir.
Stjórn fjelagsins skipa því
næsta ár sömu menn og áður, en
það eru: Kristján Ó. Skagfjörð
formaður, Magnús Andrjesson
varaform., Einar Guðmundsson
gjaldkeri, Kjartan Hjaltested rit-
ari og Björn Pjetursson.
í varastjórn voru endurkosnir
Jón Ólafsson og Stefán G. Björns-
son. Endurskoðendur voru endur-
kosnir þeir Björn Steffensen og
Konráð Gíslason.
Fundurinn samþykti að hafa
sama árgjald í fjelaginu og áður,
kr. 5.00.
Nokkrar umræður urðu á fund-
inum um ýms fjelagsmál.
Lára miðill
FRAMfí. AF. FIMTU SÍÐU
fundi sýndi tusku, sem jeg hefði
rifið út úr slæðum miðilsins, var
auðvelt að segja, að jeg hefði
komið með tuskuna á fundinn og
logið því að jeg hefði tekið hana
af miðlinum.
Að ráðast á jniðilinn og taka af
honum allar þær slæður, sem á
honum væru, var hrottalegt og ó-
viðui'kvæmilegt. Jeg beið því enn
átekta, athugaði það sem fram
fór í von um að fá tækifæri tíl að
staðreyna grunsemdir mínar, þótt
síðar yrði. Meira.
Loftárásir á Bretland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Þýskar flugvjelasveitir, einkurn Ijett-
ar sprengjuflugvjelar gerðu margar
refsiárásir á London allan daginn í gær.
I þessum loftárásum vörpuðu þýskar
flugvjelar sprengjum yfir flugvelli ná-
lægt London og á fIugvjelabirgðastöðv-
amar í Iienlow. Fjöldi orustuflugvjela
vora eyðilagðar á jörðunni, í sprengju-
árásum sem gerðar voru á flugvöll á
Skotlandsströnd snemma í gærkvöldi.
Meðal annara hemaðarlegra mikilvægra
staða, sem ráðist var á, var stórt orku-
ver á suðurströnd Englands hæft nokkr-
um sinnum. Norður af Liverpool gerði
þýsk- sprengjuflugvjel steypiárás með
góSum árangri á hergagnaverksmiöju.
1 nánd við York, var jámbrautarlest
hæfð og sett út af teinunum. Þýsk
flugvjel hefir með góðum árangri ráð-
íst á sterklega varða skipalest, 200 mílur
vestur af Noröur-írlandi. Tvö kaupför,
8000 smálestir hvort, vora hæfð og láu
hreyfingarlaus og hölluðust mikið.
Um nóttina gerðu fylkingar stórra
sprengjuflugvjela harðar árásir á
bresku höfuðborgina. Sprengjuárásir
vom enn gerðar á verksmiðjur í Birm-
ingham og Coventry og á höfnina í Liv-
erpool.
í björtu komu engar breskar flug-
vjelar yfir Þýskaland. Eti í skjóli myrk-
ursins rjeðust breskar flugvjelar á í-
búðarhverfi og löskuðu m. a. gamal-
tnermahæli og mörg íbúðarhús. Margir
borgarar særðust. Eina tilraunin, sem
gerð var til að hæfa iðnaðarstöð mis-
tókst. í gær mistu óvinirnir samtals;
29 flugvjelar og vom 17 þeirra skotnar
niður í loftorastum yfir Lundúnasvæð-
in, en 12 voru eyðilagðar á íörðunni.
Níu þýskra flugvjela er saknað.
Frönskum pegn-
um bannað að
blýða 0 breskt
útvarp
Tilskipun var gefin út í Vi-
chy í gœr, um að frönsk-
um þegnum er bannað að hlýða
á breskt útvarp á opinberum
stöðum. Tilskipun þessi var gef-
in út um sama leyti og tilkynt
var að Laval hefði tekið við
stjórn franska útvarpsins.
Laval hefir stjórn útvarpsins
jafnhliða stjórn utanríkismál-
anna. í>að hefir nú verið opin-
berlega staðfest, að Baudoin,
sem verið hefir utanríkismála-
ráðherra, hefir sagt af sjer, en
hann hefir verið gerður ráð-
herra án stjórnardeildar, í nánu
sambandi við ríkisforsetann
(Petain).
Laval verður áfram varafor-
sætisráðherra.
Stjórnin í Vichy hefir í orð-
sendingu til frönsku yfirvald-
anna í Tunis tilkynt, að engin
breyting verði á stöðu Tunis. í
London hefir þessi fregn vakið
nokkra athygli vegna þess, að
Bizerta, hin mikla flotahöfn, er
í Tunis.
ÞEGAR „EMPRESS OF
BRITAIN“ VAR SÖKT
'------ ’Í
Isameiginlegri tilkynningu
breska flotamála- og her-
málaráðuneytisins í gær, er það
viðurkent, að stórskipinu ,,Em-
press of Britain", þriðja stærsta
skipi breska kaupskipaflotans,
hafi verið sökt síðastliðinn laug-
ardag.
I tilkynnnigunni segir, að þýsk flug-
vjel hafi varpað sprengjum á skipið, en
horfið síSan burtu. En flugvjelin kom
aftur og varpaði þá íkveikjusprengjum
yfir skipið, sem þá var alvarlega laskað.
Tilraun var gerð til aS draga skipið
til hafnar, en brátt var það alelda stafna
á milli. Nokkru síSar varð sprenging í
því, og hið glæsilega skip sökk.
Árásin á skipið var gerð 700 mílur
vestur af Norður-frlandi. SkipiS var á
leið frá Kanada til Englands með 643
menn um borð, aðallega hennanna' fjöl--
skyldur, og nokkra hermenn (segir í
bresku tilkynningunni). í fyrrakvöld var
búiS að setja á land á Bretlandseyjum
598 manns.
' Skipstjórinn stóð í brúnni, þar til
eldur logaði bókstaflega undir fótum
hans. Þá fór hann fram á skipið og
þaðan var lionum bjargaS.
Fjárpestin
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ar 9 ær; þrjár þeirra voru sýkt-
ar nú í haust. Það veit enginn,
nema sá sem reynir, hve miklir
erfiðleikar þeirra bænda eru, sem
eiga við þessa plágu að stríða.
Nú eru þeir bændur, sem búa
framan Yatnsskarðsgirðingar,
hræddir um, að kílapestin þing-
eyska sje komin í fjenað þeirra.
Hafa fundist sýktar kindur frá
Vallholti í Skagafirði. Karakúl-
ólánið ætlar lengi að loða við
fjenað okkar.
Ji0R6bí> BiÁtííÐ
Dagbók
□ Edda 594010297 — Fyrl.
Næturlæknir er í nótt Gísli Páls-
son, Laugaveg 15. Sími 2472.
Næturakstur annast næstn nótt
Bifreiðastöðin Geysir. Sími 1633.
f fyrrinótt andaðist að Elli-
heimilinu Grund, Jón Jónsson frá
Sundi, fyrv. póstur og ökumaður.
Jón var Árnesingur að uppruna,
en dvaldi lengst af æfinnar hjer í
bæ og var af mörgum þektur og
vel látinn af öllum.
Hjónaband. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni Þórlaug Ólafsdóttir frá
Grindavík og Sigurðnr Magnús-
son sjómaður frá Patreksfirði.
Hjónaband. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af síra Friðrik
Hallgrímssyni Ásta Davíðsdóttir
frá Þverfelli og Pjetur Guðmunds-
son bílstjóri. Heimili ungu hjón-
anna er á Laufásveg 9.
Almennur stúdentafundur. 1
kvöld kl. 8Yz verður haldinn al-
mennur stúdentafundur í almenna
fyrirlestrasalnum í Háskólanum.
Stjórn stúdentaráðsins mun gefa
skýrslu um störf ráðsins á liðnu
starfsári. Að því loknu hefst um-
ræðufundur um kosningar til stúd-
entaráðs, sem fram eiga að fara á
morgun. Eru þrír listar í kjöri að
þessu sinni, svo búast má við fjör-
ugum umræðum. Fundurinn hefst
stundvíslega.
Bókasala Mentaskólans verður
opin í dag kl. 10—12 og 1—4 í
íþöku og á sama tíma alla vikuna.
„Forðum í Flosaporti“ verður
leikið í Iðnó annað kvöld kl. 8y2.
Varðarfundur verður haldinn í
Varðarhúsinu n.k. föstudagskvöld
kl. 8Y2. Jakob Möller fjármála-
ráðherra talar á fundinum.
„Maðurinn með mörgu andlitin“
heitir amerísk kvikmynd, sem
Gamla Bíó sýnir í fyrsta skifti í
kvöld. Aðalhlutverkin leika Akim
Tamiroff, Llovd Nolan og Patricia
Morison.
Happdrætti, á hlutaveltu Fram,
27. okt. 1940. Þessi númer hlutu
vinning: 13298 fólksbifreið, 9930
matarforði, 2126 málverk eftir Ei-
rík Jónsson, 12296 ljósmynd frá
Ólafi Magmissyni, 8864 kol 500
kg., 10352 farseðill til ísafjarðar,
4649 skíðasleði. Vinningarnir sæk-
ist í Verslun Sig. Halldórssonar,
Öldugötu 29, eða Lúllabúð, Hverf-
isgötu 59.
títvarpið í dag:
15.30 Miðdegisiltvarp.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.30 Symfóníutónlgikar (plötur):
Symfónía eroica (Hetjuhljóm-
kviðan) eftir Beethoven.
21.30 Tónleikar Tónlistarskólans.
Skiðaferð
á Laogfökui;
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ÁSTANDS-ÚTGÁFA
leikið í Iðnó annað kvöld kl. 8!/2 .
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag og eftir
kl. 1 á morgun. — Sími 3191.
B. S. í.
Símar 1540, þrjár línur.
Góðir bflar. Fljót afgreiðria.
BEST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLAÐINU.
LOKAÐ
verður frá hádegi
i dag vegna jarð-
arfarar.
Jóh. Ólafsson & Co.
Systir okkar,
JÓHANNA NÍELSDÓTTIR,
andaðist að Vífilsstöðum laugardaginn 26. október.
María Níelsdóttir. Ingibjörg Níelsdóttir.
Jarðarför bróður míns,
MAGNÚSAR HELGASONAR,
fer fram fimtudaginn 31. þ. mán. og hefst með kveðjuathöfn í
Kennaraskólanum kl. 2 e. hád.
Jarðað verður frá Dómkirkjunni og verður athöfninni þar
útvarpað.
Ágúst Helgason.
Jarðarför sonar okkar og bróður,
RAGNARS V. STEINÞÓRSSONAR, “
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 30. þ. m. og hefst
með bæn á heimili hans, Laugaveg 160, kl. 2 e. h.
Foreldrar og systkini.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓNÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
frá Einarshöfn.
Eiginmaður, börn, tengdabörn og barnabörn.
Var nú haldið austur í Þóris-
dal, sem er eins og kunnugt er
einhver merkasti dalur í óbygð-
um.
Skriðjökullinn úr Þóris-, Geit-
lands- og Bláfellsjökli liggja
niður í dalinn, en er nú að mestu
í kafi vegna hins nýja snjós, en
umhverfið alt vel lagað til skíða-
ferða. *
Ferðafjelag íslands efndi tij
gönguferðar á Vífilsfell s. 1,
sunnudag og tóku þátt í förinni
60—70 manns. Var förin hin á-
nægjulegasta og útsýni dásam-
lega fagurt í góða veðrinu af
Vífilsf elli.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför mannsins míns og föður okkar,
ÖGMUNDAR JÓNSSONAR,
Kaldárhöfða.
Elísahet Guðmundsdóttir og synir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför
GUÐMUNDAR ÞORSTEINSSONAR
frá Sigurvöllum á Akranesi.
Fyrir hönd vandamanna.